Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
Iþróttir dv
Napolí býður
nýjan samning
- Maradona hugsar málið
„Ég gæti vel hugsa rnér að spila
með Tottenham og Barcelona eitt
keppnistímabil á hvorum stað áður en
ég fer alfarinn til Argentínu að lokn-
um mínum keppnisferli í Evrópu,"
sagði Diego Maradona í viðtali við
dagblað í Napóli i gær.
Maradona sagði ennfremur að for-
ráðamenn Napólí liðsins hefðu þegar
boðið honum nýjan samning til ársins
1989 en hann þyrfti að fá tíma til að
íhuga það tilboð.
Maradona hefur fyrir nokkru ákveð-
ið að spila með sínu gamla félagi,
Boca Juniors, í Argentínu þegar hann
hættir að leika í Evrópu en tíminn
einn verður að leiða í Ijós hvenær sú
stund rennur upp. -JKS
Jose Toure skoraði tvö
Fjttí leikimir í 8 liða úrslitum
frönsku bikarkeppninnar í knatt-
spymu fóm fram í fyrrakvöld. Stórlið-
in Bordeaux og Marseille unnu bæði
án teljandi erfiðleika.
Bordeaux sigraði Lille á heimavelli,
3-1. Franski landsliðsmaðurinn, Jose
Toure, skoraði tvö af mörkum Borde-
aux liðsins.
Marseille sigraði Lens, 0-1, og skor-
aði Patrick Cubaynes eina mark
leiksins með skalla.
Úrslit í öðrum leikjum urðu að Lav-
al sigraði Reims, 1-0, og Ales vann
Strasbourg, 2-0. Síðari leikimir í
keppninni fara fram 19. maí. JKS
V erðlaunahafar á nýafstöðnu íslandsmóti í veggtennis en þessi íþrótt á nú vaxandi
vinsældum að fagna hér á landi. íslandsmótið fór fram i Dansstúdíói Sóleyjar og sigurvegari varð Jóhannes
Guðmundsson og er þetta í annað skipti sem hann vinnur íslandsmeistaratitilinn. Jóhannes er lengst til vinstri
á myndinni. Næstur er Ásmundur Ólafsson, sem varð í öðru sæti, og þá Kristján Baldursson og Viktor Ur-
bancic en þeir síðastnefndu urðu jafnir í 3.-4. sæti.
Carl Lewis
á 5 mótum
Þjálfari Carl Lewis, Joe Dou-
glas, lísti því yfir i gær að Lewis
myndi keppa á í það minnsta
fimm mótum í Evrópu á þessu
ári, eða fyrir heimsmeistaramót-
ið í Róm sem fram fer í lok ágúst.
Lewis mun keppa á mótum á
Spáni, Ítalíu, Hollandi og líklega
í Berlín og Zurich í Sviss. Þá
mun Lewis keppa á Pan Americ-
an leikunum sem fram fara í
Indianapolis í Bandaríkjunum í
ágúst.
Davig Pitt
í 1. sæti
Sunnudaginn 10. maí var
firmakeppni Skíðáráðs Reykja-
víkur haldin á skíðasvæði Fram
í Eldborgargili i Bláfjöllum og
urðu úrslit sem hér segir:
I fyrsta sæti varð Davig Pitt
hf., en síðan varð röðin þessi:
Skrifstofuvélar, Dentalía, Litla-
kaffistofan, Glóðin, Blómaval,
Úlfar og ljón, Búnaðarbanki Is-
lands, Sólning, Ríkharður Páls-
son tannlæknir. Sólnarprent og
| Torfan. -JKSj
Fyrstu verðlaun ein milljon
á breyttu Norðurlandamóti
- leikið heima og heiman og mótið mun nú taka þrjú ár í stað nokkurra daga
Fundur handknattlelkssambanda
Norðurlanda var haldinn í Osló 1. maí
síðastliðinn í sambandi við 50 ára af-
mæli norska handknattleikssam-
bandsins. Fulltrúar frá öllum
samböndunum voru viðstaddir, þ.e.a.s.
frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finn-
landi, Færeyjum, Grænlandi og ís-
landi,
Fulltrúar HSÍ voru þeir Jón Hjalta-
lín Magnússon, formaður HSÍ, og Jón
Erlendsson, ritari HSÍ. Jón Hjaltalín
Fátt virðist geta komið í veg fyrir
að Los Angeles Lakers standi uppi sem
sigurvegari í NBA atvinnumanna-
deildinni í bandaríska körfuknatt-
leiknum. Los Angeles tryggði sér í gær
réttinn til að leika í undanúrslitunum
er liðið sigraði Golden State Warriors
með 118 stigum gegn 106. Lakers vann
því fjóra leiki en Golden State einn.
