Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Side 31
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987.
31
Fólk í fréttnm
Pétur Sigurðsson
Pétur Sigurðsson.
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjaröa, hefur
verið í fréttum DV að undanfómu
enda hafa Vestfirðingar nú haft þaö
á orði að fara að dæmi Austfirðinga
í því að semja um kaup og kjör
heima í héraði.
Pétur fæddist á ísafirði 18. desemb-
er 1931. Hann var í Gagnfræðaskóla
ísafiarðar þegar Hannibal Valdi-
marsson var þar skólastjóri og tók
gagnfræðapróf 1948. Hann tók mót-
omámskeið Fiskifélagsins 1952 og
lauk vélvirkjanámi hjá vélsmiöjunni
Þór hf. á ísafirði 1957. Hann var í
Iðnskóla Ísaíjarðar og tók Vélskóla-
prófið 1960. Hann vann hjá Vest-
fjarðaveitu Rafmagnsveitna ríkisins
til áramóta 1970 en hefur starfað fyr-
ir verkalýðsfélögin á ísafirði síðan.
Pétur var formaður knattspymu-
félagsins Vestra á ísafirði 1954-1972,
og formaður sljómar Rafveitu ísa-
fjarðar til 1964. Hann var varafor-
maður verkalýðsfélagsins Baldurs
og varð ritari Alþýðusambands
Vestíjarða 1962 en var kjörinn for-
maður sambandsins 1972 og formað-
ur Baldurs 1973, en báðum þeim
trúnaðarstörfum gegnir hann enn.
Pétur hefur verið í stjóm Lífeyris-
sjóðs Vestfirðinga frá stofnun sjóðs-
ins 1970 og hann er formaður þar
annað hvert ár. Hann er einnig
stjómarformaður Verkamannasam-
bandsins á ísafirði.
Kona Péturs er Hjördís, f. 12.5.1939,
en þau giftu sig 31.12.1958. Foreldrar
hennar: Hjörtur Sturlaugsson b. og
Amdís Jónasdóttir.
Pétur og Hjördís eiga tvö böm:
Sigurð, f. 13.6.1958, er um þessar
mundir að Ijúka magistersnámi í
sögu viö HÍ. Sambýliskona hans er
Ólína Þorvaröardóttir, fféttamaður
hjá ríkissjónvarpinu. Þau búa í
Reykjavík og eiga flögur böm: Edda
f. 29.10.1960, er með háskólapróf í
finnsku og er nú ásamt manni sínum
kennari á Fáskrúðsfirði. Þau eiga
eitt bam.
Pétur á fjögur systkini en þar af
em tvö hálfsystkini. Alsystkini hans
em Helga, hjúkrunarkona á Bolung-
arvík, gift Magnúsi Jónssyni, skip-
stjóra og útgerðarmanni, og eiga þau
flögur böm; Svavar Sigurðsson bif-
vélavirki sem býr í Gautaborg í
Svíþjóð. Hann á fimm böm með fyrri
konu sinni, en er nú giftur sænskri
konu; hálfsystkini Péturs samfeðra
em Guðmundur jámsmiður á
ísafirði, en hann á sex böm, og Guðr-
ún, ekkja Níelsar Guömundssonar
málara og á hún sex böm.
Foreldrar Péturs em bæði látin,
en þau vom Sigurður vélstjóri og
fyrrv. formaður Vélstjórafélágs ísa-
fjaröar, Pétursson, og Gróa Salóm-
onsdóttir. Föðurforeldrar Péturs
vom Pétur, b. á Kleif á Skaga, og
síöan b. í Fljótum, Pétursson, og
kona hans Hólmffíður ffá Haganes-
vík úr Fljótum, Guðvarðardóttir.
Móðurforeldrar Péturs vora Salóm-
on, b. og formaöur ffá Kirkjubóli í-
Korpudal, Jónsson og kona hans,
Helga úr Álftafirði í Djúpi, Jóns-
dóttir.
Afmæli
Bjöigvin Schram
Björgvin Schram stórkaupmaður,
Sörlaslgóli 1, Reykjavík, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Björgvin er fæddur í Reykjavík og
brautskráðist frá Verslunarkóla ís-
lands 1930. Hann var í verslunar-
skóla í Englandi 1933-1934 og var
fulltrúi í heildverslun Magnúsar
Kjarans í Reyjavík 1934-1953 og
stofnaði eigin heildverslun 1953.
