Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Qupperneq 30
42 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987. Nýjar bækur ÁKMANN KR. f-tNAHSSON Leitin að gullskipinu eftir Ár- mann Kr. Einarsson Vaka - Helgafell hefur gefið út bók- ina Leitin að gullskipinu eftir bama- bókahöfundinn góðkunna, Ármann Kr. Einarsson. Leitin að gullskipinu fjallar um þá félagana Óla og Magga sem halda í leiðangur með gulleitar- mönnum á Skeiðarársandi í leit að hollenska kaupfarinu Het Wapen van Amsterdam sem strandaði á Skeiðarársandi aðfaranótt 19. sept- ember 1667 hlaðið dýrmætum farmi frá Austur-Indíum. Á kynngimögn- uðum sandinum bíða ókunnir heimar og leyndardómar sem Ár- manni einum er lagið að segja frá. Bókin er 143 blaðsíður og er skreytt myndum eftir Halldór Pétursson, en Brian Pilkington teikaði kápumynd. Verð kr. 948. Svava Jakobsdóttir: Smásögur Vaka-Helgafell gefur nú út í einni bók smásagnasöfn Svövu Jakobs- dóttur, Tólf konur og Veisla undir grjótvegg, sem verið hafa ófáanleg um langt skeið. Svava vakti strax athygli þegar þessar bækur komu út á sjöunda áratugnum. Verkin skipuðu henni í fremstu röð þeirra rithöfunda sem mótað hafa íslenskar samtímabókmenntir og hún er nú tvímælalaust einn fremsti sagnahöf- undur á landinu. Einkum ber að geta framlags Svövu til bókmenntalegrar umræðu um málefni kvenna og um raunveruleika neysluþjóðfélagsins. Þótt viðfangsefnið kunni við fyrstu HLJOMPLÖTUR/KASSETTUR Tilboð vikunnar wmmmmmmmammmmmammmmammsammssBammmmmmmm KRINGLUNNI • BORGARTÚNI • LAUGAVEGI 1. Bubbi - Dögun Venjulegt verd Okkar verö 2. La Bamba - úr kvikmynd. 799, 3. Bjartmar í fylgd með fullorðnum 719, 4 Dirty Dancing úr kvikmynd. 809, K :whonouer You Need Somebody.... 6. Log Jons Mula-ýmsir 719,- 719,- 7. Megas - Loftmynd . 799,- 8. PetShopBoys Actually. 799,- 9. Bergþóra I seinna laqi.. 719,- 10. ABC —Alphabet City ... 799,- 719,- 1. ABC-AlphabetCity............................ 2. Magnús Eiriksson - 20 bestu lögin........... 3. Sting - Nothing like the Sun................ 4. Whitesnake-1987............................. 5. Rick Astley-Whenever You Need Somebody...... 6. Eurythmics- Savage.......................... 7. Pet Shop Boys-Actually...................... 8. A very Special Christmas-ymsir.............. 9. George Michael- Faith....................... 10. Dirty Dancing-úr kvikmynd................... Venjulegt verö 1.299. - 1.399,- 1.299, - 1.499,- 1.299,- 1.299,- 1.499,- 1.399,- 1.499,- 1.299,- Okkar verö 1.169,- 1.259,- 1.169,- 1.349,- 1.169,- 1.099,- 1.349,- 1.259,- 1.349,- 1.169,- 15% afsláttur af nýjustu plötu Eurythmics, Savage, á plöt- um, kassettum og CD. Okkar verð á LP og kass. verð 799,- sýn að virðast einfalt og hversdags- legt, nær höfundur að afhjúpa þau öfl sem blunda undir yíirborðinu og að sýna hvernig persónuleiki og verðmætamat nútímamanneskju mótast. Enn í dag er full ástæða til að gefa þessum sannindum gaum. Brian Pilkington teiknaði kápumynd á bókina sem er 164 blaðsíður. Verð kr. 1798. Klukkuþjófurinn klóki eftir Guðmund Ólafsson Bókaútgáfan Vaka-Helgafell hefur gefið út nýja bók eftir Guðmund Ól- afsson, rithöfund og leikara, sem hlaut íslensku barnabókaverðlaunin í fyrra fyrir bók sína Emil og Skunda. Nýja bókin heitir Klukkuþjófurinn klóki og segir frá hópi af hressum strákum i kaupstað á Noröurlandi. Þeir lenda í ýmsum ævintýrum, eiga í útistöðum við aðra strákahópa og hrella fullorðna fólkið með ýmsum uppátækjum sínum. Þeim tekst að velta upp nýjum hliðum á veruleik- anum og þótt atburðimir hafi stundum afdrifaríkar afleiðingar sit- ur gamansemin í fyrirrúmi. Ritstíll Guðmundar Ólafssonar er hnyttinn og skemmtilegur og nýstárlegar teikningar Gretars Reynissonar ýta undir hugmyndaflugið og auka gildi bókarinnar. Bókin er 128 bls., prent- uð hjá Prentstofu G. Benediktssonar í Kópavogi. Verð kr. 1098. Dalur hestanna eftir JeanM. Auel Jean M. Auel vann sannarlega hug og hjörtu íslenskra lesenda með hinni stórfenglegu skáldsögu sinni, Þjóð bjarnarins mikla, sem Vaka - Helgafell gaf út í fyrra og fjallar um líf stúlku af ætt nútímanmannsins fyrir 35.000 árum sem elst upp hjá fomri kynkvísl Neanderdalsmanna sem ekki getur náð lengra á þróunar- brautinni. Dalur hestanna er önnur bók Auel sem kemur út á íslensku og í henni er sem fyrr að finna hina magnþrungnu spennu sem hrifið hefur milljónir