Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Page 16
16
fþróttir
Barist á fjórum
vígstöðvum í kvöld
-toppleikur 8. umferdar verðurviðureign Víkings og FH í Höllinni
Baráttan um íslandsmeistaratitil-
inn í handknattleik heldur áfram í
kvöld en þá fer fram heil umferð í
1. deild karla. Aðalleikur umferðar-
innar er viðureign Víkings og FH en
FH-ingar hafa ekki enn tapað leik í
deildinni.
Tveir leikir fara fram í Laugardals-
hölhnni. Fram og KR eigast við kl.
20.15 og strax á eftir leika Víkingur
og FH. Ef Víkingar ætla sér að verða
með í baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn verða þeir að sigra FH í
kvöld. Víkingar léku sem kunnugt
er mjög vel gegn dönsku meisturun-
um Kolding á dögunum og virðast
vera á uppleið eftir mikla lægð und-
anfarið. FH-ingar munu örugglega
mæta með stóran hóp stuðnings-
manna í Höllina í kvöld og þeir verða
eflaust eríiðir andstæðingar fyrir
Víkinga.
• KA og ÍR leika á Akureyri kl.
20.00 og verður fróðlegt að sjá hvað
hið efnilega lið ÍR gerir gegn KA-
mönnum.
• Breiðablik fær Þór frá Akureyri
í heimsókn í Digranes og þar ættu
Blikar að vinna auðveldan sigur.
Leikurinn hefst kl. 20.00.
• Valsmenn, sem eru á toppi 1
deildar ásamt FH með 13 stig, leika
í dag gegn Stjörnunni og hefst leikur
liðanna að Hlíðarenda kl. 18.00. Þar
gæti orðið um hörkuviðureign að
ræöa en Stjarnan er í þriðja sæti 1.
deildar með 9 stig. Áttunda umferðin
er sem sagt á dagskrá í kvöld en um
næstu helgi fara fram síðustu leik-
irnir fyrir tveggja mánaða langt hlé
á 1. deildar keppninni.
• í kvöld eru tveir leikir á dagskrá
í 1. deild kvenna. Stjarnan og Víking-
ur leika í Digranesi kl. 19.00 og Valur
og Þróttur leika að Hlíðarenda kl.
19.15.
-SK
Fimm íslandsmet sett
- Góður árangur á unglingameistaramóti íslands í sundi
Unghngameistaramót íslands í
sundi fór fram í Sundhöllinni í
Reykjavík um síðustu helgi. Ágætis-
árangur náðist í fjölmörgum grein-
um og meðal annars voru sett fimm
íslandsmet í stúlkna- og piltaflokki.
Glögglega kom fram á mótinu að
mikið af efnilegu ungu sundfólki er
að koma upp. Keppendur voru 146 frá
14 félögum.
Ársæll Bjamason, ÍA, setti íslands-
met í 100 metra skriðsundi pilta,
synti á 57,58. Gunnar Ársælsson. ÍA,
setti íslandsmet í 200 metra flugsundi
pilta, synti á 2:29,51. A-piltasveit ÍA
setti íslandsmet í 4x50 metra skrið-
• Nigel Clough, til vinstri, skoraði
eitt marka Englendinga gegn Júgó-
slövum.
sundi á tímanum 1:47,31. Sveitin setti
einnig íslandsmet í 4x50 metra fjór-
sundi á tímanum 2:00,60. Telpnasveit
Sundfélags Hafnarfjarðar setti ís-
landsmet í 4x50 metra skriðsundi á
tímanum 1:59,90.
• Eftir mótiö var unglingalands-
liðið, sem tekur þátt í Norðurlanda-
mótinu sem haldið verður í
Sundhöllinni 21. og 22. nóvember,
valið. 120 keppendur annars staðar
af Norðurlöndum munu keppa á
mótinu. Landslið íslands verður
þannig skipað:
Piltar: Ársæll Gunnarsson, ÍA,
Karl Pálmason, Ægi, Hannes Már
England vann stórsigur á Júgó-
slavíu, 5-1, í 4. riðli í Evrópukeppni
landsliða, leikmenn 21 árs eða yngri,
í Belgrad í gær. Nigel Clough, Nottm.
Forest, skoraði fyrsta mark leiksins
á 8. mín. Um miðjan fyrri hálfleikinn
skoraði Paul Cascoigne, Newcastle,
tvívegis með tveggja mín. millibili
áður en Darko Pancev skoraði eina
mark Slava á 33. mín. í síðari hálf-
leiknum skoruðu blökkumennirnir
David Rocastle, Arsenal, og Franz
Carr, Nottm. Forest, mörk enska
Sigurðsson, Bolungarvík, Svavar Þór
Guðmundsson, Óðni, Arnar Birgis-
son, KR, Eyleifur Jóhannesson, ÍA,
Ævar Örn jónsson, UMFN, Þorsteinn
H. Gíslason, Ármanni og Þorbergur
Viðarsson, IA.
Stúlkur: Ingibjörg Arnardóttir,
Ægi, Pálína Björnsdóttir, Vestra,
Alda Viktorsdóttir, ÍA, Hugrún Ól-
afsdóttir, HSK, Arna Þórey Svein-
björnsdóttir, Ægi, Elín Sigurðardótt-
ir, SH, Björg Jónsdóttir, UMFN,
Birna Björnsdóttir, SH og Lóa Birgis-
dóttir, Ægi.
