Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
Spumingin
Telurðu æskilegt að fólk
framvísi persónuskilríkj-
um á kjörstað?
Hans Tómasson ellilifeyrisþegi: Ég
myndi álíta það mjög sjálfsagðan
hlut og kippti mér ekkert upp við það
fyrirkomulag. Það ætti alla vega að
koma í veg fyrir mistök.
Hreggviður Guðmundsson ellilífeyr-
isþegi: Mér fmnst það alveg nauð-
synlegt í ljósi þess sem hefur gerst,
að fólk missi af atkvæðisrétti sínum
og einhver annar hafi kosið í nafni
þess. Það er eðlilegt að fólk sanni
hver það er með því að framvísa per-
sónuskilríkjum.
Elín Þórðardóttir ellilífeyrisþegi: Til
að tryggja kosningarétt hvers og eins
betur en gert er í dag finnst mér að
fólk eigi skilyrðislaust að vera krafið
um persónuskilríki á kjörstað.
ívar Gunnarsson tölvunarfræðingur:
Ég myndi álíta það traustara fyrir-
komulag og koma í veg fyrir allan
vafa. Ég held að það sé vel þess virði
að reyna það.
Magnús S. Kristinsson verslunar-
stjóri: Já, að sjálfsögðu geri ég það.
Til að koma í veg fyrir allt kosninga-
svindl er einfaldasta leiðin að skylda
fólk til að framvísa persónuskilríkj-
um.
Lilja Víglundsdóttir nemi: Já, ég
myndi telja mikilvægt að fólk sýndi
skilríkin sín svo enginn vafi væri á
að réttur aðili væri að kjósa.
Lesendur
r?Aulaauglýsing
Sambandsins' ‘
Bóndi skrifar:
Eftir að hafa lesið auglýsingu frá
skinniðnaði Sambandsins í 7. tbl.
búnaðarblaðsins Freys, er út kom
7. mars, verð ég að fá að lýsa undrun
minni yfir aulahætti þeirra er að
þessari auglýsingu stóðu fyrir hönd
Sambandsins.
Til þess að gefa lesendum innsýn
í málið ætla ég að koma auglýsing-
unni sjálfri á framfæri. En hún er
svohljóðandi: „Skinniðnaður Sam-
bandsins óskaj- eftir að kaupa
unglambaskinn er falla til á kom-
andi sauðburði. Skinnin er best að
meðhöndla á eftirfarandi hátt; eftir
fláningu á strax að kæla skinnið og
halda þeim þurrum, salta síðan með
venjulegu matarsalti. Láta það síðan
liggja á þurrum stað í eina viku í
heilu lagi og vel saltað. Aflienda
skinnin síðan kaupfélagi og skinn-
iðnaður Sambandsins mun greiða
100 kr. fyrir hvert skinn." Er það
nema von að maður undrist, vá...
heilar hundrað kronur, væn gróða-
leið það!
Gera þessir menn sér grein fyrir
að á eitt skinn þarf allavega 3 kg
af salti og það tekur að minnsta
kosti 30 mínútur að flá lambið, síðan
þarf skinnið að liggja á köldum stað
og það verður að gæta þess að það
blotni ekki. Og ofan á allt þá eigum
við bændumir líka að borga send-
ingargjaldið í viðkomandi kaupfé-
lag.
Kostnaðurinn í kringum þetta allt
saman yrði í lágmarki um 300 kr.
og þá er tekið í dæmið efhis- og
vinnukostnaður. Það er nú sem bet-
ur fer ekki svo illa komið fyrir manni
að maður þurfi að fara borga með
sér í vinnunni, en í fullri alvöm þá
er erfitt að átta sig á hvort þetta er
virkilega auglýsing eða háðslegt
skop.
í öllu falli hlýtur Sambandið að
skammast sín að sjá svona auglýs-
ingu eftir sig.
„Ég hef fylgst nokkuð með þessari íþrótt og fékk strax áhuga.“
Hvar er kennd
japónsk skylmingariist?
Arnar J. hringdi:
Mig langaði að vita hvort japönsk
skylmingarlist væri kennd héma. Ég
hef fylgst nokkuð með þessari íþrótt
og fékk strax áhuga. Ef einhver getur
gefið mér nánari upplýsingar um hvort
þetta sé kennt og þá hvar, vinsamleg-
ast hafið samband við lesendasíðuna
sem mun koma því áleiðis.
Aths. blm.:
Shobukan félagið hefúr séð um
kennslu í japanskri skylmingarlist,
það er til húsa að Laugateigi 35 í
Reykjavík. Forstöðumaður þess er
Tryggvi Harðarson og upplýsingar í
síma 26855 veitir Sigurður J. Bjöms-
son.
Brauð fyrir
sykursjúka
dýrara
H.Ó. hringdi:
Hvemig ætli að standi á því að
brauðmeti, sera sykursjúkir verða
að leggja sér til muiras, er mun
dýrara en annað brauð sem er á
markaðnum! Það bregst ekki að
brauð sem er sykurlaust er aflt að
20 kr. dýrara álíka brauði með
sykri í, að sjálfsögðu er viðmiðun
mín bundin við svipað magn.
Þetta er hlutur sem mér finnst
að megi endurskoða, enda í alla
staði mjög óeðilegt að litið sé á
brauð fyrir sykvmsjúka sem ein-
hvers konar munaðarvöru.
Stefnur
flokkanna
illa kynntar
G.J. hringdi:
Það sem mér fannst athyglisvert
í þessari kosningarbaráttu var að
stefhumálum flokkanna var ekki
nógu vel komið á framfæri og þau
illa kynnt í heild.
Það er eðlilega mjög mikifvægt
fyrir hinn almenna kjósenda að
gefast kostur á að kynna sér efhis-
inntak steftiuskránna hjá flokkun-
um. Það er ekki nema von að menn
kjósi raenn i stað málefha fyrst
svona er á málunum haldið, fólkið
veit ekki nóg hverju viðkomandi
flokkui- ætlar að koma gegn.
Kosningabæklingarnir eiga að
vera aðgengilegir aflestrar og ítar-
legir, ekki eingöngu efrúsmolar, og
umfram allt greinargóðir.
Grátt
leður-
veski
fapaðist
Harold Groenweg hringdi:
Ég týndi gráu leðurseðlaveski á
sýningunni Sumarið ’87. í veskinu
voru 1000 kr. og öll persónuskilríki
mín. Ég týndi veskinu á sunnudag-
inn. Þeir sem fundið hafa veskið
eru vinsamlegast beðnir að hafe
samband í síma 656005.
RÚV:
Monroeá
skjáinn
Aðdáandi skrifar:
Upp á síðkastið hefur Stöðin ve-
rið að sýna myndir með hinni frægu
kynbombu Marilyn Monroe og er
gott eitt um það að segja. Þar sem
ég á ekki afruglara og mun ekki
gefast tækifæri til að eignast slík-
an, gafst mér ekki kostur á að sjá
þennan íturvaxna kvenmann er
slær öllum við.
En þar sem ég er alveg ólmur
aðdáandi þessarar kynþokkafullu
kvenveru vildi ég biðja sjónvarpið
að sýna einhverjar myndir með
henni. Þó hún sé slappur leikari
og leiki kannski í lélegum myndum
þá skiptir það ekki öllu máli, aðal-
atriðið er að sjá hana.
„Væri ekki alveg tilvalið fyrir sjónvarpið að sýna einhverjar myndir með
hinni einu sönnu Marilyn Monroe.“