Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
7
Fréttir
Halldór Sigurðsson framkvæmdastjóri:
Hökkum fínasta nauta-
kjót ofan í refinn
„Þetta er flnasta nautakjöt sem viö
erum að hakka ofan í reflnn og fmnst
okkur það nokkuð blóðugt því um
leið er skortur á nautakjöti í Borgar-
nesi,“ sagði Halldór Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Fóðurstöðvar
Vesturlands í Borgarnesi. Þar hafa
verið framleidd um 1000 tonn af refa-
fóðri síðan stöðin hóf starfsemi sína
fyrr á árinu. 7% af því er kjöt og þar
af 40 tonn af nautakjöti.
Halldór taldi að um 3 tonn af ný-
slátruðu nautakjöti hefðu komið í
stöðina. „Þetta kjöt var ekki einu
sinni frosið.“ Halldór kvað það þó
ekki hafa verið mikla freistingu að
fara í kjötið því meðferðin hefði ekki
verið upp á það besta og þar að auki
hefði komið eftirlitsmaöur með því
til að tryggja að allt færi í refinn.
„Það verður að fara voðalega var-
lega með kjötið í refinn því það er
eins og hann sé viðkvæmari en við
mennirnir. Við fáum ekkert kjöt héð-
an úr Borgarnesi enda kjötskortur
hér, þetta er allt aðflutt kjöt.“ Hall-
dór sagði að þeir greiddu 5 kr. fyrir
kg af nautakjötinu en 7 kr. fyrir kg
af kindakjöti. Hann sagði að fóður-
stöðin hefði fengið mikið af kinda-
Jóhannes Torfason hjá Framleiðnisjóði:
Slys ef nýtt kjöt
fer í loðdýrafóður
„Eg kannast ekki við að nýtt nauta-
kjöt sé notað í refafóður. Þá er einnig
ólíklegt að nýtt dilkakjöt fari í loð-
dýrafóður," sagði Jóhannes Torfa-
son, formaður stjórnar Framleiðni-
sjóðs. Að undanfórnu hafa verið
umræður um að skortur sé á bestu
flokkum nautakjöts og samkvæmt
heimildum blaðsins er skýringin á
því að hluta sú að refurinn éti það.
„Ef það hefur átt sér stað,“ sagöi
Jóhannes, „hlýtur það að vera fyrir
slysni eða mistök. Ef hægt er að selja
nautakjöt til manneldis þá fæst mun
meira fyrir það til allra aðila.“
Jóhannes sagði að jafnvægi væri
nú að komast á milli neyslu og fram-
leiðslu á nautakjöti en ennþá væri
þó eftir að koma í lóg einhverjum
hluta þeirra 500 tonna af nautakjöti
sem var talið æskilegt að hyrfi af
markaði til að tryggja markmið um
jafnvægi. Þessar birgðir söfnuðust
1986 vegna mikillar slátrunar mjólk-
urkúa. Taldi Jóhannes að um 400
tonn af því væru þegar afgreidd. Þaö
kjöt hefði fariö til loðdýrafóðurs en
þar eru borgaðar 5 kr. fyrir kílóið.
Þá hefði Framleiðnisjóður uppi fyr-
irætlanir um að kaupa 350-400 tonn
af kindakjöti í ár. Það kjöt færi í loð-
dýrafóður og er selt á 7 kr. kílóið.
Kindakjöt af nýslátruðu fer í loð-
dýrafóður en kindum, sem þetta kjöt
fellur til af, er slátrað með einfaldari
hætti en venjulega. "
Til glöggvunar um starfsaðferðir
Framleiðnisjóðs má nefna að hann
kaupir framleiðslurétt og tryggir
bændum fullt verð fyrir bústofn sem
fella þarf vegna afsals á fullvirðis-
rétti. I ár þarf sjóðurinn 500 milljónir
kr. en á fjárlögum næsta árs er áætl-
að að hann þurfi 429 milljónir kr.
Framleiðnisjóður fær fé sem áður
var ætlaö til útflutningsbóta. Áður
átti að taka 9% af heildarverðmæti
búvöruframleiðslu í útflutnings-
bætur en nú fær Framleiðnisjóður
Rebbi fúlsar ekki við nýjum nauta-
lundum.
4%, áfram eru 5% notuð til útflutn-
ingsbóta.
Verðlaun fyrir ungkálfaslátrun
Þá er eitt af störfum sjóðsins að
greiða verðlaun fyrir slátrun ung-
kálfa en Jóhannes taldi það hafa
aukið slátrun kálfa um nokkur þús-
und í ár. Það ætti eftir að skila sér í
minni framleiðslu nautakjöts. Ung-
kálfakjöt gæti farið í loðdýrafóður
en Framleiðnisjóður gerir engar
kröfur til þess kjöts. Ráðstöfun kjöts-
ins er ekki á vegum sjóðsins.
Um möguleika þess að neytendur
væru látnir kaupa annað en besta
nautakjöt sagði Jóhannes að þeir
væru ávallt fyrir hendi en það væri
undir verslunarmönnum komiö. Það
væri ákveðinn skortur á bestu flokk-
um nautakjöts og gæti það ýtt undir
svona viðskipti. -SMJ
kjöti, þar af töluvert af góðu kjöti. fengið en hins vegar kjöt af ný- annað í landbúnaðinum," sagði
Nýtt dilkakjöt hefðu þeir þó ekki slátruðum rollum. „Þetta er eins og Halldór. -SMJ
SÍMAHAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA OG
FATLAÐ RA 1987 Miðaverð kr. 300,-
Dregið 24. desember 1987
Allur ágóði happdrættisins
rennur til uppbyggingar sumar-
dvalarheimilis í Reykjadal fyrir
fötluð börn.
Meðal vinninga eru:
5 Nissan Micra GL
Kaupið miða
og styrkið barnastarfið.
5 Nissan Sunny Setan
ASEA Cylinda
þvottavélar^sænskar og sérstakar
Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir
þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind-
ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu-
og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein-
kenna ASEA. Gerðar til að endast.
/rú nix
ábyrgð
í3ár
/FQHIX
Hátúni 6A SiMI (91)24420
SÉRTILBOD
ASEA Cylinda 11000
Verð áður kr. 44.990
Afsláttur kr. 7.000
Nústaðgr. kr. 37.990
Ath. tilboðið gildir
aðeins í stuttan tíma.