Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
V,
Sviðsljós
Ólyginn
sagði....
Rock Hudson
Kim Novak
leikkona ætti að hafa fengið
hlutverk við sitt hæfi. Þannig
er að hún hefur fengið hlutverk
í bandarískum framhaldsþætti
þar sem hún leikur ruglaða
konu sem heldur að hún sé
kyntáknið Kim Novak. Gæti
varla verið þægilegra hlutverk í
kvikmynd - bara að leika sjálfa
sig. Kannski gæti það heldur
ekki verið fáránlegta- En allt er
nú til í Ameríkunni. Vonandi
þekkir hún sjálfa sig nógu vel
til að taka þetta að sér.
Linda Gray,
þekkt sem Sue Ellen í Dallas-
þáttunum, lætur ekki ofbjóða
sér og kann að segja nei. Hún
hefur nú hingað til verið iðin
við að klæðast flegnum kjólum
og efnislitlum baðfötum í þátt-
unum. Allt gert til að halda
karlmönnunum við efnið. En
framleiðendum Dallasþáttanna
•j fannst ekki nóg af því góða.
Þeir vildu að hún fækkaði fötum
enn frekar og klæddist enn
meira kynæsandi. Linda brást
hin versta við og hótaði öllu illu
og sagði aö þvílíkt kæmi bara
ekki til greina. Orð hennar voru
tekin góð og gild.
leikari dó eins og kunnugt er
úr þeim hörmulega sjúkdómi
eyðni. Hann skildi eftir sig lúx-
usvillu eina sem stendur hátt á
Hollywoodhæðum. Villan hefur
verið í sölu frá því að Rock an-
daðist. Gengur mjög erfiðlega
að selja húsið og hefur það
lækkað í verði svo um munar.
Þegar það var fyst sett í sölu
var það metið á þrettán hundr-
uð milljónir en nú er það falt
-f fyrir litlar átta hundruð milljónir.
Ástæða þessara söluerfiðleika
er víst sú að fólk er alls ekki til-
búið að kaupa hús þar sem
eyðnisjúklingur hefur búið
vegna hættu á smiti.
Dustin Hotfman líður best í faðmi fjölskyldunnar og vill eiga sem flest börn. Þessa dagana biður hann síns sjötta barns.
Fimmtugur og að verða
pabbi í sjötta sinn
Trúi því hver sem vill, en banda-
ríski leikarinn myndarlegi, Dustin
Hoffman, varð fimmtugur síðast-
liðinn laugardag. Stærstu og bestu
afmælisgjafarinnar bíður hann þó
enn með einskærri eftirvæntingu.
Dustin er nefnilega að verða pabbi
i sjötta sinn.
Einkalíf leikarans þykir til mik-
illar fyrirmyndar. Ekki síst þegar
um fræga og myndarlega mann-
eskju er að ræða. Engin hneyksli,
framhjáhöld eða annað sem slúður-
dálkahöfundar hafa getað velt sér
upp úr.
Hann hefur þó verið giftur tvi-
svar. Á unglingsárum sínum giftist
hann ballettdansmær, Önnu Byrne.
Hún átti dóttur fyrir sem Dustin
ættleiddi. Sú stúlka er nú tuttugu
og eins árs. Dustin og Anna eign-
uðust eitt barn saman, Jenny
sautján ára. Nú, þau skildu og
Dustin fór í leiklistarskóla. Þegar
hann var tuttugu og sjö ára hitti
hann í fyrsta skipti væntanlega
eiginkonu sína, Lisu Gottsegen.
Hún var þá aðeins tíu ára gömul
en Dustin gætti hennar stundum
fyrir vinafólk sitt. En ástin er
furðuleg. Það var svo fyrir sjö árum
að þau- giftu sig. Börnin komu i
bunu. Þau eiga Jake sex ára,
Rebeccu fjögurra ára og Maxwell
þriggja ára. Og nú er fjórða barn
þeirra væntanlegt á hverri stundu.
Dustin og Lisa eru sérlega heima-
kær og líður allra best í faðmi
fjölskyldunnar. Leikarinn þykir
líka góðhjartaður með afbrigðum
því á hverju ári lætur hann dágóða
fúlgu af hendi rakna til munaðar-
lausra barna og annarra sem
minna mega sín. Hann hefur látið
þau orð falla að hann geti ekki
ímyndað sér neitt dásamlegra en
að verða faðir í enn eitt skiptið nú
á næstu dögum og segir ennfremur
að vonandi eigi hann eftir að verða
það sem oftast í framtíðinni.
Rod Stewart hefur aldrei verið lukkulegri en nú þegar hann og unnust
an Kelly Emberg hata átt saman barn.
Breyttur og
bættur Rod
Okkur berast stöðugt ný tíðindi
af barneignarmálum fræga fólks-
ins. En svo virðist sem um þessar
mundir séu barnseignir aðaláhuga-
mál þess. Rod Stewart og unnusta
hans Kelly Emberg eignuðust dótt-
ur fyrir rúmum mánuði. Það sem
þykir merkilegast við þá barns-
fæðingu er hve söngvarinn hefur
breytt sínu hegðunarmynstri eftir
að hann varð pabbi á nýjan leik.
En hann átti fyrir tvö börn með
fyrrverandi eiginkonu sinni Ölönu.
Fyrir fæðingu þessa barns var
Rod farinn að stunda næturlífið
ansi mikið og sást oft í fylgd ann-
arra stúlkna en kærustunnar.
Hann lét þau orð falla að Kelly
hefði orðið barnshafandi bara til
að halda í sig og helst til að giftast
honum en hann hefur megnustu
ótrú á hjónabandinu. En nú þegar
dóttirin er fædd lítur allt öðruvísi
út. Söngvarinn hreinlega blómstr-
ar og hefur aldrei verið hamingjus-
amari með Kelly.
En Kelly sjálf hefur einmitt sagt
frá því að hún vonist til að Rod
teymi hana sem fyrst upp að altar-
inu. „Ég vil vera í hjónabandi nú
þegar ég er orðin móðir. Ég er
kannski dálítið gamaldags i þeim
efnum en svona er það bara.“
En af dótturinni Ruby er það að
frétta að þegar hún var þriggja
vikna var hún nærri köfnuð í
vöggu. Þau komu að barninu þar
sem sængin var komin yfir vit þess.
Barnið gaf frá sér torkennileg hljóð
og i ljós kom að það var hætt kom-
ið. En sem betur fer fór allt vel að
lokum.