Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987. ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987. Iþróttir Iþróttir Ekki allt hja Larusi ~segirforsetiKais» erslautem Siguidur Bjðmssan, DV, V-Þýskalandi: Forseti og þjálfari Kaiserslaut- em hyggjast taka harðar á málum en gert hefur verið fram að þessu h)á félaginu. Gengi liösins hefur enda verið afleitt í Bundesligunni það sem af er vetri. Er forseti félagsins, Jiirgen Fri- edrich, til aö mynda mjög harö- orður í garö leikmanna sinna í nýjasta hefti íþróttaritsins Kic- ker. Gætir jafnvel sleggjudóma í máh hans. Þetta hefur hann til að mynda að segja um landsliðsmanninn íslenska, Lárus Guðmundsson: ,Það er ekki allt með felldu h)á Lárusi.“ Bongartz, þjálfari „Keisarahall- arinnar", er einnig stóryrtur í sama riti: „Einhverjir leikmenn verða að fara frá félaginu og aðrir verða aö koma í þeirra stað. Fari ekki svo get ég ekkert ábyrgst," segir hann. -JÖG Bjarni og Ómar komu síðastir Steinn Halldórsson, stjómar- maður Knattspymusambands- ins, og landsliðsmennirnir Bjarni Sigurðsson og Óraar Torfason komu síðastir landsliðsmanna til Simferopol á Krímskaga í gær. Steinn sótti Bjama til Osló og )aðan fóm þeir til Dusseldorf þar sem Ómar var. Þeir félagar komu síðan til Simferopol upp úr há- degi í gær. Hinir leikmenn landsliösins komu þangað í gærmorgun eftir flug frá London og Moskvu. Júgóslavía sigraði á HM pilta: Markakóngurinn misnotaði vrti! Júgóslavía sigraði í heimsmeistara- keppni pilta, 20 ára og yngri, í knattspyrnu í Chile á sunnudag. Ur- slitaleikurinn var viö Vestur-Þjóð- verja í Santiago og sigruðu Slavarnir, 6-5, eftir vítaspyrnukeppni. Staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma og fram- lengingu. Boban skoraði mark Júgóslavíu á 84. mín. Witeczek, Bay- er Uerdingen, jafnaði úr vítaspymu tveimur mín. síðar. Honum mistókst hins vegar að skora í vítakeppninni í lokin - tók fyrsta víti Þjóðverja. Allir aðrir skoruðu úr vítunum, Bob- an úr því fimmta og síðasta fyrir Júgóslaviu við mikinn fógnuð áhorf- enda. Þeir voru 65 þúsund sem er met í slíkri keppni. Þetta var sjötta heimsmeistara- keppni pilta og tókst einstaklega vel. Hin ljóshærði Witeczek varð marka- kóngur með 7 mörk og fékk glæsileg verðlaun. Þaö var þó lítil uppbót fyr- ir vítið sem misfórst. Úrshtaleikur- inn var spennandi en Slavarnir áberandi betri þótt þeim tækist ekki að gera út um leikinn fyrr en í víta- keppninni. í undanúrslitum sigruðu Júgóslavarnir Evrópumeistara Austur-Þýskalands, 2-1, að viðstödd- um 30 þúsund áhorfendum í Sant- iago. í hinum leiknum í undanúrslit- um sigraði Vestur-Þýskaland Chile, 4-0, í Concepcion. Áhorfendur voru 35 þúsund og Witeczek skoraði tvö af mörkum Þýskalands. -hsím • Andreas Möller, einn af ungu piltunum í v-þýska liðinu. Árangur leikmanna í tólum: Strákamir skomðu úr þrettán vrta- köstum af átján - á handknattieiksmótinu í Sviss, sem er 72,2% nýting Fyrsti golf- sigurinn eftir 11 ár sem atvinnumaður „Ég er þakklátur fjölskyldu minni og vinum fyrir að hafa ekki látið mig hætta keppni,“ sagði bandaríski golfleikarinn Mike Reid eftir að hann sigraði í fyrsta skipti sem atvinnumaður í golfi eftir 11 ára keppni. Það var á opna golfmótinu í Tucson, Arizona, á sunnudag. Hann lék á 20 höggum undir pari, 268 (64, 69, 68, 67), og var fjórum höggum á undan næstu keppendum. Þegar keppnin hófst á sunnu- dag var Mike Reid í þriðja sæti, fjórum höggum á eftir Fuzzy Zoeller og tveimur á eftir Hal Sutton. Þeim gekk báðum illa á sunnudag, léku samtals á 272 