Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Blaðsíða 28
-40
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987.
Jarðarfarir
Útfór Auðar Jónsdóttur fer fram í
dag fóstdaginn 27. nóvembei. Auður
fæddist 15. nóvember 1897 aö Jarð-
langsstöðum, Borgarhreppi, Mýra-
sýslu. Foreldrar hennar voru Jón
Björnsson bóndi og Ragnhildur Er-
lendsdóttir. Þau Jón og Ragnhildur
eignuðust 12 börn.
Magnús Sigurðsson Valhöll, Vest-
manneyjum, verður jarðsunginn frá
Landakirkju laugardaginn 28. nóv-
ember kl. 11.
Helgi Vigfússon, fyrrverandi kaup-
félagsstjóri, Breiðumörk 8, Hvera-
gerði, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju í dag kl. 13.30.
Sigurjón Björnsson verður jarðsung-
inn frá Akraneskirkju laugardaginn
28. nóvember kl. 11.30.
Guðfmna Jónsdóttir, Miðtúni 13, Sel-
fossi, verður jarðsungin laugardag-
inn 28. nóvember kl. 13.00. Jarðsett
verður í Eyrarbakkakirkju.
Basar
Kökubasar
Kökubasar Framkvenna veröur haldinn
sunnudaginn 29. nóvember í Framheim-
ilinu viö Safamýri og hefst kl. 2.
Framkonur
Kökubasar
Kökubasar og flóamarkaður verður í
Hreyfilshúsinu sunnudaginn 29. nóv-
ember og hefst hátíöin kl. 14. Það er
eldridansaklúbburinn Elding sem stend-
ur fyrir ba'sarnum.
Tapað - Fundið
Tapað-Fundið
Á sunnudag, 22. nóvember, tapaöist háls-
festi úr gulli með fimm steinum og perla
hangir niður úr miðri festingu. Festin
tapaðist sennilega við Sundlaugarnar í
Laugardal. Finnandi vinnsamlegast
hringi í síma 681507 eða 42169. Fundar-
laun.
Tilkyrmingar
Aðventusamkoma Breið-
holtssóknar
Eins og undanfarin ár veröur aðventu-
kvöld Breiðholtssafnaðar í hátíðarsal
Breiðholtsskóla fyrsta sunnudag í að-
ventu, sem aö þessu sinni er á morgun,
sunnudaginn 29. nóvember, og hefst sam-
koman kl. 20.30.
Að venju verður fjölbreytt dagskrá.
Kór Breiðholtskirkju flyttu- aðventu- og
jólasöngva undir stjóm organistans
Daníels Jónassonar. Inga Backman söng-
kona syngur einsöng. Ami Þór Jónsson
les jólafrásögu og Málfríður Firmboga-
dóttir, formaður KFUK, flytur aðventu-
hugleiðingu. Kvöldið verður svo endað
með stuttri helgistund við kertaljós, þar
sem eldri bömin i bamastarfinu og nokk-
ur fermingarböm aðstoða.
Em sóknarbúar hvattir til að hetjajóla-
undirbúninginn með þvi að íjölmenna
við þessa athöfn, en þetta verður væntan-
lega síðasta aðventukvöld safnaðarins á
þessum stað, þar sem nú hefur verið
ákveðið að Breiðholtskirkja verði vígð 13.
mars nk.
Menniiig
Kaldhamrað stórverk
Þriðju tónleikarnir með Frank
Shipway á stjórnpalli á þessum
vetri voru í Háskólabíói í gær-
kvöldi. Hann hefur alltaf verið með
stóra sinfóníu á efnisskránni, byrj-
aði með Bruckner (sjöundu), var
síðan með fimmtu Tsjækofskís, en
áður hafði hann reyndar sýnt okk-
ur í tvo heimana með tíundu
Sjostkóvíts og fyrstu Mahlers (í
fyrra og hittifyrra). Og nú kom
fyrstá sinfónía Williams Waltons,
en hann telja margir mesta „sin-
fónikker" Breta síðan Elgar leið.
