Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
19
Iþróttir
Iþróttir
Allgöver í nýju hlut-
verki hjá Stuttgart
- leikur stöðu „sweepers” og hefur staðið sig vel
Karl Allgöver, miðvallarspilarinn
•Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði Stuttgart og Arie Haan, þjálfari.
sterki hjá Stuttgart, sem hefur skorað
flest mörk leikmanna Stuttgart und-
anfarin ár, hefur nú fengið nýtt
hlutverk hjá félaginu. Arie Haan,
þjálfari félagsins, færði Allgöver aftur
og leikur hann nú stöðu aftasta vam-
arleikmanns „sweepers” og hefur þessi
gamli refur skilað hlutverki sínu mjög
vel.
Stuttgart er spáð góðu gengi í vetur
undir stjóm Haan. „Við erum með
góðan mannskap og ef við náum að
mynda góða og sterka liðsheild, erum
við til alls líklegir,” segir Haan.
Flestir veðja á Bayem Múnchen í
baráttunni um meistaratitilinn í V-
Þýskalandi. Liðið er nú geysilega
sterkt og leikur mjög skemmtilega
knattspymu undir stjóm Jupp
Heynckes. -SOS
Bikarslagur Fram og Þórs:
„Framarar hyggja
örugglega
á hefndir“
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Ég hef ekki trú á því að Þórsliðið
sé búið að segja sitt síðasta orð í 1.
deildar keppninni þrátt fyrir tapið
gegn Valsmönnum," sagði Jóhannes
Atlason, þjálfari Akureyrarliðsins
Þórs. Þórsliðinu hefur gengið mjög vel
að undanfömu og undir stjóm Jó-
hannesar tapaði liðið ekki leik í júlí
- það lék fimm deildarleiki og tvo bik-
arleiki án taps. Jóhannes Atlason
hefur verið útnefndur DV-þjálfari júlí-
mánaðar.
Þórsliðið er nú í fjórða sæti í 1. deild-
arkeppninni, sex stigum á eftir
Valsmönnum. Byrjunin var ekki góð
hjá Þór. Eftir góðan útisigur gegn
Fram, 3-1, í fyrstu umferð íslands-
Einar er í
sjötta sæti
Einar Vilhjálmsson spjótkastari er í
sjötta sæti yfir stigahæstu menn í
spjótkastskeppni Grand Prix-stiga-
mótunum. Einar hefur hlotið 20 stig,
en Sigurður Einarsson er í fimmtánda
sæti með 8 stig. Átta stigahæstu spjót-
kastaramir komast í úrslitakeppni
Grand Prix, sem verður í Brússel 11.
september.
Eins og við sögðum frá í gær, þá
keppa þeir félagar í London og Köln
um helgina. Þeir Einar og Sigurður
glíma t.d. við Evrópumeistarann
Klaus Tafelmeier í Köln á sunnudag-
inn. -SOS
mótsins fékk liðið aðeins þrjú stig út
úr næstu fimm leikjum sínum. Hvem-
ig var andrúmsloftið í herbúðum
Þórsara þegar fallbaráttan blasti við
í byrjun?
„Andrúmsloftið hjá strákunum var
alls ekki slæmt en aftur á móti leið
mér sjálfum ekki vel. Við áttum mjög
erfiða útileiki í upphafi gegn Fram,
Val, Keflavík og KR i sex fyrstu um-
ferðunum. Á þessum tíma áttum við í
miklum erfiðleikum vegna meiðsla
leikmanna þannig að útlitið var ekki
gott,“ sagði Jóhannes.
Hvað varð til þess að leikur liðsins
breyttist?
„Við áttum mjög góðan leik gegn
Skagamönnum í fimmtu umferð um
miðjan júní, okkar besta leik í sumar.
Það var létt yfir mönnum en strax á
eftir kom stór skellur, 0-5, gegn KR í
Reykjavík. Sem betur fer náðum við
okkur upp aftur í næsta leik og lögðum
Víðismenn að velli með sömu marka-
tölu, 5-0, hér á Akureyri. Ég tel að
leikurinn gegn Skagamönnum hafi
orðið til að breyta mestu hjá okkur.
„Erffitt að kyngja jafnteflinu
gegn Keflavík“
- Eftir hið góða gengi í júlí kom skell-
ur gegn Val.
Já, okkur gekk vel í júlí. Unnum
fjóra leiki en urðum að sætta okkur
við jafhtefli, 2-2, gegn Keflavík. Það
eru þau úrslit sem ég hef átt hvað
erfiðast með að kyngja í sumar.
Ég tel hins vegar að liðið hafi komið
mjög vel undirbúið í leikinn gegn
Valsmönnum en leikurinn þróðaðist
ekki okkur í hag. Við fengum tvö
dauðafæri áður en við færðum Vals-
mönnum þeirra fyrsta mark á silfur-
fati. Ef við hefðum náð að skora í
upphafi er ekki víst að Valsmenn
hefðu sloppið vel héðan.
