Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
5
Langur skuldahali
„Ég tel engan vafa leika á því að
við fáum afsalið fyrir húseignun-
um Síðumúla 34 og kartöflugeymsl-
um í Árbæ núna í vikunni. Það
hefur enginn orðað annað við okk-
ur,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Ágæt-
is.
- Nú ganga þær sögusagnir að þið
hafið ekki gert upp við bændur síð-
an um miðjan júlí:
„Það er'alrangt. Við gerum upp
við matjurtaframleiðendur þann
15. hvers mánaðar með víxlum.
Fyrirtækið hefur átt við greiðslu-
erfiðleika að etja, það er ekkert
launungarmál. I DV í gær kemur
fram að fyrirtækið Ágæti skuldi 120
milljónir og ég ætla út af fyrir sig
ekki að neita því en það er alrangt
að við skuldum bændum í Eyjafirði
2-4 milljónir. Grænmetisframleið-
endum á Suðurlandi skuldum við
um 1,5 milljónir króna. Þaö er einn-
ig rangt að við skuldum fimmtán
milljónir í sjóðagjöld, við skuldum
ekki nema um þijár milljónir þar.
Hluti af skuldasöfnun SÍM stafar
af því að við keyptum Síðumúla 34
á 62 milljónir. Við undirritun kaup-
samnings greiddum við 10 milljónir
króna en 52 milljónir voru á
skuldabréfi til 25 ára. Húseignin
var í mjög lélegu ásigkomulagi og
við þurftum að eyða um tug millj-
óna í endurbætur og viðgerðir á
húseigninni. Síðan tókum við yfir
ýmsar aðrar skuldir og af þessu
öllu saman höfum við orðið að
borga vexti þannig að ríkið hefur
ekki gefið SIM eitt né neitt. Auk
þess höfum við fjárfest í tækjum
og búnaði fyrir rúmlega 100 millj-
ónir.“
- Hvers vegna lögðuð þið ekki
fram reikninga Ágætis þegar þið
hélduð fundinn með hinum nýju
hluthöfum um síöustu helgi?
„Reikningar Ágætis eru lagðir
fram á aöalfundi SÍM og hluthafa-
fundurinn um helgina var ekki
réttur vettvangur til að leggja þá
fram á þar sem Ágæti hf. er allt
annað fyrirtæki þó það muni vafa-
laust ganga til samninga um
hugsanlega yfirtöku á rekstri og
reikningum Ágætis."
-J.Mar
Fréttir
LM Ericsson
fundaði með
forráðamönnum
Pósts og síma
í síðustu viku funduðu forráða-
menn Pósts og síma með tveimur
fulltrúum frá LM Ericsson um tíðar
bilanir sem urðu í Múlastöðinni á
síðastliðnu sumri. Á fundinum var
farið yfir gögn í málinu án þess að
nokkur niðurstaöa fengist varðandi
það hvort LM Ericsson bæri að
greiða Pósti og síma skaðabætur
vegna bilananna.
Næsti fundur forráðamanna Pósts
og síma og fulltrúa LM Eriesson
veröur um miðjan janúar næstkom-
andi.
-J.Mar
Náttúmlegir laxastofhar á íslandi í hættu:
Umsvif í fiskeldi
og hafbest orsökin
Aðalfundur Landverndar, sem
haldinn var um síðustu helgi, sam-
þykkti samhljóða tillögu þar sem
vakin er athygli á því að náttúruleg-
ir laxastofnar á íslandi séu í hættu.
Eru aukin umsvif í fiskeldi og haf-
beit talin valda því. Skrifuðu 20
náttúrufræðingar undir yfirlýsingu
sem fylgdi tillögunni þar sem þeir
taka undir efni hennar.
í samþykktinni segir að flóttafiskar
úr kvíum og hafbeitarfiskar, sem
villist í laxveiðiár og hrygni þar með
heimastofninum, spilli arfgengum
eiginleikum heimastofnsins. Hér
þurfi að fara að með meiri gát en nú
sé gert.
Er í samþykktinni bent á að rétt
sé að eyða hið fyrsta þeim norska
eldislaxi sem nú sé í eldisstöðvum
hér við land og að bannaður verði
allur flutningur á laxfiskum á milli
vatnasvæða og að hafheitarstöðvum
og eldisstöðvum verði skylt að nota
einvörðungu heimafisk eða fisk úr
vatnasvæðum í næsta nágrenni
stöðvarinnar.
