Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
Stjómmál
Miðstjómarfundur Alþýðubandalagsins:
Uppgjörinu frestað
fram að landsfundi?
- samt er búist við hörðum og berorðum umræðum
Miðstjómaríundur Alþýðubanda-
lagsins verður haldinn um helgina
að Varmalandi í Borgarfirði. Vegna
slæmrar útreiðar, sem flokkurinn
fékk í alþingiskosningunum í síðasta
mánuði, hefur þessa fundar verið
beðið með nokkurri eftirvæntingu.
Ekki síst í ljósi ýmissa yfirlýsinga
sem flokksmenn hafa verið með að
undanfömu. Jafnvel var búist við
að til uppgjörs kæmi á þessum fundi
og leit svo út um sinn. Nú munu
fleiri vera þeirrar skoðunar að upp-
gjörinu verði frestað fram að lands-
fundi í haust. En aftur á móti munu
á miðstjómarfundinum eiga sér stað
“ harðar og berorðar umræður um
ástandið i flokknum og orsakir ófar-
anna í kosningunum. Þar munu
verkalýðsforingjar eiga i vök að
verjast, ef marka má opinber um-
mæli ýmissa ráðamanna í flokknum
að undanfömu.
Margir sem DV hefur rætt við
hallast að því að landsfundinum, sem
halda á í októberlok eða byijun nóv-
ember, verði flýtt og að hann verði
haldinn áður en Alþingi kemur sam-
an í byijun október.
Uppgjöri frestað
„Uppgjörið, sem óhjákvæmflega
hlýtur að eiga sér stað, verður geymt
fram að landsfundi," sagði einn af
áhrifamönnum í flokknum í samtali
við DV. Hann sagði að án vafa yrðu
umræður á miðstjómarfundinum
mjög harðar og berorðar en til upp-
gjörs myndi ekki koma. Hann sagði
menn vilja skoða málin í sumar,
enda væm menn vart tilbúnir enn
sem komið er til þess mikla uppgjörs
sem bíður.
Búist er við harðri gagnrýni á
verkalýðsforingjana, einkum As-
mund Stefánsson, enda hefur sú
gagnrýni þegar komið fram opin-
berlega í viðtölum við frambjóðend-
ur og ýmsa ráðamenn flokksins að
undanfömu. Þá hefur gagnrýnin
ekki minnkað við það að verkalýðs-
armurinn hefur unnið leynt og ljóst
að því að koma á nýsköpunarstjóm
að undanfömu með verkalýðsfor-
ingjum úr Alþýðuflokki og vinnu-
veitendaarminum í Sjálfstæðis-
flokknum.
Viðtæk andstaða
Svo virðist sem andstæðingum
nýsköpunarstjómar í Alþýðubanda-
laginu hafi vaxið fylgi síðustu
dagana og að andstaða gegn henni
sé allvíðtæk í flokknum. Verkalýðs-
armurinn er henni hlynntur og eins
mun Svavar Gestsson ekki vera hug-
myndinni andstæður sem og nokkrir
þingmenn aðrir. Aftur á móti mun
yngra fólkið í flokknum vera henni
andstætt. Einn úr hópi yngri manna
sagði í samtali við DV að Alþýðu-
bandalagið ætti ekkert erindi í
ríkisstjóm nú. Flokkurinn þyrfti að
endurskipuleggja sig frá grunni og
það væri ekki hægt ef hann væri
sestur í ríkisstjóm.
Annar sem rætt var við sagði að
ef og hann lagði áherslu á -ef- Al-
þýðubandalagið færi í nýsköpunar-
stjóm yrði það ekki fyrr en eftir
langvarandi stjómarkreppu, 2 mán-
uði eða svo. Þá gætu þær aðstæður
verið komnar upp í þjóðfélaginu að
þjóðin beinlínis kallaði á slíka stjóm
til að leysa vanda stjómarkreppunn-
ar.
