Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1987, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1987, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987. Spumingin Hvað gerðirðu í sum- arfríinu þínu? Unnur Skúladóttir og Skúli Jón Kristinsson: Ég tók ekkert sumarfrí. Ég var ekkert að vinna í vetur held- ur var bara heima með þann litla. Ég byrjaði því fyrst að vinna í sumar og tók þarafleiðandi ekkert sumarfrí. Tinna Kristín Snæland: Ég fór til Bandaríkjanna og Kanada í 3 vikur. Það var æðislega gaman en skemmti- legast fannst mér líklegast í New York. Guðni Ólafsson: Ég fór í ferðalag innanlands í Þórsmörk, Núpsstaðar- skóg og Veiðivötn, allt í allt í 12 daga. Ég er vanur að fara út en þetta var bara betra. Árni G. Pétursson: Ég er nú í eilífu sumarleyfi því að ég er eftirlauna- þegi. Ég er búinn að vera hlunninda- bóndi norður á Melrakkasléttu frá því í maí og verð það þangað til seint í haust. Það er alveg dýrðleg reynsla. Freymóður Jensen og Björgvin Frey- móðsson: Ég var í heyskap vestur í Bæjum á Snæfjallaströnd í hálfan mánuð. Það var mjög gaman. eina viku og skoðaði Austfirðina í leiðinni. Ég naut þessa sumarleyfis mjög vel. Lesendur Hvar eru hljómsveitir Ríkisútvarpsins? Tónlistarunnandi skrifar: Fyrir nokkrum árum var sett á fót Stórsveit Ríkisútvarpsins þar sem margir af bestur hljóðfæraleikurum landsins létu Ijós sitt skína og heyrð- ist í þessari ágætu hljómsveit í nokkurn tíma í útvarpi við góðar undirtektir tónlistarunn enda. Það var fyllilega tímabært að koma slíkri hljómsveit á íramfæri svo mjög sem vantar í tónlistarlíf landsmanna einmitt þess konar hljómsveit sem Stórsveitin var. Hún lék létt, sígild hljómsveitarverk ásamt því að færa í nýjan búning íslensk lög úr ýmsum áttum í útsetn* ingu fyrir stórhljómsveit Nú, nú, allt var með felldu í nokk- um tíma og enn i dag er hægt að heyra eitt og eitt lag með þessari hljómsveit en það er þó æ sjaldnar og er hún nú hætt að því er virðist fyrir fullt og allt, enda sennilega ekki um auðugan garð að gresja hvað varðar upptökur með hljóm- sveitinni. Síðan leið og beið. Þá skýtur upp kollinum hjá RÚV önnur hljómsveit sem nefhd er Léttsveit Ríkisútvarps- ins. Hún er með svipuðu sniði og sú fyrri, sennilega þó fámennari en nokkuð góðu lofaði hún þó. Hún kom fram nokkrum sinnum í ríkis- sjónvarpi og á einstaka hátíðum eða fúndum, svo sem á Landsfundi Sjálf- stæðisflokksins. Lagaval var þó fábreytt og skartaðf léttliljómsveitin aðallega laginu „Stóð ég úti í tungls- ljósi“ í nýrri útsetningu. Gott svo langt sem það náði. En það náði aldrei miklu lengra. Lögin voru nokkuð einhæf, eins og áður sagði, og einleikarar voru látnir ofleika, en hljómsveitin sjálf ekki nýtt sem skyldi. Þetta framtak hjá RÚV er virðing- arvert sem slíkt, bæði hvað varðar Stórhljómsveitina og þá léttu. En úthaldið virðist vanta. Er virkilega málum þannig komið hjá okkur að hljómsveitir sem leika létta og vin- sæla tónlist geti ekki þrifist? Hverju er um að kenna? Fjárskorti, úthalds- leysi hljóðfæraleikaranna eða vöntun á hæfum manni sem útsetur lög fyrir hljómsveit? Það er synd og skömm ef ekki er hægt að halda úti öðrum hljómsveit- um en þeim er leika einfalda grað- hestatónlist með gítarvæli og hljómborðseffektum. Þessar hljóm- sveitir sem leika tónlist fyrir fólk hér eru einfaldar og fatæklegar og hljóð- færaleikaramir líkjast mest niður- setningum sem birtast kengbognir af áreynslu við að spenna upp raf- magnað trukk síbyljuhljóma. Eru þessar stóru algjörlega fýrir bí? Bréfritara finnst vanta meíra af hljómsveltum sem spila eitthvað annað en „einfalda graðhestatónlist meö gltarvælí og hljómborðseffektum". Af íslenskri og eriendri rigningu Liðlegur af- greiðslu- maður Ánægður viðskiptavinur, 5672-4141 hringdi: Það er alltaf verið að kvarta undan einhverju í blöðunum s.s. slæmri þjónustu og þar fram eftir götunum. Mér finnst því allt f lagi að hið jákvæða