Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Qupperneq 12
12
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
SALAN
P. SAMÚELSSON & CO. HF
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SÍMI (81 (687120
Toyota Land Cruiser G STW árg.
’85, ekinn 26.000, sjálfsk., vökvast.,
hvítur. Verð 1.150.000.
Toyota Land Cruiser HR G STW
árg. ’86, ekinn 5.000, rauður, 5 gíra
vökvast. Verð 1.330.000.
Mazda 626 2000 GLX árg. ’85, ekinn Toyota Cressida GLI árg. '83, ekinn
37.000, sjálfsk., vökvast. og fl., grá- 77.000, sjálfsk., vökvast. og fl. Verð
sans. Verð 480.000. 450.000.
Toyota Tercel 4x4 árg. ’83 og árg. Toyota Camry DX árg. ’83, ekinn
’84, brún-sans. Verð 390.000 og 60.000, vökvast., 5 gíra, græn-sans,
430.000. fallegur bill. Verð 380.000.
Toyota Corolla Sedan DX árg. ’86, Nissan Sunny Coupé árg. ’84, ekinn
ekinn 9.000, 5 gíra, grá-sans. Verð 64.000, 5 gira, rauð-sans. Verð
420.000. 320.000.
Volvo 244 GL árg. 79, ekinn Toyota Land Cruiser II árg. ’86,
105.000, vökvast., 4 gira. Grænn bensín, ekinn 22.000, brún-sans.
fallegur bill. Verð 270.000. Verð 790.000.
Mazda 929 árg. ’82, ekinn 53.000, Toyota Camry GL árg. ’85, ekinn
vökvast., sjálfsk. blá-sans. Verð 22.000, vökvast., 5 gíra, blá-sans.
350.000. Verð 530.000.
Toyota Carina DX STW árg. ’82, Toyota Tercel 4x4 árg. ’84, ekinn
ekinn 41.000, beige-sans, sjálfsk. 46.000 m/mælum, tvílitur grænn.
Verð 320.000. Verð 430.000.
Volvo 244 GL árg. '82, ekinn 66.000, Daihatsu Charade árg. '85, ekinn
vökvast., sjálfsk., beige. Verð 22.000, 5 gíra, gull-sans. Verð
420.000. 280.000.
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 13-18.
Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söluskrá
vi___________J
HA6ZAUP
^ /WKLA&ZAtAT
Neytendur
i>v
Sælir dagar fram undan: nautakjöt i hvert mál.
Refir og minkar
éta nautasteik
á 3-7 kr. kílóið
Refir og minkar í loðdýrabúum um
landið allt munu úða í sig í sumar og
haust nautakjöti sem loðdýrabændur
koma til með að kaupa á 3-7 krónur
kílóið. Úr matvöruverslun kostar kíló-
ið af nautahakki um það bil 350
krónur. Nautakjötið er af birgðum sem
sláturhús þurfa að losna við til að
rýma fyrir nýslátruðu.
Gert er ráð fyrir að selja með þessum
hætti 600 tonn af nautakjöti og hefur
Framleiðsluráð landbúnaðarins milli-
göngu um söluna. Kjötið er eins til
tveggja ára og vel hæft til manneldis.
Það er selt í loðdýrafóður til að auð-
vejda sölu á nýrra nautakjöti.
í allan vetur ræddu sláturleyfishafar
um leiðir til að minnka nautakjöts-
birgðir í landinu. Rætt var við Sovét-
menn um kaup á nautakjöti af dýrum
sem slátrað var 1985 og fram á árið
1986. Ekkert varð úr sölu þar sem
Sovétmenn vildu ekki kaupa eldra
kjöt en 150 daga.
Þá voru uppi hugmyndir um að selja
kjötið á neytendamarkað með ein-
hverjum afslætti. Þeirri hugmynd var
hafhað með þeim rökum að nautakjöt
á útsölu myndi draga úr sölu á öðru
kjöti, meðal annars lambakjöti og nýju
nautakjöti. Andstæðingar nautakjöts-
útsölu sögðu að með þeim hætti yrðu
söluvandræði á nautakjöti færð yfir á
lambákjöt og jafnvel gæti slík útsala
dregið úr sölu á kjúklingum líka.
Undir þessa röksemd tóku sumir kjöt-
kaupmenn og veitingamenn.
Aðrir kjötkaupmenn sýndu mikinn
áhuga á að fá ódýrt nautakjöt í versl-
anir sínar. Þeir telja að vinna megi
góða og fullframbærilega kjötvöru úr
eins til tveggja ára gömlu frystu
nautakjöti.
