Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Side 36
-:,í
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ríístiórn - Auglýsirsgar - Áskrift - Dreiflrsg: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
Atkvæðin í
fangelsi
- en breyttu engu
Týndu atkvæðin á Vesturlandi
voru alls ekki týnd. Þau voru í fang-
elsi í Borgamesi og gátu varla verið
á öruggari stað. Þar höfðu þau orðið
eftir í kjörkassa úr einni sveitakjör-
deild, ótalin þótt búið væri að ganga
frá kassanum sem tómum til endur-
sendingar. Atkvæðin reyndust 47 og
breyttu engu um úrslit kosninganna
þegar yfirkjörstjóm var búin að telja
þau um eittleytið í nótt.
Endanlega urðu kosningaúrslitin
þannig á Vesturlandi: A fékk 5 at-
kvæði úr kassanum og alls 1356, B
19 og alls 2299, D 7 og alls 2164, G
4 og alls 971, M 3 og alls 147, S 5
og alls 936, V 3 og alls 926. Einn
seðill úr kassanum fræga var auður.
Ef atkvæðin hefðu ekki fundist var
það á valdi Alþingis, þegar það kem-
ur saman í október væntanlega, að
afgreiða kjörbréf samkvæmt þeim
úrslitum sem samt hefðu legið fyrir.
Alþingi hefði átt þess kost að sam-
þykkja ekki kjörbréfin. Þá hefði
orðið að kjósa aftur á Vesturlandi.
Afar ólíklegt er að Alþingi hefði
brugðið á þetta ráð þar sem það
hefði tmflað þingstörf vikum saman
og síðan hugsanlega stokkað upp
þingliðið að hluta til.
-HERB
Berserksgang-
ur í Sundahöfh
Sjómaður af grænlenskum togara
var handtekinn eftir að hafa gengið
berserksgang í Sundahöfn í gær.
Ekki veittist hann að mönnum en
sex bílar urðu fyrir barðinu á honum
og skemmdust nokkuð. Lögreglan
handtók manninn. -GK
Næsta blað DV kemur út mánu-
daginn 4. maí.
Smáauglýsingadeild DV verð-
ur opin í dag, fimmtudag, til kl.
22.00.
Lokuð á morgun, 1. maí.
Opin laugardaginn 2. maí frá
kl. 9-14 og sunnudag 3. maí frá
kl. 18-22.
Síminn er 27022.
Ávallt feti framar
68-50-60
ÞRÖSTUR
LOKI
Ég held nú bara
’ann Jón Baldvin sé ekki
við eina fjölina felldur!
Jón Baldvin ræddi við Svavar fyrir kosningar:
Vill nýsköpunarstjóm
segi Kvennalisti nei
Jón Baldvin Hannibakson, for-
maður Alþýðuflokksins, skýrði
Svavari Gestssynþ formanni Al-
þýðubandalagsins, frá því á einka-
fundi þeirra á mánudag að hann vildi
að Alþýðubandalagið kæmi inn í
myndina færi svo að Kvennalisti
hafnaði samstarfi við Alþýðuflokk
og Sjálfstæðisflokk.
„Þetta hefúr legið lengi fyrir og
ekki bara effcir heldur líka fyrir kosn-
ingar," sagði Svavar í morgun.
Jón Baldvin staðfesti í morgun að
fyrir kosningar hefði hann sagt
Svavari að næstskásti kosturinn
væri nýsköpun, það er stjóm Al-
þýðuflokks, Sjáffetæðisflokks og
Alþýðubandalags.
„Við erum ekkert ginnkeyptir fyrir
því og viljum umfram allt að kosn-
ingamar endurspeglist í tilrauninni
til stjómarmyndunar,“ sagði Svavar.
„Það eru Kvennalisti, Borgara-
flokkur. Það em þeir sem unnu
sigur. Pramsóknarflokkurinn hélt
nokkum veginn sjó og kratamir
bættu pínulitlu við sig. Þessi hópur
á að reyna. Sjálfetæðisflokkurinn og
Alþýðubandalagið eiga að bíða.
Við ætlum að bíða átekta og sjá
hvað þeir sem unnu stóra sigra í
kosningunum geta. Það finnst okkur
vem niðurstaða kosninganna," sagði
Svavar.
Hann sagði mjög sérkennilegt
hvemig Jón Baldvin hefði unnið að
undanfömu. ;,Mér finnst það sýna
sorglega litla alvöm af hans hálfu.“
-KMU
Uppsagnir fóstra í kvöld:
Óformlegar
viðræður
hófust í gær
„Það eitt að borgaryfirvöld féllust á
að taka upp óformlegar viðræður við
okkur eykur mér bjartsýni á að lausn
finnist á málinu en það hefur ekkert
komið fram enn sem kalla má hand-
festu í málinu," sagði Margrét Pála,
formaður Fóstmfélagsins. í samtali við
DV í morgun en uppsagnir fóstra sem
starf'a hjá Reykjavíkurborg taka gildi
á miðnætti.
Frekari viðræður munu eiga sér stað
í dag og einnig mun Starfekjaranefnd
Reykjavíkurborgar ræða málið en
hana skipa 3 fúlltrúar frá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar og 3
fulltrúar frá borginni. Ef til uppsagna
fóstra kemur mun það fyrst koma nið-
ur á dagvistun Borgarspítalans á
laugardag en síðan á öðrum dagvistar-
stofnunum á mánudaginn kemur.
I gær var frestað fundi um starfsmat
fóstra sem vinna hjá ríkinu og virðist
sem ríki og borg ætli að samræma það
sem fóstrum verður boðið hjá þessum
aðilum.
-S.dór
Þá er Framsókn ekki lengur kvenmannslaus. Valgerður Sverrisdóttir, þingmaöur i Noröurlandskjördæmi
eystra, kom til þingflokksfundar Framsóknarflokksins i gær og i gleði sinni faðmaði Steingrimur Hermanns-
son flokksformaður hana aö sér. DV-mynd GVA
Óvenjulegt
ástarævintýri
Veðrið á moigun:
Víða létt-
skýjað
Á föstudaginn verður fremur
kalt til útgöngu í norðanátt um
allt land. É1 verða norðanlands en
víða léttskýjað syðra. Hiti 1-5 stig
sunnanlands en fyrir norðan verð-
ur hiti nálægt frostmarki.
Frá Jóni G. Háukssyni, DV, Akureyri:
Einstakt ástarævintýri er nú í upp-
siglingu á andapollinum fyrir neðan
sundlaugina á Akureyri. Þar eru stór
hvít aligæs og heiðargæs byrjaðar á
föstu og hafa greinilega í hyggju að
rugla saman reitum sínum.
Steggurinn, sem er aligæs, er afar
afbiýðisamur og ef einhver gerir sig
líklegan til að koma nálægt parinu
hikar hann ekki við að reniia í Við-
feöiíiáfitli.
,;Þaú feáfá Véríð áð kjdihást i Véfcifr
tí* JiáÖ ýéfétfr fefVitiiilégt áð ájá hVáð
verður úr þessu. Menn hafa haft eftfr
Ævari Pedersen fúglafræðingi að ekki
sé vitað til þess að slík sambönd hafi
þróast áður á íslandi," sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, sundlaugarvörður og
formaður umhverfismálanefndar Ak-
ureyrar.
-ATA