Einn af áhrifamestu mönnum
flokksins sagði í samtali við DV að
andstaðan gegn nýsköpunarstjóm
nú væri svo víðtæk í flokknum að
ef til hennar ætti að koma þyrfti
Alþýðubandalagið svo mikla mál-
efhalega ávinninga að útilokað væri
að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur gætu gengið að þeim kost-
um.
Þá hafa menn tekið eftir því að í
ritstjómargreinum Þjóðviljans hef-
ur komið fram andstaða gegn
nýsköpunarstjóm. Þó em þeir til
sem segja opinbera andstöðu ýmissa
áhrifamanna í flokknum vera gervi
til að róa hörðustu andstæðingana
meðan stjómarmyndunarmálin em
í geijun næstu vikumar. Þetta mál
og allt hitt verður til umræðu á þess-
um mikilvæga miðstjómarfundi
Alþýðubandalagsins, sem hefst að
Varmalandi á laugardaginn kemur.
-S.dór
Nýr meirihluti hefur verið myndaður
á Siglufirði eftir átök undangenginna
vikna.
Framsóknarflokkur,
Sjátfstæðisflokkur
og Alþýðubandalag
saman á Siglufírði
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Siglu-
fjarðar var formlega myndaður á
mánudag. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks,
Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks skrifuðu þá undir málefna-
samning flokkanna.
Fyrsti bæjarstjómarfundur eftir
myndun nýja meirihlutans verður í
dag. Nýi meirihlutinn ætlar þá að láta
reyna á það hvort Kristján Möller,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokks, hyggist
sitja áfram sem forseti bæjarstjómar.
Nýi meirihlutinn vefengir ekki að
Kristján geti lagalega setið áfram því
að í bæjarmálasamþykkt er skýrt
kveðið á um að forseti bæjarstjómar
sé kjörinn til fjögurra ára. Þeim þykir
það hins vegar ekki í anda lýðræðis
eða eins og Bjöm Jónasson, efsti mað-
ur Sjálfstæðisflokks og forsetaefni
nýja meirihlutans, orðaði það: „Lög-
légt en siðlaust."
-KMU
Verkalýðsarmur Alþýðubandalagsins er hlynntur nýsköpunarstjórn og
Svavar Gestsson formaður flokksins sagður ekki andvígur hugmynd-
inni. Víðtæk andstaða er hinsvegar I flokknum gegn þessu stjórnar-
mynstri.
í dag mælir Dagfari
Vandanum vísað til nefndar
Mitt í öllum stjómarmyndunarvið-
ræðunum berast þær fréttir úr
herbúðum sjálfstæðismanna að þeir
hafi skipað nefnd til að gera úttekt
á kosningaúrslitunum. Nefndin á að
skilgreina tapið og endurmeta stöðu
Sjálfstæðisflokksins að loknum
kosningum. Þetta kemur nokkuð á
óvart enda var ekki annað að heyra
en þingflokkurinn hefði verið býsna
kátur að loknum kosningum og
formaðurinn hefur verið önnum kaf-
inn við að búa til ríkisstjóm undir
sinni forystu eins og ekkert hafi í
skorist. Þingflokkurinn kaus þegar
i stað sömu mennina í stjóm þing-
flokksins og þingflokkurinn allur gaf
út traustsyfirlýsingu gagnvart for-
manninum og í rauninni hefði allt
verið með felldu ef Albert hefði ekki
farið.
Kannske hafa mennimir verið svo
sjokkeraðir eftir kosningamar að
þeir hafi ekki mátt mæla fyrst í stað
en nú virðast þeir hafa áttað sig á
að eitthvað þurfi að skoða eftir að
flokkurinn hmndi niður um tíu pró-
sent í kosningunum. í þessu felst að
þeir hafa viðurkennt vandann. Nú
em þeir sem sagt búnir að skipa
nefnd og hafa vísað vandanum í
nefhdina sem sjálfsagt mun gefa út
nefndarálit einhvem tíma fyrir
næstu kosningar til að næsti lands-
fundur geti klappað fyrir vel unnu
starfi og komist að þeirri niðurstöðu
að vandinn hafi verið leystur.
