Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987. Skák Sveit Taflfélags Reykjavíkur teflir viö Politechnika í Búkarest. Séð yfir keppnissalinn. Ke2 Kc6 37. Kd2 Bc4 38. a4 Kb7 39. a5 Bd5? abcdefgh 40. a6+! Ka8 Loks er tímamörkunum náð en þá er svarta staðan gjörtöpuð, eins og Helgi sýnir smekklega fram á í næstu leikjum. Auðvitað gekk ekki 40. - Kxa6 vegna 41. Rb4+ með riddara- gaffli. 41. Rc5 Bc6 42. Re6! Be5 43. Rd8! Lagleg tilfærsla. Þarna stendur riddarinn ekki í vegi fyrir biskupnum og valdar um leið á b7. 43. - Bxg2 44. b7+ Bxb7 45. axb7+ og svartur gafst upp því að eftir 45. - Kb8 46. Re6 fellur hinn biskupinn einnig og Helga ætti ekki að verða skotaskuld úr því að máta með ridd- ara og biskup. Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson Svart: Dumitrache Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 RfB 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Bxf6 gxf6 10. Rd5 Bg7 11. c3 Í5 12. exf5 Bxf5 13. Rc2 0-0 14. Rce3 Be6 15. g3 Guðmundur dustar rykið af af- brigði sem hann tefldi með árangri fyrir meira en áratug. Einnig er 15. Bd3 mögulegt og 15. g4!? var vinsæll leikmáti til skamms tíma. 15. - Hb8 16. Bg2 f5 17. 0-0 Kh8 18. f4 Dd7 19. Dd2 a5 20. Khl b4 21. Hadl bxc3 22. bxc3 Hb5 23. De2 Hfb8 24. fxe5 Rxe5 25. Rf4 Bf7 26. Hd2 Rg4 27. Red5 Eftir að hafa náð þægilegu tafli er eins og hvítur missi nú þráðinn og það er svartur sem grípur frumkvæð- ið. 27. - He8 28. Dd3 Re5 29. Dc2 Rc4 30. Hdf2 Re3 31. Rxe3 Hxe3 32. Hf3 De8 33. h3! Bxc3?! Vafasamt peðsrán, eins og fram- haldið leiðir í ljós. 34. Hxe3 Dxe3 35. Hf3 Del+ 36. Kh2 Bd4 37. Dc8+ Kg7 38. Hfl De3 39. Dd7 He5 40. Rh5+ Kg6 41. Dxd6 + Hvítur hefur nú náð vinningsstöðu því að ekki gengur 41. - Kxh5 vegna 42. Bf3 + Kg5 43. h4 mát. Annar at- hyglisverður leikur var 41. g4!? sem virðist leiða til svipaðrar niðurstöðu. 41. - Be6 abcdefgh 42. De7! Lítill leikur en öflugur. Vegna máthótunar á g7 á svartur ekki um neitt að velja. 42. - Kxh5 43. Dxh7+ Kg5 44. Dg7+ Kh5 45. Bf3+ Dxf3 46. Dh7+ Kg5 47. h4 + Kf6 48. Hxf3 Bd5 49. Hxf5 +! Hxf5 50. Dh8+ Ke6 51. Dxd4 Bxa2 52. g4 He5 53. Db6 + Og svartur gaf þvi að eftir 53. Ke7 kæmi 54. Db2! með tvöfaldri hótun. -JLÁ mönnum er slík að undirbúningur okkar fyrir keppnina fór að mestu í að reyna að láta okkur ekki bregða við misjafnlega heiðarleg áföll er á hólminn væri komið. Þeirra snjall- asti stórmeistari um árabil. Florin Gheorghiu. er heimsfrægur svindlari og kaupahéðinn og Mikhai Suba. kollegi hans. er ekki síður vel að sér í prettum við skákborðið. Það þekkj- um við af eigin revnslu: Á ólympíu- skákmótinu i Buenos Aires 1978 átti Suha biðskák við Ingvar Ásmunds- son þar sem möguleikar hans virtust öllu betri en þó var ekki laust við að Ingvar ætti að halda jöfnu með nákvæmri vörn. Biðskákina átti að tefla morguninn eftir. Um kvöldið, er íslensku liðsmennirnirsettust nið- ur og ætluðu að skoða stöðuna, hringdi síminn og Suba var á lín- unni. Hann bauð Ingvari jafntefli en vegna þess að erfitt væri að ná í skákstjóra bað hann Ingvar um að mæta á skákstáð morguninn eftir til þess að undirrita pappírana. Að sjálf- sögðu samþykkti Ingvar jafnteflis- boðið og íslensku liðsmennirnir settu taflið til hliðar og tóku upp léttara hjal. Er Ingvar svo mætti á skákstað um morguninn var hins vegar komið annað hljóð í strokkinn. Suba þóttist ekki kannast við að hafa boðið jafn- tefli og bandaði friðarhendi Ingvars frá sér. Þrátt fyrir mótmæli varð Ing- var að gjöra svo vel að setjast niður og tefla órannsakaða stöðu og svo fór að hann hitti ekki á réttu vörnina og