„Stefnum að þrennu gegn
Fram“
Þórsliðið verður í sviðsljósinu á
Laugardalsvellinum í kvöld kl. 18.30.
Þá mætir það Framliðinu í undanúr-
slitum mjólkurbikarkeppninnar.
Hveijir eru möguleikar Þórsliðsins?
„Það hefði verið hægt að hugsa sér
léttari andstæðinga í þessum leik.
Þetta er í annað skiptið sem ég er í
undanúrslitum með Þórsliðið í bikar-
keppninni. Og í bæði skiptin höfum
við leikið gegn Fram. Framarar slógu
okkur út 1985.
Okkur hefur aftur á móti gengið vel
með Fram í sumar, við unnum báða
deildarleikina gegn þeim, 3-1 og 4-1.
Við stefnum að sjálfsögðu að því að
fullkomna þrennuna. Það yrði geysi-
Iega skemmtilegt að komast í bikarúr-
slitin. Ég yrði mjög ánægður ef það
tækist. Sennilega hyggja Framarar á
hefhdir. Leikurinn við þá verður ör-
ugglega mjög erfiður.
„Við gefumst ekki upp“
- Eru Þórsarar búnir að missa af lest-
inni í baráttunni um meistaratitilinn
eftir skellinn gegn Val?
„Ég er ekki að velta því fyrir mér
þessa stundina. Við hugsum aðeins
um einn leik í einu. Úrslitin gegn Val
voru skellur fyrir okkur en strákamir
í Þór eru þekktir fyrir annað en að
gefast upp. Toppliðin í deildinni eiga
marga innbyrðisleiki eftir. Það getur
ýmislegt gerst áður en úrslit liggja
fyrir,“ sagði Jóhannes Atlason, DV-
þjálfari júlímánaðar. -SOS
Rummenigge atvinnulaus!
- kemst ekki í lið Inter Mflanó á halíu
Karl-Heinz Rummenigge, fyrrum
fyrirliði v-þýska landsliðsins í knatt-
spymu og leikmaður Bayem
Múnchen, er nú atvinnulaus. Þessi
kunni knattspymumaður, sem hefúr
leikið með Inter Mílanó á Ítalíu
undanfarin ár, kemst ekki lengur í
Mílanóliðið og er á sölulista.
Ástæðan fyrir því að Rummenigge
er kominn út í kuldann er að Inter
Mílanó keypti belgíska landsliðs-
manninn Enzo Scifo fiá Anderlecht.
Fyrir var hjá félaginu Daniel Passa-
rella, vamarmaðurinn sterki frá
Argentínu. Þeir Passarella og Scifo
verða í bytjunarliði Inter Mílanó.
Rummenigge er ekki eina knatt-
spymusnjaman sem er atvinnulaus
á Italíu. ítölsku HM-stjömumar
Rossi, Tardelli, Gentile, Oriali og
Dossena fá heldur ekki tækifæri til
að leika.
Spumingin er hvert Rummenigge
fer? Bayem Múnchen hefur verið
nefht í þvi sambandi.
-sos
• Karl-Heinz Rummenigge.
Vona að reynslan
If
komi að notum
ik
- segir Pétair Ormslev sem kjórinn var leikmaður júlímánaðar á DV
erfiðir við að etja. Ég vona hins vegar
að reynslan komi að notum en við
höfúm leikið í úrslitum bikarsins síð-
Pétur Ormslev, Fram, hefur verið
kjörinn leikmaður júlímánaðar af
íþróttafréttamönnum DV.
Hann stóð sig afar vel á umræddu
tímabih. Þrívegis var kappinn valinn
í úrvalslið DV og var framganga hans
ótrúleg í þeim leikjum. Sérlega er
minnistæð rimma Framliðsins við
Akranes en þar bar Pétur höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn á vellinum.
Framliðið hefur vaxið mjög af styrk
í allra síðustu umferðum og gleður
leikur þess augað.. Laglegt spilið
grundvallast á Pétri - hann er jafiian
sá möndull sem allt snýst um í aðgerð-
um liðsins.
í spjalli við DV taldi Pétur kjörið
heiður fyrir sig sem knattspymumann.
„Ég er mjög ánægður að hafa orðið
fyrir valinu," sagði hann jafnframt.
Aðspurður um framhaldið í deildar-
mótinu sagði Pétur að einn leikur yrði
tekinn fyrir hveiju sinni;
„Við hugsum ekki um íslandsmeist-
aratitilinn í augnablikinu. Við tökum
einn leik fyrir í einu og keppum að
því að sigra.
Liðin við toppinn spila undir meiri
pressu en við og það getur komið nið-
ur á leik þeirra. Við bíðum því færis
og sjáum hvað setur. Þvi fer vitanlega
fjarri að ég hafi afskrifað Framliðið í
baráttunni um íslandsmeistaratitilinn.
