Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987. Lesendur 17 GJaldmiðill og siálfstæði „Traustur gjaldmiöill myndi skapa stöðugleika i þjóðfélaginu og stuðla að sparnaði," segir bréfritari. Guðm. E. skrifar: Það hefur borið á því að undan- fómu að einn og einn aðili, bæði innan sðlu- og markaðssamtaka og svo sjálfstæðir einstaklingar, hafa tekið gjaldmiöil okkar til umræðu. Einkum með það í huga hvort okk- ur sé í rauninni stætt á því að nota hann öllu lengur án þess að binda hann við einhverja aöra mynt sem þá er mun sterkari og traustari á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði. Til eru þeir sem halda því fram að með því að tengja krónuna okk- ar við erlendan gjaldmiðil sé vegið að sjálfstæði okkar, og þar með séum við búnir að tapa áttum í eig- infjármálum. Ég spyr þá sem þannig tala hvort við getum verið nokkuð verr á vegi stödd en viö erum nú hvað varðar eigin íjármál. Og er ekki einmitt skýringin á þeirri áttaviUu sú helst að við erum að burðast við að halda í eigin gjaldmiðil sem kannski er aðalorsökin fyrir verðbólgu hér á landi? Þessu er líkt farið um áfengismál- in hér. Menn tala um þar að með tilkomu áfengs öls upphefjist mikiU drykkjuskapur með þjóðinni! En getur ástandið nokkuð versnað í þeim efnum? Það er einmitt málið, að tiltrú hins almenna borgara á íslandi á eigin galdmiðli er ekki fyrir hendi. Þess vegna keppast menn við að eyða hverri krónu, sem laus er, í stað þess að safna. Áróður opinberra aðila fyrir sparnaði er til lítils ef það sem spara á er einskis virði. Þetta eru nú svo augljós sannindi að stjórn- málamönnum ætti að vera þau Ijós, svo og stjómendum íjármála, fyrir hönd ríkissjóðs. En ef til vill er tregðan við fram- kvæmdina fólgin í þeirri landlægu hræðslu sem margir hér eru haldn- ir gagnvart erlendum aðilum. Þeirri spurningu hefur enginn fengist til að svara, þótt oft hafi verið sett fram, hvers vegna okkur íslendingum ætti að vera hættara í þessu efni en öðram þjóðum, sem nota gjaldmiðil sem tengist mjög náið annarrar, annaðhvort með skráningu eða nota hreinlega sömu myntina. Dæmi um þetta er Kanada, Lúxemborg, Mónakó og ýmis Asíulönd. Þeir erfiðleikar í efnahagslífi eru nú viðvarandi hjá okkur íslending- um að sennilega verður fátt annað okkur til bjargar en að leita eftir samkomulagi við aðra þjóð sem tengist okkur einna best á við- skiptasviði þannig aö myntirnar verði samræmdar og skráðar eins. Þetta myndi leysa að mestu vanda útflutningsvara okkar og koma í veg fyrir sífelldar kröfur um gengisfellingu frá ólíkustu aðil- um við minnstu skakkafóll. En traustur gjaldmiðill myndi þó fyrst og fremst skapa stöðugleika í þjóðfélaginu og snúa gegndarlausri eyðslu fólks í æskilegan og varan- legan spamað. Þjóðin getur varla misst sjálfstæði sitt þess vegna! Helga Þ. Stephensen hefur annast þáttinn Óskalög sjúklinga. Margir eru þeir sem ekki vilja missa þennan þátt. Óskalagaþáttur sjúklinga Orðsending Jóhann Þórólfsson skrifar: Ég er að láta frá mér heyra í sam- bandi við útvarpsþáttinn Óskalaga- þáttur sjúklinga sem Helga Þ. Stephensen annast. Nú hefur hún tilkynnt að það eigi að leggja þáttinn af. Þetta finnst mér alls ekki koma til greina. Til þess hefur útvarpsráð varla vald nema að undangenginni könnun.. Þetta eru menn, sem eru í þjónustu fyrir fólkið, og verða þvi að taka til- lit til óska hlustenda. Þiö hafið ekki einræðisvald, útvarpsráðsmenn! Ég er sammála Jórunni Ólafsdótt- ur sem lét frá sér heyra um þetta mál. Það væri nær að leggja niður rás 2 sem býður ekki upp á annað en háværa tónlist næturlangt. Þar er fólk á fullu