Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
Fréttir
Nauðungaruppboðið á Kaupfélagi Svalbarðseyrar í gær:
Vlð blasir um 220
milljóna gjaldþrot
Jón G. Haukssan, DV, Akureyjx
Við blasir um 220 milljóna gjaldþrot
Kaupfélags Svalbarðseyrar eftir að
rúmar 68 milljónir króna fengust
fyrir fasteignir félagsins á þriðja og
síðasta nauðungaruppboði þrota-
búsins sem fram fór í gær. Kröfur í
búið námu um 320 milljónum króna,
þar af um 100 milljónir frá Sam-
vinnubankanum og stofnanadeild
samvinnufélaganna.
Þrátt fyrir að flestaliar fasteignir
Kaupfélagsins hafi verið boðnar upp
í gær á enn eftir að bjóða upp lausafé
og eins á eftir að sjá hversu mikið
fæst fyrir útistandandi skuldir.
Bjartsýnustu menn nefndu í gær að
30 milljónir fengjust fyrir lausaféð
og útistandandi skuldir. Það þýðir
að alls er reiknað með um 100 millj-
ónum upp í 320 milljóna kröfúna.
Þannig er 220 milljóna króna gjald-
þrotið fengið.
Fjölmenni var á nauðungarupp-
boðinu sem fram fór á Svalbarðseyri
i gær. Hljóðið var mjög þungt í
heimamönnum, dimmur dagur,
sögðu þeir. Uppboðið hófet klukkan
tiu i gærmorgun og stóð fram til
klukkan hálfþrjú. Samvinnubank-
inn keypti langflestar fasteignimar
en bankinn, sem stærsti kröfúhafi,
krafðist þess að uppboðið feri fram
en að ekki yrði reynd frjáls sala eign-
anna. Skiptastjóri telur að hagur
búsins sé mun verri en ef frjáls sala
hefði farið fram.
Hagur búsins
verri án
frjálsrar sölu
Jcm G. Hauksson, DV, Akureyii
„Eg tel að umtalsvert meira hefði
fengist fyrir flestar eignimar, sem seld-
ar vom á uppboðinu, ef um hefði verið
að ræða frjálsa sölu,“ sagði Hafeteinn
Hafsteinsson, skiptastjóri þrotabús
kaupfélagsins, eftir nauðungarupp-
boðið í gær en hann hefur í nokkra
mánuði reynt að selja eignir búsins
frjálsri sölu og var komið með nokkur
tilboð.
„Sem dæmi get ég nefnt að fjárréttin
fór á 5 milljónir en tilboð var í hana
upp á 9,5 milljónir. Fyrir lá tilboð í
frystihúsið upp á 35 milljónir en það
fór á 15 milljónir á uppboðinu. Slátur-
húsið fór á 4 milljónir en fyrir lá tilboð
upp á 8 milljónir og Jakobshús fór á
2 milljónir en tilboð upp á 3,8 milljón-
ir lá fyrir,“ sagði Hafeteinn Hafeteins-
son skiptastjóri.
Staðgreiða,
takk!
Jón G. Haukssan, DV, Akureyiú
Hún vakti mikla athygli yfirlýsingin
sem Samvinnubankamenn gáfu út í
upphafi nauðungamppboðsins í gær
um að staðgreiða yrði lánin til bank-
ans ef viðkomandi keypti eignina.
Til skýringar skulum við gefa okkur
að af 7 milljón króna eign, sem 6 millj-
ón króna lán Samvinnubankans hvíldi
á, yrði viðkomandi, sem keypti á 7
milljónir, að greiða bankanum strax 6
milljónimar.
Menn töldu að þessi yfirlýsing hefði
latt ýmsa til að bjóða í á móti bankan-
um.
Skora á ykkur
að gera boð
fán G. Hauksson, DV, Akureyii
Uppboðið á Svalbarðseyri var oft á
tíðum fjömgt. Sýslumaðurinn, Halldór
Kristinsson, hvatti menn mjög til að
bjóða og sem dæmi má nefria að þegar
sláturhúsið, það nýrra, var boðið upp
var fyrsta boð 1 milljón. Síðan mátti
heyra tölumar 1,5, 1,7, 2,3, 2,5, 3, 3,2,
3,8 og loks 4 milljónir. Og Samvinnu-
bankinn hafði betur.
„Ekki krónu fyrir
uppboðið"
ón G. Hankssan, DV, Akuieyri:
„Ég fékk engar prósentur af sölu
ngnanna fyrir að bjóða þær upp. Ekki
íin króna fór í minn vasa,“ sagði
Halldór Kristinsson sýslumaður en
viðstaddir ræddu það sín á milli í gær
ið hann hefði tekið 2% af sölu hverr-
ir eignar.
Halldór Kristinsson sýslumaður á uppboðinu í gær: „fyrsta, annað og
jriðja".
Geir Magnússon, bankastjóri Samvinnubankans, og Skúli H. Pálmason,
lögfræðingur bankans, höfðu í nógu að snúast á uppboðinu á Svalbarðseyri
í gær. Mikið fjölmenni var á uppboðinu. DV-myndir JGH
Sverrir Guðmundsson:
„Þetta
hörmu-
ii
Jón G. Haukssan, DV, Akureyit
„Þetta er i einu orði sagt hörmu-
legt,“ sagði Sverrir Guðmundsson,
bóndi á Lómatjöm, en hann var
starfemaður Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar á árunum frá 1977-1986 eða
þangað til Kaupfélagið hætti starf-
semi sinni.