Eins og málin standa skiptir hins veg-
ar bikarkeppnin meira máli.“
Það verður hart barist i Laug-
ardalnum i kvöld
Er Pétur mátti segja sitt álit á bikar-
leiknum í kvöld, glímu Fram og Þórs
á aðalvellinum í Laugardal, sagði
hann að þar yrði hart barist.
„Þórsarar eru gífurlega sterkir og
ustu þrjú árin. Ef við náum að sýna
okkar rétta andlit, spila okkar leik,
þá ættu úrslitin að verða okkur í hag.
Við leikum vel þegar við náum sam-
an.“ -JÖG
• Jóhannes Atlason, þjálfari Þórsliðsins, stjórnar strákunum sínum gegn sinum
gömlu lærisveinum í Fram. DV-mynd GK, Akureyri
Gamlir refir
á skotskónum
- þegar Skagamenn lögðu Framara
„Gömlu mennirnir” á Akranesi
unnu góðan sigur, 3-1, yfir Fram í
úrslitakeppni eldri knattspymu-
manna. Leikurinn fór fram á
Akranesi á þriðjudagskvöldið.
Framarar skoruðu fyrsta mark leiks-
ins, en síðan skoruðu landshðs-
mennirnir gömlu, Guðjón Þórðar-
son, Karl Þórðarson og Jón
Gunnlaugsson, mörk Skagamanna.
Þriðja liðið í úrslitakeppninni er
Keflavík. Framarar lögðu Keflvík-
inga að velh, 2-0, í fyrsta leik úrshta-
keppninnar. Skagamenn leika gegn
Keflvíkingum á grasvellinum í
Keflavík á morgun kl. 17. Þeim næg-
ir jafntefli til að verja meistaratitill
sinn. -SOS
wm °SJSJ^VLL L a
I/EKIÐ gegnum dagmn 3.29
óótotóbttttPnlwft PÖNTUNARSÍMI651414 £®5 ~
li
Stöðvar HSK15 ára
sigurgöngu ÍR-inga?
- í bikarkeppninni í frjálsum íþróttum
Það eru margir sem spá því að hið
unga og efriilega fijálsíþróttalið
HSK nái að stöðva 15 ára samfellda
sigurgöngu ÍR í bikarkeppninni um
helgina. Mikið og öflugt starf hefur
verið unnið hjá HSK og hafa kunn-
áttumenn trú á að það starf skili sér
á Laugardalsvellinum, þar sem 1.
deildarkeppni bikarkeppninnar fer
fram.
UMSK og KR hjuggu nærri þess-
ari einstöku sigurgöngu ÍR-inga i
fyrra, en þá munaði ekki nema
tveimur og hálfu stigi að veldi ÍR
mvndi falla. ÍR, KR, UMSK, UÍA.
UMFK og HSK keppa í 1. deild.
Keppnin heíst kl. 14 á laugardaginn
og síðan kl. 11 á sunnudaginn.
2. deildarkeppnin fer fram í Hafii-
arfirði á sama tíma. Þar keppa sex
félög. FH. Ármann, UMSB. USAH,
UMSS og UDN. FH-ingar eru sigur-
stranglegastir. 3. deildarkeppnin
verður í Stvkkishólmi á sunnudag-
inn kl. 13. Þar keppa sjö félög: UNÞ,
HSH. HSÞ. USÚ. USVS. UMSE og
HSS.
-sos
Heynckes er launa
hæsti þjálfarinn
í V-Þýskalandi
• Pétur Ormslev, fyririiöi Fram í knattspyrnu, var DV-leikmaður júlimánuðar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Jupp' Heynckes, þjálfari Bayem
Múnchen, er tekjuhæsti þjálfarinn í
V-Þýskalandi. Heynckes, sem tók við
Bayem í sumar, heftir kr. 735 þúsund
í laun á mánuði, eða rúmlega 8.8 millj-
ónir í árstekjur. Heynckes hefur kr
189 þús. meira í laun heldur en næst
tekjuhæsti þjálfarinn. Það er Otto
Rehhagel hjá Werder Bremen sem
hefur kr. 546 þús. í laun á mánuði.
Næstir á blaði em Josip Skoblar hjá
Hamburger, Arie Haan hjá Stuttgart
og Erich Ribbeck hjá Leverkusen, með
kr. 525 þús. Sá þjálfari sem hefur
minnstu launin, er Scháfer hjá
Karlsruhe. Hann fær kr. 273 þúsund.
Þess má geta til gamans að laun
Graham Taylor, framkvæmdastjóra
Aston Villa, var til umræðu í enskum
blöðum í vikunni. Taylor fær kr. 310
þús. á mánuði fyrir að stjóma hjá
Aston Villa. Á þessu sést að laun þjálf-
ara í V-Þýskalandi eru miklu hærri
en laun framkvæmdastjóra í Englandi.
-sos
• Jupp Heynckens, þjálfari Bayem.