tapaði. Miðað við þetta sögukorn áttum við von á hinu versta við komuna til Búkarest en það reýndist öðru nær. Þeir sem tóku a móti okkur og voru okkur innan handar við dvölina reyndust hin mestu góðmenni og augljóslega var allt reynt til þess að okkur liði sem best. Andstæðingar okkar, Politechnika, koma úr sam- nefndum tækniháskóla í Búkarest. Við bjuggum á hóteli í háskólahverf- inu og var það hvorki betra né verra en við áttum von á. Keppnisstaður- inn var þar spölkorn frá, lítill, teppalagður íþróttasalur þar sem ekki þurfti undan neinu að kvarta. Fæði var vel útilátið en þó nokkuð einhæft; matarmiklar grænmetissúp- ur, svínasteikur og tertur. Og í morgunmat var ostur, spægipylsa og mánaðarskammtur af eggjum. Sam- kvæmt grein í Mbl. um Rúmeníu á dögunum höfum við a.m.k. borðað nokkrar fjölskyldur út á gaddinn, ef ekki heilt hverfi. Liðsstjóri rúm- ensku sveitarinnar, Dolphi Drimer, alþjóðlegur meistari og stærðfræði- prófessor við háskólann, hafði orð á því að fæðið hefði verið heldur fá- breyttara er hann tefldi í Reykjavík á stúdentamótinu 1957. „Þá fékk ég soðinn fisk og súkkulaðisúpu (sem mun gegna nafninu kakósúpa) í hvert mál,“ sagði hann og hló góðlát- lega. Búkarest er annars hin fegursta borg, breið stræti og margar reisu- legar byggingar. Þó er drungi yfir mannlífinu og er rökkvar er hún á að líta sem draugaborg. Götulýsing er takmörkuð og klukkan tíu að kvöldi er öllu skellt í lás. Þá er fátt kvikt á ferli. Einu sinni sáum við þó st.óra rottu skjótast milli húsveggja á aðalgötunni og áttum fótum fjör að launa. Hrikalegt ryk og óhrein- indi eru í lofti við miðbæinn vegna 1. borði fást 6 stig, sigur á 2. borði gefur 5 stig, sigur á 3. borði 4 stig, o.s.frv. Úrslitin urðu sár vonbrigði, einkum ef haft er í huga að eftir fyrri keppnisdaginn hlaut sveit TR 3 'A v. gegn 2'A v. Rúmena. Lítum á tvær skákir frá keppninni: Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Ghinda Griinfelds-vörn. 1. d4 RfB 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4 0-0 8. Be3?! Brosmildir liðsstjórar við upphaf keppninnar. Jón G. Briem, formaður Taflfé- lags Reykjavikur, t.v., og Dolphi Drimer takast þéttingsfast i hendur. stórhuga byggingaframkvæmda. Þar á að reisa ráðuneytisbyggingar og bæta við nýja og glæsilega forseta- höll. Rennsli árinnar hefur meira að segja verið stöðvað. Ætlunin er að setja í hana sérstakan hreinsibúnað svo hún renni tær og fögur framhjá forsetahöllinni. Það verður áreiðan- lega tilkomumikil sjón. Þessi urðu úrslit á einstökum borð- Skák Jón L. Árnason um í keppninni. Sveit TR hafði hvítt á oddatöluborðum í fyrri umferð: TR Polit. 1. borð: Helgi - Ghinda 10:01 2. borð: Jóhann - Stoica A 'A : 'A 'A 3. borð: Jón L. - Ghitescu 'A 'A : 'A 'A 4. borð: Margeir Marin 0 0:11 5. borð: Guðmundur - Dumitrache/ Berechet 1 'A : 0 A 6. borð: Karl - Stanciu 'A 1: 'A 0 6:6 Jafntefli, 6:6, en Rúmenar komust áfram á borðastigum - fyrir sigur á Einkennileg leikjaröð. Algengara er 8. Ré2. 8. - Rc6 9. h4? Og þessi leikur er óheppilegur. Svartur fær nú yfirhöndina. 9. - e5! 10. d5 Ra5 11. Bd3 c6 12. c4 b5 13. cxb5 cxd5 14. h5 Bb7 15. hxg6 fxg6 16. Rh3 h6 17. Da4 Hc8 18. Hdl Hc3?! Leggur gildru. Eftir 19. exd5 Dxd5 20. Bfl kæmi 20. - Hxe3 + ! 21. fxe3 Dc5 22. Dxa5 Dxe3+ 23. Be2 e4 og vinnur. En 18. - Rc4!? kom sterklega til greina. 19. 0-0 Rc4 20. Bxc4 Hxc4 21. Dxa7 Eftir langa umhugsun. Mögulegt var 21. Dxc4 dxc4 22. Hxd8 Hxd8 en svartur heldur sínu. 21. - Hf7 22. exd5 Bxd5 23. Db6 Dxb6 24. Bxb6 Bb7 25. Be3 Hb4? Leiktap. Betra er 25. Hg4! 