Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. JULl 1987.
Neytendur
13
Vörur út á glerin
„Það er talsvert kvartað undan því
að fólk fái ekki endurgreiddar gos-
flöskur sem það skilar inn í verslanir.
Það verður að taka vörur út á glerið,
í flestum tilfellum sælgæti," sagði Si-
gríður Haraldsdóttir, neytendafúlltrúi
Verðlagsstoíhunar, í samtali við DV.
„Ef einhver setur 5 kr. í pant á hann
rétt á að fá peningana til baka.
Hins vegar er varla hægt að ætlast
til þess að kaupmenn séu með mikinn
flöskulager fyrir gosdrykkjaframleið-
endur. Þetta er því svolítið flókið mál.
Gamalt fólk hefur vinnu af því að
safna flöskum og selja þær. Það er
auðvitað gott og blessað þegar hægt
er að taka matvæli út á glerið. Það
eru líka verðmæti.
Þótt ekki sé lagaleg skylda að greiða
fyrir flöskumar út í hönd fyndist mér
að það væru mjög góðir viðskiptahætt-
ir ef slíkt væri gert,“ sagði Sigríður.
Benda má á að erlendis er greitt
mjög gott verð fyrir tómar gosdósir til
þess að koma í veg fyrir að þeim sé
hent á víðavangi. Þetta ætti að taka
upp hér á landi, en varla hægt að
búast við að kaupmenn taki að sér
þessa þjónustu.
Benda má á þann möguleika að fara
með tómar gosdrykkjaflöskur í flösku-
lager stórmarkaðanna. Þar er tekið
við þeim gegn innleggsnótu, sem hægt
er að nota til matarkaupa.
-A.BJ.
ii 7»m
,. ■ i' '
■■■ - ;
Það er ekkert skrítið þótt kaupmenn sem hafa kannski ekki alltof mlkið hús-
rými vilji ekki taka á móti plássfreku gosdrykkjagleri endurgjaldslaust. Það
eru helst stórmarkaöarnir sem gera það.
iítiW*\ W.. 1 ral
%mí as| is W R# BS33 P»«Í8:
1 Pjt« jwl • »»i«ipi»*
n 1 , ™ ■wl
„Svarti listi“
Neytendasamtakanna
(viðskiptum ber ekki aðeins að hafa verð og gæði í huga við val á vöru og þjón-
ustu. Mikils er um vert að róttlát og skjót lausn finnist á ágreiningsmálum sem upp
kunna að koma, vegna galla eða annars.
Neytendasamtökin telja sér skylt að upplýsa félagsmenn sína um þau fyrirtæki
sem af einhverjum ástæðum svara ekki bréfum samtakanna, eða hunsa á annan
hátt tilmæli og milligöngu þeirra í kvörtunarmálum.
Listinn hér fyrir neöan er fastur dálkur í Neytendablaðinu. Nöfn fyrirtækjanna
munu standa þar til þau hafa breytt afstöðu sinni, eða hætt rekstri.
Fyrirtækin hafa ekki svarað bréfum NS. Þeim hefur verið sent ábyrgðarbréf sem
siðan er ítrekað með öðru ábyrgðarbréfi, þar sem lokafrestur er gefinn. I sumum
tilfellum er jafnvel sent símskeyti að lokum.
Endur og Hendur, barnafataverslun,
Laugavegl 32, Rvk.
Fanný, tfskuverslun,
Laugavegl 87, Rvk.
First, fataverslun,
Reykjavfkurv.64 Hafnarf.
(Óleyst kvörtunarmál sfðan 1985)
Guðmundur Andrésson, gullsmiður
Laugavegi 50, Rvk.
(Óleyst kvörtunarmál sfðan 1984)
Sólarflug, ferðaskrifstofa
Vesturgötu 17, Rvk.
Þarna er „svarti listinn".
í nýútkomnu Neytendablaði er
listi með nöíhum nokkurra fyrir-
tækja sem „Neytendasamtökin geta
ekki mælt með.“ Þessi listi er gjam-
an kallaður „svarti listinn" og þykir
ekki gott að lenda á honum.
Flestir, sem þar hafa lent, hafa
umsvifalaust gert gott úr þeim
ágreiningsmálum sem eru orsök fyr-
ir veru þeirra á listanum. Hins vegar
virðist það ekki skipta máli fyrir
aðra þótt nöfn fyrirtækja þeirra séu
þama ár eftir ár. Tvö fyrirtæki virð-
ast eiga þama fastan sess, annað
síðan 1984 og hitt síðan 1985.
Við birtum þennan svarta lista í
dag og um leið og viðkomandi fyrir-
tæki hafa leyst úr ágreiningsatrið-
uniun munum við birta nöfh þeirra
sem út af listanum fara.
-A.BJ.
Nýtt mjólkurtiald
Ef marka má nýlega könnun Neyt- Reykjavík eigi ekki miklum vinsæld-
endablaðsins virðist sem Tetra brik um að fagna. Margir kvarta raimar
pakkningar Mjólkursamsölunnar í sáran undan umbúðum þessum og
Mjólkurhaldið
hafa því innflytjendur keppst um að
koma á markað ýmsum mjólkurhöld-
um sem eiga að auðvelda neytendum
baslið.
Ein nýjungin á þessu sviði er mjólk-
urhald frá sænska fyrirtækinu Rigel.
Með því að nota það ætti fólk að geta
komist hjá því að mjólkin gusist út
um allt þegar ísskápshurðin er opnuð
en það hefur reynst mörgum hvim-
leitt. Með haldinu er nefnilega hægt
að loka mjólkurpakkningunni.
Helsti galli mjólkurhaldsins er þó sá
að það er nokkuð stórt og klunnalegt.
Það hefur farið í taugamar á mörg-
um að mjólkin á það til að gusast úr
pakkanum þegar hellt er. Gamalt ráð
við því er að gera gat á þann hluta
pakkans þar sem finna má áletrunina
„sfðasti söludagur". Þá kemst loft inn
í pakkann þegar hellt er og mjólkur-
straumurinn verður jafri. Það má geta
þess að sænskir mjólkurframleiðendur
hafa gat á pakkanum, ekki ósvipað
gati fyrir sogrör.
Það er heildverslun B. Thorvaldsson
h/f sem flytur inn mjólkurhaldið og
kostar það í kringum 125 krónur í
smásölu.
-PLP
Kennarar
Okkur vantar kennara til aö vinna með yngri nemend-
um næsta skólaár. Mjög góð aðstaða er í skólanum
og góð íbúð fæst á hagstæðum kjörum.
Upplýsingar í símum 93-81225 (9-17) og 93-81376
(á kvöldin).
Grunnskólinn í Stykkishólmi
Allir á kr.
euRS
KREDIT
Austurstræti 6 - sími 22450
Laugavegi 89 - sími 22453
Reykjavík
Póstsendum
SUMARTILBOÐ
Fyrir verslunarmannahelgina - leðurskór í
mörgum litum og gerðum fyrir dömur og
herra.
er ekki sérrit heldur fjölbreytt, vídlesið
heimilisrit og býður hagstæðasta aug-
lýsingaverð aUra íslenskra tímarita.
FYRIRTÆKI-
ATVINNUREKENDUR!
VIKAN
VIKAN
AUGLÝSINGADEILD
Þverhotti 11, sími 27022