Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SÍMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð í lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Kreppa Alþýðubandalags Áfall Alþýðubandalagsins var mikið í kosningunum. Talið er víst, að uppgjör innan flokksins sé hafið og það nái til allra stofnana flokksins. Eðlilega er rætt, að flokkurinn stríði við tilvistarvanda. Blaðamaður Þjóð- viljans tíundar tapið í grein í Þjóðviljanum í gær. Hann segir réttilega, að Alþýðubandalagið og helsti forveri þess, Sósíalistaflokkurinn, hafi aldrei fengið minna fylgi í kosningum og aldrei tapað jafnillilega. Höfuðáfallið hafi verið í einu helzta víginu, Reykjavík. Blaðamaður- inn minnir á, að í kosningunum 1942 hafi gerzt þau pólitísku tíðindi, að Sameiningarflokkur alþýðu, Sós- íalistaflokkurinn, hafi orðið stærri en Alþýðuflokkur- inn og hafi kratar síðan orðið að sætta sig við hlutskipti litla bróður gagnvart flokknum til vinstri við sig. Þá bendir Þjóðviljinn á, að kosningarnar á laugardaginn hafi verið hinar þriðju, sem Alþýðubandalagið tapar, síðan flokkurinn vann sigur 1978, og hafi flokkurinn tapað rúmlega 40 prósentum af fylgi sínu. Margt kemur til, að slíkt áfall hefur orðið fyrir þenn- an flokk íslenzkra sósíalista. Kvennalistarnir taka auðvitað bróðurpartinn. En sá flokkur, sem öðrum frem- ur gerir tilkall til að teljast vörn verkalýðsins, ætti að geta staðið slíkt af sér. En jafnvel það, sem eftir er af Alþýðubandalaginu, er margklofið lið. Líkur eru meiri á frekara hruni en endurreisn. Fyrst má nefna klofning- inn milli svonefndrar lýðræðiskynslóðar og flokkseig- endafélagsins. Flokkseigendur eiga rætur í Sósíalista- flokknum gamla. Hannibal átti í útistöðum við það lið, þegar hann var liðsmaður Alþýðubandalagsins. Flokks- eigendur halda utan um sitt. Þeir hafa ekki leyft lýðræðiskynslóðinni að fá nema smábita. Lengi var sundrung milli helztu forystu flokksins og forystumanna í verkalýðshreyfingunni. Flokksforystunni þóttu menn eins og Ásmundur Stefánsson semja af of mikilli hóg- værð, meðan hægri stjórn var í landinu. Síðar var samið vopnahlé milli þessara arma. En nú vilja margir kenna forystu Alþýðusambandsins, Ásmundi og félögum hans, um ósigurinn. Aftur gæti orðið gliðnun iriilli forystu flokksins og verkalýðsmanna. Friður hefur hins vegar aldrei verið saminn við lýðræðiskynslóðina. Þá er fólk eins og Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Helgadótt- ir nátengt lýðræðiskynslóðinni og því í baráttu við flokkseigendur og Svavar Gestsson. Þetta sundraða lið hefur nú hafið uppgjör í flokkn- um. Líklegt er, að Svavar Gestsson víki brátt úr formennsku, þótt flokkseigendur kunni að vilja halda honum. Þetta verður langvinnt og sárt uppgjör. Vel gæti svo farið, að átök yrðu slík, að flokkurinn klofn- aði opinberlega í tvo smáflokka. Þannig fór um bróður- flokk Alþýðubandalagsins í Finnlandi, flokk, sem var lengi stór. Svo klofinn sem flokkurinn hefur verið, hefur öll barátta hans farið út og suður. Þá hefur ásjóna flokks- ins verið slæm í öðru. Flokkurinn var löngum samsafn óánægjuafla. Hann kusu þeir, sem ekki undu kerfinu. Þetta er að miklu