,-,Þessar og fleiri varúðarráðstafan-
ir þurfa strax að koma til, ef ekki á
að spilla eða eyðileggja laxastofna á
íslandi. Hér eru mikil náttúruverð-
mæti í húfi, íslendingar eru skuld-
bundnir á alþjóöavettvangi til að
varðveita þau. Þær skyldur höfum
við einnig gagnvart afkomendum
okkar,“ segir í samþykktinni. -ój
Niðurgreiðslur á ull:
Samið um hækkun
til ullariðnaðarins
„Það mun gilda áfram sama niður-
greiðslukerfi varðandi ull og hefur
verið í gildi. Með breytingum nú er
eingöngu verið að gera það kerfi
skýrara og skilvirkara," sagði Jón
Sigurðarson, framkvæmdastjóri
hins nýja ullarfyrirtækis SÍS og Ála-
foss sem enn hefur ekki hlotið nafn.
Að sögn Jóns greiðir fyrirtækið
heimsmarkaðsverð fyrir ullina sem
er verulega lægra en það verð sem
bændur fá fyrir hana. Jón tók sem
dæmi verð á 1. flokki en þar væru
greiddar 188 kr/kg til bænda en af
því greiðir Álafoss 82 kr. Afgangur-
inn, 106 kr„ er í formi niðurgreiðsla
en ríkið hefur heitið því að fyrirtæk-
ið fái ullina á heimsmarkaðsverði.
Samkvæmt þessu greiðir ríkið rúm-
lega 43% af ullarverði ef þetta dæmi
gildir. Hins vegar, ef miðað er við
meðaltalsverð fyrir ull, sem er 162,66
kr. á.kg, hækkar það hlut ríkisins
upp í rúm 65% af kostnaðarverði
ullarinnar. Þessi samanburður er
eðlilegri.
Samkvæmt íjárlögum eru áætluð
útgjöld til niðurgreiðslna á ull 133
milljónir kr. árið 1987 en líklega
hækkar sú upphæö því enn hefur
ekki verið samið við bændur um ull-
arverð á næsta ári. Þá er erfitt að spá
um breytingar á heimsmarkaðs-
verði. Þetta er um 10% af þeim
fjármunum sem ætlað er að veita til
niðurgreiðslna landbúnaðarafurða.
Þessa upphæð fær hið nýja ullarfyr-
irtæki frá ríkinu gegn upplýsingum
um móttöku ullar frá bændum.
Upphæð sú sem ullarframleiðend-
ur fá frá ríkinu hefur hækkað því
nú hefur verið samið um að framleið-
endur, sem nú er óhætt að tala um
í eintölu, þurfi ekki að greiöa flutn-
ingskostnað. Reyndar hefur ekki
verið gengiö frá þessum samningi
ennþá en verður væntanlega gert
fljótlega.
Að sögn Guðmundar Sigþórssonar,
skrifstofustjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu, hafa framleiðendur þurft að
greiða heimsmarkaðsverð ullar plús
flutningskostnað. Niðurfelling á
honum mun óhjákvæmilega valda
því að kostnaður við niðurgreiðslur
ullar verður meiri en 133 milljónir.
í íjármálaráðuneytinu var reyndar
erfitt að fá upplýsingar um hve þessi
hækkun yrði mikil. Til viðbótar má
svo geta þess að búvörusamningar
verða gerðir við bændur á næsta ári
svo að búast má við að þessar 133
milljónir fái ekki staðist.
GOÐ KAUP
Við fengum stóra sendingu af hinum vinsælu
TATUNG sjónvarpstækjum á sérstaklega hag-
stæðu verði. Fætur með myndbandshillu og
hjólum fylgja með tækjunum.
Snertihnappar, myndbands- og
tölvuútgangur.
Innrauðfjarstýring. 16rásafast
minni. Tölvu- og myndbandsút-
gangur.
Kynntuþér Tatung tækin. - Þau eru úrvals tæki framleiddí
fullkomnustu sjónvarpstækjaverksmiðju Englands.
NÚ GERIRÐU GÓÐ KA UPl
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI
-SMJ