Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Hvatveíðrfundurinn í Washington:
Bandaríkjastjóm að láta
undan hvalfriðunarsinnum ?
íaata ftmaracn, DV. New Ycate
I dag hefjast viðræður í Washing-
ton um vísindahvalveiðar Islendinga
milli sendinefndar undir forystu
Halldórs Ásgrímasonar sjávarút-
vegsráðherra og bandarískrar
viðræðunefndar.
Framtíð visindaveiða okkar hefur
verið fremur óljós eMr að Alþjóða
hvalveiðiráðið samþykkti á fundi
sínum í Bourneraouth í júní að ís-
lendingar hefðu ekki að fullu
uppfyllt þau skilyrði sem sett eru
fyrir vísindaveiðum. Siguijónsson og frá sendiráði Islands I gær fundaði íalenska sendineftid- mönnum. Halldór Ásgrímsson sagði
Það voru Bandaríkjamenn sem íWashingtoneruþeirlngviS.Ingva- in á Embassy Row hótelinu þar sem þóígæraðviðmyndumstandaharð-
boðuðu íslendinga til þessara við- son sendiherra og Hörður Bjama- hún dvelst. Það var greinilegt að ir á okkar rétti og hvergi víkja. Það
ræðna. Mikil leynd hvílir yfir son. spenna lá í loftinu og jafiivel ótti. er allt eins líklegt að þessar viðræð-
umræðuefriinu og segjast íslensku Ekki er vitað hverjir aitja fundina Otti við að Bandaifkjastjóm sé nú ur verði erfiðar og harðar.
fulltrúamir ekki vita sjálfir ura hvað af hálfú Bandaríkjamanna en talið að láta undan þrýstingi hvalfriðun- Malcolm Baldridge viðskiptaráð-
viðræðumar kunni að snúast. er Iíklegt að forystu af þeirra hálfú arsinna. Slíkt myndi vissulega hafa herra heftir ætíð verið því fylgjandi
í íslensku viðræðunefndinni eru hafi Anthony Calio sem er ftilltrúi alvarlegar afleiðingar í för með sér að beita íslendinga þvingunarað-
auk Halldórs þeir Ámi Kolbeinsson Bandaríkjanna í stjóm Alþjóða fyrir okkur Islendinga, Bandaríkja- gerðum til að neyða okkur til að
og Kjartan Júlíusson frá sjávarút- hvalveiðiráðsins. Einnig er búist við markaður rayndi lokast. hætta hvalveiðum. Nú er að sjá
vegsráðuneytinu. Frá utanríkis- að Halldór Ásgrímsson hitti Malc- íslensku fulitrúamir vom í gær hvorthannhefurhaftsittframinnan
ráðuneytinu eru Guðmundur olm Baldridge, viðskiptaráðherra tregir til að láta hafa nokkuð eftir Bandaríkjastjómar.
Eirík8son og Helgi Ágústsson. Frá Bandaríkjanna, að máli en á þessu sér um málið. Það er á viðkvæmu
Hafrannsóknarstofhun er Jóhann stigi er það óljóst. stigi og boltinn í bili hjá Bandaríkja-
Halldór Ásgrímsson:
Þettaer leiðindaþóf
Halldor Ásgrímsson ræðir yið fréttaritara DV í Washington. DV-mynd ÓA
Ólaiir Amaraan, DV, New Yoric
Þegar útsendari DV ræddi við Hall-
dór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra
í gærkvöldi sagði hann að staðan hér
í Washington væri sú að í Boume-
mouth hefði verið samþykkt tillaga
sem innihéldi það að við íslendingar
hefðum ekki að fullu fullnægt þeim
skilyrðum sem sett hefðu verið fyrir
vísindaveiðum.
„Við höfum aftur á móti haldið því
fram að stofnskrá Alþjóða hvalveiði-
ráðsins gefi okkur fullan rétt til að
stjóma okkar vísindaveiðum og að sú
ályktunartillaga »em var samþykkt sé
í andstöðu við stofnskrána og því ólög-
mæt,“ sagði Halldór. „Við erum
óánægðir með það hvemig bandarísk
stjómvöld hafa unnið að þessu máli.
