Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
Jarðarfarir Menning
Margeir Sigurjónsson forstjóri lést
1. nóvember sl. Hann fæddist í
Reykjavík 22. nóvember 1907, sonur
hjónanna Sigurjóns Jóhannssonar
og Margrétar Þorleifsdóttur. Margeir
starfaöi lengst af hjá G. Helgason og
Melsted bæöi í Færeyjum og í
Reykjavík. Eftirlifandi eiginkona
hans er Laufey Ingólfsdóttir. Þau
hjónin eignuöust sex börn. Útför
Margeirs verður gerð frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 15.00
Jóhanna Árnadóttir, Hjaltabakka
10, sem andaðist 5. nóvember, veröur
jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 12. nóvember kl. 13.30.
Útför Þóru Björnsdóttur, Geitlandi
2; Reykjavík, verður gerð frá Bú-
staðakirkju fimmtudaginn 12.
nóvember kl. 15.
Ingólfur Pálmason, fyrrv. lektor við
Kennaraháskóla íslands, veröur
jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 13. nóvember kl. 15.
Einar Larsen, Reynimel 76, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 13. nóvember kl. 13.30.
Minningarathöfn um Guðmund
Jónsson frá Asparvík fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 12.
nóvember kl. 13.30. Jarðsett verður
Frá Bjarnarhafnarkirkju laugaidag-
inn 14. nóvember kl. 14.
Margrét Jónsdóttir, Sauðhúsvelli,
Y-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá
Ásólfsskálakirkju laugardaginn 14.
nóvember kl. 14.
Sveinsína Ágústsdóttir lést 3. nóv-
ember sl. Hún fæddist 7. júní 1901.
Foreldrar hennar voru Petrína Guð-
mundsdóttir og Ágúst Guðmunds-
son. Sveinsína giftist Alexander
Árnasyni en hann lést árið 1970.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið. Útfór Sveinsínu verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Guðríður Þorkelsdóttir lést 29. okt-
óber sl. Hún fæddist í Reykjavík 11.
nóvember árið 1900. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Steinunn Guðbrands-
dóttir og Þorkell Helgason.. Guðríður
giftist Ellert Kristni Magnússyni en
hann lést árið 1974. Þeim hjónum
varð fimm bama auðið. Útför Guð-
ríðar verður gerð frá Hallgríms-
kirkju í dag kl. 13.30.
Tapað - Fundið
Úr tapaðist
Gyllt Seiko kvenmannsúr hefur tapast.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
83911. Fundarlaun.
Leiðrétting
í blaðinu sl mánudag var grein um nýja
bón- og þvottastöð í Kópavogi. Var þar
sagt að þetta væri eina þjónusta þessarar
tegundar í Kópavogi, sem er ekki rétt. í
Kópavogi er einnig rekið Holtabón sem
er til húsa að Smiðjuvegi 38 og er síminn
þar 77690.
Basar
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur basar laugardaginn 14. nóvember
kl. 13 í Tónabæ. A boðstólum verða hand-
unnir munir, prjónadót, kökur, jólapapp-
ír og kort. Tekið verður á móti
basarmunum í kirkjunni á milli kl. 17 og
19 á fóstudag og í Tónabæ á laugardag
milli kl. 10 og 12. Allur ágóði rennur í
altaristöflusjóð.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur sinn árlega basar í safnaðar-
heimili kirkjunnar laugardaginn 14.
nóvember kl. 14. Þar verða að venju góð-
ir og eigulegir munir ásamt kökum og
fleiru. Tekið verður á móti basarmunum
og kökum á fimmtudag tpilli kl. 20 og 22,
fóstudaga kl. 15-22 og fyrir hádegi á laug-
ardag.
Næturbrölt í Versló
Leikfélagiö Allt milli himins og jarðar
sýnir i Verslunarskóla íslands:
Betri er þjófur i húsi en snurða á þræði
og Þegar þú verður fátækur skaltu
verða kóngur
Höfundur: Dario Fo.
Leikstjóri: Einar Jón Briem.
Lýsing: Einar Helgason.
Hljóð: Birgir Birgisson.
Nemendur Verslunarskóla ís-
lands hafa mjög þokkalega aðstöðu
til leiksýninga í nýja skólahúsinu
við Ofanleiti. í ár æföu áhugamenn
um leiklist í skólanum tvo skop-
leiki eftir Dario Fo og sýndu
árangur erfiðis síns skólafélögum
og öðrum velunnurum í síðustu
viku undir samheitinu Næturbrölt
á Kóngsbakka.
Þættirnir tveir eru nokkuð ólíkir,
sá fyrri, „Betri er þjófur í húsi...“,
dæmigerður flækjufarsi en sá síö-
ari byggist meira á hraða, fjöri og
litríkum búningum trúða og leik-
ara.
