Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1987, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987.
29
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Þessar myndir voru teknar að lokinni keppninni og er Jón Páll á miðjumyndinni að hug-
hreysta Kazmeier. Þeir eru báðir greinilega mjög vel á sig komnir, en svo virðist sem Capes
(neðsta myndin) sé farinn að láta á sjá.
Þessi mynd af Jóni Páli Sigmarssyni er opnumynd blaösins, Strength Athlete. Jón
Páll er þarna að lyfta 523 kílóum sem er heimsmet.
Undanfarin ár hafa Jón Páll Sigmarsson og Ge-
off Capes skipst á að bera titilinn sterkasti maður
heims, báðir tvisvar sinnum. Árin þar á undan
hafði Bandaríkjamaður, Bill Kazmeier að nafni,
unnið þennan titil þrisvar sinnum. En hver skyldi
vera sterkastur þeirra?
Forráðamönnum hins virta kraftablaðs,
Strength Athlete, lék forvitni á að vita hver væri
þeirra sterkastur. Þeir báðu þá þrjá, Jón Pál,
Capes og Kazmeier að taka þátt og undirbúa sig
fyrir keppni þar sem úr því yrði skorið. Keppnin
fór fram í Skotlandi síðastliðið sumar og er hún
aðalefni síðasta tölublaðs Strength Athlete.
Það er skemmst frá því að segja að Jón Páll Sigm-
arsson sigraði þessa kappa með yfirburðum og
sigraði í átta greinum af tíu. í hinum tveimur
varð hann i öðru sæti. Hann fékk því 28 stig af
30 mögulegum, á móti 19 stigum Kazmeiers og 10
stigum Capes. Blaðið krýnir því Jón Pál sem óum-
deilanlega sterkasta mann allra tíma. Ekki
amalegur titill það.
Blaðið birtir fjölda mynda frá keppninni og hér
sjáum við nokkrar þeirra.
Dennis Weaver
er nafn sem vakið gæti minn-
ingar hjá mörgum. Hann lék á
sínum tíma í geysivinsælum
sjónvarpsþætti um lögreglu-
manninn McCloud sem notaði
aðferðir villta vestursins í lög-
gæslunni. Dennis hefur nýlega
samþykkt að leika að nýju lög-
reglumanninn vinsæla og eru
myndatökur þegar hafnar. Hver
veit nema hann sjáist á skjánum
hér aftur.
Larry Hagman
leikur olíukóng í Dallasþáttun-
um sem veit sínu viti þegar
viðskipti og fjárfesting er annars
vegar. Hann þénar mikla pen-
inga fyrir leik sinn í þáttunum
og reynir einnig að fjárfesta þá
eins skynsamlega í raunveru-
leikanum. Hann fjárfesti í mörg
ár í olíubransanum eins og J.R.
en er nú þúinn að gefast upp
á því. Olía er þúin að lækka svo
mikið á heimsmarkaðnum að
Larry er búinn að tapa stórum
summum á þessu braski. Hann
ætlar nú að reyna að fjárfesta
í fasteignum í staðinn. Það er
ekki sama, leikur og raunveru-
leiki.
Cher,
söngkonan fræga, sem nú er
ef til vill frægari fyrir leik sinn í
kvikmyndum, á sér uppáhalds-
leikara. Hún dáist mjög að Jack
Nicholson. Hún segir að það
að fylgjast með honum leika
sé meiri reynsla en hægt sé að
fá á tíu árum í leiklistarskóla.
Cher lék einmitt með honum í
myndinni, The Witches of East-
wick.
Sterkasti maður
allra tíma