höggum ásamt Mark Calcavecchia og Chip Beck. Þó Mike Reid hafi ekki sigraö fyrr á mótum er hann þó vel þekktur goífleik- ari. Hann varð fyrstur til þess aö vinna sér inn eina milljón dollara í verðlaun án þess að sigra í keppni. Chip Beck, sem lék á 272 höggum í Tucson, komst yfir milljón dollara markið í verðlaunafé með þeim árangri án þess að hafa sigrað á móti. Bobby Wadkins, sem er mjög kunnur kylf- ingur, hefur ekki sigrað á PGA-móti frekar en Beck en verðlaunafé hans er þó vel yfir milljón dollara. -hsím Stjaman mætir ÍR Einn leikur verður í 1. deildar keppni karla í handknattleik í kvöld. Stjarnan fær þá ÍR í heimsókn í íþróttahúsið í Digra- nesi kl. 21.15. Áður en leikurinn hefst leika HK og Ármann í 2. deildar keppninni, eða kl. 20. Næsti leikur í 1. deild verður svo á fimmtudaginn. Þá leika Breiðablik og Vík- ingur í Digranesi kl. 20. Stefin Kristjánsson, DV, Sviss: Handknattleiksmótið í Sviss. Ár- angur einstakra leikmanna lands- liðsins: • Kristján Arason: 20 skot, 13 mörk, 7 varin, ekkert fram hjá, ekk- ert fiskað víti, 11 línusendingar, 2 boltum tapað, 1 bolta stolið og tvisvar rekinn út í tvær mínútur. • Þorgils Óttar Mathiesen: 19 skot, tólf mörk, 5 varin, 2 fram hjá, 7 fisk- uð víti, engin línusending, einum bolta tapað, engum bolta stolið og einu sinni rekinn út af í tvær mínút- ur. • Sigurður Gunnarsson: 12 skot, 9 mörk, 2 varin, 1 fram hjá, ekkert fiskað víti, 3 línusendingar, 3 boltum tapað, engum bolta stohð og aldrei vikið af leikvelli. • Sigurður Sveinsson: 11 skot, 8 mörk, 2 varin, 1 fram hjá, ekkert víti fiskað, 2 línusendingar, 3 boltum tap- að, einum bolta stohð og aldrei vikið af leikvelli. Sjónvarpsleikur- inn í Liverpool Þriðja umferð enska deildabikarsins hefst í kvöld. Þá verða átta leikir, m.a. Bamsley og Sheff. Wed., en annað kvöld verða mun áhugaverðari leikir í keppninni. Þá verða einnig átta leikir, m.a. Liverpool-Everton, Aston Villa-Tottenham og Wimbledon-New- castle. Leikur Liverpool og Everton í 1. deild hefur verið færður til sunnudags 1. nóvember. Verður hann sýndur beint í breska sjón- varpinu. Leikur Arsenal og Chelsea í 1. deild, sem fara átti fram laugardaginn 7. nóvember á Highbury, verður færður fram - háð- ur 3. nóvember. Daginn eftir, 4. nóvember, leika Wimbledon og Liverpool í Lundúnum. Frestaður leikur frá lO.október. -hsím • Júlíus Jónasson: 10 skot, 6 mörk, 3 skot varin, 1 fram hjá, 3 fiskuð víti, ein línusending, 3 boltum tapað, eng- um stohð og þrisvar vikið af leikvelli í tvær mínútur. • Páll Ólafsson: 10 skot, 4 mörk, 5 varin, 1 fram hjá, 1 fiskað víti, engin línusending, 2 boltum tapað, 1 bolta stohð og einu sinni út af í tvær mín- útur. • Bjami Guðmundsson: 4 skot, 4 mörk, ekkert varið, ekkert fram hjá, 3 fiskuð víti, 1 línusending, 1 bolta tapað, engum stolið og einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur. • Guðmundur Guðmundsson: 5 skot, 4 mörk, ekkert varið, 1 fram hjá, ekkert víti fiskað, engin línu- sending, engum bolta tapað, 2 stolið og aldrei vikið af leikvelli. • Alfreð Gíslason: 4 skot, 3 mörk, 1 varið, ekkert fram hjá, ekkert víti fiskað, ein hnusending, 2 boltum tap- að, engum stohð og aldrei vikið af leikvelh. • Karl Þráinsson: 3 skot, 3 mörk, ekkert varið, ekkert fram hjá, 2 fisk- uö víti, engin hnusending, 1 bolta tapað, engum stohð og aldrei vikiö af leikvelh. • Jakob Sigurðsson: 4 skot, 2 mörk, 2 varin, ekkert fram hjá, 2 fisk- uð víti, engin línusending, einum bolta tapað, engum stohð og aldrei vikið af leikvelli. • Geir Sveinsson: