Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. 15 Hvað tekur við? Þannig spyrja menn sig eftir hverj- ar kosningar og þeir sem spáðu vitlausast fyrir þær eru nú tilbúnir með skýringar á því sem þeir töldu útilokað að gerðist. Kjósendur hafa hins vegar hver og einn tekið sína ákvörðun og niðurstaðan er sú að ekki er hægt að mynda ríkisstjóm nema með þátttöku a.m.k. þriggja flokka. Það verður ekki gengið fram hjá því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið þungt högg. Flokkurinn tapar nærri fjórðungi af fylgi sínu. Og það er í sjáljú sér svipað og gerst hefur þegar klofhingur kemur upp í stjóm- málaflokkum. Annars vegar hverfur vaxtarbroddurinn og hins vegar finna óánægðir flokksmenn einfalda leið til þess að refsa flokksforystunni án þess að þeir séu að „svikja flokk- inn“. A hinn bóginn mega menn ekki örvænta. Þetta er í fyrsta sinn í sögu flokks- ins sem alvarlegur klofningur kemur upp en það er ekki þar með sagt að hann verði viðvarandi. Ég veit vel að ýmsir af fylgismönnnum Borgara- flokksins em miklir áhugamenn um að flokkurinn lifi sem lengst. Ég held hins vegar að foringi hans vilji gjaman sjá þá stund að aftur verði einn Sjálfstæðisflokkur. KjaUaiinn Haraldur Blöndal lögfræðingur Og þá er að vinna að því I kosningunum í Reykjavík galt Alþýðubandalagið afhroð. Þar féll Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ. Hins vegar náði Aðalheiður Bjam- freðsdóttir kjöri sem þriðji maður Borgaraflokksins. Það kom sem sagt í ljós að þau Albert Guðmundsson hafa meira fylgi en Alþýðubandalag- ið. Og hvert skyldu þau sækja sitt fylgi. Skv. könnun Félagsvísinda- stofnunar sækja þau fylgi sitt fyrst og fremst til þeirra sem minna mega sín, til þeirra sem Alþýðubandalagið telur sig hafa einkarétt á stuðningi. Albert Guðmundsson er í hugum þessa fólks dæmið af þeim sem brýst til metorða úr fátækt. Hann er þann- ig eins og fyrirmynd og fólk telur að hann skilji betur kjör þessa fólks og hlutskipti. Þessir kjósendur vilja margir hafa stjórnmálamenn sem hægt er að leita til og greiða götu þeirra, m.a. vegna þeirra einföldu ástæðu að þeir hafa ekki uppburði í sér til þess að tala við embættis- menn eða bankastjóra. Þá er farið til fulltrúa litla mannsins. Margir tala um pólitíska spillingu í þessu sambandi. Ég held að það sé rangt. Miklu frekar er hér um greiðasemi að ræða sem kostar ekki neitt. Þessir kjósendur, sem Albert hefur höfðað til, eru flestir kjósendur Sjálf- stæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkur- inn verður að vinna traust þeirra á nýjan leik. Kosningar eru uppgjörstími. Menn segja ýmislegt í kosningabaráttur.ni sem rétt er að gleyma eftir kosning- ar. Stjómmálamenn verða að hafa marga kosti og m.a. verða þeir að hafa góða matarlyst, vítt kok og hraustan maga. En hvað tekur við? Ég held að það sé ljóst að mjög ólíklegt sé að Sjálfstæðisflokkurinn og Borgaraflokkurinn vinni saman í næstu ríkisstjóm. En þó getur það gerst. Þegar viðreisnarstjómin féll kom- ust Samtök fijálslvndra og vinstri manna í oddaaðstöðu. Þá var mikið talað um heiftir milli Alþýðubanda- lags og Samtakanna. Þrátt fyrir það mvnduðu þessir flokkar ríkisstjórn með Framsókn. Það varð svo bana- biti Samtakanna. Það tala margir um Kvennalist- ann. Og menn spyija. vilja þær þingkonumar taka á sig ábyrgð? Ég held að það muni ekki standa á því að þær vilji sýna ráðherraábyTgð. Hins vegar er ég ekki eins viss um hvernig takist að ná samkomulagi við þær sem dugar til þess að setja saman ríkisstjóm. Kvennalistinn hefur ekki sætt neinni gagnn'mi fi-á því að hann komst fyrst til áhrifa á Alþingi. - einkum hafa alþýðu- bandalagsmenn verið typpilsinnaðir gagnvart þeim og nánast verið bann- að að segja um þær styggðaryrði. Það hefur svo einfaldlega leitt til þess að vinstri sinnað fólk. sem vill ekki kjósa Alþýðubandalagið. setur atkvæði sitt á Kvennalistann. Kvennalistinn er að sínu leytinu til andhverfa Borgai-aflokksins. Þar við bætist svo allt að því sjúkleg andúð einstakra talsmanna Kvennalistans á karlmönnum. sbi-. sjónvarpsþátt þeima. en hann var með hliðsjón af körlum og konum sviðsettm- í anda Jósefs Göbbels þegar hann var að útskýra aríska yfirburði, Kú Klúx Klan þegar þeir vom að útskýra svertingja eða Mao Tse Tungs þegar hann var að útskýra andstæðinga menningarbyltingarinnar. Alþýðuflokkurinn er talsmaður þess að rætt verði við Kvennalistann um stjórnarmyndun. Það var einnig hugmynd Jóns Baldvins eftir kosn- ingar 