Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Blaðsíða 7
^LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987.
7
i>v Útlönd
Eitt hundrað flörutíu og þriggja
karata demantur var á fimmtudag
sddur í Antwerpen í Hollandi.
Steinn þessi fannst i Aredor-
Guinea námunni í Vestur-Aínku í
ágústmánuði síöastliðnum. Sölu-
verö demantsins var liðlega hálf
fjórða miHjón Bandaríkjadala, eða
um hundraö flörutíu og fimm
miiljónir íslenskra króna. Sam-
svarar þaö sem nemur liðlega
einni milijón króna á hvert karat
Þótt Sitiveni Rabuka ofurstí hafi
lýst sig þjóðhöfðingja Fiji-eyja, í
kjölfar byltingarinnar þar i síðustu
viku eru þegnar hans honum erfið-
ir og tregir til að láta af hollustu
við Bretadrottningu sem verið hef-
ur þjóðhöfðingi eyjanna.
Dómarar á Ffji-eyjum hafa alfar-
ið neitað að viðurkenna Rabuka
sem þjóðhöfðingja og neita að
þjóna hverjum þeim sfjómvöldum
sem ekki viðurkenna umboð Jand-
stjóra drottningarinnar á eyjun-
um.
í gær fékk Rabuka svo orð í eyra
ur annarri átt, þegar hann var við
liöskönnun. í lok hersýningarinn-
ar augsýndu hermenn hans Elísa-
betu Bretadrottningu hoOustu meö
því að hrópa ,guð blessi drottning-
una“, líkt og hermenn á Fiji-eyjum
hafa gert f 113 ár.
bHrefðum griða
Ökumenn sjúkrabifreiða i ísrael
hafa 6rið þess á leit við strangtrú-
aða gyðinga í landinu að þeir grýti
ekki sjúkrabifreiöar á Yom Kipp-
ur, hátíð gyðinga sem hófst um
sólsetur í gær. Trúarlög gyðinga
banna ferðalög á hátíð þessari,
nema í neyöartilvikum, og undan-
farin ár heftir komið fyrir aö
ofsatrúarmenn hafi grýtt sjúkra-
biftoiöar sem verið hafa á ferð.
| LEÐURLUX og sparið allt að 70% • Hornsófar - sófasett Svefnsófar Hvíldarstólar
| 3 * ' ' '//M-AMy: Z - „ .Syí', '-Í',// A*'*’’
Sérstök október- kjör TM-HÚSGÖGN SXS • Opið alla helgina
(öóðan daginn,
allan daainn
Dægurmáladeildin er komin á kreik
Stefán Jón Hafstein
Siguröur Þór Salvarsson
Einar Kárason
Sverrir Gauti Diego
Guðrún Gunnarsdóttir
Leifur Hauksson
Rás 2 breytir um tón: Frá og meö 5. október verðum viö í loftinu þrisvar á dag, alla virka
daga á Rás 2. Við tökum daginn snemma með Morgunútvarpinu kl: 7:00 og stöndum vakt-
ina til kl. 10:00. Á hádegi rtiinnum við á ýmsa þjónustuliði við hlustendur eftir að fréttayfirliti
lýkur kl. 12:00, fram að hádegisfréttum kl. 12:20. Síðdegis maetum við aftur í Dagskránni
kl. 16:00-19:00. Rás 2 verður vettvangur þeirra sem vilja fylgjast með í dagsins önn; fréttir
koma frá fréttastofu, útibú okkar og fréttaritarar RÚV innanlands og utan, láta að sér kveða
og Dægurmáladeild bætir um betur með útsendingum víða að. Við leggjum áherslu á
skemmtilegt, fræðandi og umfram allt lifandi útvarp allra landsmanna og vonumst til að eiga
gott samstarf við hlustendur í vetur.
Ríkisútvarpið - Efstaleiti I -103 Reykjavík - Sími 693000