Björgvin lék fyrir KR í tuttugu ár,
1923-1943 og var í stjóm KR og vara-
formaður KR í formannstíð Erlend-
ar Ó. Péturssonar. Hann var í stjóm
Knattspymusambands íslands frá
stofnun þess 1947 og formaður
1954-1968. Björgvin var formaður
Félags íslenskra stórkaupmarma
1967-1971 og var í stjóm Verslunar-
ráðs íslands 1967-1974 og varafor-
maður 1968-1871. Björgvin var
formaður Lionsklúbbs Reykjavíkur
1974. Kona Björgvins er Aldís Þor-
björg fædd 23. mars 1917 Brynjólfs-
dóttir, sjómanns í Reykjavík
Jónssonar og konu hans, Margrétar
Magnúsdóttur. Böm þeirra em
Bryndís leikkona, gift Jóni Baldvin
Hannibalssyni fjármálaráðherra og
eiga þau fjögur böm, þau em Ellert,
ritsfjóri DV, fyrri kona hans var
Anna Ásgeirsdóttir skrifstofumaður
og eiga þau fjögur böm, sambýlis-
kona hans er Ágústa Jóhannsdóttir
Björgvin Schram.
ljósmóðir, Margrét, fyrri maður
hennar var Haukur Hauksson
blaðamaður en hánn er látinn, áttu
þau tvö böm, seinni maður hennar
er Páll Gústav Pálsson, ffamvæmda-
stjóri ísnó í Rvík, og eiga þau tvö
böm. Margrét á eitt bamabam,
Björgvin viðskiptaffæðing, forstjóra
Kerfis hf. í Rvík., giftan Heklu Páls-
dóttur og eiga þau þrjú böm,
Magdalena blaðamaður, gift Herði
Erlingssyni, ferðaskrifstofustjóra í
Rvík, og eiga þau þrjú böm, Ólafur
Magnús, sölustjóri hjá heildverslun
Björgvins Schram, giftur Marín
Magnúsdóttur og eiga þau þrjú böm
og Anna Helga, gftt ívari Svein-
bjömssyni, verktaka í Rvík, og eiga
þau þrjú böm. Systkini Björgvins:
Kristján, skipstjóri í Rvík, giflur
Lám Jónsdóttur, Gunnar, símstjóri
á Akureyri, giftur Jónínu Jónsdótt-
ur, Karl, verslunarstjóri í Rvík,
giftur Unni Ágústdóttur, hún er á
lífi, og Margrét, hún er ein systkin-
anna á lífi auk Björvins, gift Áma
Guðmundssyni, sölumanni hjá Nat-
an og Olsen, en hann er látinn.
Foreldrar Björgvins vom Ellert
Kristófer Schrám, skipsfjóri í Rvík,
og kona hans, Magdalena Ámadótt-
ir. Faðir Ellerts var Kristján
Gunther Schram, b. og timbursmiðs
í Innri-Njarðvík, sonur Ellerts Chri-
stofers Schram, formanns í Vest-
mannaeyjum, sonar Christians
Gynthers Schram, kaupmanns á
Skagaströnd, sem er forfaðir Schram
ættarinnar á íslandi. Faðir Christ-
ians var Johannes Schram, ættaður
frá Holstein, lést 1804, en Schram
ættin er talin vera sama ættin og
fræga danska aðalsættin Skram.
Móðir Björgvins, Magdalena, var
dóttir Áma, fræðimanns í Rvík
Hannessonar, lyfsalasveins í Nesi
Ámasonar, prests á Hálsi í Hamars-
firði Skaftasonar. Móðir Magdalenu
var Margrét Gestsdóttir, b. á Innra-
Hólmi Jónssonar. Móðir Margrétar
var Helga Halldórsdóttir, prófasts á
Melstað Ámundasonar.
Björgvin Schram dvelur nú er-
lendis.
