Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Page 28
28
Sandkom
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
SIGLINGAMÁLASTOFNUN RÍKISINS
HRINGBRAUT 121, 107 REYKJAVÍK, SÍMI 25844
LAUS STAÐA
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu gjaldkera
hjá Siglingamálastofnun ríkisins er framlengdur til
20. nóv. 1987.
Siglingamálastofnun ríkisins
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina september og
október er 15. nóvember nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Laus staða
Staða bókavarðar í Landsbókasafni íslands er laus
til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi próf
í bókasafnsfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir
2. desember næstkomandh.
5. nóvember 1987,
Menntamálaráðuneytið
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram i dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Hverfisgata 105, hluti, þingl. eig.
Byggingafél. Os hf., föstud. 13. nóv-
ember ’87 kl. 11.15. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Kambasel 85, jarðhæð, þingl. eig. Jón
Axel Ólaísson, föstud. 13. nóvember
’87 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendm- eru
Landsbanki íslands og Ólafur Gú-
stafsson hrl.
Klapparstígur 13, 3.t.v., þingl. eig.
Guðlaugur Jónsson, föstud. 13. nóv-
ember ’87 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur
eru Eggert B. Ólafsson hdl., Gjald-
.heimtan í Reykjavík og Ólafin-
Gústafsson hrl.
Kleppsvegur 132, l.h.f.m., þingl. eig.
Margrét Gunnlaugsdóttir, föstud. 13.
nóvember ’87 kl. 13.30. Uppboðsbeið-
endur eru Sveinn H. Valdimarsson
hrl., Guðjón Armann Jónsson hdl. og
Veðdeild Landsbanka íslands.
Njarðargata 39, neðri hæð, þingl. eig.
Axel S. Axelsson, föstud. 13. nóvember
’87 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru
Guðmundur Markússon hrl., Baldvin
Jónsson hrl. og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
.Skarphéðinsgata 20,2. hæð, þingl. eig.
Steinar Harðarson, föstud. 13. nóv-
ember ’87 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur
eru Ólafiu- Gústafsson hrl., Lands-
banki íslands, Guðjón Ármann
Jónsson hdl., Gjaldheimtan í Reykja-
vík, Jón Finnsson hrl. og Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson hdl.
Skeljagrandi 7, íb. 1-3, þingl. eig.
Magnús Hákonarson og Karolína
Snorrad., föstud. 13. nóvember ’87 kl.
11.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Smiðjustígur 13, þingl. eig. Gerður
Pálmadóttir, föstud. 13. nóvember ’87
kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Bún-
aðarbanki íslands, Gísli Baldur
Garðai'sson hrl., Ólafur Axelsson hrl.,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Ólalur
Garðarsson hdl., Lögmenn Hamra-
borg 12, Ámi Einarsson hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Steingiímur
Þormóðsson hdl., Ólafur Gústafsson
hrl., Guðjón Armann Jónsson hdl.,
Friðjón Öm Friðjónsson hdl. og Sig-
urður G. Guðjónsson hdl.
Smyrilshólar 6, kjallari, þingl. eig.
Hildur Gunnarsdóttir, föstud. 13. nóv-
ember ’87 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi
er Ingi Ingimundarson hrl.
Stigahlíð 28, 1. hæð t.h., þingl. eig.
Sigrún Einarsdóttir, föstud. 13. nóv-
ember ’87 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur
em Sigríður Thorlacius hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands og Gjaldheimtan
í Reykjavík.
Æsufell 4, íbúð 5C, þingl. eig. Auður
Filippusdóttir, föstud. 13. nóvember
’87 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Ás-
geir Thoroddsen hdl.
Öldugrandi 3, íb. 14, þingl. eig. Ámi
Sævar Gunnlaugsson, föstud. 13. nóv-
ember ’87 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur
em Guðni Haraldsson hdl., Gjald-
heimtan í Reykjavík, Baldvin Jónsson
hrl., Veðdeiþd Landsbanka íslands,
Landsbanki íslands, Innheimtustofii-
un sveitarfélaga, Sigurmar Albertsson
hrl., Ásgeir Þór Ámason hdl., Gjald-
skil s£, Skúli J. Pálmason hrl. og
Ásgeir Thoroddsen hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Ellimörk á
íhaldinu
Ungir sjálfstæðismenn hafa
kannað sérstaklega aldur
þingmanna íhaldsflokka í
nokkrum Evrópulöndum. Til
íhaldsins á íslandi telja þeir
greinilega einungis einn
flokk, Sjálfstæöisflokkinn, og
niðurstaðan er sú að hvergi
nema í Svíþjóð er meðalaldur
þingmanna íhaldsflokka
hærri en hér, 54 ár. Sænskir
íhaldsmenn standa jafnfætis
íslenskum íhaldsmönnum að
þessu leyti en annars staöar
er meðalaldurinn 6-11 árum
lægri.