Tónleikarnir hófust á nýju verki
eftir Misti Þorkelsdóttur, Fanta-
sea, sem kemur eitthvað spánskt
fyrir. í efnisskrá segir: „Fantasea"
varð til við strendur Túnis. Þetta
er lítil fantasía um sjóinn þarna,
sem er svo heitur, blár og enda-
laus, og ekkert gerist utan ein og
ein alda, sem leitar upp á strönd-
Einleikari með Sinfóníuhljómsveit-
inni í gærkvöldi var Pétur Jónas-
son.
ina. Og einhversstaðar má greina
söng hafgúa, eins og þann, sem
Ódysseifur heyrði forðum. Ég held
að þetta hafi lukkast nokkurn veg-
inn. En „fantasían" í hljómsveitar-
útsetningu hefði mátt vera þó
nokkuð stærri og markvissari.
Tón]ist
Leifur Þórarinsson
Slíkt kemur áreiðanlega með
tímanum og sem fyrsta hljómsveit-
arverk ungs höfundar var þetta vel
af sér vikið.
Sá ágæti gítaleikari, Pétur Jónas-
son, var einleikari í konsertsvítu,
„Fantasía para un Gentilombre"
eftir Spánverjann Joaquin Rodrigo.
Þettá verk er samansoðið úr göml-
um stefjum og heldur bragðdaufur
grautur. En Pétur spilaöi vel eins
og hans var von og vísa.
En aðalmálið á þessum tónleik-
um var semsé sinfónía Waltons.
Þetta er magnað, kaldhamrað stór-
verk, þar sem gengið er út frá
Sibelíusi í lengd og breidd, komið
við í Stravinsky (skersó) og jafnvel
Hindemith. Hvað sem því líður er
þetta áhrifamikil tónsmíð, ágeng
og fráhrindandi í senn, eldklár í
formi. Sinfóníuhljómsveit íslands
stóð sig ekki aðeins vel í þessu, hún
lék á köflum snilldarlega, bæði
strengir, blásarar, já, og ekki síður
slagverk. Shipway hefur fullkomið
vald í sínu verki, meðalmennsku-
taktar eru ekki í hans kokkabókum
og hljómsveitin virðist örugg og
áræðin undir hans handleiðslu.
Það lofar góðu í „Eroicu“ á næstu
tónleikum. LÞ
Skák
Jafiitefli í biðskákinni
Karpov og Kasparov sömdu um
jafntefli eftir 46 leiki í sautjándu ein-
vígisskákinni í Sevilla, sem tefld var
áfram í gær. Er skákin fór í biö á
miðvikudagskvöld var staðan jafn-
teflisleg og margir bjuggust við að
skákin yrði ekki lengri. Þeir léku
fjóra leiki í gær sem tók þá tæpa
klukkustund. „Staðan var ekki eins
einfóld og allir héldu,“ sagði norski
stórmeistarinn Simen Agdestein.
Kasparov kom tíu mínútum of
seint á skákstað og samkvæmt
fréttaskeytum Reuters virtist hann
trekktur. Er hann lék sinn 46. leik
var þó ljóst að hann stóð við jafnte-
flisdyrnar. Karpov bauð þá jafntefli
sem Kasparov þáði. Athygli vakti
að eftir skákina sátu þeir drykk-
langa stund \ið taílborðið og
skoðuðu möguleikana. Það hefur
ekki gerst áður í þessu einvígi og
kom á óvart eftir orðahnippingar
þeirra sl. laugardag.
Staðan í einvíginu er jöfn, 8 'A -
8 ’/z, er sjö skákum er ólokið. Átj-
ánda skákin verður tefld í kvöld
og þá hefur Kasparov hvítt. Honum
nægir jafntefli í einvíginu til sigurs.
Þannig lauk sautjándu skákinni
í gær. Kasparov, sem hafði svart,
lék biðleik:
42. - Kg7 43. Ha8 Kf7 44. Ke4 Kg7 45.