Þeir hafa verið helstu forgöngumenn
þeirra ályktana sem samþykktar hafa
verið innan Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Þar segja menn gjaman að þetta séu
saklausar ályktunartillögur sem séu
ekki á nokkum hátt bindandi fyrir
viðkomandi ríki og þau geti tekið sín-
ar eigin ákvarðanir. Það á hins vegar
eftir að koma í ljós á hvaða hátt
Bandaríkjamenn ætla að nota þessar
ályktanir í viðræðum eða aðgerðum
gagnvart okkur.“
Halldór sagðist ekki vita hver yrði
afstaða Bandaríkjamanna á þessum
fundum eða hvort þeir hygðust láta
sverfa til stáls. Sagði hann að íslenska
sendinefndin gerði sér að sjálfsögðu
einhverja grein fyrir því við hverju
mætti búast en ekki væri rétt að fjalla
um það á þessu stigi. „Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem við stöndum í þessu,
hvorki við Bandaríkjamenn né aðra.
Þannig að við, sem í þessu stöndum,
erum orðnir ýmsu vanir. Ég held að
það eigi ekkert eftir að koma okkur á
óvart. Það er okkar hörð afstaða að
við og engir aðrir eigum að taka
ákvarðanir um okkar mál,“ sagði
Halldór.
Aðspurður um hvort hlaupin væri
mikil harka í málið sagði Halldór:
„Það má segja að þetta sé alltaf leið-
indaþóf og eftir því sem lengra líður
kemst málið ávallt í nýtt og nýtt ljós
því það er baráttumál margra að
tryggja það að aldrei verði nokkur
hvalur drepinn um alla framtíð. Það
eru einnig margir sem virðast vilja
koma i veg fyrir að við getum aflað
upplýsinga um hvalastofnana."
Halldór sagði að það heföi verið al-
þingi sem markaði þá stefnu sem
íslensk stjómvöld fylgja nú. Þetta
væri þverpólítískt mál og full sam-
staða um það á alþingi.
Vegna ummæla Dean Wilkinsons,
forsvarsmanns grænfriðunga í Banda-
ríkjunum, um að Halldór heföi á
síðasta ári platað bandarísk stjóm-
völd, sagðist Halldór ekki fara þá leið
að plata Bandaríkjamenn eða aðra.
Brian Goiman yfírmaður almannatengsla:
Rastt um breyttar forsendur
Ólafiir ftmaraan, DV, New Yadc
Erfiðlega gekk í gær að fá nokkrar
upplýsingar hjá viðskiptaráðuneyti
Bandaríkjanna um viðræðumar sem
fara í hönd.
Brian Gorman, yfirmaður almanna-
tengsla í sjávarútvegsdeild ráðuneyt-
isins, sagði í samtali við DV að engar
upplýsingar lægju fyrir um það hvert
umráeðuefiii fundanna yrði í smáatrið-
um. Sagðist hann þó telja ljóst að
rætt yrði um breyttar forsendur sem
skapast heföu eftir fúnd Alþjóða hval-
veiðiráðsins í síðasta mánuði.
Gorman sagðist vita til þess að
Bandaríkjastjóm væri ekki búin að
gera upp hug sinn um það hvort rautt
Ijós yrði sett á vísindaveiðar íslend-
inga. Slíkt yrði væntanlega ráðið á
fúndum viðræðunefnda ríkjanna.
Ekki sagðist Gorman geta gefið upp-
lýsingar um það hverjir myndu eiga
sæti í viðræðunefiid Bandaríkjastjóm-
ar. Sagði hann að líkast til væm það
háttsettir menn sem leiddu viðræðu-
nefiidina því Bandaríkjastjóm tæki
þetta mál mjög alvarlega og vildi gera
allt sem í hennar valdi stæði til að það
leystist á farsælan hátt fyrir báða að-
ila.
Öxnadatehelði:
Harður árekstur á blindhæð
Tveir japanskir bílar lentu í niður af veginum annars vegar. All- ásamt einum öðrum fluttur á sjúkra-
árekstri á Oxnadalsheiði um klukk- ir í bílunum voru spenntir í bflbelti. hús. Meiðsh em ekki tahn alvarleg.
an hálftvö í gaardag. Áreksturinn Talið er að bílbelti annars öku- Báðir bílamir eru mikið skemmdir
varð á blindhæð á háheiðinm en þar mannsins hafi ekki haldið honum og nánast ónýtir.
er vegurinn mjór og þverhnípt er og meiddist hann á andliti. Var hann -srae
Helgi Ágústsson:
Ótímabært að tjá
sig um viðræðurnar
Ólafiir Amaraan, DV, New Yoric
DV náði tali af Helga Ágústssyni í
utanríkisráðuneytinu á göngum
Embassy Row hótelsins í gær.
