Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987. 37 Sviðsljós Axlabönd og baðfatnaður að ráða. Hann mætti til Cannes með hönnunina og tvö smástimi sáu um frekari kynningu nýju linunnar. Simamynd Reuter | Axlabönd Newmans vöktu óskipta athygli viðstaddra þegar kappinn hélt frá hóteli sínu til frumsýningarinnar á mynd sinni The Class Menagerie. Áfram heldur húllumhæið í Cannes. Fatnaður gestanna er undir smásjá og í gærdag vakti Paul Newman mikla athygli fyrir áberandi axla- bandanotkun. Diane Keaton átti sigurgöngu milli ljósmjmdara með köflótta slaufú á höfðinu og baðfót með filmurenningaþema slógu í gegn líka. Búist er við því að úti um allan heim setji nú glæsimenni með þriggja daga skegg upp myndarleg hvít axla- bönd og gangi í ljósum skyrtum. Köflótta slaufan er stórgóð - hvort sem um er að ræða menn eða gælu- dýr - en baðfotin verða fjölfölduð á sjóræningjastofunum með einfóldun f huga. Upphaflegi tilgangurinn með kvik- myndahátíðinni í Cannes er niður- röðun mynda í gæðaflokka og mun verðlaunaveifing til þeirra stórsnj- öllu vera í sjónmáli. ' . Diane Keaton var axlabandalaus en með köflótta slaufu á höfðinu. Mynd hennar, Heaven, er til umfjöllunar á kvik- myndasamkeppninni Quinzaine des Realisateurs sem haldin er á sama tíma og Cannes Film Festival. Dagur r 1 austri Á morgun munu vestrænir ljósmyndarar skjóta degi f lífi Sovétmanna víðs vegar um landið en árangurinn kemur svo fyrir almennings- ajónir alveg á næstunni. Meðfylgjandi Reutermynd sýnir Slavin ljósmyndara reyna græjurnar á Rauða torginu í Rússíá. Ólyginn sagði... Liberace hristi hressilega upp í fjöl- skyldu sinni með erfða- skránni og logar þar nú allt í illdeilum og málaferlum. Aurunum vildi karl verja til þess að setja upp tönleika- hallir og söfn víðs vegar um Bandaríkin - og Angelina systir hans og örfáir nánir vinir fengu nokkrar krónur líka. Bræðrabörn Liberace, sem hann hafði séð fyrir frá fæðingu, fengu ekki krónu og hafa þau höfðað mál til ógildingar erfðaskránni. Lögfræðingur hins fingra- fima tónlistarmanns segir að einlægur vilji Liberace hafi verið að neita að sjá fyrir þessu fullorðna fólki lengur en kjarkinn hafi vantað þar til dauðastundin fór að nálg- ast - það er auðveldara að segja nei skriflega en augliti til auglitis við ættingjana. Pia Zadora lagði kynbombuhlutverkið á hilluna fyrir allnokkru og segist alveg hætt að vera barnakyntákn Ameríku. Hún eyðir nú öllum stundum með syninum Kristófer sem er mánaðargamall og auga- steinn móður sinnar. Leik- konudraumarnir hafa verið snarlega jarðaðir - um sinn að minnsta kosti - og móð- urhlutverkið er að dómi Piu það alerfiðasta sem hún hef- ur fengið til þessa. Eigin- maðurinn er ennþá margfaldur milli þannig að allt stendur í miklum blóma hjá Piu um þessar mundir. Barry Manilow hefur í gegnum árin sagt sorglegar sögur af sambandi sínu við föðurinn - sem Barry segir að hafi hafnað sér strax í æsku. Hann segir hverjum sem heyra vill að hann hati þennan mann sem hann aldrei þekkti en önnur hlið málanna hefur nú skotið upp kollinum. Það er frá- sögn föðurins - Harold Keliher - sem ekki fékk að hitta Barry nema stöku sinn- um þegar drengurinn var að alast upp vegna andúðar móðurinnar og fjölskyldu hennar. Árum saman reyndi Harold síðan að fá Barry til að hitta sig eftir að hann varð fulltíða maður - en án árangurs. Barry Manilow lætur skila því til hans að þeir tveir hafi ekkert að ræða og við það situr eftir margra ára baráttu við þann bitra Barry Manilow.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.