Maigrét Guðmundsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir Ijós-
móðir, Sandfellshaga I, Öxarfjarðar-
hreppi, er áttræð í dag. Margrét
fæddist í Skomvík á Langanesi og
ólst þar upp í foreldrahúsum en var
þó einnig mikið að Skálum á Langa-
nesi enda vináttu- og venslatengsl
þar á milli. Margrét var á tíunda ári
þegar hún missti móður sína. Hún
ólst upp við öll hefðbundin sveita-
störf unglinga en þurfti einnig að
gera að og verka fisk, enda stundaði
faðir hennar sjóróðra. Eftir ferm-
ingu fór hún til Þórshafnar á
Langanesi og var þar í tvö ár. Hún
var einnig í vist á Seyðisfirði og
Reyðarfirði og eina vertíð í Vest-
mannaeyjum. Margrét fór að búa
1927 og fór svo í Ljósmæðraskólann
í Reykjavík 1929-30. Hún gegndi Ijós-
móðurstörfum í sinni sveit í sextán
ar.
Maður Margrétar var Bjöm, f. á
Héðinshöfða á Tjömesi 16.2.1914, d.
1979, b. -í Skógum í Öxarfirði. For-
eldrar Bjöms vora Bjöm, b. í
Skógum, Bjömsson, b. á sama stað,
Gunnlaugssonar og kona hans, Ólöf,
f. í Kollavík í Þistilfirði, Jónsdóttir.
Margrét og Bjöm bjuggu að Skóg-
um í tæpa hálfa öld en eftir jarð-
skjálftana miklu 1979 varð fólkið að
yfirgefa jörðina og nú býr Margrét
hjá syni sínum og tengdadóttur að
Sandfellshaga I.
Margrét og Bjöm eignuðust þijú
böm: Þórarinn, b. í Sandfellshaga,
f. 1934, er giftur Erlu Dýrftörð sem
ættuð er frá Siglufirði, þau eiga sjö
böm; Siguröur, f. 1936, er starfsmað-
ur hjá Miðnesi í Sandgerði, hann er
ógiftur og á einn son; Ólöf f. 1946,
býr í Keflavík. Hennar maður var
Friðbjöm Guðmundsson en hann er
nú látinn. Ólöf á tvo drengi.
Margrét átti þijú alsystkin og fiög-
ur hálfsystkin en nú em látnir tveir
albræður hennar og tveir hálfbræð-
ur.
Foreldrar Margrétar vom Guð-
mundur, f. á Grímnesi á Langanesi,
og Guðbjörg, f. í Krossavík í Þistil-
firði. Föðurforeldrar Margrétar vom
Guðbrandur, frá Syðri-Brekku á
Langanesi, Guðbrandsson og kona
hans, Margrét, ættuð frá Bakka á
Langanesströnd, Jónsdóttir. Móður-
foreldrar Margrétar vom Óli
Jó'nannes, úr Kollavik í Þistilfiröi,
Jónsson og Þorbjörg, frá Klifshaga í
Öxarfirði, Jónsdóttir.
Svava Fells
Svava Fells, Freyjugötu 6, Reykja-
vík, er áttræð í dag.
Svava er fædd í Ási á Þelamörk í
Eyjafirði og var við nám í Alþýðu-
skólanum á Eiðum 1926-1928 og lauk
kennaraprófi 1931. Hún sótti tvö
kennaranámskeið í Naas í Svíþjóð
1932 og var kennari í bamaskólan-
um á Hellissandi á Snæfellsnesi
1931- 1932. Svava var kennari í
bamaskólanum á Akureyri
1932- 1943 og í skóla ísaks Jónssonar
í Reykjavík 1943-1944. Hún starfaði
við sumardvalarheimili bama á veg-
um Kvenfélagsins Hlífar á Akureyri
1939-1941 og stóð ásamt ísafold Teits-
dóttur hjúkiunarkonu fyrir dag-
heimili á Akureyri sumarið 1942.
Svava starfaði við leikskóla hjá
Bamavinafélaginu Sumargjöf í
Reykjavík 1943-1944 og var í stjóm
Kvenfélagsins Hlífar í nokkur ár og
í stjóm Sambands norðlenskra
kvenna. Hún var í sljóm Kantötu-
kórs Akureyrar um skeið og formað-
ur guðspekistúkkunnar Merkur frá
stofnun 1951. Svava var formaður
þjónustureglu Guðspekifélags ís-
lands frá endurstofnun 1947 og vann
þar mikiö að bamastarfi. Hún var
forseti Guðspekifélags islands
1969-1971 og var safnvörður í safrú
Einars Jónssonar 1955-1968. Svava
var einnig safnvörður í safni Ás-
gríms Jónssonar um sumartímann.
