Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Side 7
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
7
Fréttir
Islendingum
snúið fiá
frönsku landa-
mærunum
ísler]skir ferðamenn, sem hyggjast
heimsækja Frakkland, komast ekki
inn i landið án sérstakrar vegabréfsá-
ritunar. Á þetta skal minnt vegna
nýlegra dæma um að íslendingum, sem
ætlað hafa að aka frá Lúxemborg til
Frakklands, hefur verið snúið frá á
landamærunum.
Starfsmaður franska sendiráðsins í
Reykjavík sagði að þijá daga tæki að
fá vegabréfsáritun. Menn þyrftu að
framvísa vegabréfi, einni ljósmynd,
sýna farmiðann og greiða 400 krónur.
Starfsmaðurinn sagði að margir
vissu ekki um þessar reglur um vega-
bréfsáritun til Frakklands. Hyggilegra
væri að ganga frá þessu hér á Islandi
áður en haldið væri út því í Lúxem-
borg tæki tvær vikur að fá vegabréfsá-
ritun.
-KMU
Félagsmenn i hinu nýja félagsheimili þeirra að Dugguvogi. DV-myndir G. Bender
Ánnenn kaupa sér nýtt félagsheimili
Endumnnslustöðin i Dounreay i Skotlandi:
íslendingar óttast
geislaviikni í sjó
Skýrsla um kjarnorkuverið og
endurvinnslustöðina í Dounreay í
Skotlandi kom út í desember sl..
Skýrslan var unnin af starfsmönnum
Geislavarna ríkisins, Hafrannsókna-
stofnunar, Siglingamálastofnunar
ríkisins og fulltrúa íslands hjá Al-
þjóða kjamorkumálastofnuninni.
I skýrslunni kemur fram að þrátt
fyrir að ekki sé talin hætta á veruleg-
um heilsufarslegum áhrifum af
áfallalausri starfsemi þessarar stöðv-
ar, ef reist yrði, þá muni fyrirhuguð
starfsemi engu að síður auka geisla-
virka mengun á hafsvæðinu um-
hverfis landið og mengunarhættu
vegna hugsanlegra slysa, 'bæði við
flutning geislavirkra efna með skip-
um og vegna óhappa sem ekki er
hægt að útiloka að geti orðið í endur-
vinnslunni.
Dagana 1. til 3. júní nk. verður
haldinn í Cardiff á Englandi árs-
fundur samningsaðila Parísarsamn-
ingsins. Auk íslands hafa eftirtalin
lönd staðfest samninginn: Belgía,
Danmörk, Frakkland, Holland, ír-
land, Noregur, Portúgal, Spánn,
Stóra-Bretland, Svíþjóð, Vestur-
Þýskaland og einnig Efnahags-
bandalag Evrópu. Á ársfundinum
leggja íslendingar fram ítarlega til-
lögu um varnir gegn geislavirkri
mengun á hafsvæði Parísarsamn-
ingsins. I lok tillögu íslendinga segir:
„Samningsaðilar skulu ekki reisa
nýjar endurvinnslustöðvar eða auka
að marki endurvinnslugetu núver-
andi stöðva, nema unnt sé að sýna á
fullnægjandi hátt fram á, að mati
Parísarnefndarinnar, að slíkt hafi
ekki í för með sér hættu á geisla-
virkri mengun á hafsvæði Parísar-
samningsins, hvorki sökum
staðsetningar né þeirrar tækni sem
notuð er.“
-sme
Fasteignamarkaðurinn:
Hlutfall útborg-
unar eykst stöðugt
Frá því að nýja húsnæðislánakerfið
komst á hefur íbúðaverð hækkað
verulega. Útborgun hefur einnig auk-
ist jafnt og þétt. Fyrri hluta síðasta
árs var útborgun venjulegast um 70%
af söluverði. Um sl. áramót var það
hins vegar komið í 75%, en meðal
útborgun í mars sl. var 80% af sölu-
verði, skv. upplýsingum sem DV fékk
hjá Fasteignamati ríkisins. Frá fyrsta
ársíjórðungi 1986 til sama tíma á yfir-
standandi ári hafa íbúðir í fjölbýlis-
húsum hækkað um 35%. Á sama tíma
hefur lánskjaravísitala hækkað rnn
14%. Raunhækkun á íbúðarverði á
þessu tímabili er 18,2%. Þegar byrjað
var að úthluta lánum úr nýja kerfinu
dugði hámarkslán til kaupa á Ijögurra
herbergja íbúð, en í dag stendur hám-
arkslán nokkuð á jöfnu við söluverð
á meðal þriggja herbergja íbúð.
Þessa miklu hækkun á íbúðaverði
má að hluta til skýra með því að á
fyrri hluta síðasta árs var íbúðaverð
óvenjulágt. Á árinu 1985 og fram að
miðju ári 1986 hafði íbúðaverð lækkað
að raungildi um 20 til 25%. Þegar það
stóð hvað lægst var verðið komið und-
ir meðalverð íbúða á árinu 1978.