lesenda um allan heim. Dalur hestanna er sjálfstætt framhald bókarinnar Þjóð bjamar- ins mikla. Saga Aylu, sem birtist í bókinni, er í senn spennandi og áhugaverð. Hún á erindi til allra nútímamanna sem vilja forvitnast um uppmna sinn og öðlast betri skilning á sínum innra manni. Jean M. Auel kom hingað til lands síðast- liðið haust og flutti meðal annars fyrirlestur um verk sín. Kom þar fram hversu ómælda undirbúnings- og rannsóknarvinnu hún hefur lagt á sig við skáldsagnagerðina. Dalur hestanna er 533 bls. og unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. í Reykjavík. Ásgeir Ingólfsson og Bjarni Gunn- arsson þýddu. Verð kr. 2380. Ný spennusaga eftir Ken Fol- lett, Víkingasveitin Vaka-Helgafell hefur gefið út nýja sögu eftir hinn geysivinsæla spennu- sagnahöfund Ken Follett sem er íslenskum lesendum aö góðu kunn- ur. Sögusvið nýju bókarinnar, Víkingasveitin, er Iran. Tveir banda- rískir kaupsýslumenn sem starfa við tölvufyrirtæki þar í landi eru hand- teknir og ákærðir fyrir glæpi sem þeir hafa ekki framið. Diplómatískar sáttaleiðir reynast ófærar þannig að hópur manna ákveður að láta til skarar skríða og ætlar að frelsa mennina úr klóm írana. Þessi bók er að hluta til byggð á sannsöguleg- um atburðum. Fyrri bækur Ken Folletts hafa norið feikivinsælda og margir telja hann ókrýndan konung spennusagnanna. Bókin er 312 blað- síður. Brian Pilkington teiknaði kápumynd. Helgi Már Barðason þýddi. Verð kr. 1488. Bók um ævintýramanninn Jón Ólafsson ritstjóra Út er komin hjá Vöku-Helgafelli ný bók eftir Gils Guðmundsson sem ber titilinn Ævintýramaður: Jón Ólafs- son ritstjóri. I henni er rakin ævi Jóns Ólafssonar sem var einn litrík- asti íslendingur síðustu aldar, rit- stjóri, þingmaöur, Alaskafari og ævintýramaður. Aðeins átján ára að aldri var Jón orðinn ritsjóri lands- málablaðsins Baldurs. Á síðum blaðsins lét hann í ljós skoðanir sínar á þeim málum sem hæst bar í þjóðlíf- inu og lenti brátt í illvígum deilum við yfirvöld og ýmsa mektarmenn í Reykjavik. Aðfangadag jóla árið 1872 hófst útgáfa nýs blaðs undir ritstjórn hans. Það var Göngu-Hrólfur sem ætlað var að koma út 48 sinnum á ári og beijast gegn ófrelsi, ranglæti, heimsku og fáfræði eins og segir í ávarpi ritstjórans. Ekki leið þó á löngu áður en Jón ritstjóri var aftur kominn upp á kant við yfirvöldin. Jón varð að flýja land og hélt til Bandaríkjanna. Þar lenti hann í ýms- um ævintýrum. Hann fór í könnun- arleiðangur til Alaska á vegum bandaríska sjóhersins og hafði uppi áform um að stofna þar íslendinga- nýlendu sem hann taldi geta gert ísland að heimsveldi! Árið 1875 sneri Jón þó aftur til íslands og gerðist enn ntstjóri en síðar alþingismaður. Jón Ólafsson lést árið 1916. Gils Guð- mundsson er öllum kunnur fyrir ritstörf sín og þátttöku í stjómmál- um. Bókin er 282 bls. og í henni eru margar myndir sem tengjast efninu. Verð kr. 2386. Silfurstóllinn íflá Alnmenna bókafélaginu er kom- in út bókin Silfurstóllinn eftir C.S. Lewis. Er þetta fjórða ævintýrabókin eftir C.S. Lewis sem kemur út á ís- landi. í Silfurstólnum er Kaspían, kon- ungur í Narníu, orðinn gamall. Einkasyni hans, Rilían, hefur verið rænt en nú er mikil þörf fyrir hann til að taka við konungdómi svo aö ríkið lendi ekki í höndum óvinanna. Tveir breskir skólakrakkar, Elf- ráður Skúti og Júlía, eru komnir til Narníu. Það kemur í þeirra hlut að leita kóngssonar en þau hefðu ekki komist langt á hinum hættulegur leiðum sem þau verða aö fara ef fenjavingullinn Dýjadámur hefði ekki slegist í för með þeim. Bókin er 252 bls. að stærð. Verð kr. 845. Olla og Pési Bamabókin Olla og Pési eftir Ið- unni Steinsdóttur er komin út hjá Almenna bókafélaginu. Sagan gerist í Reykjavík. Þótt þau Olla og Pési séu afar við- felldin börn láta þau ekki bjóða sér hvað sem er, síst Olla. Hún elst upp hjá þremur sérvitringum sem búa á síðasta bændabýlinu innan borgar- markanna. Vandamál kemur upp sem fullorðna fólkið á erfltt með að ráða við. Þá taka börnin til sinna ráða og hefja baráttu. Skáldi, Málfríður og hesturinn Rauður, sem er vinur Ollu, leggja öfl fram krafta sína börnunum til hjálpar. Höfundurinn, Iðunn Steinsdóttir, hefur hlotið margvíslegar viður- kenningar fyrir ritstörf sín. Búi Kristjánsson myndskreytti bókina. Bókin er 176 bls. að stærð. Verð kr. 935.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.