Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Qupperneq 7
LÁUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987. 7 Fréttir Veiðimenn eiga vonandi eftir að rétta margar og vænar bleikjur til himins í sumar eins og þessi veiðimaður gerði. DV-mynd Þröstur AS E A Cylinda þvottavélar*sænskar og sérstakar Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun, vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis- gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar! 3&. JFQniX HATUNI 6A SlMI (91)24420 Rangámar: Vænir og fallegir urriðar Þeim veiðimönnum íjölgar sem leggja leið sína í Rangámar til að veiða og núna er það urriðinn sem er veiddur á urriðasvæðinu og svo verða bleikju- og laxveiðisvæðin opnuð 20. júní. „Það er allt fínt að frétta héðan og veiðimenn, sem voru að veiða hjá okk- ur í dag, fengu 8 fallega urriða, frá 4 pundum upp í 8 pund,“ sagði Ægir Þorgilsson á Hellu. „Þetta veiddist allt á spún hjá þeim félögum og það virðist vera mikið af fiski. Ámi Bald- ursson og Kristján Kristjánsson voru um daginn og veiddu 5 urriða.“ Við fréttum af veiðimönnum sem renndu í Brúará og fengu tvær bleikj- ur og voru þær um tvö pund. Mikið var af bleikju en hún tók illa. Veiðivon Gunnar Bender Blanda: Tíu laxar á þremur tímum „Veiðin hyrjaði vel héma í Blöndu. Það vom komnir 10 laxar á land um tíuleytið og það var Páll Pálsson, Sauðárkróki, sem veiddi fyrsta laxinn, 10 punda," sagði Sigurður Kr. Jónsson á Blönduósi, en Blanda var opnuð í gærmorgun. „Þessi fiskiu veiddist all- ur á maðk og áin er eins og stór bæjarlækur, frekar stór en tær. Veiði- menn sáu víða fisk og þessi byrjun lofar góðu, laxarnir voru frá 8 pundum upp í 10," sagði Sigurður í lokin og dreif sig niður að á aftur til að fylgj- ast með veiðimönnum. Sjúkrapúði skátanna Landssamband hjálparsveita skáta byrjar að selja sjúkrapúða, som á helst að fara í alla bíla landsmanna, nú um helgina. Skátamir munu reyna að verða á vegi bifreiðaeigenda á bensín- stöðvunum. Þetta er landsátak hjálp- arsveitanna og verða púðarnir seldir imi allt land. Þeir kosta 1490 kr. Þetta er mjög vandaður púði og í honum að finna nauðsynleg fyrstu- hjálpargögn og er haganlega frá öllu innihaldi gengið. Þar er að finna mjög góða leiðbeiningabók á íslensku þar sem jafnvel þeir sem ekki hafa minnsta vit á fyrstu hjálp geta haft gagn af. Siysagögn og sáraumbúnaður er einn- ig merktur greinilega. Þá eru í púðanum beitt skæri ætluð til þess að klippa fatnað utan af slösuðum, álpoki og loks merki til þess að setja á bílrúð- una. Allur hagnaður af sölu þessa púða rennur til starfsemi og rekst.rar hjálp- arsveita skáta um land allt. -A.BJ. Tíminn er takmörkuð auðlind. Flugið sparar tíma og þar með peninga. Flugleiðir og samstarfsaðilar í lofti og á láði tengja yfir 40 þéttbýliskjarna innbyrðis og við Reykjavík. Með þaulskipulagðri og nákvæmri áætlun leggjum við okkur fram um að farþegum okkar nýtist tíminn vel. Þannig tekur ferð landshorna á milli aðeins stutta stund efþú hugsar hátt. FLUGLEIDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.