Leiklist
Auður Eydal
í seinni þættinum, „Þegar þú
verður fátækur...“, sköpuðuþess-
ir skemmtilegu, skærhtu trúða-
búningar mikla stemningu og
athygli vakti mjög vel unnin förð-
un. Þessi þáttur kom í heild prýði-
lega fjörlega fyrir, meö trumbu-
slætti og látum. Sigurbjörn
Einarsson lék kónginn í þessum
hluta og fór rpjög vel með það hlut-
LEiKFÉLAGID ALLT UILLI HIMINS OG JARDAR SÝNIR:
NÆTUDBDÖLT A KÓNGáBAKKA
Tveir skopleikir ettir DARIO FO - Leikstjóri EINAR JÓN BRIEM
Sýnt i VERSLUNARSKÓLA ÍSLANDS - OfanUlti 1
verk. Framsögn hans bar af en
annars var henni áberandi ábóta-
vant hjá flestum leikendanna.
Þetta er dálítið umhugsunarefni
fyrir þá sem taka að sér að stjórna
leiksýningum skólanna því að það
að nýta uppsetningu leikrita sem
tækifæri til framsagnarkennslu
sýnist sjálfsagt.
í fyrri þættinum reyndi meira á
textaflutning leikendanna og um
leið urðu ágallarnir meira áber-
andi. Mér fannst Þórhildur Þöll
Pétursdóttir komast jafnbest frá
sínu hlutverki í þessum þætti.
í heild var léttur og hæfilega
ærslafenginn blær á sýningunni
eins og tilheyrir þessum leikþátt-
um Darios Fo. Jón Einar Briem
leikstjóri hefði mátt leggja meiri
rækt við framsögn leikenda, eins
og fyrr segir, en að öðru leyti var
auðséð að krakkarnir höfðu lagt
fram mikla vinnu við uppsetningu.
AE
Tónlistardómsdagar
Aðrir tónleikarnir á tónlistar-
dögum Dómkirkjunnar voru í
kirkjunni sl. sunnudagskvöld. Þar
kom fram Dómkórinn undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar og Björn
Sólbergsson lék einleik á orgelið.
Einnig mátti þar heyra einsöng í
einu lagi, það var ung og efnileg
söngkona, Sigrún Þorgeirsdóttir.
Efnisskráin spannaði heillangt
Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins Hunger.
tímabil eða frá lokum sextándu ald-
ar til vorra daga. Og talsverður
hluti hennar var íslenskur sem
gladdi vonandi einhver hjörtu.
Merkilegasta verkið var þó án efa
það elsta, Pater noster, mótetta fyr-
ir átta radda blandaðan kór eftir
Jacob Handl (1550-1591). Það var
líka einna best sungið af öllu á
skránni og var greinilegt að stjórn-
andinn hafði lagt mikla alúð við
þetta verkefni. Þarna voru annars
lög eftir Huge Wolf, Hjálmar Ragn-
arsson og Þorkel Sigurbjörnsson
og öll glaðlega sungin. Hins vegar
var á mörkum að kórinn réði viö
margslunginn Óð til heilagrar
Sesselju eftir Britten, þar skorti til-
finnanlega fágun og léttleika. Og
flutningur á gullfallegu Requiem
Jóns Leifs, þessari klassísku perlu
íslenskra tónbókmennta, var laus
í sér og hljómvana, sem er kannski
ekki nema von, því að þetta er erf-
Tónlist
Leifur Þórarinsson
itt lag, krefst mikillar söngþjálfun-
ar.
Einleikur Björns Sólbergssonar
var allur til mikils sóma og nálgað-
ist að vera stórkostlegur í a moll
Kóral eftir Cesar Franck. Það verð-
ur sannarlega gaman að heyra
meira frá þessum unga og gáfaða
organista sem þessa dagana starfar
þó mest á Akureyri.
Þessir tónlistardagar auka sann-
arlega á virðingu Dómkirkjunnar
en þeim lýkur reyndar í kvöld með
tónleikum í kirkjunni þar sem m.a.
verður frumflutt verk eftir Atla
Heimi Sveinsson.
LÞ
Tilkyimingar Skák
Vakníngasamkomur
í Neskirkju með Toger Larson verða öll
kvöld kl. 20 þessa viku. Fyrirbænir, mik-
ill söngur, tónlist og lofgjörð. Fórn verður
tekin.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Félagsvist verður spiluð í Kirkjubæ
fimmtudag 12. þ.m. kl. 20.30. Góð spila-
verðlaun og kaffiveitingar.
