Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
25
dv Fólk í fréttum
Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. hef-
ur verið í fréttum DV vegna nýrrar
bókar þar sem hann telur aö Hæsti-
réttur sé vilhallur stjórnvöldum.
Jón Steinar er fæddur 27. sept-
ember 1947 og lauk lögfræðiprófi
frá HÍ 1973. Hann var hdl. 1975 og
hrl. 1980. Jón var fulltrúi á lög-
mannaskrifstofu 1974-1977 og
hefur rekið lögmanns- og endur-
skoðunarskrifstofu í Rvík frá 1977
í félagi við aðra. Hann var stunda-
kennari í fjármunarétti við HÍ
1975-1977, var settur dósent
1977-1978 og aðjúnkt 1979-1981. Jón
átti sæti í stjórn Heimdallar FUS í
Rvík og SUS. Hann sat í stjóm Lög-
fræðingafélags íslands 1974-1979 og
var í stjórn Lögmannafélags ís-
lands 1981-1986 og formaður
1983-1986. Jón er nýkjörinn forseti
Bridgesambands íslands. Jón
kvæntist 27. júlí 1974 Kristínu Páls-
dóttur, f. 14. nóvember 1952,
hjúkrunarfræðingi. Foreldrar
hennar em Páll Bergþórsson, veð-
urfræðingur í Rvík, og kona hans,
Hulda Baldursdóttir. Dætur Jóns
era Steinunn Fjóla, f. 30. nóvember
1970, Ásdís, f. 16. september 1972,
og Birna íris, f. 14. janúar 1973.
Börn Jóns og Kristínar eru ívar
Páll, f. 27. febrúar 1974, Gunnlaug-
ur, f. 4. júní 1976, Konráð, f. 12.
febrúar 1984, og Hulda Björg, f. 16.
mars 1986. Systkini Jóns eru Grett-
ir, f. 24. júlí 1945, trésmíðameistari,
giftur Þuríði Ingimundardóttur,
eiga þau fjögur börn, og Ingibjörg
Márgrét, f. 8. nóvember 1961, fóstra,
gift Sveini Bjömssyni jarðfræðingi,
eiga þau einn son.
Foreldrar Jóns eru Gunnlaugur
Ólafsson, bifreiðarstjóri í Rvík, d.
1979, og kona hans, Ingibjörg
Margrét Jónsdóttir bókavörður.
Föðursystini Jóns era Sara, gift
Bergi Arnbjarnarsyni bifreiðaeftir-
litsmanni, Gunnar vörubílstjóri,
giftur Helgu Oddsdóttur, Telma,
gift Jóhannesi Jóhannessyni harm-
óníkuleikara, Ingibjörg, gift
Gunnari Jónssyni kaupmanni og
Helga, gift Grími Bjarnasyni pípu-
lagningameistara. Faöir Gunn-
laugs var Ólafur, múrari í Rvík,
Þórarinsson, b. á Kjaransstöðum í
Biskupstungum, Jónssonar, b. á
Iðu, Jónssonar. Móðir Gunnlaugs
var Þorgerður, systir Helgu, lang-
ömmu Einars Amar Thorlaciusar
forstjóra. Þorgerður var dóttir
Gunnars, b. á Skálahnjúki, Hafliða-
sonar. Móðir Gunnars var Björg,
systir Pálma í Valadal, afa Jóns á
Nautabúi, langafa Jóns Ásbergs-
sonar, forstjóra Hagkaups. Björg
var dóttir Magnúsar, b. í Syðra-
Vallholti, Péturssonar og konu
hans, Ingunnar Ólafsdóttur, systur
Ingibjargar, konu Björns Jónsson-
ar, prests í Bólstaðarhlíö. Móðir
Þorgerðar var Ingibjörg Gunn-
laugsdóttir, b. á Ytri-Ásláksstöð-
um, Jónssonar. Móöir Gunnlaugs
var Þorgerður Þorkelsdóttir, systir
Lopts, langafa Þorláks Johnson
kaupmanns, afa Arnar Johnson
forstjóra. Systir Þorgerðar var
Guðrún, langamma Guðrúnar,
langömmu Ragnars Arnalds.
Móöursystkini Jóns eru Auður,
var gift Peter Collot í Banadaríkj-
unum, Þóra Margrét, gift Jóni
Hauki Baldvinssyni, loftskeyta-
manni í Rvík, og Eyjólfur Konráð,
alþingismaður í Rvík, giftur Guð-
björgu Benediktsdóttur. Ingibjörg
er dóttir Jóns Guðsteins, kaup-
manns í Rvík, Eyjólfssonar, b. á
Mælifellsá, Einarssonar. Móðir
Eyjólfs var Sigurlaug Eyjólfsdóttir,
b. á Meingrund á Skörðum, bróður
Sigurlaugar, langömmu Björns, afa
Jóns L. Árnasonar stórmeistara.