Ha7+ Kg6 46. He7 g4!
Einfaldasta lausnin. Eftir 47. fxg4
Kg5 48. Hg7+ Hg6 49. Hxg6 Kxg6
Skák
Jón L. Árnason
getur hvitur ekki unnið peðsenda-
taflið og 48. He6 svarar svartur með
48. - Hg6! og heldur jöfnu. Karpov
bauð því jafntefli sem Kasparov
þáði.
-JLÁ .
Kjarasamningar:
Eina hreyfingin
er á Vestfjörðum
Aðventu- og afmælishátíð
Bústaðakirkju
Fyrir sextán árum var Bústaðakirkja
vígð. Það var á fyrsta sunnudegi í að-
ventu sem ætíð hefur verið mikill hátiðis-
dagur í söfnuðinum og var það fyrir
vigslu kirkjunnar. í þetta skiptið er þó
meira um að vera, þar sem vígður verður
fagur kross eftir Leif Breiðfjörð glerlista-
mann sem vinnur nú í fyrsta skiptið á
ferli sínum í steypu og gler. Það er Kven-
félag Bústaðasóknar sem gefur kirkju
sinni krossinn og er hann við innganginn
í kirkjuna og upplýstur og kemur því til
með að setja rpjög svip sinn á hana.
Að öðru leyti verður hátiðarhaldið með
sviðuðu sniði og ávallt, með bama- og
fjölskyldumessu kl. 11 árdegis og al-
mennri guðsþjónustu kl. 14. Að henni
lokinni er veglegt afmælishóf í umsjón
kvenfélagsins, sem með þeim hætti safn-
ar fyrir andvirði krossins. Er ekki að efa
að margir munu leggja leið sína í safnað-
arsalina og gera hvort tveggja í senn að
styðja gott málefni og njóta þess sem fram
er borið auk vitanlega þess samfélags,
sem þar ríkir. Um kvöldið er síðan að-
ventusamkoman sem nýtur svo mikillar
hylli. Þar mun hinn nýi kirkjumálaráð-
herra, Jón Sigurðsson, flytja ræðuna,
kirkjukórinn syngur, undir stjórn organ-
istans, Jónasar Þóris, sem auk þess fær
tO liðs við sig hljóðfæraleikarana Jónas
Þ. Dagbjartsson, Þorvald Steingrímsson,
Björn R. Einarsson, Jón Sigurðsson og
Herbert Hr. Ágústsson, en hann útsetur
einnig verkin sem flutt verða. Að auki
verða einsöngvaramir Svala Nielsen og
Einar Örn Einarsson með nokkur verk í
flutningi.
Samvemnni lýkur síðan með því að
kertin em tendmð og helgistund leiðir
huga að aðventuboðskapnum og hinni
hæstu hátíð sem í hönd fer. Sem fyrr sér
Bræðrafélag Bústaðakirkju um undir-
búning og flytur formaður þess, Jónas
Gunnarsson, ávarp.
Vetrarstarf templara
Skemmtinefnd góðtemplara (SGT) hef-
ur hafið vetrarstarf. Eins og fyrri ár er
boðið upp á félagsvist og gömlu dansana
á hverju fóstudagskvöldi í Templarahöll
inni, Eiríksgötu 5. Félagsvistin hefst kf.
9.00 og dansinn hálfum öðmm klukku-
tíma síðar. í félagsvistinni er boðið upp
á góð kvöldverðlaun.
Undanfarin ár hafur verið boðið upp á
fjölbreytta músík með hljómsveitum á
borð við Tíglana, Upplyt'tingu, Hljóm-
sveit Stefáns P. og Hljómsveit Jóns
Sigurðssonar ásamt söngkonunni Hjör-
dísi Geirsdóttir. Einnig hafa þessi
skemmtikvöld verið krydduð með
skemmtikröftum eins og Ómari Ragnars-
syni þegar þannig stendur á. Kjörorð
skemmtkvöldanna er: Stuð og stemning
í Gúttó.