En hvemig er fasteignamarkaðurinn
í dag? Þórólfúr Halldórsson, formaður
Félags fasteignasala, sagði að nú vant-
aði tilfinnanlega 3ja til 5 herbergja
íbúðir á sölu. íbúðir í öðrum stærðar-
flokkum seljast einnig nokkuð vel. Þó
hefur eftirspurn eftir stæstu eignunum
minnkað nokkuð frá því að salan á
þeim var hvað mest.
-sme
Hagbygging hf:
Batnandi afkoma
Á árinu 1986 var 4,5 milljóna króna
tap á rekstri Hagtryggingar en á árinu
1985 varð tap hins vegar 7 milljónir.
Iðgjöld á sl. ári námu 52 milljónum
og er það 17,7% aukning frá fyrra
ári. Greidd tjón á árinu námu samtals
47,8 milljónum og er það 21,5% hækk-
un frá fyrra ári. Þetta kom fram á
aðalfundi félagsins sem haldinn var
26. mars sl.
Frá 1. janúar sl. hefur Hagtrygging
eingöngu annast rekstur ökutækja-
trygginga. Er það von forráðamanna
félagsins að með þessum ráðstöfunum
megi bæta hag þess nokkuð.
-sme
„Hér mun slagæð
félagsins slá“
- segir Sigurður Benjamínsson, formaður Ármanna
„Það fer ekki á milli mála að Hlrð-
arvatn hefúr verið okkar miðpunkt-
ur en hjarta félagsins var í
„skókassanum" að Skemmuvegi en
verður hér í Dugguvogi 13 í framtíð-
inni. Þetta þýðir fyrst og fremst að
við fáum fastan samastað fyrir okkar
félagsstarfsemi. Það er ekkert smá-
stökk að fara úr 50 fermetrum í 120
og allir sem mættu á þennan fund
voru með kaupunum," sagði Sigurð-
ur Benjamínsson, formaður Ár-
manna, í samtali við DV í nýja
húsnæðinu þeirra að Dugguvogi 13.
En Armenn samþykktu að kaupa sér
120 femretra húsnæði að Dugguvogi
13 í síðustu viku. Þetta húsnæði er
glæsilegt og ekki nokkur vafi að
Armenn eiga eftir að njóta góðs af
því í framtíðinni því félögum fjölgar
jafht og þétt en þeir eru nú 221.
„Þetta hefur alla tíð verið mikið
hugsjónafélag, Ármenn. og með
stofhun félagsins var stangaveiðinni
lyft upp á hærra plan. Það em mörg-
um sinnum fleiri konmir í silungs-
veiðina og hnýtingar á flugum en
var. Ef vel tekst til hjá okkur með
húsnæðið á þetta eftir að marka
trmamót í veiðinni. samastað verð-
um við að hafa og með því stendur
og fellur félagið. Þetta er stóráfangi
fyrir Armenn og með þessum húsa-
kaupum eru komnar fastar skorður
á húsnæðið. Ég held að margir eigi
eftir að leita til okkar til að fræðast
um silunginn og það lífríki sem er í
vötnunum þvr líklega eru 40% fé-
Veiðivon
Gunnar Bender
Sigurður Benjamínsson, formaður
Ármanna, kátur á svip stuttu eftir
að félagsmenn höfðu ákveöiö hús-
næðiskaupin samhljóða.
lagsmanna í silungsveiðinni ein-
göngu.“
- Hvað með unglingana, mætti
ekki fá þá meira til liðs við vkkur?
„Sá akur með unglingana er
óplægður og ég veit ekki hvað er
unglingavandamál. báðir strákamir
mínir eru í veiðinni. Því fleiri ungl-
inga sem við fáum þeim mun betra
f\TÍr félagið. Það mætti hafa ungl-
ingakvöld á dagskrá og og kenna
þar fluguhnýtingar."
- Hvar bjóðið þið ykkar félögum
upp á veiði?
..Hlíðarvatn í Selvogi. Revnisvatn.
holl í Vatnsdalsá í lax og silung,
holl í Grímsá. 46 daga í Langá á
Mýrum og svo erum við með 110
stangardaga í flóðinu í Grenlæk. Við
höfum alltaf verið meira f silungi og
eitthvað í laxveiðinni með."
- Hvað er að frétta úr Hlíðarvatni
en veiði hófst þar 1. apríl?
..Veiðin í Hlíðarvatni hefur farið
rólega af stað og það hafa veiðst
60-70 bleikjur núna. Besta veiðin
ennþá eru 16 fiskar og svo hafa veiði-
menn verið að fá þetta 3 og 4 á dag.
Analíus Hagwaag var í vikunni og
fékk 8 bleikjur."
- En Reynisvatn?
..Það vatn er ævintýri út af fyrir
sig því í Reynisvatni er búið að
rækta fisk og þar hefur Veiðimála-
stofnun verið fremst en með litlum
ái-angri. Þetta vatn er fysilegt og það
mætti kaupa þar veiðanlegan fisk.
regnbogasilungur kæmi til greina."
G.Bender
‘vy- .:v
Fyrsta kvartmilukeppni sumarsins veróur haldin laugardaginn 16. maí kl. 14.00.
Keppendur mæti fyrir kl. 12.00. Allar upplýsingar í sima 72906 á kvöldin.
KVARTMILUKLUBBURINN