Eyjólfur var sonur Jónasar, b. á
Gili í Svartárdal, Jónssonar, af
Skeggstaöaættinni, bróður Jóns á
Finnastöðum, afa Björns Jónsson-
ar á Veöramótum, afa Sigurðar
Bjarnasonar sendiherra. Móðir
Ingibjargar var Sesselja skólastjóri
Konráðsdóttir, b. á Syðra-Vatni,
Magnússonar, bróður Jóns, prests
á Mælifelli, foður Magnúsar, dós-
ents og ráðherra, og Þóris Bergs-
sonar rithöfundar. Móðir Konráðs
var Rannveig, systir Ingibjargar,
Jón Steinar Gunnlaugsson.
langömmu Gylfa og Vilhjálms Þ.
Gíslasona. Rannveig var dóttir
Guðmundar, b. á Mælifellsá, Jóns-
sonar og konu hans, Ingibjargar
Björnsdóttur, prests í Bólstaöar-
hlíð, Jónssonar, forfóður Bólstað-
arhlíðarættarinnar. Móöir Sesselju
var Ingibjörg Hjálmarsdóttir, b. og
alþingismanns í Norðtungu í Þver-
árhlíð, Péturssonar, bróður Þor-
steins, afa Þorsteins Ö. Stephensen
leikara. Móðir Ingibjargar var
Helga Árnadóttir, b. í Kalmans-
tungu, Einarssonar, bróður
Bjarna, afa Bjarna Þorsteinssonar,
prests og tónskálds.
Einar Albert Magnússon
Einar Albert Magnússon leigubif-
reiðarstjóri, Mávahhð 13, Reykja-
vík, er sjötugur í dag. Einar fæddist
aö Leirabakka í Landsveit og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Móður
sína missti Einar þegar hann var
átta ára en faðir hans giftist aftur
nokkru síðar. Einar var í föður-
húsum fram undir tvítugt en þá fór
hann á vertíð í Vestmannaeyjum
og var þar á mótorbátum og tog-
ara. Hann kom til Reykjavíkur 1940
og stundaði fyrst um sinn vörubíla-
akstur og síðan leigubílaakstur.
Einar var einn af stofnendum
leigubílastöövarinnar Hreyfils,
hefur setið í stjórn þar og verið
formaður um skeið. Árin 1955-61
lagði Einar stund á húsbyggingar
ásamt fleirum og lét þá reisa nokk-
ur fyrstu háhýsi Reykjavíkur.
Hann sneri sér svo aftur að leigu-
bilaakstri og ekur enn leigubíl í
Reykjavík.
Kona Einars er Þuríður, dóttir
Árna, b. á Stóra-Vatnshorni í
Haukadal, Jónassonar, og Sigur-
jónu, frá Arnarstapa á Snæfells-
nesi, Jónsdóttur, en foreldrar
Þuríðar eru látnir.
Einar og Þuríður eiga þrjú börn:
Steinunn er húsmóðir og ritari í
Reykjavík, gift Gylfa Geirssyni,
loftskeytamanni og varðstjóra hjá
Landhelgisgæslunni, og eiga þau
tvö börn; Gunnar, rafvirkjameist-
ari á Selfossi, er einn af eigendum
Árvirkjans, giftur Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur, fóstru og bæjar-
stjórnarfulltrúa, og eiga þau tvær
dætur; Ámi er framkvæmdastjóri
Máls og menningar í Reykjavík,
giftur Súsan Jónsdóttur hjúkr-
unarfræðingi og eiga þau einn son.
Foreldrar Einars, sem eru látnir,
voru Magnús, b. á Leirubakka, f.
1888, Sigurðsson, og fyrri kona
hans, Einarlína Guðrún frá
Nýjabæ í Meðallandi, f. 1897, Ein-
arsdóttir. Móðurforeldrar Einars
Alberts vora Guðrún, f. 1869, Guð-
mundsdóttir, og Einar, b. í Holti í
Meðallandi, f. 1865, Jónsson. Föð-
urforeldrar Einars Alberts voru
Einar Albert Magnússon.
Sigurður, b. í Ósgröf og á Leiru-
bakka, Magnússon, b. í Skarfanesi,
Jónssonar af Víkingslækjarætt, og
Anna Magnúsdóttir, b. á Vatnahjá-
leigu i Landeyjum, Jónssonar, b. á
s.st., Björgúlfssonar, b. í Teigi í
Fljótshlíð, en afi Björgúlfs var Vig-
fús lögréttumaður á Herjólfsstöð-
um á Álftanesi. Langafi Björgúlfs
var svo Gísh Jónsson Skálholts-
biskup, vígður 1557.