liðin tíð. Nú eiga hinir óánægðu aðra kosti. Öðru fólki þykir Alþýðubandalagið leiðin- legt. Eins og Þráinn Bertelsson Þjóðviljaritstjóri sagði í blaði sínu í gær er venjulegt fólk annars lítið hrifið af flokki, sem grunaður er um að vera á móti sjón- varpi, vídeói, útvarpi, kreditkortum, sólarlandaferðum, bílum, tölvum, farsímum, einbýlishúsum - eða yfirleitt á móti öllum sköpuðum hlutum. Haukur Helgason Kjósendur hafa fellt dóm Til Sverris Hermannssonar Kæri vinur. Eins og þú veist manna best hafið þið þingmenn og aðrir frambjóðendur verið á mikilli yfirreið um landið í leit að undarleg- um hjörtum kjósenda og að sjálf- sögðu hafið þið reynt allt sem ykkur KjaUaiinn Garðar Karlsson skólastjóri Laugalandsskóla, Öngulsstaöahreppi um eigin málefni þá skal hún sko borga það dýru verði og samfélagsleg málefni eins og skóla skal eingöngu reka af heimaaðila? Kjósendur hafa fellt dóm yfir menntastefnu Ég veit að það getur verið erfitt að svara svona spumingum en ef þú reynir af öllum mætti þínum og í fullri alvöru þá er ég viss um að þú finnur og skilur hvað ég er að fara. Þú veist að kjósendur hafa nú fellt sinn dóm yfir þeirri menntastefnu sem þú hefur rekið í ráðherratíð þinni. Þú veist að flokksbróðir þinn á Norðurlandi eystra náði ekki kjöri. Þú veist líka að vinur þinn, Halldór Blöndal, var verulega hræddur um sig fyrir kosningamar vegna að- gerða þinna 13. janúar 1987 og þess að setja neinn annan en Sturlu Kristjánsson í embætti fræðslustjóra og vil ég sérstaklega benda á þrjú atriði: a) Allir vita að við teljum Sturlu Kristjánsson þann hæfasta og viljum hafa hann áfram. b) Við erum enn þeirrar skoðunar að brotin hafi verið lög um rétt- indi og skyldur opinberra starfs- manna og viljum að Sturlu verði bættur sá réttarmissir. c) Enn hefur ekkert komið fram sem réttlætir embættisgjörð þína og því vil ég benda á að ef þú færir að setja einhvem annan en Sturlu í þetta embætti gegn vilja okkar norðanmanna þá er lík- legt, ef ekki öruggt, að eftirmaður þinn verður þér ekki þakklátur fynr að skilja við Norðurland eystra í ástandi sem líkja mætti við styrjöld. Þú sérð, kæri vin, að það væri óráðlegt að stíga skrefið til fulls og því vil ég ráða þér heilt og segja: „Ekki gera neitt illt í þessu máli.“ Við munum telja þig mann að meiri fyrir þann sjálfsagða hlut að viður- kenna mistök þín, ekki síst ef þú ert tilbúinn að láta kyrrt liggja þannig að friður megi ríkja í skólamálum hjá okkur á næsta vetri. Eilíf en ekki óskeikul A skrifum mínum sést að ég geri ekki ráð fyrir þér sem ráðherra menntamála í næstu ríkisstjórn, það em ýmis teikn á lofti sem benda til þess. Við verðum að horfast í augu við staðreyndirnar og viðurkenna að við erum e.t.v. eilíf en alls ekki óskeikul. Hitt er svo annað mál að næsti ráðherra, hver sem það verð- ur, getur ekki látið hjá líða að skoða innviði ráðuneytis síns. Það má ekki endurtaka harmleik af þessu tagi og því er óhjákvæmilegt að grannskoða alla þætti málsins út frá mannlegu sjónarmiði. Okkur er ljóst að um erfiðleika hefur verið að ræða í sam- skiptum ráðuneytisins og fræðslu- umdæmisins en þú veist að við teljum það fyrst og fremst vera starfsmönnum