Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
7
Fréttir
Eifitt að sofna á Islandi?
Tíundi hver
íslendingur tekur
svefnlyf hvem dag
Umtalsverð aukning hefur orðið á
lyfjanotkun íslendinga undanfarin ár
og hefur sú aukning orðið mjög um-
fram það sem verið hefur hjá ná-
grannaþjóðunum. Þannig hafa útgjöld
almannatrygginga vegna lyflakaupa
aukist til muna umfram vísitöluhækk-
anir frá árinu 1981, þó svo innkaups-
verð lylja hafi hækkað heldur minna
en vísitala.
Sýkinga- og sýklalyf eru til muna
meira notuð hérlendis en í nágranna-
löndunum en mesta athygli vekur þó
notkun svefhlyfja sem hefur stóraukist
hér undanfarin ár. Lætur nærri að um
sex prósent allra landsmanna notið
einn svefnlyfj askammt á dag og sam-
svarar það þvi að 10-15% allra fullorð-
inna landsmanna noti lyf til að sofna
á hverju kvöldi.
Nokkur umræða hefur að undan-
fömu verið um lyfjanotkun lands-
manna og þá kannski fyrst og fremst
kostnaðinn sem af honum hlýst. Til
að henda reiður á þessum málum hef-
ur heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið látið semja sérstaka skýrslu
sem nefhist Notkun lyfja 1975-1986.
Er skýrslunni ætlað að vera fyrsta
skrefið til að skýra lyfjavenjur lands-
manna og vera tölfræðileg undirstaða
umræðna um lyfjaneysluna.
Heildarsala lyfja árið 1986 nam 1,7
milljörðum króna, að meðreiknuðum
söluskatti og álagningu, en heild-
söluálagning nemur 18% og smásöluá-
lagning 68%. Álagningin hér á landi
er um tvöfalt hærri en þekkist í ná-
grannalöndunum.
Heilbrigðismálaráðherra hefur skip-
að nefrid sem gert er að kanna hveijar
ástæðumar fyrir háum lyfjakostnaði
em, enda stendur í stjómarsáttmála
nýrrar ríkisstjómar að stefnt skuli að
lækkuðum lvfjakostnaði. Ætlunin er
Jón Páll er ekki að æfa sig í bílveltum heldur er verið að koma bil frá Raf-
magnsveitunni á hjólin aftur eftir að hann valt eftir árekstur við Ijósastaur
Rafmagnsveitunnar við hús Rafmagnsveitunnar. DV-mynd S
Rafmagnsveituslys:
Ókáljósastaur
og velti bílnum
Hann var seinheppinn ökumaðurinn
á bíl frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Honum varð það á að aka á ljósastaur
frá Rafmagnsveitunni á bíl frá Raf-
magnsveitunni og við hús Rafmagn-
sveitunnar.
Það var um klukkan hálftíu í morg-
un sem óhappið varð. Ökumaðurinn
var að beygja inn á Grensásveg af
Suðurlandsbraut þegar hann ók á
ljósastaurinn með þeim afleiðingum
að bíllinn valt á hliðina. Engin slys
urðu við óhappið en bfllinn er eitthvað
skemmdur. -sme
Þessi töflustafli, sem afgreiðslustúlka í Iðunnarapóteki hefur raöað á borðið,
jafngildir notkun íslendinga á svefnlyfjum í aðeins einn dag. DV-mynd: S
að hafa gott samráð við alla aðila
málsins, lækna, lyfsala og lyfjafræð-
inga, og komast að niðurstöður sem
allir geta sætt sig við.
Nefndinni er meðal annars gert að
kanna hverju aukin lyfjaneysla sé að
kenna, hvort það sé verðlagningin og
álagningin, auknar kröfur og þekking
sjúklinga eða ávísanavenjur lækna
sem skrifa frekar lyfseðla á dýr lyf og
þekkt frekar en óþekktari lyf með
sömu verkun en mun ódýrari.
-ATA
Flugleiöaþota í Narssarssuaq:
Hlekktist á í lendingu
Flugleiðaþotunni TF-FLI sem er
af gerðinni Bœing 727-200 hlekktist
á í lendingu é flugvellinum á Narss-
arssuaq á Grænlandi klukkan tvö í
gærdag. Um borð voru 142 farþegar,
engan sakaði og ekki voru neinar
skemmdir sjáanlegar á þotunni. Þot-
an var að koma frá Keflavíkurflug-
velii eftir framhaldsflug frá
Kaupmannahöfh. Þetta var áætlun-
arflug fyrir Grænlandsflug.
í lendingunni rann þotan með nef-
hjólið út af flugbrautinni og stöðvað-
ist þar í möl. Engar skemmdir voru
sjáanlegar á vélinni, nema að hjól-
barðar voru slitnir eftir hemlun.
Menn voru sendir strax til Græn-
lands að skoða hvort einhveijar
skemmdir sem ekki voru sjáanlegar
heföu orðið.
Önnur þota var send skömmu eftir
óhappið til að sækja farþegana.
-sme
Nýjung
álslandi
Einnig kynnum við BOSE Acoustimass í Sætúni
og Hafnarstræti
• T0 :. W GU"Ko(!Sf,lT 5 5HI(,M£iiTWHE1
m TV0U ««jf- . HI Líf1
m^Tls ,XL
1«I
Acoustimass
Við opnun verslun okkar í Kringlunni kynnum
við stórkostlega nýjung frá BOSE.
Hið nýja BOSE Acoustimass heimilis-
hátalarakerfið er ekki stórt um sig en tóngæðin
hreint stórkostleg.
Þú verður að heyra til
þess að trúa....
TO TPcUh£W
wAj'JyouB
SU'
iCCE55
. .eimilistæki hf
HAFNARSTRÆTl 3 — KRiNGLUNNl SÆTUNI8 SIM|®
\fídemH,si>€Í^ade^<S(m<if<^
birgir