Einar verður ekki heima í dag.
Hörður Hjartarson
Hörður Hjartarson forstjóri,
Túngötu 23, Seyðisfirði, er sextug-
ur í dag. Hörður fæddist á ísafirði
og ólst þar upp hjá fósturforeldrum
sínum, Jónínu Guömundsdóttur og
Bjama Andréssyni verkamanni
þar. Nítján ára fór Hörður í Loft-
skeytaskólann í Reykjavík og
útsicrifaðist þaðan 1946. Hann hóf
þá störf hjá Pósti og síma og starf-
aði við sæsímastrenginn á Seyðis-
firði þar sem hann ílengdist.
Hörður hætti hjá Pósti og síma 1965
og tók við umboði Skeljungs á
Seyðisfirði en auk þess er hann
umboðsmaður Sjóvá á Seyðisfirði.
Kona Harðar er Sigfríð frá Skála-
nesi, f. 14.6. 1927, en foreldrar
hennar, sem eru látnir, voru Hall-
grímur, b. í Skálanesi við Seyðis-
fjörð, Ólafsson og María
Guðmundsdóttir.
Hörður og Sigfríð eiga fimm börn:
Bjamdís, húsmóðir í Reykjavík, f.
1947, er gift Steindóri Guðmunds-
syni verkfræðingi og eiga þau þrjú
börn; Valur, rafvirki og sölustjóri
í Reykjavík, f. 1954, er giftur Krist-
ínu Árnadóttur blaðamanni og eiga
þau þrjú böm; Hjörtur, afgreiðslu-
maður á Seyðisfirði, f. 1955, á einn
son; Hallgrímur, skrifstofumaður á
Seyðisfirði, f. 1958, er giftur Krist-
íríu Klemensdóttur og eiga þau tvö
börn; Helena, afgreiðslustúlka á
Seyðisfirði, f. 1964, á einn son.
Foreidrar Harðar eru látnir en
þeir voru Hjörtur Guðmundsson
og Ingibjörg Kristjánsdóttir.
Hörður verður staddur hjá dóttur
sinni og tengdasyni á afmælisdag-
inn að Klyfjaseli 14, Reykjavík, en
þar tekur hann á móti gestum eftir
klukkan 16 í dag.
Kristmundsson
Ami
Árni Kristmundsson sjómaður,
Skjólbraut 7A, Kópavogi, er fimm-
tugur í dag. Árni fæddist í Skerja-
firði og ólst þar upp fyrstu árin en
flutti svo með foreldrum sínum í
Kópavoginn 1943 þar sem hann
hefur búið lengst af síðan. Árni var
rétt fermdur þegar hann fór til sjós
en hann var fyrst á fiskibátum frá
Reykjavík og síðar á verslunar-
skipum.
Kona Arna er Geirlaug, dóttir
Egils, forstjóra Egilssíldar á Siglu-
firði og slökkviliðsstjóra þar,
Stefánssonar og konu hans, Sigríð-
ar Jóhannesdóttur, en þau eru
bæði látin.
Árni og Geirlaug eiga þrjá syni
og eina dóttur: Kristmundur, f.
1960, er sölumaður hjá Ingvari
Helgasyni í Reykjavík; Sigríður
Björg, f. 1962, er húsmóðir í Reykja-
vík; Egill Örn, f. 1963, er ljósameist-
ari hjá Iðnó; Guðfmnur Már, f. 1964,
er bílamálari.
Foreldrar Árna: Kristmundur,
fyrrv. verkstjóri hjá Shell í Skerja-
firðinum, Ólafsspn og Guðfinna frá
Dvergasteini í Álftafirði Magnús-
dóttir.
Árni verður að heiman í dag.
Andlát
Úlfhildur Ólafsdóttir frá Akranesi
lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. nóv-
ember.
Ólafur Ófeigsson fyrrverandi skip-
Sigríður Guðmundsdóttir frá Hell-
issandi lést í Landspítalanum 8.
nóvember.
Ragnar Bergsteins Henrysson,
Jón Ingi Rósantsson klæðskeri,
Bogahlíð 22, Reykjavík, lést í
Landspítalanum mánudaginn 9.
nóvember.
Sigurjón Hinriksson, Aðalstræti 13,
ísafirði, lést mánudaginn 9. nóv-
ember.
stjóri andaðist í St. Jósepsspítala í
Hafnarfirði laugardaginn 7. nóvemb-
er.
Otrateig 20, andaðist mánudaginn
9. nóvember.