kaupi. Eða er ekki svo? Ef það er ætlunin að útvarpsráð leggi þáttinn Óskalög sjúklinga niður í sparnaðarskyni þá má segja um þá menn að þeir hirði aurana en kasti krónunni. Ef eitthvað er ætti þátturinn að vera lengri og ekki styttri en ein klukkustund. Klukkustund. Rás 2 með góða dagskrá Ánægður skrifar: Ég hefi tekið eftir því að dagskrá rásar 2 hefur upp á mjög fjölbreytt efni að bjóða og fer enn batnandi. Sérstaklega vil ég færa þeim Ste- fáni Jóni Hafstein og Ævari Kjart- anssyni bestu þakkir fyrir þeirra þátt aö dagskránni. Þeir eru frábærir útvarpsmenn báðir tveir og skemmtilegir. Með sama áframhaldi verður rás 2 nún eftirlætisstöð og eru þeir margir sem ég hef heyrt segja þaö sama. Óska ykkur á rásinni góðs gengis. Þeir Stefán Jón Hafstein og Ævar Kjartansson hjá rás 2. BÚSTJÓRI ÓSKAST Bústjóri óskast strax á sveitaheimili í Rangárvalla- sýslu. Ráðningartími samkomulag. Frítt húsnæði með hita og rafmagni. Reglusemi og góð umgengni í hvívetna áskilin. Æskilegt væri að ráða hjón eða kærustupar í starfið. Allar upplýsingar gefur Þráinn Þorvaldsson í síma 99-8523 milli kl. 20 og 23. Þú hringir — vifl birtum og auglýsingin verflur færð á kortið. Nú er hægt afl hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öllu i sama símtali. Hámark kortaúttektar i sima er kr. 4.000,- Hafið tilbúið: /Nafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer -kortnúmer'' og gildistima og að sjálfsögðu texta auglýsingar jnnar. HAUSTSALAN Á BÍLUM HELDUR ÁFRAM. Til sölu: VW Golf árg. 1981, ’82, ’84, ’85. Opel Kadett 1.3, árg. 1985 Fiat Uno 60 S, árg. 1986. Suzuki FOX yfirbyggður Auk þess: MMC L 300 (sendibíll), árg. 1984 Volvo F7, dráttarbifreið, 4x2, Intercool, árg. 1980, m/dráttarstól. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Bílarnir eru til sýnis á Bílaleigu Flugleiða við Flugvallarveg. Bílaleiga Flugleiða, simi 690200. BÍLALEIGA FLUGLEIÐA Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, á neðangreindum tima: Nauðungaruppboð annað og siðara á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, á neðangreindum tíma: Trönuhrauni 7. Hafnarfirði. þingl. eig. Akra hf.. 30 október nk. kl. 14.45. Uppboðibeiðendur eru Gjaldheimtan í Hafnarfirði. Gjaldheimtan í Reykja- vík. Iðnaðarbanki íslands hf. og Iðnlánasjóður. Hraunbrún 30. l.h.. Hafhai-fh'ði. þingl. eig. Kristinn Ingibergsson. 30. október nk. kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Guð- jón Steingrímsson hrl. Breiðási 9. e.h.. Garðakaupstað. þingl. eig. Sigurður Rúnar Guðmundsson. 30. október nk. kl. 15.30. Uppboðs- beiðendur eru Gjaldheimtan í Garða- kaupstað, Gjaldheimtan í Reykjavík, innheimta ríkissjóðs og Trygginga- stofiiun ríkisins. Drangahrauni 2. evstri hl.. Hafnar- firði. þingl. eig. Leysir hf.. en tal. eig. Valgaið Reinharðsson. 30. október nk. kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Anna Theódóra Gunnarsdóttir hdl.. Guðjón Á. Jónsson hdl., Iðnlánasjóður. Sig- urður G. Guðjónsson hdl. og Útvegs- banki íslands. BÆJARFÓGETINN í HAFNAEFIRÐL GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESL SÝSLUMAÐURINN f KJÓSARSÝSLU. Barrholti 23, Mosfellsbæ, þingl. eig. Emil Adolfsson, 30. október nk. kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Reykjavík, Guðjón Á. Jónsson hdl., innheimta ríkissjóðs. Jón Þóroddsson hdl., Landsbanki ís- lands, lögfrd., Sveinn H. Valdimarsson hrL, Veðdeild Landsbanka íslands og Öm Höskuldsson hdl. BÆJARPÓGETINN í HAFNARFIRÐI. GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESI. SÝSLUMAÐURINN í KJÓSARSÝSLU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.