Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
N
\ / igy islenskar getraunir
V mmm iþróttamiöstöðinni v/Sigtún ■ 104 Reykjavík ■ island • Simi 84590
GETRAUNAVINNINGAR!
11. LEIKVIKA - 7. NÓVEMBER 1987
VIIMNINGSRÖÐ: 111-112-111-121
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR, kr. 21.935,-
2224 42123 44957 49710 97688 125432 228744 230230
2647 41573 46059 51685 97779 125766 228791 230258
6335 42121 46239 + 51839 98083 125964 228838 230310
9794 42669 46437 95260 98467 226417 228948 230507
40381 43098 47317 96234 98714 226435 229165 230780
40446 43768 47563 96296 98899 227786 229170 230783
40983 43769 48834 96297 98901 228271 230217 T00285
40985 44749 49625 97626 125300 + 228771 230229 T00291
41606 44785
2. Vinningur færðist upp á 12 rétta þar sem 882
voru með 11 rétta.
Kærur skulu vera skriflegar. Eyöublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni
í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað ef kærur verða teknar til greina.
Kærufrestur er til mánudagsins 30.11.'87, kl. 12.00 á hádegi.
Handhafar nafnlausra seðla (+ ) veróa að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Íslenskra getrauna fyrir lok kærufrests.
Erum á leið til USA
17.11. að kaupa bíla. Bifvélavirkjar skoða bílana.
HAGSTÆTT VERÐ.
Einnig hækkum við og breytum ölium gerðum nýrra
jeppa.
Hringið í síma 667363, 666541 og
621577
Geymið auglýsinguna
Útlönd
Enn sprenging
á Sri Lanka
Kraftmikil sprengja var sprengd á
Sri Lanka í morgun. Þetta er önnur
sprengjan sem sprengd er á þrem
dögum. Sprengingin varð í bænum
Kandy, inni á miðri eyjunni. Lask-
aðist sjónvarpstum og gluggar
brotnuðu í nærliggjandi húsum en
ekki var vitað til að sprengjan hefði
orðið neinum að aldurtila.
Sprengingar þessar hafa verið
liður í baráttu íbúa Sri Lanka gegn
hugmyndum stjórnvalda um
aukna sjálfstjóm til handa tamíl-
um á norðurhluta eyjarinnar.
Ríkisstjórn landsins sendi í morg-
un út tilkynningu um að refsing
við ránum, íkveikjum og öðm slíku
yrði dauðarefsing eftir að mót-
mælaaðgerðir í gær enduðu með
því að kveikt var í langferðabifreið-
um, jámbrautarteinar vom rifnir
upp og raforkulínur rofnar.
Að sögn lögreglunnar létu að
minnsta kosti fjórir menn lífið í
mótmælunum.
Mótmælin vom skipulögð til að
trufla umræðu í þingi landsins um
sjálfstjóm tamíla. Kvöldið áður en
umræður þessar hófust létu þijátíu
og tveir lífið og meira en hundrað
slösuðust þegar bifreiðasprengja
sprakk í úthverfi í Colombo, höfuð-
borg Sri Lanka.
Lögreglan segir að grunur leiki á
að hópur marxista, sem em útlæg-
ir, hafi staðið að því sprengjutil-
ræði.
Munkar bera kennsl á Ifk eins þeirra er fórust í sprengingunni í Colombo.
Símamynd Reuter
Apótekari seldi eituriyf í leyni
Haukur L. Haukssan, DV, Káupmaimahö£n:
Apótekari nokkur í Kaupmanna-
höfn hefur verið ákærður fyrir
ólöglega verslun með eiturlyf sam-
kvæmt löggjöf um fíkniefni. Nánar
tiltekið er hinn 54 ára gamh apótek-
ari sakaður um að hafa í leyni selt
mikið magn amfetamíns og morfins
ásamt hormónalyflum til ákveðinna
hópa líkamsræktarfólks og þá sér-
staklega til eins líkamsræktarmanns
sem dó fyrir skömmu.
Neitar apótekarinn sakargiftum en
lögreglan telur sig hafa fjölda sann-
ana í málinu.