_________________Afmæli
Matthías Bjömsson
Matthías Björnsson húsasmiður,
Austurbyggð 14, Akureyri, er sex-
tugur í dag. Matthías fæddist á
Akureyri og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann gekk í barna- og
unglingaskóla á Akureyri en fór
síöar í Iönskóla Akureyrar og lærði
þar húsasmíði á árunum 1949-50.
Matthías hefur svo starfað við sína
iðn og gerir enn en hann hefur alla
tíð búið á Akureyri.
Kona Matthíasar er Sigríður, f.
12.7. 1930, dóttir Kristjáns, b. í
Klambraseli í Reykjahverfi, Jó-
hannessonar og Þuríðar Þorbergs-
dóttur.
Matthias og Sigríður eiga fjögur
börn: Kristín Þuríður, húsmóðir á
Akureyri, f. 1951, er gift Stefáni
Ingólfssyni, starfsmanni hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa, en þau
eiga þrjú börn; Björn, tæknifræð-
ingur í Reykjavík, f. 1953, er giftur
Ragnheiði Gísladóttur frá Húsavík
og eiga þau tvö börn; Ólöf, húsmóð-
ir á Akureyri, sem vinnur jafn-
framt við stjórnunarstörf á Hótel
KEA, f. 1957, er gift Kristjáni Jónas-
syni, bryta á Hótel KEA, en þau
eiga eitt barn; Aðalheiður, f. 1964,
er nemi við Tónlistarskólann í
Reykjavík.
Matthías á tvær systur: Jónína,
húsmóðir í Kópavogi, f. 1919, er gift
Ágústi Halblaub, vélstjóra og
starfsmanni hjá Rafmagnsveitum
ríkisins; Kristin, húsmóðir í
Flórída í Bandaríkjunum, f. 1925,
er ekkja eftir Elmer Clark heild-
sala.
Foreldrar Matthíasar eru látnir
en þeir voru Björn Axfjörð, húsa-
smiöur á Akureyri, og kona hans,
Ólöf Jónasdóttir frá Leyningi. Móð-
urforeldrar Matthíasar voru Jónas,
b. í Leyningi, Tómasson og Aðal-
heiður Benediktsdóttir. Föðurfor-
eldrar Matthíasar voru Sigfús
Axfjörð, b. á Krónustöðum í Eyja-
firði, og Kristín Jakobsdóttir.
75 ára_______________________
Guðný Tómasdóttir, Stekkjarholti 1,
Akranesi, er sjötíu og fimm ára í dag.
70 ára_______________________
Kristín S. Jónsdóttir, Furulundi 6
G, Akureyri, er sjötug í dag.
Jón H. Bjömsson, Austurbrún 2,
Reykjavík, er sjötugur í dag. Hann
verður aö heiman í dag.
60 ára______________________
Njáll Þorgeirsson, Borgarflöt 1,
Stykkishólmi, er sextugur í dag.
Hann verður að heiman í dag.
50 ára
Ragnheiður Guðbjartsdóttir, Engja-
vegi 8. ísafirði, er fimmtug í dag.
Andlát
Margeir S. Sigurjónsson
Margeir S. Sigurjónsson forstjóri
lést 1. nóvember sl. Hann fæddist
í Reykjavík 22. nóvember 1907, son-
ur hjónanna Sigurjóns Jóhanns-
sonar söölasmiðs og Margrétar
Þorleifsdóttur. Hann lagði stund á
verslunamám við Pittmansskól-
ann í London á árunum 1926-27.
Aö námi loknu starfaði hann hjá
Kristjáni Ó. Skagfjörð og Alliance
hf. Árið 1932 fluttist hann til Fær-
eyja þar sem hann vann við eigin
atvinnurekstur, aðallega saltfisk-
sölu til Spánar. Hann tók síðan viö
rekstri útibús G. Helgasonar og
Melsted hf. í Færeyjum. Eftir heim-
komuna 1945 varð Margeir fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins hér á
landi en hóf síðar störf hjá Krist-
jáni Ó. Skagfjörð og varð einn
aðaleigandi þess fyrirtækis. Árið
1958 stofnuöu þrír helstu eigendur
Kristjáns Ó. Skagfjörð hf. annað
fyrirtæki, Steinavör hf., og var
Margeir forstjóri þar á meðan
Margeir S. Sigurjónsson.
starfsþrekið entist, eða í hartnær
þrjá áratugi.
Eftirlifandi kona Margeirs er
Kristín Laufey Ingólfsdóttir en þau
hjónin eignuðust sex börn.
Útför Margeirs verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag, 11. nóvember,
kl. 15.00.