Þessum kjötkaupmönnum varð þó
ekki að ósk sinni því með bréfi, dag-
settu 13. apríl síðastliðinn, ákvað
Framleiðsluráð landbúnaðarins að
bjóða loðdýrafóðurstöðvum nauta-
kjötið á 7 krónur kílóið. Fóðurstöðv-
amar, sem flestar eru í eigu
loðdýrabænda, vilja gjaman kaupa
kjötið ep á lægra verði en Framleiðslu-
ráðið býður. A samningafundi í næstu
viku munu loðdýrabændur trúlega
bjóða 3-4 krónur í kílóið af þessu
kjöti.
Miklar líkrn- em á að af sölu verði
þótt enn hafi ekki samist um verð.
Framleiðsluráð landbúnaðarins mun
kaupa um það bil 600 tonn af nauta-
kjöti af sláturleyfishöfum á 120-145
milljónir og selja loðdýrabændum
kjötið á 2-4 milljónir. Mismunurinn
kemur úr Framleiðnisjóði landbúnað-
arins sem pr opinber sjóður.
-pv
í umferðinni:
Getur þú ekið hringveginn strax í dag
- án þess að þurfa að liggja undir bílnum í heila viku áður til að gera við?
Nú er bifreiðaskoðun í fullum gangi
víðast hvar um landið. Sums staðar
er hún að verða búin eða að byrja.
Þú kannast eflaust við það, ef þú ert
bíleigandi, að þegar þú fórst með bíl-
inn í skoðun þurftirðu að bíða í langri
biðröð eftir því að komast að og loks-
ins þegar bílinn var skoðaður þá var
jafhvel eitthvað í ólagi og þú þurftir
að fara aðra ferð.
Nýju umferðarlögin
Með nýjum umferðarlögum og
breyttri reglugerð hefur þetta íyrir-
komulag breyst og er komið nú þegar
til framkvæmda. Komi það fyrir að
einhverju sé ábótavant við öryggis-
tæki bílsins, og þú fáir græna miðann,
þarftu ekki lengur að koma með bílinn
aftur í endurskoðun. Farir þú með bíl-
inn á viðurkennt verkstæði og látir
þar gera við það sem í ólagi var færðu
hvítan miða á verkstæðinu og þarft
ekki að fara aftur í Bifreiðaeftirlitið.
Verkstæðið lætur vita að bíllinn sé
kominn í lag. Þú skalt samt spyrjast
fyrir, áður en þú lætur verkstæði gera
við bílinn, hvort það hafi heimild frá
Bifreiðaeftirlitinu, því ekki eru öll
verkstæði með hana.
Viðhaldið á bílnum
Við höfum heyrt suma bíleigendur
tala um það að nú þurfi að fara að
lagfæra bílinn til að koma honum í
gegnum skoðun. Það þurfi að herða
út í bremsur, laga handbremsuna,
koma ljósunum í lag o.s.frv. Sem betur
fer er þessi hópur fámennur, því flestir
skilja nauðsyn þess að hafa bílinn í
lagi. Eg er viss um að þú ert sammála
í umsjá
Bindindisfélags
ökumanna
mér um að ekki er spennandi að mæta
í umferðinni bíl sem er stórhættulegur
vegna þess að stýrisbúnaður eða
bremsur eru í lélegu ástandi.
Auðvitað ber okkur sem ábyrgum
bílstjórum að gera við það sem bilar
jafnóðum en ekki að bíða með það þar
til að skoðun kemur og vera svo skjálf-
andi á beinunum þegar bifreiðaeftir-
litsmaðurinn sest upp í bílinn vonandi
að hann taki ekki eftir því að billinn
bremsar ekki á öllum hjólum eða hvað
slagið í stýrinu er of mikið.
Ábyrgðin er okkar
Við megum hreinlega ekki bjóða
okkar samferðamönnum í umferðinni
upp á þá hætt u sem af slíkum bíl stafar.
Við verðum að hafa bílinn þannig að
hann standist það álag sem upp getur
komið þegar einhver hleypur skyndi-
lega fyrir bílinn, eða bíll ekur skyndi-
lega í veg fyrir okkur. Ef þú sest undir
stýri á bíl sem ekki er með öryggistæk-
in í lagi ertu ábyrgur fyrir bílnum
hvort sem þú ert eigandi hans eða
ekki. Enginn neyðir þig til að aka slik-
um bíl.
Vert þú i hópi þeirra ökumanna sem
láta öryggi bílsins sig máli skipta og
aktu um á öruggum bíl. Þannig leggur
þú þinn skerf til aukins umferðarör-
yggis og stuðlar að bættri umferðar-
menningu okkar Islendinga. Bíddu
ekki með að láta lagfæra það sem
þarf fram að næstu skoðun, láttu laga
það strax. Hafðu bílinn ætíð í þannig
ástandi að þú getir sest beint upp i
hann og ekið hringveginn alian en
þurfir ekki að liggja undir bílnum
heila viku áður. E:G.