þínum að kenna. Með þessu er ég ekki að segja að við séum lausir undan ábyrgð, nei, öðru nær. En við hefðum viljað fá að ræða þessi mál á öðrum grunni en ráðu- neytið hefur gert. Við höfum ekki verið með yfirlýsingar um illt inn- ræti og vonsku ykkar en höftrni þess í stað reynt að benda á mistökin og verðum eflaust manna fyrstir til að fyrirgefa og biðja um fyrirgefningu. Vonandi fær þetta mál svo farsæl- an endi að allir geti vel við unað og „friður ríki í fjalladalnum". Garðar Karlsson „Þú veist að kjósendur hafa nú fellt sinn dóm yfir þeirri menntastefnu sem þú hefur rekið í ráðherratíð þinniA var unnt til að sannfæra þessi hjörtu um ágæti ykkar og þeirra flokka sem þið eruð frambjóðendur fyrir. Ekki gátuð þið látið þessa baráttu fram fara án skítkasts og leiðinda en ykk- ur er vorkunn, baráttan er ekki mennsk. Við skulum hugleiða hvers konar skítverk þið eruð að vinna. í fyrsta lagi þurfið þið að sanna fyrir okkur hversu vel þið hafið unnið á síðasta kjörtímabili og dragið þá auðvitað fram dugnað ykkar við að láta okkur smælingjana drepa niður verðbólguna. Það verður að teljast aðdáunarvert hugrekki sem þið sýn- ið með því að koma svona til okkar og þurfa að ljúga svona upp á ykk- ur. Þið hafið einnig talað um • stöðugleikann í efhahags- og at- vinnumálum og enn þurfið þið að ljúga upp á ykkur. Hvar er þessi stöðugleiki? Er hann á landsbyggð- inni? Er hann á höfuðborgarsvæð- inu? Ég veit það ekki frekar en þú enda getur þensla varla talist stöð- ugleiki því allir sem þora að opna augun vita vel að á suðvesturhom- inu hefur verið svo atorkumikil þensla að fjármagn og mannafli hef- ur hreinlega sogast til ykkar. Við sem búum úti á landsbyggðinni höf- um ekkert getað gert við þessu og ef til vill þurfum við að Iýsa yfir sjálf- stæði hvers landshluta til að vinna gegn þessu. Hefur þú hugleitt hvað mundi gerast ef hver landshluti yrði sjálfstæður? Ég hugsa að við hér fyrir norðan gætum alveg komist af án ykkar að vemlegu leyti en ég er ekki eins viss um að þið á „hom- inu“ gætuð lifað án okkar. Mig langar að spyrja þig, kæri vin: Hvar em flest þjónustustörfin? Hvar em flestar afætumar? Er stjómsýslan vel sett í borginni? Gæti komið okk- ur vel að ráða betur málum heima fyrir? Er sjálfsagt að líta svo ó að ef landsbyggðin á að hafa meiri völd sem á eftir fylgdi. Halldór er sóma- maður og hefur sagt að ef hann hefði verið í þinni stöðu á þessum tíma hefði hann ekki rekið fræðslustjór- ann. Hann hefur ömgglega áttað sig á þeim „kónum“ sem ráðuneyti þitt gista. Ég veit að þú ert búinn að sjá „...er vert að hafa i huga nokkur atriði sem styðja þá skoðun okkar að þú ættir ekki að setja neinn ann- an en Sturlu Kristjánsson í embætti fræðslustjóra". það og ég veit líka að þú vilt ekki bæta gráu ofan á svart og þar af leiðandi setur þú engan í stól fræðslustjórans en lætur þess í stað eftirmann þinn í ráðherraembættinu um það verk. Flokkur þinn hefur tapað of miklu á þessu máli nú þegar. Ef þú hins vegar ert ákveðinn að gera eitthvað í málinu þá er vert að hafa í huga nokkur atriði sem styðja þá skoðun okkar að þú ættir ekki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.