Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1987. 45 Sviðsljós Eigur Jósefínu Baker Fagurlitur fjaðrabúnaðurinn tilheyrði eitt sinn Jósefínu Baker og var seldur fyrir of fjár á uppboði i Parisarborg siðastliðinn þriðjudag. Simamynd Reuter Blómatími kabarettáranna var í sviðsljósinu á uppboðinu sem haldið var á jarðneskum eigum Jósefínu Baker að viðstöddu fjölmenni í fyrra- dag. Fimm hundruð safnarar og aðdáendur mættu í Hotel Drouot Auction House í Parísarborg og var hart barist um eigur hins látna listamanns. Fatnaður, listaverk, póstkort, ljósmyndir og smáhlutir runnu út sem heit- ar lummur en hæst verð fékkst fyrir bronsstyttu af Jósefínu naktri - hundrað og fimmtíu þúsund frankar og nafn hins heppna kaupanda fæst ekki gefið upp. Brian Bouillon-Baker er tuttugu og níu ára gamall fóstursonur Ba- kers. Hann sagði á uppboðinu að það væri sorglegt að sjá hluti sem svo margar minningar væru tengdar við fara í ókunnar hendur. Hins vegar væri betra að þetta kæmi fyrir almenningssjónir heldur en að það ryk- félli einhvers staðar engum til ánægju. Brian bætti því við að gripirnir hefðu selst á mun hærra verði í New York og London. Síðustu árum ævinnar eyddi Jósefína Baker til þess að aðstoða munað- arlaus börn víða um heiminn og í baráttu fyrir auknum mannréttindum. Þrátt fyrir háan aldur og slæma heilsu neyddist Jósefína oft til að koma fram til þess að afla fjár fyrir sig og fjölmörg fósturbörn og lést árið 1975 í Parísarborg - örfáum dögum eftir sina síðustu sýningu. Þegar hún var borin til grafar fylgdu henni þúsundir Parísarbúa og í þeirra huga lifir hún ennþá - hin ógleymanlega La Baker sem söng og dansaði sig inn í hjörtu borgarbúa á tuttugasta áratugnum og hélt velli sem slík næstu fimintíu árin. Santana flatur Það eru trúmálin sem leggja kappann svo hressilega og biður Carlos þarna til æðri máttarvalda að sið sanntrúaðra gyðinga. Staðurinn er múrinn eini og sanni í Jerúsalem en Santanaflokkurinn er á hljómleika- ferð um ísrael um þessar mundir. Simamynd Reuter Risavaxin beibídúkka Þeir sem telja allt allrastærst í Texas ættu að sjá dúkkurnar i Parisar- borg! Franski hönnuðurinn Philippe Stark gerði hlunkinn af pissu- beibídúkkugerðinni sem er hvorki meira né minna en sex metrar á hæð og þrir metrar í þvermál. Ferlikinu var síðan komið fyrir í leikfangabúð í háborg tiskunnar en nýtur ekki almennra vinsælda smæstu borgar- anna. Drengurinn á Reutermyndinni er átján mánaða og leikur sér við viðráðanlegri fígúru á svæðinu og fetar þar eflaust i fótspor margra annarra jafnaldra sinna. En brúðan dregur að sér fjölda fullorðinna með fullar hendur fjár og þar með er tilganginum náð að mati verslunar- eigendanna. Ólyginn sagði... Sly Stallone þarf ekki að láta sér leiðast þótt eiginkonan Gitte Nielsen verði að heiman. Karl getur til skiptis starað á borðstofuborðið sem hefur ígreypta andlitsmynd Gitte á borðplötunni eða farið inn í stofu og virt fyrir sér sófa- borðið sem er lagað eins og líkami þessarar dönsku sýning- arstúlku. Fyrir borðstofuborðið greiddi Sly lítil hundrað og fimmtíu þúsund en tvö hundruð hurfu í sófaborðið. Rambo karl- inn hefur efni á borðunum tveimur og nokkrum slíkum til viðbótar því ekki einungis malar hann gull með skrokknum á sér heldur er eiginkonan til sömu hluta brúkleg líka. Jackie Onassis er martröð í hlutverki tengda- móðurinnar að mati Eds Schlossberg. Hann fær engan frið á heimilinu með Karólínu sína Kennedy fyrir heimsóknum Jackie og reynir nú að koma sem flestum slíkum glaðningum út á næsta veitingahús. Forseta- ekkjan hefur sérstæðan hæfi- leika til þess að láta í Ijósi þegjandi vanþóknun á smekk hinna nýbökuðu hjóna í hús- búnaðarmálum og listum - að ekki sé minnst á líkamsvöxtinn. Ed segir vinum sínum að tengdamóðirin sé haldin sjúk- legri megrunaráráttu og drag'i Karólínu með í gulrótaát og leik- fimitíma en gefi sér lítinn tima til þess að íhuga merkilegri mál- efni. Hjónabandið heldurennþá en að mati kappans er það lítt fýsilegt hlutskipti að eyða ævinni i faðmi Kennedyklans- ins. Christie Brinkley og Brooke Shields áttu góðan leik í partíi sem haldið var i New York á dögunum. Tilefnið var kvikmyndin The Inquiry og mættu á staðinn aðstandendur filmunnar og aðrir velunnarar. Þessar ægifögru leikkonur nutu þess að vera ekki í sviðsljósinu þá stundina og fettu sig og brettu sem mest þær máttu. Auðvitað voru þær svo lús- heppnar að Ijósmyndari af snöggu gerðinni var á staðnum þannig að augnablikið er nú all- mörgum ógleymanlegt. Þetta var annars með eindæmum ágæt hreyfing fyrir andlitsvöð- vana þannig að kvensurnar halda unglegu útliti enn um sinn. ‘M- : ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.