JKS
liðsins.
Það merkilega er að enskir unnu
þarna sinn fyrsta sigur í riðlinum.
Tvívegis hafa þeir gert jafntefli við
Tyrki og í heimaleiknum við Júgó-
slava. Aðeins þessi þrjú lönd eru í
riðlinum. England hefur lokið sínum
leikjum og er í efsta sæti með 5 stig.
Júgóslavía hefur 3 stig og Tyrkland
2. Liðin eiga eftir að leika í Tyrkl-
andi og Slavarnir verða að vinna með
fimm marka mun til að ná efsta sæt-
inu í riðlinum. -hsím
Stórsigur hjá
Englendingum
Bjóða Skotum kampa-
vín og havanavindla
- fýrir sigur á Búlgaríu. Margir Evrópuleikir í kvöld
„Við munum leika til sigurs, ekki
'hugsa um jafntefli; reyna að komast
í stöðu þar sem mark í lokin skiptir
ekki máli,“ sagði enski landsliðs-
þjálfarinn Bobby Robson í Belgrad í
gær. í kvöld verða þýðingarmiklir
leikir í Evrópukeppni landsliða í
knattspymu. Meðal annars leika
Júgóslavía og England í Belgrad og
nægir enskum jafntefli til að komast
í úrslit. En Englendingar hafa aldrei
sigrað Júgóslava í landsleik í
Belgrad.
„Eg tel að liðin hafi jafna mögu-
leika á að komast í úrslitakeppnina
í V-Þýskalandi næsta sumar,“ sagði
Ivica Osim, þjálfari Slava. Hann hef-
ur öllum bestu leikmönnum sínum á
að skipa og það fer ekki milli mála
aö júgóslavneska liðið er mjög sterkt.
Engin vandamál eru heldur hjá Rob-
son. Hann hefur sína bestu menn.
Talið er líklegt að hann verði með
sama byrjunarlið og sigraði Tyrki
nýlega, 8-0. Það eru Shilton, Stevens,
Adams, Butcher, Sansom, Steven,
Robson, Webb, Barnes, Lineker og
Beardsley. Samkvæmt því verður
Glen Hoddle varamaður og enskir
fréttamenn eru ekki beint hrifir af
því.
í Sofia í Búlgaríu leika heimamenn
við Skota. Búlgörum nægir þar jafn-
tefli. Sigri Skotar hins vegar komast
írar í úrslit. Jackie Charlton, lands-
liðsþjálfari írlands, hefur sagt þjálf-
ara Skota, Roxburgh, að hann sendi
honum og liðsmönnum hans kassa
af kampavíni og havanavindla ef þeir
sigra. Skotar eiga tvo leiki eftir í 7.
riöli og gætu með sigri í báðum náð
öðru sæti i riðlinum.
í 6. riðli leika Tékkóslóvakía og
Wales í Prag í kvöld. Wales verður
að sigra til að komast í úrsht. Sigri
Tékkar eöa verði jafntefli komast
Danir í úrslitin. Þá leika Portúgal og
Sviss í 2. riðli og Kýpur-Pólland í 5.
riðli í kvöld.
-hsím
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
• Valur Ingimundarson átti góðan leik með Njarðvíkingum i gærkvöldi og þá sc
á kostum. Hér á myndinni leggur hann knöttinn í körfuna en Guðni Guðnason k
„Við verðu
betri hliðar í
- sagði Valur Ingimundarson, þjátfari Njarð
„Þetta stóð tæpt undir lok leiksins en
við höfðum þó sigur á lokasprettinum.
Ég átti von á erfiðum leik eins og raun-
in varð á. Við lentum í villuvandræðum
og það kom niður á leik okkar. Við verð-
um að sýna betri hliöar í leiknum gegn
ÍBK í næsta leik. Ég spáði KR-ingum
þriðja sætinu á mótinu og stend enn
við það,“ sagði Valur Ingimundarson,
þjálfari Njarðvíkinga, í samtali við DV
eftir að Njarðvíkingar höfðu sigrað
KR-inga, 85-89, í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn
fór fram í íþróttahúsi Hagaskólans.
Njarðvíkingar höfðu eins stigs forystu
í hálfleik, 43-44.
KR-ingar skoruðu fyrstu körfuna í
leiknum en Njarðvíkingar voru fljótir
að svara fyrir sig og skoruðu níu stig í
röð. Þessi ágangur Njarðvíkinga virtist
koma KR-ingum úr jafnvægi til að byija
með en smám saman fóru þeir að koma
meira inn í leikinn. Um miðjan hálfleik-
inn var staöan 22-25 fyrir Njarðvíkinga.
Mikill hraði var í leiknum og hittni
leikmanna með ágætum. Njarðvíkingar
komust í 24-30 en þá náðu KR-ingar upp
' góðum leikkafla og komust yfir, 43-42,
þegar skammt var til leikshlés. Símon
Ólafsson hjá KR var mjög sterkur í
þessum leikkafla, hirti íjölda frákasta
og skoraði nokkur dýrmæt stig. Njarð-
víkingar áttu hins vegar síðasta orðið
í hálfleiknum og höföu eins stig forystu
í hálfleik.
Jafnvægi var til að byrja með í upp-
hafi seinni hálfleiks. Þegar staðan var