Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. Útvarp - Sjónvarp Stjarnan kl. 23.10: íslenskir tónlistarmenn nefnist þátt- ur sem er vikulega á dagskrá Stjöm- unnar og hafa innanborðs tónlistar- menn úr öllum áttum sem skarað hafa fram úr á sviðinu. Tónlistarmaður kvöldsins verður gítarleikarinn Bjöm Thoroddsen og ætlar hann að leika lausum hala í um það bil 50 mínútur þar sem hann ætlar að leika uppáhaldslögin sín fyrir landsmenn. Bjöm hefur sem kunnugt er verið einn okkar besti gítarleikari undanfarin ár og staðið sig vel í jassin- um sem og á öðrum sviðum og vitum við því hvers má vænta frá honum í kvöld. Birni Thoroddsen gitarleikara er margt til lista lagt. Kvikmyndahús Kvikmyndir Bíóborg Angel Heart Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15 Arizona yngri Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Moskítóströndin Sýnd kl. 7 og 9. Krókódila Dundee Sýnd kl. 5 og 11.05. Bíóhúsið Bláa Betty Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bíóhöllin The Living Daylights Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Morgan kemur heim Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Innbrotsþjófurinn Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Lögregluskólinn Allir á vakt Sýnd kl. 5, 7 og 11. Morguninn eftir Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Blátt flauel Sýnd kl. 9. Háskólabíó Herdeildin Sýnd kl. 7, 9.05 og 11.15. Bönnuð innan 16. ára. Laugarásbíó Meiriháttar mál Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Djöfulóður kærasti Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. Draumátök Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16. ára. Regnboginn Á eýðieyju Sýnd kl, 3, 5.20, 9 og 11.15. Hættuástad Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10 Dauðinn á skriðbeltum Sýnd kl. 9.05 og 11.05. Á toppinn Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05. Gullni drengurinn Sýnd kl. 3, 5. 9 og 11.15. Þrir vinir Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. Herbergi með útsýni Sýnd kl. 7. Hrafninn flýgur Sýnd kl. 7. Kvikmyndasjóður kynnir Skilaboð til Söndru Message to Sandra Leikstjór Kristín Pálsdóttir. Sýnd kl. 7. Stjömuiuo Hætturlegur leikur Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Wisdom Sýnd kl. 3. 5, 7, 9 og 11. Heiðursvellir Sýnd kl. 5. Sýnd laugardag kl. 3. Bönnuð innan 14 ára Regnboginn/A eyðieyju Eyðileg mynd Lucy í matarleit á eyðieyjunni, paradís sem breyttist í andhverfu sína. Castaway Ensk-bandarísk frá Cannon Handrit Allan Scott, byggt á sögu Lucy Irvfne Leikstjóri: Nicholas Roeg Aðalhlutverk: Oliver Reed, Amanda Dono- hoe Ýmsir hafa gengið með þá grillu í höfðinu að lífið á eyðieyju sé hin æðsta sæla. Að dveljast á eyðieyju með aðila af gagnstæðu kyni virðist alltaf heilla og nú hefur verið gerð kvikmynd um það. Er hún alger flatneskja en þó er jákvætt að hún sýnir að líf á eyðieyju er ekki dans á rósum. Sagan segir frá Gerald Kingsland, miðaldra rithöfundi sem auglýsir eft- ir félaga til að dveljast með sér á eyðieyju. Hann velur Lucy Irvine úr hópi umsækjenda og saman und- irbúa þau ferðina sem Gerald ætlar síðan að skrifa um. Náin kynni tak- ast með þeim við undirbúninginn og með tregðu lætur Lucy sig hafa það að giftast Gerald til að komast fram- hjá innflytjendalögum Ástralíu- stjómar. Hér lýkur betri hluta myndarinnar en lýsingin á eyðimerkurdvölinni