komi líka fram. Ég vil þakka Boltamanninum fyrir einstaklega góða þjónustu. Ég er utan af landi og þann 19. ágúst var ég búin að hringja í margar búðir áður en ég fann það sem ég var að leita að hjá Bolta- manninum. Afgreiðslumaðurinn var einstaklega Hðlegur og fékk ég að greiða með greiðslukorti í gegnum síma þó að slíkt væru þeir ekki vanir að gera. Ég vil þvi skila þakklæti mínu til viðkoraandi af- greiðslumanns. Þenkjandi skrifar: Nú fer senn að ljúka góðu sumri, því þriðja sinnar tegrmdar í röð þar sem við íslendingar erum svo lánsam- lega heppnir að njóta sólar og þurr- viðris allt sumarið á meðan nágrannaþjóðir okkar mega sitja í rigningu. Svo slæmt hefúr veðrið verið í M- Evrópu í sumar að erlendir vinir mínir, bæði í Þýskalandi og Englandi, hafa sagt mér að þarlendar sjónvarps- stöðvar hafi oft látið þess getið að eina landið norðan Alpafjalla með sólskin og gott veður sé einmitt okkar ágæta fsland. Á sama tíma hópumst við til Evrópu í góða veðrið (rigninguna). Eini mun- urinn á hinni íslensku rigningu og evrópsku er að erlendis eru fslending- ar klæddir í stuttbuxur og stutterma- bol, rennblautir og skjálfandi að drekka bjór en á íslandi eru sömu aðilar fullklæddir við sömu skilyrði við sama hitastig. Þetta finnst mér merkilegt, sér í lagi þegar heimamenn erlendis láta sér ekki detta í hug að hætta sér út í slagviðrið án hlífðarfata. Góð raftækja- verslun Linda hringdi: Síðastliðinn föstudag fór ég í raftækjaverslun í Ármúlanum sem heitir Glóey og fékk ég svo frá- bæra þjónustu að ég verð að koma því á framfæri. Ég bjó til lampa og kom í versl- unina til að fá mér kló o.s.frv. Afgreiðslumennimir voru alveg einstaklega hprir og án þess að ég bæði nokkuð um það eða að ég þyrfti að borga aukalega þá út- bjuggu þeir allt fyrir mig og tengdu. Ég vil því þakka alveg innilega fyrir góða þjónustu. „Krafan er: lægra vöruverð með tilurð Kringlunnar“ Konráð Friðfinnsson skrifar: Ég hélt um tíma, var reyndar orð- inn handviss um, að nú hefði landinn hreppt stóra lottóvinninginn. Slíkur var hamagangurinn þann 13. ágúst sl. Allir bara snaróðir. Eitt dagblað- anna sá sér fært að gefa út í tilefiii dagsins heilt 64 síðna aukablað þar sem gangan mikla var rakin í smáat- riðum. Fólk réð sér vart fyrir kæti nefndan dag, hló, söng og trallaði. Þegar betur var að gáð blasti skýr- ingin við og hún kom mér dálítið á óvart. Með öðrum orðum var verið að opna nýja, glæsilega og marmara- klædda verslunarmiðstöð í hjarta höfuðborgar íslands. Kringlan heitir hún. Landinn hefúr eignast 76 verslanir undir einu og sama þakinu. Báknið fullbúið þekur nánar tiltekið, og haldið ykkur nú fast, hvorki meira né minna en þrjá hektara af vorri ástkæru fósturmold. Á gólfi drauma- hallarinnar verður í fyrsta sinn í íslandssögunni unnt að eyða mánað- Bréfritari vill fá að sjá Glasgowverð í Kringlunni í síðasta lagi eftir fimm ár. arhýrunni án þess að æða út undir kúnninn sést hlaupa milli kaup- bert loft. Sem sagt úti er sú tíð er manna hvemig sem viðrar. Kringlan býður yður ávallt sólskin og bros gegn vægu gjaldi og ráp á skyrtunni milli sinna 76 búða. Framfarir og tímamót verður miðstöðin eflaust kölluð á ákveðnu blaðamáli. Þó ég komi hins vegar illa auga á þær, enda máske heimskur og gamaldags. Eitthvað kostaði apparatið, trúi ég. Tæpa tvo milljarða, las ég á dög- unum. En verum alveg róleg, þeim verður hellt út í verðlagið. Datt fólki annað í hug. Ég verð afar hissa mið- að við fyrri reynslu ef slík yrði ekki raunin mjög fljótlega eftir að hinum helgu hurðum hefur verið lokið upp á gátt fyrir buddum Reykvíkinga, ásamt að sjálfsögðu aurum lands- manna í heild. Til hamingju, Kringlukallar og -kellingar. Lofið okkur nú að horfa á samkeppni í raun og Glasgowverð að 5 árum liðnum í síðasta lagi. Brjótið þar með blað í verslunarsögu Hólmans. Krafan er því lægra vöru- verð með tilurð Kringlunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.