Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 32
44
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Don
Johnson
lítur nú hýru auga til gamallar
kærustu-Susan Sharadon. Þau
áttu góðar stundir saman fyrir
allmörgum árum þegar hann var
óþekktur leikari en hún hafði
komið sér vel á veg í greininni
og veitti Don ómældan stuðn-
ing þegar hann var að gefast
upp á leiklistinni. Nú er í bígerð
myndin Sweethearts Dance
með þeim tveimur í aðalhlut-
verkunum og í tengslum við það
hafa skötuhjúin sést mikið sam-
an að undanförnu. Steininn tók
þó úr þegar hárréttu frétta-
mannanefin rákust á parið á
veitingahúsi, nartandi í kvöld-
verð undir kertaljósum og Don
kyssandi fingur Susan í tíma og
ótíma. Talið er að hann hafi
fært sig allnokkuð upp eftir
handleggnum þegar leið á
kvöldið.
Prince
hefur ákveðið að láta ekki kær-
ustuna Susannah Kay Melvoin
sleppa frá sér á næstunni. Leik-
urinn hófst með því að hann
sagði henni formlega upp fyrir
nokkrum vikum og brenndi í
einkarellunni sinni til Los Ange-
les. Þaðan hringdi hann svo til
Súsönnu sem dvelur i eplaborg-
inni miklu og erindi kappans var
að athuga hvernig henni liði
eftir aðskilnaðinn. Þetta endurt-
ók sig einu sinni til þrisvar á dag
þar til að enginn svaraði sím-
tölum rokkarans. Prince sneri
aftur á rellunni og fékk þær
upplýsingar að Súsanna væri
úti að skemmta sér með systur
sinni og nokkrum félögum. Líf-
verðirnir voru sendir af stað í
konuleit í einum hvelli og þegar
skötuhjúin hittust var bónorðið
það fyrsta sem Prince lét út úr
sér. Rétti trúlofunarhringurinn
mun víst vera eitthvað í líkingu
við demanta Elísabetar Taylor
og hefur gripurinn ekki fundist
ennþá þrátt fyrir talverða eftir-
grennslan meðal þekktustu
skartgripasala heimsins.
Timothy
Hutton
og eiginkonan Debra Winger
lepja ekki dauðann úrskel ísam-
búðinni þrátt fyrir væntanlega
fjölgun á næstu mánuðum. Erf-
inginn fyrsti er á leiðinni og ekki
hefur ennþá verið tekin ákvörð-
un um hvar fjölskyldan sest að
fyrstu mánuðina eftir fæðing-
una. Það er satt að segja úr
vöndu að ráða því ungu hjónin
eiga hús á fimm stöðum víðs
vegar um heiminn og nægilegt
pláss er fyrir krílið á öllum stöð-
v unum. Sennilegast þykir að
flökkumynstrið verði látið ráða
ferðinni.
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
Paul Newman fyrir nokkrum árum með syninum Scott sem lést af of stórum skammti áfengis og róandi lyfja.
Faðir
°g
sonur
Þann tuttugasta og fyrsta nóv-
ember árið 1978 urðu kafla-
skipti í lífi Pauls Newman.
Sonur hans, Scott, var tuttugu
og átta ára gamall þegar hann
lést af ofneyslu vímuefna. Hann
fannst á hótelherbergi og krufn-
ing leiddi í ljós að of stór
skammtur af áfengi og róandi
lyfjum hafði orðið honum að
aldurtila. Síðan hefur Paul
Newman unnið ötullega að
uppbyggingu meðferðarstofn-
ana fyrir eiturlyfjasjúklinga og
að auki stutt við forvarnarstarf
víða um Bandaríkin. Leikarinn
sem áður var þekktur fyrir
áhuga á hraðskreiðum bílum
og að þörf fyrir að tefla á tæp-
asta vað hafði orðið fullorðinn
á einum degi.
Gítar
handa Gúllíver
Katalóniumennirnir Luthier Lambert Casas og Pau Vall hafa smíðað heims-
ins stærsta gítar og eru kapparnir að reyna að koma smíðisgripnum á síður
heimsmetabókar Guinness. Gítarinn mælist einn og hálfur metri á breidd
og þrír og tuttugu á hæð þannig að þarna er ekkert barnaleikfang á ferð-
inni. Góður gripur fyrir Gúllíver! Simamynd Reuter.
Komið hefur upp úr kafinu að Janet Raymond er dóttir hinnar frægu
Marilyn Monroe.
Kynbombu-
dóttir
komin
í leitirnar?
Hæstiréttur í Santa Monika hefur nýlega úrskurðað að Janet
Raymond sé dóttir hinnar frægu Marilyn Monroe. Janet er 34
ára gömul og kennari að mennt. Samkvæmt úrskurðinum er
hún því talin erfíngi að Monroearfmum sem hljóðar upp á ein-
ar níutíu milljónir íslenskra króna. Dágóð upphæð það.
Fæðingardagur Janet Raymond er 03.03.53 en sex mánuðum
fyrir fæðingu barnsins lét Marilyn sig hverfa og lifði undir
fölsku nafni sem Rose Netrom. Samningum samkvæmt mátti
hún ekki eiga barn þar sem hún átti að standa undir ímynd
sinni sem kyntákn.
Að öllum líkindum er faðirninn annar eiginmaður Marilyn,
Joe DiMaggio, en hann vill ekkert um málið segja að svo stöddu.