er langdregin og hugmyndasnauð. Fljótlega eftir að komið er á áfangastað verður ljóst að Gerald er ekki dugmikill við fæðuöílun, rit- störfin né annað. Hann gimist einungis Lucy sem ekkert vill með hann hafa. Næringarskortur fer að hrjá þau ofan á spennuna og rifrild- ið og þau gefast hreinlega upp. Þeim verður þó til lífs að nunnur frá trú- boðsstöð eiga leið hjá og eftir það breytist lífið á eyðieyjunni. Gerald fer að hafa samneyti við fólk á nágrannaeyjunum og gerist viðgerðarmaður. Samband þeirra tveggja batnar. Gerald fær uppfyllta drauma sína og gerist framtakssam- ur. I lokin skilja leiðir. Gerald verður eftir á nágrannaeyjunni og setur upp verkstæði en Lucy fer heim. Endir- inn er þó opinn - þau gætu hist á ný. Ef til vill þykir einhverjum gaman að myndinni en undirrituðum hund- leiddist og var þó í góðu skapi. Myndin er ruglingsleg, klippingar lélegar og leikaramir langt frá því að vera sannfærandi. Að auki er hún langdregin og söguþráður er ein- hæfur. Helst mætti mæla með myndinni ef fólk á ekki sjónvarp, kann ekki að lesa né þekkir neinn til að tala við. -JFJ Á ferðalagi MH MEIRI HÁTTAR SMÁ- AUGLÝSINGA- BLAÐ Auglýsingasíminn er 27022 Miklibær í Blönduhlíð, ofbeldi og draugar Miklabæjarkirkja sem var vigð 1973. Hvað varð um týnda prestinn? Blönduhlíð í Skagafirði er með búsældarlegri hémðum landsins. Hlíðin er þéttbýl og víða er tvöföld bæjaröð. Blönduhlíðin markast af Norðurá að sunnan og Þverá að norðan. Þrátt fyrir þéttbýlið er margt stórbýla í Blönduhlíð og hefur verið svo frá því að land byggðist. Nöfn eins og Flugumýri, Örlygs- staðir, Stóm-Akrar og Víðivellir em nátengdir sögu þjóðarinnar. Flugu- mýri og Örlygsstaðir vom vettvang- ur átaka á 13du öld sem að lokum kostuðu . þjóðina sjálfstæðið. Á Stóm-Ökrum bjó Skúli Magnússon á meðan hann var sýslumaður Skag- firðinga. Víðivellir em fæðingar- staður eins Fjölnismannsins, Brynjólfs Péturssonar, sem á 19du öld hóf baráttuna fyrir endurheimt sjálfstæðis. í Blönduhlíð austan Hér- aðsvatna er kirkjustaðurinn og prestsetrið Miklibær. Staðurinn kom mest við sögu á þeim öldum sem landið var undir útlent vald sett. Það er dæmigert að af þeim tveim atburðum, er hæst ber í sögu Mikla- bæjar á þessum öldum, er annar tengdur málaferlum en hinn þjóðtrú. Á 15du öld varð sá atburður er síðar var kallaður Miklabæjarreið. Biskupinn á Hólum tók Miklabæjar- brauð af prestinum Sigmundi Steindórssyni. Sigmundur vildi ekki láta sinn hlut og í tvígang sendi hann vopnað lið til að taka bæinn. í síðara skiptið tókst mönnum Sig- mundar að ná Miklabæ á sitt vald og gengu þeir um eins og barbarar og skemmdu og eyddu því sem náð- ist til. Miklabæjarreið leiddi síðan til umfangsmikilla málaferla. Þrem öldum síðar, á þeirri 18du, varð mönnum enn tíðrætt um Miklabæ. Þá gerðust þau tíðindi að presturinn þar, Oddur Gíslason, týndist á ferð sinni milli bæja og kom ekki í leitimar. Sú saga komst á kreik að draugur fyrrum vinnukonu Odds hefði dregið prestinn í gröfina til sín. Sólveig hét þessi kona og hún sögð hafa fyrirfarið sér þegar séra Oddur endurgalt ekki ást hennar. Þjóðskáldið Einar Benediktsson orti magnað kvæði um atburðinn. -pal LUKKUDAGAR 21. júlí 77158 Hljómplata frá FÁLKANUM að verðmæti kr. 800. Vinningshafar hringi i síma 91-82580. Uppáhaldsplötur Bjöms Thoroddsens

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.