Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987.
.13
Jakkaföt úr Kaupstað. Fötin til hægri
kostuöu á niunda þúsund en einnig
fást föt á lægra verði.
Kjólar í Polarn och Pyret. Þeir sem
eru efst á myndinni kosta 1.490 kr.,
matrósakjóllinn 1.870 kr., kjóllinn
með slaufunni 2.480 kr., og kjóllinn
lengst til vinstri 1.690 kr.
Kjólar i Hjarta. Talið að ofan, frá
vinstri, kosta þeir 8.142 kr., 2.580,
3.034 og 4.990 kr.
Jólapósturinn -
______________Neytendur
Síðustu forvöð
Oft er handagangur i öskjunni við flokkun pósts. Þessi mynd var tekin
er mætt var til starfa eftir langt verkfali haustið '84.
Okkur lék hugur á að vita hvenær
síðustu forvöð væru að senda af
stað jólapóstinn. Við snerum okkur
til Ara Jóhannessonar, póstrekstr-
arstjóra í Ármúla. Samkvæmt
upplýsingum Ara þá eru að verða
síðustu forvöð að senda böggla af
stað í sjópósti til Evrópulanda en
slíkur póstur til landa utan Evrópu
er þegar orðinn of seinn af stað.
Sjópóstur til Evrópulanda verður
að vera kominn í pósthús fyrir
fyrsta desember.
Flugpóstur til landa utan Evrópu
verður aö berast fyrir 11. desemb-
er. Síðasti frestur fyrir Evrópulönd
er hins vegar 17. desember.
Allur innanlandspóstur verður
að berast í pósthús fyrir 17. des-
ember. Til að auðvelda fólki að
koma af stað pósti hefur verið
ákveðiö aö lengja opnunartíma
pósthúsa og verða þau því opin til
kl. 18 alla virka daga frá og með
sjöunda desember. Þá verða þau
einnig opin laugardagana 12. og 19.
desember frá klukkan 9-16. Síðasta
daginn, 17. desember verðaþau svo
opin til kl. 20.
Burðargjald er sem hér segir:
Fyrir bréf, kort og prentað mál allt
að 20 grömmum að þyngd kostar
kr. 13 innanlands og til Norður-
landanna.
Til annarra landa i Evrópu er gjald
fyrir bréfiö hins vegar kr. 17. Þau
eru flutt flugleiðis út og einnig milli
svæða.
Til Bandaríkjanna er gjald fyrir 20
gramma bréf kr. 26 í flugpósti og
gildir þá einu hvort um austur-, eða
vesturströndina er að ræða.
Bögglapóstur er mismunandi eftir
löndum. Svo dæmi séu tekin þá
kostar undir fimm kílóa böggul til
Danmerkur kr. 402 með skipi en
kr. 640 meö flugi.
Fimm kílóa böggull til Vestur-
Þýskalands kostar kr. 447 í sjópósti
en kr. 751 i flugpósti.
Til Bretlands er burðargjald 5 kg
bögguls kr. 619 í sjópósti og kr. 830.
Verð á bögglum til annarra Evr-
ópulanda fer eftir landi.
Það er dýrara að senda böggul til
landa utan Evrópu. Svo dæmi séu
tekin þá er burðargjald fimm kílóa
bögguls til Bandaríkjanna kr. 1.493
í flugpósti en nú er of seint að senda
þangað i skipapósti fyrir jólin.
Ari vildi að lokum brýna það fyr-
ir fólki það vandaði utanáskriftir
og gætti vel að þvi að hafs. péstfang
rétt svo og póstnúmer. .p^p
MMMHtf
JóCatiCBod 1.980,- tq;,
Æöislega sætar og elskulegar...
Þær dansa í takt viö öll lög ! Sex mismunandi
\ brúöur, allt frá Svínku til Andrésar andar.
SKIPHOUI 19
SÍMI 29900