Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
Fréttir
Vilhjálmur Simon Hjartarson, 9 mánaða, i fangi móður sinnar, Friðfinnu Lilju Símonardóttur, við Rauða kross
kassann á Hofsósi.
DV-mynd JGH
DV á Hofsósi:
Níu mánaða í peningaspili
Jón G. Hauksson, DV, Akureyii:
Hann Vilhjólmur Símon Hjartarson,
9 mánaða snáði, er sennilega einn
fárra sem er ekki æstur þegar hann
spilar í- Rauða kross kassa. Sallaró-
legur í fangi móður sinnar, Friðfinnu
Lilju Símonardóttur, ýtti hann á
rauða takkann og ræsti apparatið
eftir að móðirin hafði sett tíkallinn
á sinn stað. Ekki vannst í þetta skip-
tið, 'kassinn hirti tíkallinn. En það
kemur dagur eftir þennan dag og
vonandi skilar silfrið sér.
DV á Bakkafirði:
Snikkari sem stundar
sjóinn á hverju sumri
Ingimundur Reimarsson, trésmiður á Selfossi á veturna en trillukarl frá Bakka-
firiði á sumrin. „Hér eru skemmtileg fiskimið." DV-mynd JGH
Jón G. Haukssan, DV, Akureyn:
Ingimundur Reimarsson býr að Ár-
bliki í Ölfusi og er trésmiður á vetuma
hjá Samtaki hf. Á sumrin er hann
trillukarl írá Bakkafirði og líkar vel.
„Þetta er sjötta sumarið mitt á
Bakkafirði. Það hefur yfirleitt gengið
vel nema í sumar að það hefur verið
tregt. Það góða við að stunda sjóinn
á Bakkafirði er hve fiskimiðin eru
skemmtileg. Þau eru á stóru svæði og
skammt undan,“ sagði Ingimundur.
Þetta var á fimmtudeginum íyrir
verslunarmannahelgina og kvaðst
Ingimar vera á suðurleið um helgina.
„Ég verð að slá blettinn heima í
Ölfusi."
DV á Sauðárkróki:
Garður passaður
eins og ungbam
Jón G. Haiíkssan, DV, Akuieyii
Baráttunni við arfann lýkur aldrei
í skólagörðunum á Sauðárkróki, þar
gæta 85 böm reitsins síns eins og
lítils rmgbams. Þau segja arfanum
og öðm illgresi stríð á hendur, vökva
og moldvarpast á hveijum degi. Af
og til er skroppið í gönguferðir með
nesti og nýja. . . nei, skómir era
auðvitað moldugir eftir allt mold-
vörpustandið.
Nú er timi radisa, sögðu krakkarnir í skólagörðunum á
Sauðárkróki. Þau moldvarpast á hverjum degi. DV-mynd JGH
DV á Vopnafirði:
Sumum
finnast göngu-
ferðir mínar
hin mesta
sérviska
Kristján Jónsson, 84 ára Vopnfirðing-
ur, fer í gönguferðir á hverjum degi.
Hér er það slökun við einn bekkinn í
bænum. DV-mynd JGH
Jón G. Hauksson, DV, Akureyii
Knstjón Jónsson er 84 ára öldungur
á Vopnafirði sem gengur um bæinn á
hverjum degi, stundum í tvo tíma og
lengur ef veðrið er gott.
„Mér finnst alveg bróðnauðsynlegt
að hreyfa mig þegar ég er orðinn svona
gamall þótt sumum finnist gönguferðir
mínar hin mesta sérviska," sagði
Kristján.
Hann býr á elliheimilinu á Vopna-
firði, Sundabúð 2. „Það er fínt að vera
þar, margt af góðu fólki.“
DV á Ólafsfirði
Gengur með
grasið í skónum
á daginn
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
„Það er rétt hjá þér, ég geng með
grasið í skónum í vinnunni, ég kemst
ekki hjá því,“ segir Sigurður Ingi-
mundarson, 14 ára Ólaísfirðingur,
sem slær með priki eða vélorfí eins
og það er líka kallað.
Sigurður slær kanta en þó mest
brekkur þar sem venjulegar sláttu-
vélár eiga erfitt með að sýna kúnstir
sínar - slá í gegn.
„Ég bregð mér einnig á sláttuvél-
amar,“ segir Sigurður sem vinnur
átta tíma á dag við að fegra bæinn.
Sigurður Ingimundarson, 14 ára, slær brekkurnar af krafti með prikinu.
DV-mynd JGH