Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Blaðsíða 36
Y
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hrípgdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987.
Allt gert klárt fyrir hvítasunnuhelgina. Veðurblíðan er notuð og
krakkarnir drifnir út og klipptir. Síðan er kremið sett í hárið og þá
er ungviðið tilbúið. DV-mynd KAE
_ >
Rrfandi gangur
á viðræðunum
- segir Jón Baldvin - samkomulag í umhverfis- og utanríkismálum
„Það hefur verið rífandi gangur á
þessum umræðum. Það miðaði veru-
lega í samkomulagsátt,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins og handhafi um-
boðs til stjómarmyndunar, þegar
fundi lauk í fundarsal Dagsbrúnar
og Sjómannafélags Reykjavíkur síð-
degis í gær. Þar höföu fulltrúar
Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks setið við tilraunir
til stjómarm>mdunar.
Jón Baldvin sagði að í stórum
dráttum væri samkomulag í um-
hverfismálum og utanríkismálum en
vildi ekki skýra frá því í hverju það
felist
Samkvæmt heimildum DV er á-
kveðið að yfirstjöm umhverfismála
verði undir einu ráðuneyti. í utan-
rikismálura er lögð áhersla á sjálf-
stæða stefhu Islendinga, meðal
annars með aðild að hemiálanefnd
Atlantshafsbandalagains. Þá er gert
ráð fyrir auknu frjálsræði í verk-
takastarfeemi fyrir Vamarliðið.
Þrjár undimefndir hafa verið sett-
ar á laggirnar um stærstu ágrein-
ingsmálin sem eru: endurskipulagn-
ing skattakerfis og ríkisútgjalda og
fyrstu aðgerðir í ríkisíjármálum,
húsnæðismál, þar á meðal krafa Al-
þýðuflokks um kaupleiguíhúðir, og
landbúnaðarmál.
Viðræðum verður haldið áfram í
dag en hlé gert á morgun, hvíta-
sunnudag. Nefndimar þrjár munu
einnig starfa um helgina.
-KMU/ES
Ríkissaksóknari um vanhæfisdóminn:
Segi ekkert um þessa niðurstöðu
„Dómamir tala sínu máli, ég vil
annars ekkert segja um þessa niður-
stöðu,“ sagði Hallvarður Einvarðsson
ríkissaksóknari í samtali við DV í gær
þegar leitað var viðbragða hans við
vanhæfisdómi Hæstaréttar.
Eins og kunnugt er var Hallvarður
dæmdur vanhæfur sem ríkissaksókn-
ari i þeim þætti Hafskipsmálsins sem
snýr að Útvegsbankanum vegna þess
að bróðir hans, Jóhann Einvarðsson,
sat í bankaráðinu hluta þess tímabils
sem ákæran á hendur bankastjórum
Útvegsbankans lýtur að.
Sagði Hpllvarður að skipan nýs sak-
sóknara í Útvegsbankamálinu væri
alfarið mál dómsmálaráðherra. Sam-
kvæmt upplýsingum DV er ekki að
vænta skipunar í það embætti á næs-
tunni og að líkindum ekki fyrr en
úrskurðað hefur verið um hæfi Hall-
varðar i Hafekipsmálinu sjálfu.
Hallvarður sagði í gær að hann teldi
sig hafa unnið að þessu máli sam-
kvæmt embættisskyldum sínum og
það hefði verið sin sannfæring að hann
hefði staðið rétt að málum. Hins vegar
væru dómstólar til þess að skera úr
um ágreiningsefhi af þessu tagi.
-ój
LOKI
Er það ekki frekar
rífandi kjaftur?
Spáð er góðu veðri um allt land:
Fólk streymir í BorgarFjörð
Um helgina er gert ráð fyrir góðu
veðri um allt land. Hæg breytileg átt
og bjart veður verður ríkjandi. Hiti
verður 8 til 15 stig. Svalara verður
'Aiorðanlands en hlýrra sunnanlands
og vestan.
Búist er við að mikill fjöldi fólks
verði á Geirsárbökkum í Borgarfirði.
Á Logalandi þar skammt frá munu
Stuðmenn leika fyrir dansi ásamt di-
skóteki. Samkvæmt upplýsingum frá
B.S.I. er mest eftirspumin eftir ferðum
á Geirsárbakka.
Austurleið verður með ferðir í Þórs-
mörk, en Austurleiðir eiga skála þar.
Reiknað er með nokkru margmenni
þangað.
Vegalögreglan gerir ráð fyrir mikilli
umferð. Þyrla Landhelgisgæslunnar
verður lögreglunni til aðstoðar. Vega-
lögreglan verður einnig á ferð um
landið á fjórum bílum, auk fjallabílsins
sem verður á hálendinu.
DV kemur næst út þriðju-
daginn 9. júní.
Smáauglýsingadeildin er
opin í dag, laugardag, kl.
9-14.
Lokað verður hvíta-
sunnudag en opið mánudag
kl. 18-22.
Síminn er 27022.
í.:-m
-
-sme
Þverárhrossin
fundin
Um miðjan dag í gær fann bónd-
inn í Sandfellshaga, sem er næsti
bær við Þverá, Þverárhrossin. Vom
þau öll dauð. Hrossin fundust í fjall-
inu Sandfelli. Höfðu þau hrapað til
dauðs. Bóndinn í Sandfellshaga var
að gæta að lambfé í Sandfelli þegar
hann fann hrossin.
Kristján Benediktsson, bóndi á
Þverá, sagði að hrossanna hefði ver-
ið saknað snemma í janúar. Mikið
er búið að fjalla um hvarf þeirra.
dauð
Hafa margar tilgátur komið fram um
afdrif þeirra. Þegar Kristján bóndi
var spurður hvort ekki hefði verið
búið að leita hrossanna á þessum
slóðum sagði hann það vera en
kannski ekki nóg þar sem fjalhð
blasti svo við mönnum. „Það erbetra
að finna hrossin dauð en finna þau
ekki; þá þarf ekki að vera með alls
kyns grunsemdir. Það er góð lausn
að vita um afdrif hrossanna," sagði
Kristján bóndi að Þverá að lokum.
-sme
Hvrtasunnan:
Blíðan brosir við landsmönnum
Veðurhorfur á hvítasunnudag og annan í hvítasunnu em ekkert til að hryggjast yfir - hæðarhryggur yfir landinu öllu. Hæg breytileg átt verður og skýjað
að mestu við norður- og austurströndina. Annars verður víða léttskýjað. Hiti verður 8-14 stig að deginum en 5-8 stig að næturlagi. Sama gildir svo nokk-
um veginn - í grófum dráttum - um þriðj udaginn líka. Það æ.tti því ekki að væsa um útilegumenn um hvítasunnuna.
r
i
t
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4
i
i
i
4
i
i
i
i
4
t
4
í
A