Þar sem þessi skemmtkvöld hafa gefist
vel með þessu sniði veröa þau með líku
lagi í vetur. Allir sem vilja skemmta sér
án áfengis eru velkomnir í Templarahöll-
ina á fóstudagskvöldum, hvort sem þeir
kjósa einungis félagsvist eða gömlu dans-
ana eða hvort tveggja.
Neskirkja
Félagsstarf aldraðra: Samverustund
verður á morgun, laugardag, kl. 15. Gest-
ir verða Ragnar Fjalar Lárusson, Hörður
Áskelsson og fleiri.
Rasmus Kristian Rask
1787-22. nóvember-1987
Sýning í Landsbókasafni Íslands
Landsbókasafn efnir til sýningar í
minningu tveggja alda afmælis Rasmus-
ar Rasks og er þar lögð aðaláhersla á
þann þátt ævi hans og verka er snýr að
Islandi og íslenskum fræðum.
Sýningin verður opnuð 23. nóvember
og mun standa til áramóta á opnunartíma
safnsins, mánudaga-fóstudaga kl. 9-19
og laugardaga kl. 9-12.
Félag eldri borgara í
Reykjavik og nágrenni
Opið hús frá kl. 14 á sunnudag í Goö-
heimum, Sigtúni 3. Dansað frá kl. 20.
„Eins og málin standa um þessar
mundir er eina hreyfmgin í kjara-
samningum á Vestfjöröum. Þar
hefur staðið yfir tilraun með hóp-
bónus sem lofar góðu og í næstu viku
á ég von á því að menn setjist þar
niður og fari yfir það mál og þá gætu
hugsanlega fleiri atriði fylgt í kjölfar-
ið,“ sagði Karvel Pálmason, vara-
formaður Verkamannasambands-
ins, í samtali við DV í morgun.
Karvel sagði það alveg ljóst, eins
og raunar hefur áður komið fram að
ekki verður farið út í almenna kjara-
samninga fyrr en búið er að leiðrétta
kjör þess fólk, sem ekki hefur notið
launaskriös.
Að sögn Karvels virðist Vinnuveit-
endasambandið ekki hafa neinn
áhuga á að reyna samninga.
„Þeir vilja bíða og sjá hverju fram-
vindur hjá ríkisstjórninni, sem aftur
virðist ekki hafa nokkurn áhuga á
að hreyfa sig í þessum málum til að
liðka fyrir kjarasamningum,“ sagði
Karvel Pálmason. -S.dór
Alþýðuflokkurinn:
Vill breytingar á
kvótafrumvarpinu
„Þetta er ekki orðið að frumvarpi,
hér er um drög að ræða,“ sagði Eiður
Guönason, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, sem vill knýja fram
breytingar á frumvarpsdrögum að
fiskveiðistefnu. Eiður sagði að 4ra
manna nefnd úr þingflokki Alþýðu-
flokksins myndi fara yfir frumvarps-
drögin um helgina og sagðist ekki
trúa öðru en samkomulag gæti náðst
um þær breytingar sem flokkurinn
vil fá fram.
Sem dæmi um það sem flokkurinn
vill láta breyta er að skilja á milli
skips og kvóta, þannig að það verði
ekki sjálfgefið að kvóti flytjist á milli
byggðarlaga þótt skip sé selt.
Eiður Guðnason sagði að Alþýðu-
flokkurinn vildi láta skoða ýmis
önnur atriði líka í frumvarpsdrögun-
um. Varðandi norður/suðurlínuna
sagði hann að skiptar skoðanir væru
um það mál innan þingflokksins, rétt
eins og hjá öðrum þingflokkum, enda
skiptust menn þar í flokka eftir
landshlutum. -S.dór
Nafn
drengsins
Ungi drengurinn, sem fórst í um-
ferðarslysinu í Skógarhlíð að kvöldi
þriðjudagsins 24. nóvember, hét
Styrkár Snorrason. Hann var fæddur
27. maí 1981 og átti heima að Máva-
hlíð 38.