Houston Rockets virðast vera að
rétta úr kútnum og í gær vann liðið
Seattle Supersonics með 112 stigum
lét af störfum sem formaður norrænu
handknattleikssamtakanna á þessum
fundi og við tók formaður norska
handknattleikssambandsins, Thor
Lian.
Á síðastliðnu starfsári var unnið að
fjölmörgum verkefnum og er þar helst
að nefna undirbúning að stofhun Evr-
ópusambands handknattleikssam-
banda, breytt fyrirkomulag á
forkeppni fyrir ólympíuleika og heims-
meistarakeppni, svo og breytt fyrir-
gegn 107. Staðan þar er 3-2 en það lið
kemst í undanúrslitin sem fyrr vinnur
fjóra leiki.
Liðin sem berjast um undanúrslita-
sætin á austurströndinni eru annars
vegar Boston Celtics og Milwaukee
Bucks og svo Detroit Pistons og Atl-
anta Hawks. Eftir síðustu leiki lið-
anna er staðan 3-1 fyrir Boston og
Detroit og því allt útlit fyrir að þessi
tvö lið komist í undanúrslitin.
-SK
komulag á Norðurlandameistaramóti
í handknattleik karla.
Norðurlandameistaramót með
1 milljón í verðlaun
Á þessum Norðurlandafundi var
ákveðið að breyta fyrirkomulaginu á
Norðurlandameistaramótinu sem
haldið hefur verið á fjögurra ára fresti
til skiptis í einhverju Norðurland-
anna. I framtíðinni verður keppt
heima og heiman, tvo leiki í hverri
• Maurice Lucas, Seattle Super-
sonics (til vinstri) og Allen Leavell,
Houston Rockets, berjast hér um
knöttinn i leik liðanna i NBA úrslitun-
um. Símamynd/Reuter
ferð og reiknast báðir leikirnir í
keppninni.
Þessi Norðurlandakeppni í hand-
knattleik mun hefjast haustið 1988 og
ljúka vorið 1991. Hún mun sem sagt
standa yfir í þrjú ár. I fyrsta sinn sem
keppnin fer fram munu Grænland og
Færeyjar ekki vera með en vonast er
eftir þátttöku þeirra árið 1991.
Áætlað er að fá tiu stórfyrirtæki á
Norðurlöndum til að styrkja þessa
keppni, auglýsa hana upp og fá aðgang
að auglýsingum í sambandi við keppn-
ina, til dæmis í sjónvarpssendingum
frá leikjunum í keppninni. Hvert fyrir-
tækjanna þarf að borga álitlega
upphæð eða 1,5 milljónir ísl. krónur.
Þessum peningmn verður síðan varið
til að greiða ferðakostnað liðanna og
til verðlauna. Fyrstu verðlaun verða
um 1 milljón íslenskar krónur.
Norðurlöndin vilja með þessari
keppni leggja niður svokallaða vin-
áttu- og æfingaleiki milli landanna og
taka upp áhugaverðara keppnisform
fyrir liðin, áhorfendur og blaðamenn,
svo og sjónvarpsstöðvar. Því í þessari
keppni er hver leikur mjög mikilvæg-
ur. Þá vilja Norðurlöndin með þessu
sýna fordæmi í sambandi við væntan-
lega Evrópukeppni landsliða sem um
leið gæti verið forkeppni í sambandi
við heimsmeistarakeppni og ólympíu-
leika. En þar hefur HSÍ lagt mikla
áherslu á að fá mikilvæga landsleiki
heima og heiman þar sem úrslitin
skipta miklu máli, t.d. hvort landsliðið
vinnur sér rétt til þátttöku í ólympíu-
leikum.
Lakers komið í
undanúrslitiii
Sigurvegarar i SÓL-mótinu i golfi sem fram fór hjá Golfklúbbi Suóurnesja um síöustu helgi. Fjórði frá vinstri er sigurvegarinn,
Guðbergur Sigurbergsson, GK, Sigurður Sigurðsson, GS, er víð hlið hans hægra megin og annar frá hægri á myndinni er Jón Jóhannsson, GS, sem
varð þriðji.
-JKS
j~Bjarkarmótið~|
l á Strandavelli i
| á laugardag J
Opið golímót, Bjarkarmótið *
I svokallaða, fer fram á Stranda- I
_ velli, hjá Golíklúbbi Hellu, á _
| laugardaginn kemur. Leiknar |
Iverðal8holurmeðogánforgjaf- ■
ar og verður leikið í einum I
I flokki.
Skráning mun fara fram ;á ■
I staðnum. Það er söluskálinn I
Björk á Hvolsvelli sem gefúr
| aðalverðlaunin en auk þess |
Iverða veitt fjölmörg aukaverð- .
laun, þar á meðal þrjú gistiverð- I
j^aun á Hótel Hvolsvelli. -Sl^jj