Sverrir sagði að þrátt fyrir að at-
vinnulífið væri dapurt á Svalbarðs-
eyri þá vonuðust allir þar til að
hægt yrði að endurrreisa atvinnu-
starfeemina aftur, þótt menn væm
reyndar misbjartsýnir á það.
Sverrir Guðmundsson, bóndi á Ló-
matjörn, starfsmaður kaupfélagsins
i mörg ár.
Geir Magnússon, bankastjóri Samvinnubankans:
Tap bankans
ekki
Jón G. Hauksson, DV, Akureyit
„Það er ekki ljóst ennþá hve bankinn
tapar miklu vegna þessa gjaldþrots
Kaupfélags Svalbarðseyrar. Við
keyptum flestar eignimar en hinn
leikurinn er eftir, að selja þær,“ sagði
Geir Magnússon bankastjóri Sam-
vinnubankans stærsta kröfuhafans
eftir nauðungamppboðið í gær. Geir
sagðist ekki hræddur um að bankinn
sæti uppi með eignimar, það væri frek-
ar spuming um endanlegt verð sem
fengist fyrir þær.
Samvinnubankinn lagði 25 milljónir
króna í afskriftasjóð um síðustu ára-
mót vegna gjaldþrots Kaupfélagsins.
Hagnaður af rekstri bankans var um
16 milljónir en eftir að 25 milljónir
Ijóst
höfðu verið afekrifaðar var tap bank-
ans um 8 milljónir króna á síðasta ári.
„Eigin fjárstaða Samvinnubankans
er sterk, þrátt fyrir þetta fyrsta alvar-
lega skakkafall í sögu bankans. Eigið
fé var um síðustu áramót um 347 millj-
ónir króna og eiginflárhlutfallið um
helmingi meira en krafist er í lögum
um bankana."
En hversvegna lánaði bankinn stöð-
ugt til kaupfélagsins, að því er virðist,
án nægilegra trygginga?
„Mál Kaupfélagsins var tilkomið
áður en ég kom til starfa sem banka-
stjóri en ég tel að gríðarleg verðbólga
á árunum í kringum 1983 og litlar
endurgreiðslur hafi skipt miklu máli,
lánsupphæðin rauk upp og margfal-
daðist."
Bjami Hóimgrímsson oddvHi:
Dapur dagur
á Svalbarðseyri
Jón G. Hauksaau, DV, Akoreyii
„Ég vona að þessi'öfluga hreyfing
sem keypti eignimar ætli sér að nota
þœr áfram,“ sagði Bjami Hólm-
grímsson oddviti Svalbarðsstrandar-
hrepps eftir nauðungamppboðið í
gær og átti hann við Samvinnu-
hreyfinguna en Samvinnubankinn
keypti flestar eignimar á uppboðinu.
„Hún er mjög dauf starfeemin á
Svalbarðseyri, hér starfa aðeins um
sjö manns núna en um sjötíu vom
hér í vinnu áður, þegar mest lét.“
Bjami sagði að tap hreppsins
vegna gjaldjjrotsins væri um fjórar
milljónir, auk þess hefði komið um
tveimur milljónum króna minna í
aðstöðugjöld til hreppsins vegna
þess að starfsemi Kaupfélagsins væri
minni en áður. „Það kora mér mjög
á óvart hvað Samvinnubankinn var
harður og beitti sér stíft í að kaupa
landið sem Kaupfélagið átti. Hrepp-
urinn bauð í á móti bankanum enda
tel ég eðlilegast að hreppurinn eigi
þetta land.“
Um það hvort hreppurinn myndi
ekki kaupa landið af Samvinnu-
bankanum sagði Bjami að það væri
til skoðunar. „Hreppurinn hefur allt-
af eignarnámsréttinn og það verð
sem þá yrði að borga yrði samkvæmt
mati.“
Uppboðið á kartöfluverksmiðjunni:
„Ekki fyrirfram ákveðið“
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
„Nei, það var ekki fyrirfram ákveðið
að við myndum ekki bjóða í kartöflu-
verksmiðjuna," sagði Skúli H. Pálma-
son, lögfræðingur Samvinnubankans,
en viðstaddir töluðu sín á milli um
plott varðandi það uppboð þar sem
Samvinnubankinn bauð ekki í verk-
smiðjuna á móti Kjörlandi hf. en KEA
á 60% hluta í því.
„Við sáum ekki ástæðu til þess að
bjóða þegar komið var rúmlega 19
milljóna króna boð Kjörlands þar sem
ekki er talið að hægt sé að selja verk-
smiðjuna aftur fyrir mikið meira.“
Rétt áður en kom að uppboði verk-
smiðjunnar kom Valur Amþórsson,
kaupfélagsstjóri KEA, á staðinn og
ræddu viðstaddir þá sín á milli um að
nú fengi Samvinnubankinn keppinaut
en bankinn hafði þá keypt allar eignir
sem boðnar höfðu verið upp.