Helgi sagði, eins og svo margir
aðrir sem DV náði í, að á þessu stigi
málsins væri ótímabært að tjá sig
um efni viðræðnanna sem framund-
an væm. Sagði Helgi að íslenska
sendinefiidin vissi í raun ekki alveg
við hverju ætti að búast á fundum
hennar með Bandaríkjamönnum.
„Það er ljóst að samþykkt Alþjóða
hvalveiðiráðsins hefúr breytt tölu-
vert stöðu íslendinga hvað varðar
vísindaveiðar," sagði Helgi. Hann
bætti við að ýmsir gengju svo langt
að segja að með samþykktinni væri
í raun fallið úr gildi samkomulag
íslendinga og Bandaríkjamanna frá
því í ágúst á síðasta ári. Þetta væm
Islendingar ekki tilbúnir að sam-
þykkja. Helgi taldi hins vegar ekki
rétt að vera með neinar ákveðnar
yfirlýsingar fyrr en ljóst væri hvert
umræðuefni fundarins yrði og hver
afstaða Bandaríkjamanna væri.
Dean Wilkinson herstjóri Grænfriðunga:
Hræddir við Halldór
Ólafiir Amaraan, DV, New Yoric
Samtök Grænfriðunga í Banda-
ríkjunum hafa ekki haft sig mikið í
frammi vegna komu islensku sendi-
nefndarinnar til Washington.
Samtökin sendu í gær fréttatilkynn-
ingu til fjölmiðla um komu Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra
og íslensku sendinefridarinnar til
Washington.
Dean Wilkonson, sem er herstjóri
Grænfriðunga í hvalamálum í
Bandaríkjunum, sagði í samtali við
DV í gær að Malcolm Baldridge,
viðskiptaráðherra Bandaríkjanna,
hefói að undanfömu gefið út harð-
orðar yfirlýsingar um hvalveiðar
íslendinga, svo harðorðar að óvenju-
legt væri. Taldi Wilkinson það stafa
af því að Baldridge væri reiður
vegna vanefnda íslendinga á sam-
komulaginu sem gert var í ágúst á
síðasta ári. Wilkinson sagði það
skoðun margra Grænfriðunga að
Halldór Ásgrímsson hefði leikið á
bandarísk stjómvöld á síðasta ári
og fundið smugu í reglrnn Alþjóða
hvalveiðiráðsins sem fslendingar
gátu notað til að halda áfram hval-
veiðum í hagnaðarskyni. Sagðist
Wilkinson hafa heyrt fyrir nokkrum
vikum að íslendingar heföu aðeins
neytt þijú hundmð tonna af ellefu
hundmð sem þeim bæri að neyta
innanlands.
„Ég held ekki að Halldóri Ás-
grímssyni takist að plata bandarísk
stjómvöld núna eins og hann gerði
á síðasta ári. Til þess em reglumar
orðnar of skýrar,“ sagði Wilkinson.
Það kom berlega fram í samtalinu
við Wilkinson að margir innan sam-
taka Grænfriðunga hafa ákaflega
illan bifur á Halldóri Ásgrímssyni
sjávarútvegsráðherra. Telja þeir
hann hættulegan andstæðing og að
hann hafi upp á eigin spýtur leikið
á Bandaríkjastjóm á síðasta ári. Var
ekki laust við að bæri á áhyggjum
um að Halldór muni nú aftur fara
með sigur af hólmi.
Mannúðarsamtök í hvalamálum:
Herferð gegn íslandi
ÓLaíur Amaraan, DV, New Yoite
Mannúðarsamtök Bandaríkjanna í
hvalamálum em að láta hanna heil-
síðuauglýsingu sem þau hyggjast láta
birta í blöðum og tímaritum í Banda-
ríkjunum hætti íslendingar ekki
hvalveiðum með öllu. I auglýsingunni
er fólk hvatt til að sniðganga íslenskar
afurðir.
Campbell Plowden, talsmaður sam-
takanna, sagði í viðtali við DV í gær
að þessi auglýsing væri sú fyrsta af
mörgum sem samtökin hygðust nota
í auglýsingaherferð gegn íslandi.
Aðspurður sagði Plowden að ef nið-
urstaða viðræðna ríkjanna yrði sú að
íslendingar legðu hvalveiðar á hilluna
myndu samtökin falla frá væntanlegri
auglýsingaherferð.