Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
Spunungin
Notar þú vekjaraklukku?
Lesendur
Utsölustaðir ATVR:
Avfsanir, en ekki greiðslukort?
Sláturleyfi á Bíldudal:
Lausnin fundin
Jensina Pálsdóttir: Nei, og hef aldrei
gert.
Simon Vaagfjörð: Það geri ég nú
stundum og þó meira í seinni tíð.
greiðslu.
Nú skilst mér að ÁTVR hafi sett
hámark upphæðar sem skilyrði þess
að ávísanir séu teknar sem greiðsla
í útsölunum. Hámark upphæðar
kvað vera kr. 10.000.
Auðvitað er hægt að komast fram
hjá þessari reglu með þvi að versla
tvisvar í sömu ferðinni. Eða fylgist
ÁTVR með því hverjir hafa keypt
gegn ávísun þann og þann daginn,
svo að viðkomandi geti ekki skrifað
út aðra ef hann skyldi koma inn aft-
ur?
En til hvers er verið að setja há-
mark á upphæð með ávísana-
greiðslu, svo augljóst sem það má
vera að fram hjá þessari nýju reglu
verður komist, t.d. eins og áður er
lýst.
Væri nú ekki skynsamlegra að
leyfa einnig verslun gegn greiðslu-
kortum og láta afskiptalaust hvemig
viðskiptavinur hins opinbera hagar
sínum kaupum.
Því verður vart trúað aö enn sé
gamla og úrelta röksemdin á ferð-
inni, að verið sé að spoma gegn því
að „fjölskylduföðurnum" verði hált
á skötubarðinu með innkaupum á
áfengi fyrir vikulaunin!
Það er kominn tími til að ÁTVR,
þessi einokunarangi ríkisins, einn af
mörgum, snúi frá fornum viðskipta-
háttum til nútíma vinnubragða í
viðskiptum.
Frá hinni nýju útsölu ÁTVR í verslunarhusi Kringlunnar.
Ólöf Dagfinnsdóttir: Já, auðvita''
Hún er ómissandi.
Guðbjörg Lóní: Já, alltaf, og frá
fyrstu tíð.
Agústa Magnúsdóttir: Nota hana
ekki.
í. é ItÍ'M'i i-í'* é á 4 ú i i i k i 1 m iiliíii a i
Önfirðingur skrifar:
Ég hef verið að velta fyrir mér
hvernig best væri nú að leysa þann
hnút, sem búið er að hnýta, varðandi
leyfi til slátrunar á Bíldudal.
Lausnin er sú að leyfa þeim að
slátra en veita þeim hins vegar ekki
sláturleyfi aftur fyrr en þeir á
Bíldudal hafa etið upp allar þær kjöt-
birgðir sem sköpuðust við slátrunina
í haust.
Þetta eru svona um það bil 112 kg
á haus á Bíldudal, og ca 52 kílóum
meira en bændum er leyfilegt að taka
meö heim til sín.
Og þá er það viömiðunin sígilda.
Bolvíkingar hafa fengið leyfi til slátr-
unar í sínu sláturhúsi framlengt til
10 ára. Á meðan þeir geta fengið slát-
urleyfi en ekki þeir á Bíldudal ættu
Bolvikingar, vegna ibúafjölda, að
geta tekið til sín fleiri kindur til slátr-
unar.
Og ekki vantar slagorðin. „Röskun
á byggð“, „verið að leggja niður slát-
urhús í þéttbýliskjörnum“. Þetta eru
upphrópanir út í bláinn.
Það er ekki tekið með í dæmið að
þótt sláturleyfi fáist er enginn mann-
skapur til að vinna. Á að flytja inn
fólk fyrir þann stutta tíma sem slátr-
un stendur yfir? Þetta er eins konar
æði sem grípur um sig og fólk fær
útrás í slátruninni, líkt og gerist hjá
Færeyingum þegar grindhvaladráp-
ið stendur sem hæst.
Það er algjörlega óverjandi að þing-
menn séu að vasast í sláturleyfamál-
um og lítillækka þannig yfirdýra-
lækni. Hann á það ekki skilið, né
aðrir þeir sem vilja og eiga aö fylgj-
ast með hreinlætisaðstæðum á
hverjum stað og úthlutun slátur-
leyfa.