Víkingamir
á heimleið
íþróttamannaviðskipta-
jöfnuður okkar við hin
Norðurlöndin er mjög hag-
stæður ef við lítum á hann frá
útflutningssjónarmiði. Við
sjáum lítiö af erlendu frænd-
fólki okkar í íþróttafélögum
hérlendis en vitum af stórum
hópi íslenskra íþróttamanna
í félögum og keppni erlendis.
Meðal annars stefnir nú í að
eitt helsta félagið í Noregi,
Brann í Bergen, verði ekki
aðeins með íslenskan mark-
vörð eins og undanfarið
heldur einnig íslenskan þjálf-
ara og íslenskan markaskor-
ara. Landnámsmennimir
yrðu líklega hvumsa ef þeir
vissu af þessu afturhvarf: til
átthaganna.
Einhver sagði að Brann
hefði ákveðið að fá sér
nokkra íslendinga en átt í
erfiðleikum með að ákveða
nákvæmlega hverja. Þá heíði
mönnum dottið í hug að hafa
hópinn sem fjölbreyttastan
og valið svarthærðan þjálf-
ara, ljóshærðan markaskor-
araograuðhærðan
markvörð.
Stadföst yfirlýsing: „Verö áfram hjá
KR að öllu óbreyttu."
Tímamóta-
yfirlýsing
Annars er þetta meira og
minna í deiglunni með strák-
ana okkar í Noregi. Þegar
síðast fréttist hafði Brann til
að mynda ekki haft samband
við ljóshærða markaskorar-
ann Pétur Pétursson síðan í
vor og ekki er Pétur að hafa
samband við Brann að fyrra
bragði. Þetta er auðvitað
meiri háttar sambandsleysi
enda lýsir Pétur þ ví yfir í
Morgunblaðinu að hann
„verði áfram hjá KR að öllu
óbreyttu" ogþótti lesendum
mikið til þessarar staðfestu
koma.
Tækninni
fleygirfram
Hugmyndirnar um raf-
magnssölu til Bretlands eru
auövitað hinar merkilegustu
og sjálfsagt að selja þangað
sem mest af rafmagni þótt
það sé auðvitað ekki til í nein-
um þeim mæh sem gagn er
að, nema við slökkvum ljósin
hér hjá okkur. Annars hafa
sprenglærðir verkfræðingar
reiknað það út að ef flytja á
rafmagnið eftir gömlu kopar-
hólkunum myndi ein
Blönduvirkjun upp á 140
megavött nægja til þess að
kveikja á einni 60 vatta peru
í Skoflandi. En sem betur fer
hafa víst orðið einhveijar
tækniframfarir í flutningi
rafmagns um langar leiðir.
Borgarís
í Leifsstöð
Gróðurást arkitekta Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar er
sögð hafa kostað sex milljónir
króna það sem af er og er þá
ekki talinn með kostnaður
við að reka þennan fjölskrúð-
uga urtagarð. Það er víst
ekkert smámál því fá þurfti
Dana, sérmenntaðan í rekstri
skrúðgarða í norrænum flug-
stöðvum, til þess að sjá um
hirðingu og vökvun blóma og
tijáa. Hefur hann að vísu
þræla á sínum snærum til
þess að bera vatn á gróðurinn
enda er Daninn svo hæglátur
maður að hann er ekki ennþá
búinn að koma upp allri lýs-
ingunni sem átti að blekkja
suðræn tré og blóm til þess
að lifa norður viö heimskaut.
Sum þeirra eru því orðin
heldur lasburða og er þ ví best
fyrir Danann að fara að
skröngla þessum ljóskerum
sínumupp.
Maður, sem villtist í flug-
stöðvarskóginum og varð
fyrir vægri eðluárás þar sem
honum datt helst í hug að
hann væri búinn að ganga
alla leið til Bandaríkjanna,
stakk upp á því, þegar hann
fannst ennþá í flugstöðinni,
að í staðinn fyrir skóginn yrði
komið fyrir efitir endilangri
stöðinni glerskápum með
fljótandi borgarís. Þannig
yrði að minnsta kosti einhver
reglaáruglinu.
Homfirðingar
í skipa-
kaupastuði
Samkvæmt grunsemdum
Fiskifrétta æfla Homfirðing-
ar að skella sér á ein 4-5
fiskiskip í Portúgal en Port-
úgalir hafa síðustu mánuði
hamast við að bjóða útgerð-
armönnum hér skip á helm-
ingi lægra verði en þau fást á
heimasmíðuð. Raunar er það
fyrirtæki með því torskilda
nafni Nidana sem hefur milh-
göngu um þessar þreifingar.
Hornafjarðarskipin eiga að
verða 26 metra löng og 8
metra breið fjölveiðiskip, á
50-60 milljónir króna stykkið.
Fiskifréttir segja að nýju
skipin eigi að koma í staðinn
fyrir Æskuna, Þinganes,
Haukafell, Hrísey ogjafnvel
Langey.