Eftir dauða hins 32 ára gamla lík-
amsræktarmanns fékk lögreglan
fjölda upplýsinga um net sölumanna
sem versluðu með fyrrgreind eitur-
lyf. Athyglin beindist einnig að
nokkrum læknum og fleiri apótekur-
um sem gætu átt aðild að þessum
lagabrotum.
Vegna samstarfsörðugleika við
heilbrigðisstjórnina vonaðist lög-
reglan á tímabili til að hægt væri að
upplýsa málið innan veggja hennar
tíl að skapa ekki óróa og grafa ekki
undan trausti almennings á heil-
brigðiskerfinu.
En hinn síaukni flöldi upplýsinga
um lækna og apótek, sem öfluðu lík-
amsræktarfólki ólögleg . eiturlyf,
gerði lögreglunni ekki kleift að koma
í veg fyrir þann uppsteit sem þegar
hefur orðið vegna málsins. Það sem
vekur furðu lögreglunnar er hvernig
apótekarinn gat selt hið mikla magn
eiturlyfla án þess aö heilbrigðis-
stjómin fengi vitneskju irni það
gegnum skýrslur lyflaframleiðenda
um sölu lyfla til apótekanna.
Heilbrigðisstjómin bíður nú í of-
væni eftir ákvörðun lögreglunnar
um hvað eigi að gera við þá lækna
sem blandaðir em í málið með ólög-
legri útgáfu lyfseðla.
Kristjanía ekki radd að sinni
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfn:
íbúar Kristjaníu geta hætt að
hugsa um flutning á næstunni. Þrátt
fyrir sterk öfl innan stjómarflok-
kanna, sem vilja láta ryðja Krisfla-
níu, mun meirihluti, sem samanst-
endur af Jafnaðarflokki, Róttækum
vinstri flokki og sósíalistum, bjarga
staðnum í næstu viku. Þá verður
fyrirspumatimi um Krisflamu í
þinginu að ósk Framfaraflokksins.
Þar munu hinir þrír fyrmefndu
flokkar leggja fram tdlögu um áfram-
haldandi gildi ákvörðunar þingsins
frá 1986 um varðveislu og lögleiðingu
Knsflaníu.
Á landsráðsfundi íhaldsflokksins
um helgina veittust menn hart að
Krisflaníu vegna aukins ofbeldis og
annarra afbrota a staðnum. Sagði
Poul Schluter forsætisráðherra með-
al annars að ef lögregla gæti ekki
starfað við eftirlit í Krisflaníu án
þess að stofna lífi og limum í hættu
yrði að ryðja staðinn sem væri að
verða athvarf afbrotahópa imgs fólks
í mun meira mæli en áður.
Hussein Jórdaníukonungur, gestgjafi toppfundar Arababandalagsins, býður Hafez al-Assad, forseta Sýrlands,
velkominn í veislu. Vel fór á með erkifjendunum al-Assad og Hussein, forseta íraks, og virtist sem fsinn
milli þeirra hefði bráðnað. Simamynd Reuter
Taka upp samskipti við Egypta
Arabaríki samþykktu í morgun á
toppfundi sínum að þeim væri
fijáíst að taka upp samskipti á ný
við Egypta. Hins vegar fá Egyptar
ekki inngöngu í Arababandalagið
en þeir höfðu verið gerðir brott-
rækir þaðan vegna friðarsamninga
þeirra við ísraelsmenn árið 1979.
Nokkur arabaríki hafa ráðgert
að taka aftur upp formleg sam-
skipti við Egypta innan nokkurra
daga vegna aukinna hótana írana.
Eftir þriggja daga umræður hafa
leiðtogar arabaríkja nálgast sam-
komulag um að hvetja írani til
vopnahlés. Þeir hafa hins vegar
ekki getað komið sér saman um
sameiginlegar refsiaðgerðir gegn
Irönum.
Svo virtist sem tekist hafi að fá
Sýrlendinga, sem eru helstu stuðn-
ingsmenn írana, til að gefa örlítið
eftir. Ekki hefur þó verið minnst á
hvort Sýrlandi hefur verið lofaður
flárhagslegur stuðningur en efna-
hagur landsins er bágborinn um
þessar mundir.