Sigurður Pálsson: Já, ég nota bæði
vekjaraklukku og síma.
Björgun á sjó. - Ekki eru aðstæður alltaf jafngóðar.
Eftir áralanga umræðu og fyrir-
spurnir frá viðskiptavinum hefur nú
loks tekist að fá því framgengt að
ávísanir eru nú teknar sem greiðsla
í öllum útsölustöðum ÁTVR, gegn
framvísun bankakorts.
Þetta er spor í rétta átt. En afskap-
lega tók þetta nú langan tíma. Nú
vantar einn þáttinn enn til þess að
ÁTVR standi jafnfætis öðrum versl-
unum og þjónustuaðilum því
greiðslukort eiga ekki aðgang að
þessum útsölustöðum ríkisins.
Ég veit ekki betur en greiöslukort-
in séu eitt tryggasta greiðsluform hér
á landi. Enginn vill missa kortið sitt
og því er það áreiöanlega undantekn-
ing fremur en hitt að menn framvísi
kortum sem ekki eru fullgild. Miklu
fremur á það við um ávísanir, jafn-
vel þótt bankakort fylgi til sýnis við
Úr sláturhúsi. Myndin tekin á Selfossi fyrir nokkrum árum.
Góð þjónusta hjá Heimilistækjum hf.
H. Örn Jónsson hringdi:
Ég vil koma á framfæri í blaði
ykkar þakklæti til Heimilistækja
hf. fyrir mjög góða þjónustu sem
ég hef orðið aðnjótandi.
Ég hef bæði keypt af því fyrirtæki
og selt því lítillega gegnum árin. í
báðum tilfellum hafa starfsmenn
fyrirtækisins sýnt óvenjumikla lip-
urð, þá mestu sem ég hefi orðið var
við á mínum þrjátíu ára starfsferli
í Reykjavík.
Þetta vildi ég mega láta koma
fram, að gefnu tilefni.
20. þ.m.
hafa lesiö þessa grein en láta sig
einhverju varða málefni sjómanna,
aðstæöur þeirra við störf og björg-
unarmál almennt, á að lesa þessa
grein.
Skúli tekur þarna á vanda sem
er alltaf í brennidepli hjá sjómönn-
um og öllum aðstandendum þeirra.
Hann lýsir atviki sem hann sjálfur
var viðriðinn sem einn af skip-
stjórnarmönnum á skipi sínu og
er sú lýsing grípandi og raun-
sönn.
Hann ræöir björgunarstörf með
þyrlum og hver séu vandamálin við
núverandi fyrirkomulag. Hann
gagnrýnir einnig, en með mjög
sannfærandi hætti og hvetur að
lokum sem flesta sjómenn til að
láta til sín heyra opinber-
lega.
Ég endurtek áskorun til sem
flestra er máliö varðar að kynna
sér efni greinar Skúla Elíassonar
og íhuga hvort þeir sjálfir geta ekki
lagt málinu lið.
Viðbótarskattur:
Ekki endur-
greitt til
Irfeyris-
þega?
G.Þ.hringdi:
Ég var aö fá innheimtuseðil frá
Tollstjóraembættinu um ofannefnd-
an viðbótarskatt á bifreið mína. Ég
er öryrki og er nýbúinn að fá bifreið
með þeim kjörum sem gilda fyrir
þennan hóp fólks.
Ég er auk þess lifeyrisþegi og hélt
ég að við lífeyrisþegar nytum sömu
réttinda og áður. Þar sem ég hefi
verið öryrki sl. tuttugu ár get ég ekki
séð að staða mín hafi breyzt við þaö
eitt að eldast.
Ég vil því mælast til þess að við-
komandi ráöamenn gefi skýringu á
því hvers vegna ég fæ ekki endur-
greiöslu á þessum viöbótarskatti eins
og tilkynnt hefur verið um opinber-
lega að öryrkjar eigi rétt á.
Bjövgun á sjó:
Frábær grein í DV
Maríanna Sigurðardóttir hringdi:
í DV þriðjudaginn 20. þ.m. skrifar
Skúli A. Elíasson stýrimaður frá-
bæra grein undir fyrirsögninni:
Björgun á sjó - störf og stjórn.
Ég vil benda öllum þeim er ekki