Svava giftist 24. desember 1944
Grétari Fells, f. 30. desember 1896,
rithöfundi í Reykjavík, en hann lést
5. mars 1968. Foreldrar Grétars vom
Ófeigur Vigfússon, prófastur og
kennari á Fellsmúla á Landi, og
kona hans, Ólafia Ólafsdóttir.
Systkini Svövu vom sex og em
þijú þeirra á lífi. Þau em Marinó,
kennari á Akureyri og síðar í
Reykjavik, giftur Guðbjörgu Berg-
sveinsdóttur, Eiríkur, kennari á
Akureyri og í Reykjavík, giftur Lauf-
eyju Haraldsdóttur, og Sigríður, gift
Eyþóri Stefánssyni, tónskáldi á
Sauðárkróki. Þau sem era látin em
Þórunn, sem lést ung, Sigurrós, sem
lést 1947, og Þorbjörg, gift Jóhanni
Haraldssyni, skrifstofumanni hjá
KEA, sem einnig er látinn.
Foreldrar Svövu em Stefán Hall-
dór Eiríksson, b. á Refsstöðum í
Engihlíöarhreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu, og kona hans, Svanfríð-
ur Bjamadóttir.
Páll Jensson
Páll Jensson verkfræðingur, for-
stöðumaður Reiknistofnunar HÍ, til
heimilis að Frostaskjóli 21, Reykja-
vík, er fertugur í dag. Páll er fæddur
á Reyðarfirði. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1966, fyrrihlutaprófi í
verkfræði frá HÍ 1969, prófi í véla-
verkfræði frá DTH í Kaupmanna-
höfii 1972 og lic. techn. prófi 1975.
Hann var kennari í aðgerðarann-
sóknum og tölfræði við IMSOR, DTH
1972-75, kerfisfræðingur fijá IBM á
íslandi 1976-77 og forstöðumaður
Reiknistofnunar HÍ frá 1977. Hann
hefur einnig verið stundakennari í
reiknifræði og rekstrarfræði við HÍ
frá 1976. ■
Eiginkona: Anna, f. í Reykjavik
15.1. 1948, dóttir Jens, skipstjóra í
Þorlákshöfn, Sigurðssonar og konu
hans, Þorbjargar Friðriku Jónsdótt-
ur.
Böm: Hildur, f. 10.10.1973, og Hlyn-
ur Páll, f. 6.2.1977.
Faðir: Jens, umdæmisstjóri á Brú
í Hrútafirði, Pálsson, prests í Bol-
ungarvík, f. 1884, þess er Hannibal
Valdimarsson hefur ritað um, Sig-
urössonar, sjómanns í Vatnagarði í
Garði, f. 1855, ísleikssonar, b. í Garð-
húsum, f. 1822, d. 1893, Þorsteinsson-
ar. Kona Páls prests var Kristín, f.
1855, Nikulásdóttir, b. í Nýlendu í
Leira, f. 1816, d. 1894, Bjömssonar.
Móðir: Sigurrós póstafgreiðslu-
maður, f. 1917, Oddgeirsdóttir, b. í
Ási við Hafnarfjörð, f. 1881, Þorkels-
sonar, b. á Þorbjamarstöðum í
Hraunum, f. 1855, d. 1943, Ámason-
ar. Móðir Þorkels var Steinunn, f.
1828, d. 1872, Þorkelsdóttir og Þór-
unnar Álfsdóttur, b. í Tungu í Flóa,
Arasonar, hreppstjóra á Eystri-
Loftsstöðum í Flóa, Bergssonar,
hreppstjóra í Brattsholti í Stokks-
eyrarhreppi, Sturlaugssonar.
75 ára
70 ára
60 ára
40 ára
Sigurveig Jónsdóttir, Kleppsvegi,
Hrafnistu, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Jóhannes Hjálmarsson, Suðurgötu
70, Siglufirði, er sjötugur í dag.
Elísabet Sveinbjörnsdóttir, Heiðar-
braut 55, Akranesi, sem verður
sjötug 5.10., tekur á móti gestum í
Kiwanissalnum, Vesturgötu 48,
Akranesi, sunnudaginn 4.10. frá kl.
15.00.
Ólafur Þ. Jónsson, Brekkugötu 14,
Hafnarfiröi, er sextugur í dag.
Kjartan Kjartansson, Kirkjuvegi
40, Keflavík, er fertugur í dag.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
iMugavegi 53, simi 20266
Sendutn um land allL