1983. Jón er snjall stjóm- málamaður og lítur til þess að geta komið á góðri stjóm án þátttöku Framsóknarflokks og Alþýðubanda- lags. Þá gæti hann komið að sínum málum og haldið áfram baráttunnni gegn Alþýðubandalaginu en það er draumur Jóns að víkja Alþýðu- bandalaginu er.danlega til hliðar í stjórnmálum. Hann hefur alltaf ve- rið talsmaður ríkisstjómar í anda viðreisnarinnar. - ég er hins vegar nokkuð svartsýnn á að það takist að koma Kvennalistanum í sæng með Jóni og Þorsteini. Ég held að það sé of mikil andstaða við Kvenna- listann í þingflokki Alþýðuflokksins og nærri því svipuð andstaða meðal kvennanna í garð Alþýðuflokks. Ég held raunar að þeim iíki betm’ við framsóknarmenn. Stjórnarmynstrið Eg held þess vegna að líklegasta stjórnarmynstrið verði þegar upp er staðið samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ásamt þriðja flokki. Ekki veit ég hver hann verð- ur - eðlilegast er að gera ráð fyrir Alþýðuflokki. Ég er hins vegar sannfærður um að Þorsteinn Pálsson verður forsæt- isráðherra. Hann er formaöur stærsta flokksins. Ég á von á því að stjómarmyndun- arviðræður taki nokkum tíma. Það er farin að myndast hefð um. að allir stjómmálamenn fái formlega að reyna stjórnannyndun. - og það tek- ur sinn tíma. Þá em blóðnætmmar liðnar og menn farnir að taka gleði sína. Arið 1978 galt Framsóknar- flokkurinn afhroð. Enginn átti von á því að Ólafur Jóhannesson myn- daði ríkisstjóm. Hann hafði einnig orðið fyrir því að Möðruvellingar svákust úr flokknum. En þrátt fyrir þetta myndaði Ólafúi’ ríkisstjórn. Sú stjórn lifði að vísu aðeins i eitt ár. En þá var kosið aftm’ og eftir þær kosningar var Framsóknai’flokkur- inn kominn með nær 25° 0 atkvæða og Ólafur öflugri stjórnmálamaður en nokkru sinni fyrr. Haraldur Blöndal „Ég held þess vegna að líklegasta stjórnar- mynstrið verði þegar upp er staðið sam- stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks ásamt þriðja flokki.“ Raunverulegar vörur fyrir raunverulega peninga „ .. .óheimilt er að veita rangar, ófullnægj- andi eða villandi upplýsingar í auglýsing- um eða með öðrum hætti“. Gestir mínir og ég sjálf viljum helst drekka ávaxtadrykki með matnum. Hvorki gos né bjór. Þess vegna var ég mjög ánægð að sjá nýja vöru fyr- ir nokkrum mánuðum - plastflösku sem var með mynd af ananasávexti og fallegum ananassneiðum. Heiti vörunnar var: Egils - ananas- þykkni, verð kr. 91,70. í læsilegum bókstöfum var fyrir neðan: Magn 0,98 lítri. Blandist 1:5 til 1:7. Mjög gott fannst mér þangað til ég reyndi að drekka blönduna 1:5. Ekkert ananasbragð. Ég las þá smá- texta fyrir neðan: Innihald: Sykur, ananasbragðefni, sýra (E330), rot- vamarefni (E 211). I stuttu máli ekki raunveruleg vara þótt ég hefði greitt raunverulega peninga. En hvað segja lögin? Þess vegna athugaði ég fleiri teg- undir þykkna og fann oftast að um „íslenskt vatn“ og bragðefni var að ræða. En hvað segja lögin? Lög nr. 56 1978, 16. maí (lög um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti) segja í V. kafla: KjáHaxinn Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur „Óréttmætir viðskiptahættir og neytendavemd", 26. grein: í at- vinnustarfsemi, sbr. 2. gr., er óheim- ilt að aðhafast nokkuð það sem brýtur í bága við góða viðskipta- hætti, sem tíðkaðir em í slíkri starfsemi eða er óhæfilegt gagnvm-f neytendum. 27. gr. segir: Óheimilt er að veita rangar. ófullnægjandi eða villandi upplýsingar i auglýsingum eða með öðrum hætti eða beita öðrum slíkum viðskiptaaðferðimi. sem sama marki em brenndar enda séu upplýsingar þessar eða viðskiptaaðferðir fallnar til að hafa áhrif á eftirspurn eða framboð vara. . . Eftir því sem ég get séð best er mynd á plastflösku brot á 26. og 27. gr. laga enda gróflega misvísandi. Sýndur er ávöxtur sem ekki er safi úr i flöskunni. Sjá Ijósmynd fyrir ofan. Neytendur sammála Ég held að allir nertendur mundu vei’ða sanmiála mér ef ég færi fram á að: 1) Mvnd af ávöxtum megi aðeins vera á ílátum sem raunverulega innihalda ávexti eða safa úr þeim. 2) Sé varan merkt með orðinu ..bragðefni" er nauðsynlegt að skýra frá um hvaða efni er að ræða til við- vömnar þeim sem eru haldnir ofnæmi. 3) Magn af sykri og af þykkni (sé þykkni í flöskunni) verði gefið upp á vörumiða. Eiríka Á. Friðriksdóttir „ .. .er mynd á plastflösku brot á 26. og 27. gr. laga enda gróflega misvís- andi. Sýndur er ávöxtur sem ekki er safi úr i flöskunni. Sjá Ijósmynd fyrir ofan.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.