ekkert skot, ekkert mark, ekkert fram hjá, ekkert varið, ekkert fiskað víti, engin hnu- sending, einum bolta tapað, engum stolið og fjórum sinnum vikið af leik- velh í tvær mínútur. • Meðalnýting íslenska liðsins í sóknarleiknum var 46,2%. íslenska hðið fékk 18 vítköst. Skorað var úr 13 þeirra sem gerir 72,2% nýtingu. -JKS w r A ^ Sævar til Akureyrar - til viðræðna við KA-menn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Sævar Jónsson, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu, mun koma heim til íslands meö landsliðshópnum í knattspymu eftir leikinn gegn Rúss- um. Sævar hefur verið við æfingar í Belgíu að undanfórnu. Þaö verður ekkert úr því að hann fari til Frakk- lands til að leika með Niort eins og Sævar hafði vonað. KA-menn höfðu samband við Sæv- ar um helgina og tilkynnti hann þeim að hann kæmi til Akureyrar til að ræða við þá um leið og hann kæmi til íslands. KA-menn eru vongóðir um að Sævar taki við þjálfun KA- liðsins næsta keppnistímabil og leiki jafnframt með hðinu. -SOS • Sævar Jónsson. KA verður fyrir blóðtóku: Tryggvi Gunnarsson til liðs við Valsmenn • Tryggvi Gunnarsson, leikmaóurinn marksækni, klæöíst Valsbúningnum næsta sumar. DV-mynd EJ Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri: Tryggvi Gunnarsson, leikmaður- inn marksækni í knattspymu, sem hefur leikiö meö KA á Akureyri undanfarin ár, hefur gengið til liðs við íslandsmeistara Vals. Þetta er mikh blóðtaka fyrir KA-liðið á sama tima og það er styrkur fyrir Valsmenn. Valsmenn vonast eftir að Tryggvi taki með sér skotskóna að Hlíðar- enda og nái að skora eins mörg mörk og gömlu góðu markaskorar- arnir, Hermann Gunnarsson, Ingi Bjöm Albertsson og Guömundur Þorbjörnsson. „Ég er mjög ánægður með Hörð Helgason sem þjálfara. Hann þjálf- aði KA sl. keppnistímabil. Nú er hann kominn til Vals. Það var kom- inn tími til að breyta til og halda á ný til Reykjavíkur," sagöi Tryggyi sem lék með ÍR áður en hann fór til Akurevrar. Valsmenn hafa fengið góöan hðs- styrk að undanfórnu. Jón Gunnar Bergs hefur gengið til liðs viö þá. Þeir Jón Gunnar og Trygg\d koma til með að styrkja leikmannahóp Vals. sos Jakob Sigurðsson, hornamaður úr Val. Sigurður Grétarsson fagnar marki! • Þessi skemmtilega mynd sýnir Sigurð Grétarsson, landsliðsmann íslands i knattspyrnu, sem leikur með Luzern i Sviss, fagna marki gegn Grasshopper • Július Jónasson, skoraði sex mörk úr ■ svissnesku 1. deildar keppninni á sunnudaginn. Myndin var á forsiðu svissneska blaðsins Sport í gær og segir að Sigurður hafi átt skemmtilegt „come tíu skotum. back“ - hann hafi skorað mark eftir aðeins sex mín. í sínum fyrsta leik með Luzern eftir þrálát meiðsli. • Aðalsteinn Aðalsteinsson. Samningar tókust ekki milli Steina og Djeiv Gauti Grétaissan, DV, Noregú Norska félagið Djerv, sem vann sæti í fyrstu deild fyrir skemmstu, hefur lagt þunga á að fá knattspymumanninn Aðal- stein Aöalsteinsson til hðs við sig nú síöustu dagana. í sjónvarpsviðtali nýverið, þar sem rætt var við forvigismann norska hösins, kom þessi áhugi félagsins berlega fram. Samkvæmt heimildum blaösins hefur Steini dvahö í Noregi síð- ustu dagana og rætt við forkólfa Djerv. Samningar hafa hins vegar ekki tekist og eftir því sem DV kemst næst mun Aðalsteinn spila hér heima á næsta tímabili, að öllum líkindum með Völsungi á Húsa- vík. Þess má geta að Aðalsteinn lék með norska hðinu Djerv fyrir fá- einum misserum en hann var hins vegar í herbúöum Völsunga á síðasta leikári. -JOG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.