Nú er bara að bíða og sjá
til hverjir ríða á vaðið og
kaupa skip af Kínveijum en
þau eiga að vera helmingi
ódýrari en þau portúgölsku.
Umsjón:
Herbert Guómundsson
Björgunarbátar án
haffærisskírteina
Frétt með sömu fyrirsögn birtist í
DV 31. október síðastliðinn. í frétt-
inni var sagt frá björgunarbátum
sem Landssamband hjálparsveita
skáta hefur annast innflutning á. Frá
því að fréttin birtist hafa innflutn-
ingsaðilar bátanna, það er LHS, haft
samband við blaðið og sagt fréttina
ranga í öllum meginatriðum.
í fréttinni var sagt að bátar, sem
nú eru á Eskifirði og á Barðaströnd,
hefðu ekki fengið haffærisskírteini
þar sem ekki hefði verið búið að setja
í bátana tilskilinn búnað. LHS hefur
sent DV svar siglingamálastjóra
vegna fyrirspurnar um afstöðu Sigl-
ingamálastofnunar til bátanna.
Samkvæmt beiðni LHS verður svar
siglingamálastjóra, Magnúsar Jó-
hannessonar, birt hér orðrétt.
„Með vísun til fyrirspurnar yðar
um afstöðu Siglingamálastofnunar
ríkisins til björgunarbáta, sem lands-
sambandið flutti til landsins frá
Englandi fyrir hjálparsveitir á Eski-
firði og á Barðaströnd að yðar sögn,
getum við upplýst, að bolur skipanna
uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru
til þeirra skv. íslenskum reglum.
Hins vegar hefur búnaður skipanna
ekki verið skoðaður enn og skipin
ekki verið skráð eða merkt í sam-
ræmi við gildandi lög og reglur,
þannig að skipin hafa ekki verið end-
anlega samþykkt af Siglingamála-
stofnun.
Vegna fyrirspurnar yðar getum við
staðfest að ekkert hefur komið fram
sem bendir til þess að ekki sé hægt
að ganga frá skráningu þessara skipa
á aðalskipaskrá og haffærisskírtein-
um til þeirra þegar fullnaðarúttekt
hefur farið fram aö yðar beiðni.“
í frétt DV var ekki sagt að umrædd-
ir bátar hefðu ekki uppfyllt skilyrði
Siglingamálastofnunar heldur að
bátarnir hefðu ekki verið skoðaðir
endanlega og því ekki búið að gefa
út haífærisskírteini vegna bátanna.
í svari siglingamálastofnunar er
þetta staðfest.
í fyrrnefndri frétt kom fram villa
sem nú skal leiðrétt. Þar var sagt að
LHS hefði flutt til landsins báta sem
hafl verið með of þunnan botn. Rétt
er að fluttur var inn einn slíkur bát-
ur. Hjálparsveitin í Kópavogi var
meö þann bát. í 4. tbl. 8. árg. Hjálpar-
sveitatíðinda segir um þann bát: „í
ljós kom að þessi bátur er ekki góöur
sjóbátur þar sem hann er of lítill og
léttur til að þola mikla öldu. Einnig
kom í ljós galli í botninum á bátnum
og var plastið farið að springa tölu-
vert.“
Kópavogsbáturinn var fluttur aftur
til Englands. Samkvæmt upplýsing-
um frá LHS var aldrei reynt að fá
haífærisskírteini vegna þess báts.
-sme
Siglingamálastofnun ríkisins:
Leiðbeinir farmönnum
við lestun síldartunna
Siglingamálastofnun ríkisins mun
á næstunni kynna þeim farmönnum,
sem annast munu síldarflutning frá
landinu í haust og vetur, leiðbeining-
ar við lestun á sfidartunnum sem
stofnunin hefur nýverið gefið út.
Leiðbeiningamar voru samdar af
sérstakri nefnd sem skipuð var af
siglingamálastjóra í lok júlímánaöar
í sumar.
í kjölfar slyssins, þegar Suður-
landið fórst á jólanótt í fyrra, urðu
miklar umræður um lestun á síldar-
tunnum og frágang á þeim í lestum
skipa. Eftir athugun á þessu máli,
sem Sigbngamálastofnun og Rann-
sóknanefnd sjóslysa létu gera, þótti
rétt aö semja leiðbeiningar fyrir
skipstjórnarmenn um þetta efni.
Nefnd sú sem skipuð var í júlí fékk
upplýsingar um röskun á farmi við
flutning trétunna í 6 skipti á árabil-
inu 1982 til 1987 og voru þær upplýs-
ingar hafðar til hliðsjónar þegar
leiðbeiningarnar voru samdar. Einn-
ig komu til athuganir rannsókna á
burðarþoli trétunna sem gerðar hafa
verið á vegum Rannsóknanefndar
sjóslysa.
Auk þess aö kynna skipstjórnar-
mönum leiðbeiningamar verður
fylgst með því aö eftir þeim verði
farið. -S.dór