26. g3 Ha4 og taflið er í jafnvægi. Riddari hvíts á h3 er illa staddur. 26. b6 Ha4 27. Hd2 g5 28. f3 e4 29. fxe4 Hxfl+ 30. Kxfl Hxe4 31. Hd8+? Hér var 31. Hd7! sterkara. Það er ekki ljóst hvort hvítur getur nú unn- ið en Ghinda var hins vegar í miklu tímahraki. 31. - Kf7 32. Hd7+ He7 33. Hxe7+ Kxe7 34. RÍ2 Kd7 35. Rd3 Ba6(?) 36. Ekki varð sveit Taflfélags Reykja- víkur Evrópubikarmeistari að þessu sinni. Sveitin er úr leik í keppninni, eftir erindisleysu til Búkarest, höfuð- borgar Rúmeníu. „Politechnika Bucaresti" sigurliðið í rúmensku deildakeppninni - náði að vinna Taflfélagssveitina með minnsta mun. Eftir keppnisdagana tvo var staðan jöfn. sex vinningar gegn sex. en Rúm- enar voru stigahærri og því var þeim úrskurðaður sigurinn. Sveit TR var skipuð ólvmpíusveit- armönnum sem gerðu garðinn frægan í Dubai: Helga. Jóhanni. Jóni L„ Margeiri. Guðmundi og Karli. Þröstur Þórhallsson var til vara og liðsstjóri og jafnframt fararstjóri var Jón G. Briem. formaður Taflfélags Reykjavíkur. Sveitin var sterkari á pappírunum en rúmenska sveitin en vitaskuld voru menn þó ekki of sig- urvissir. Revnslan úr öðrum keppnis- íþróttum hefur sýnt að erfitt er að sækja austurblokkina heim og jafn- vel þótt áhorfendum á skákmótum beri að hafa hægt um sig skiptir máli hvort teflt er heima eða heim- an. Nvjar og framandi aðstæður og erfið ferðalög hafa sín áhrif á ein- beitinguna. Jafntefli á „útivelli" má því gjarnan líta á sem hálfan sigur. fremur en hálft tap. Reglur keppn- innar taka aftur á móti ekki tillit til þessa þáttar og því er sveit TR úr leik. Við fórum fullir efasemda til Rúm- eníu og varkárir fram úr hófi. Reynsla okkar af rúmenskum skák- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóósbækur 10 12 Ib.Lb óbund. Spanreikmngar 3ja mán. uppsogn 11 15 Sb 6 mán. uppsogn 12 20 Ib 12 mán. uppsogn 14 25 5 Sp vél 18 mán. uppsogn 22 24 5 Bb Avisanareiknmgar 4 10 Ab Hlaupareiknmgar 4 7 Sp Innlán verðtryggó Sparireiknmgar 3ja mán. uppsogn 1.5 2 Ab.Bb, Lb.Sb. Ub.Vb 6 mán. uppsogn 2.5 4 Ab.Ub Innlán með sérkjörum 10 22 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5.5 6.5 Ib Sterlingspund 7.5 10 Vb Vestur-þýsk mork 2.5 3.5 Ab.Vb Danskar krónur 9-9.5 Ab.Sb. Sp.Ub ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv) 21 24 BbUb Viðskiptav:xlar(forv.)M ) 24 26 eða kge Almenn skuldabréf 21.5 25 Ub Viðskiptaskuldab,-éf(1) kge Alhr Hlaupareikningar(vftrdr) 21.5 25 Ub Útlán verötryggö Skuldabréf Að2 5árum 6.5 7.5 Lb Til lenari tima 6.75 7.5 Ub Útlán til framleiðslu ísl. krónur ■'8.5 24 Ab SDR 7.75 8 Bb.Lb. Ub Bandarikjadalir 8 9 Sb Sterlmgspund 10.25 II.5 Lb Vestur-þýsk mörk 5.25 5.75 Bb.Lb Húsnæöislán 3.5 Lifeyrissjóóslán 5 6,75 Dráttarvextir 33.6 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júni 1687 stig Byggingavisitala 305 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 3% 1 april HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v 100 nafnv : Almennar tryggingar 110kr Eimskip 248 kr Flugleiðir 170 kr Hampiðjan 114 kr Iðnaðarbankinn 134 kr. Verslunarbankinn 116 kr Úgerðarf. Akure. hf. ,150 kr Skagstrendingurhf. 350 kr (1) Viö kaup á viöskiptavixlum og viö- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriöja aöila, er miðað viö sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viöskiptavixla gegn 24% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýöubankinn, Bb= Búnaöarbankinn, lb= lönaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast I DV á fimmtudögum. Fýjuferó til Búkarest - Lið TR slegið út úr Evrópubikarkeppni taflfélaga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.