Nefndarskipunin er forvitnileg.
Formaður hennar er Friðrik Sophus-
son, sem var fyrsti maður á listanum
í Reykjavík, þar sem flokkurinn tap-
aði flestum atkvæðum. Með honum
em tveir aðrir frambjóðendur úr
Reykjavík af sama lista, þau Ragn-
hildur Helgadóttir og Jón Magnús-
son. Fjórði maðurinn er af listanum
á Reykjanesi, Víglundur Þorsteins-
son, sem fékk álíka útreið og
Reykjavíkurlistinn og fimmta per-
sónan í nefndinni er eiginkona Geirs
Haarde sem líka var á Reykjavíkur-
listanum. Sjötti og síðasti maðurinn
í nefhdinni er Magnús nokkur
Gunnarsson, sem hefur það fyrir at-
vinnu að selja saltfisk til Portúgal
en var ekki í framboði svo kunnugt
sé. Magnús mun hins vegar vera
sérlegur vinur formannsins og full-
trúi hans í nefndinni, enda er
bráðnauðsynlegt að formaðurinn
fylgist vel með nefnd sem er að
kanna vandann sem hann kallaði
yfir flokkinn.
Ekki er annað að sjá af þessari
upptalningu en að nefhdin sé vel
skipuð. Allt hlýtur þetta fólk að vera
gjörkunnugt vandamálum flokksins,
sér í lagi þegar allt bendir til þess
að vandamálið sé aðallega fólgið í
því sjálfu. Það er ekki á hverjum
degi sem menn hafa hugrekki og
hugmyndaflug til að skipa vanda-
málin sjálf í nefnd til að gera úttekt
á sjálfúm sér. Og það er afar snjallt
að skipa eiginkonur vandamálanna
i nefndina til viðbótar við vandamál-
in sjálf, enda eiga eiginkonur allra
helst að þekkja sitt eigið heimilis-
böl. Dagfari er eiginlega alveg hissa
á því að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi
ekki skipa fleiri maka í nefndina
enda mundu þeir alveg örugglega
geta gefið góða og ítarlega skýrslu
til næsta landsfundar um það í
hverju vandamál eiginmanna og eig-
inkvenna sinna eru fólgin.
Þessi nefhdarskipun slær margar
flugur í einu höggi. Hún útilokar að
aðrir séu að skipta sér af vandamál-
um Sjálfstæðisflokksins en þeir sem
eru sjálfir vandamál. Nefndin gerir
það líka óþarft að flokkurinn sé að
skipta sér af sínum eigin vanda á
meðan. Hér eftir tekur nefndin við
öllum vandamálum flokksins og
jafnskjótt og flokkurinn uppgötvar
að fleiri frambjóðendur hafi verið
vandamál má bæta þeim við í nefnd-
ina. Á meðan getur formaðurinn
snúið sér óskiptur að þvi að mynda
nýja ríkisstjóm og þarf ekki að hafa
áhyggjur af vanda síns eigin flokks.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að
kvíða framtíðinni meðan frambjóð-
endur og eiginkonur þeirra gera
úttekt á þeim vanda sem þau leiddu
yfir flokkinn. Niðurstaðan hlýtur að
vera sú að það sé ekkert að í Sjálf-
stæðisflokknum nema það eitt að
aðrir flokkar buðu fram á móti hon-
um og kjósendur vildu frekar kjósa
þá en Sjálfstæðisflokkinn. Fram-
bjóðendumir munu síðan skilgreina
það í nefndaráliti hvers vegna þeir
sem frambjóðendur fengu ekki at-
kvæðin og þá kemur sér vel að hafa
eiginkonuna í nefhdinni. Hún hefur
vandamálið heima hjá sér.
Dagfari