Jassdagar í Ríkisútvarpinu
Þessa dagana er kynnt jasstónlist á jass-
dögum Ríkisútvarpsins, meðal annars
eru beinar útsendingar frá jasstónleik-
um. Af þessu tilefni er kominn til lands-
ins Mikael Ráberg, sænskt tónskáld og
básúnuleikari, til að vinna með stórsveit-
um landsins. Fimmtudaginn 12. nóvemb-
er heldur Stórsveit Tónlistarskólans á
Akureyri tónleika í Alþýðuleikhúsinu,
4. hæð. Stjórnendur verða Norman H.
Dennis og Mikael Ráberg sem einnig mun
leika á básúnu. Kynnir verður Gestur
Einar Jónasson. Tónleikarnir verða
sendir út í beinni útsendingu á rás 2 en
þeir hefjast kl. 17.45 og útsending hefst
kl. liðlega 18.
Múlaútibúið tuttugu ára
Landsbanki íslands, Múlaútibú, er tutt-
ugu ára í dag. I tilefni af afmælinu er
öllum viðskiptavinum boðið upp á kafli
og kökur í bankanum í dag, miðvikudag-
inn 11. nóvember.
Hallgrímskirkja - starf aldr-
aðra
Opið hús á morgun, fimmtudag 12. nóv-
ember, í safnaðarsal kirkjunnar og hefst
það kl. 14.30. Kynntar verða varmahlífar
fyrir giktarsjúklinga, lesin saga, Guðrún
Hrund Harðardóttir og Kristín Waage
leika saman á fiðlu og píanó létt sígild
lög. Kafíiveitingar. Þeir sem óska eftir
bílfari hringi i kirkjuna í síma 10745 sama
morgun.
Félagsmiðstöð Geðhjálpar
að Veltusundi 3b, er opin á fimmtudögum
kl. 20-22.30, laugardögum og sunnudög-
um kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp opna
skrifstofu alla virka daga kl. 10-14 þar
sem seld eru minningarkort félagsins og
veittar upplýsingar um starfsemina. Sími
25990.
Heimsmeistaraeinvígið:
Kasparov náði forystunni
-vann biðskákina í níu leikjum
Eins og spáð var vann Garrí
Kasparov elleftu skákina í heims-
mcistaraeinvíginu í Sevilla í gær
eftir að skákin hafði farið í biö á
mánudag. Meistararnir voru að-
eins 15 mínútur og 9 leiki að ljúka
skákinni af. Karpov gafst upp er
hann sá fram á að þurfa að láta
biskup sinn fyrir frelsingja Ka-
sparovs.
Heimsmeistarinn Kasparov hef-
ur þá náð forystunni í einvíginu;
hefur sex vinninga gegn fimm
vinningum Karpovs. Kasparov hef-
ur unnið þrjár skákir, Karpov tvær
en sex hefur lokið með jafntefli.
Kasparov er hálfnaður á leið sinni
að titilvörn. Til þess þarf hann að
vinna sex skákir, eða fá tólf vinn-
inga samtals, því að hann heldur
titlinum ijúki einvíginu með jafn-
tefli, 12-12.
Ellefta skákin þótti áfall fyrir
Karpov sem átti betri færi er hon-
um varð á hrapalleg yfirsjón.
Hollenski stórmeistarinn Gennadi
Sosonko gekk svo langt í gær að
segja að eftir slík mistök yrði tor-
velt fyrir Karpov að endurheimta
sjálfstraustið og einvíginu væri
sama og lokiö. „Veislan er búin,“
sagði hann og bjó sig til brottfarar.
Þannig tefldist ellefta skákin
áfram í gær. Kasparov, sem hafði
svart, lék biðleik:
því að staðan eftir 44. Bxe5+ Kf7
er gjörtöpuð. Kasparov hafði einnig
tekið þetta með í reikninginn og
báðir léku hratt,
44. - Kf7 45. Rg4 Rc4 46. Rxe5+ Rxe5
47. Bxe5 b4 48. Bf6 b3 49. e5
Eða 49. Kc3 He2 og vinnur létt.
49. - Hxg2 50. e6+ Kf8!
41. - Hc7
Eftir 33ja mínútna umhugsun
velur Kasparov þvinguðu leikja-
röðina sem bent var á í DV í gær.
Þetta er spurning um stíl. Varkár-
ari skákmenn heföu leikið 41. - Rc4
án umhugsunar en þá tæki lengri
tíma að innbyrða vinninginn.
42. Bd6 Hc2 + 43. Kd3 Hxa2 44. Re3
Reynir að slá ryki í augu hans
Skák
Jón L. Arnason
Enn var hægt að leika taflinu nið-
ur með 50. - Ke8? 51. d6 b2 52. d7 +
og mát í næsta leik. Eftir leik Ka-
sparovs er hvítur leik of seinn. Ef
51. d6, þá 51. - b2 og hótar að vekja
upp nýja drottningu með skák og
svartur vinnur létt ef hvítur gefur
biskup sinn fyrir peðið. Karpov
gafst því upp.
-JLÁ