Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
Fréttir
Leitín að Guðmundi Finni Bjömssyni:
Sporhundur rakti slóð frá
Hollywood að flugvellinum
Nú er liöin hálf önnur vika írá
því aö Guömundar Finns Bjöms-
sonar var saknað. Mikil leit hefur
farið fram i næsta nágrenni
Reykjavíkurflugvallar. Aðfaranótt
sunnudagsins 22. nóvember átti
Ingvi Guðmundsson slökkviliðs-
maður tal við Guömund Finn. Eftir
samræður þeirra hefur ekkert til
Guömundar Finns spurst.
Einn liöur í þeirri leit, sem fram
hefur fariö að Guömundi Finni
Bjömssyni, var að fenginn var
sporhundur frá Hjálparsveit skáta
í Hafnarfirði. Aöfaranótt miöviku-
dagsins 25. nóvember var farið meö
sporhundinn að veitingastaðnum
Hollywood. Þaöan rakti hundurinn
slóð í nokkuð ákveðinni gönguleið
aö hliðinu á Reykjavíkurflugvelli,
þar sem Ingvi Guömundsson átti
tal við Guðmund Finn aöfaranótt
sunnudagsins 22. nóvember.
Á þeim stað virðist sem hundur-
inn týni slóðinni og finni hana ekki
aftur. Þaö er því óvíst með öllu
hvert Guömundur Finnur hefur
farið eftir að hann yfirgaf Ingva
Guðmundsson slökkviliösmann.
Snorri Magnússón, sem verið
hefur með hundinn í leitinni, sagði
að sér væri með öllu óskiljanlegt
hvers vegna hundurinn tapaði
slóöinni Utanaökomandi áhrif
geta ruglaö hundinn. Og eins er
möguleiki á aö Guðmuhdur Finnm'
hafi fariö upp í bíl skammt frá hlið-
inu. Margt annað getur komið til
sem erfitt er aö gera sér í hugar-
lund.
Sporhundar em ekki óbrigðulir
frekar en aörar skepnur. Snorri
lagði áherslu á aö ef leit meö spor-
hundi bæri ekki árangur væri það
eindregin ósk þeirra sem meö þeim
starfa aö áframhaldandi leit færi
fram eins og hundur heföi hvergi
komið nærri.
-sme
Vöttur SU við bryggju á Eskifirði. Þegar báturinn kom úr siglingu á mánu-
dag fundust um borð í honum tæp 600 grömm af hassi og 20 grömm af
kókaíni. Tveir skipverjar hafa verið teknir fyrir að hafa staðið að smyglinu
á fikniefnunum. Auk fíkniefnanna fundust um 50 kassar af bjór. Fíkniefnalög-
reglan og tollgæslumenn leituðu um borð í bátnum og höfðu þeir hasshund
við ieitina. DV-mynd Anna Ingólfsdóttir
Falsaði ávísanir úr
átta ára gomlu hefti
- gaf út sjö ávísanir fýrir um 500 þúsund
Rannsóknarlögreglan hefur hand-
tekið mann fyrir að hafa falsað og
selt sjö ávísanir aö upphæö samtals
um 500 þúsund krónur. Ávísanaheft-
ið, sem ávísanirnar voru skrifaðar
úr, er frá árinu 1979. Ávísanaheftið
er frá Samvinnubankanum á Pat-
reksfirðri.
Sá sem fékk ávísnaheftið afgreitt
fyrir 8 árum kann enga skýringu á
hvers vegna annar maður hafði heft-
ið undir höndum. Sá sem falsaði
ávísanimar hefur haft heftiö í sinni
vörslu í langan tíma.
Hann freistaðist til þess í haust að
skrifa úr heftinu sjö ávísanir sem
hann skipti í jafnmörgum bankaaf-
greiðslum í Reykjavík á tæpum
tveimur klukkustundum.
Um síðustu helgi var maður um
fertugt handtekinn. Hefur hann játaö
að hafa skrifað ávísanimar og skipt
þeim. Maðurinn er búsettur úti á
landi. Hefur hann aldrei komist í
kast viö lögin fyrr.
-sme
Kaupleigan:
Nam
220 millj-
ónum
- hjá ríkisfyrirtækjum
Kaupleigusamningar ríkisfyrir-
tækja eru fleiri en íjármálaráðuneyt-
ið hafði búist við og fjárskuldbind-
ingarnar hærri. Þær nema samtals
um 220 milljónum króna og til þeirra
er stofnað á árunum 1985 til 1987,
samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Karli Th. Birgissyni, frétta-
fulltrúa fjármálaráðuneytisins.
Karl sagði stærsta einstaka ríkis-
fyrirtækiö, sem gert hefði slíka
samninga, vera Ríkisútvarpiö en
heildarupphæð kaupleigusamninga
RÚV er á milli 150 og 160 milljónir
króna. Næst í röðinni em Ríkisspít-
alar meö um 14 milljónir króna, þá
koma Rafmagnsveitur ríkisins meö
12 milljónir króna og ríkisprent-
smiðjan Gutenberg með á bilinu 5 til
6 milljónir króna. Sagði Karl að þeir
samningar, sem gerðir hefðu verið,
væra yfirleitt um kaup á tölvubún-
aði, þó ætti það ekki við um RÚV.
Þar hefði ýmis tækjabúnaður verið á
ferð, að sögn Karls, til dæmis upp-
tökubíll.
Aöspurður um heimild og lögmæti
þessara fjárskuldbindinga sagði
Karl. „Um það vil ég ekkert fullyrða
en fjármálaráðherra hefur skrifaö
öllum fagráöuneytunum bréf og er
þar ráðuneytunum og stofnunum
þeirra bannaö að gera slíka samn-
inga. Þeim er vinsamlegast bent á að -
hætta þessari vitleysu," sagði Karl
Th. Birgisson.
-ój
Ríkisútvarpið neitar Stöð 2 um afnot af útsendingaraðstöðu:
Hefur áhrif á útbreiðslu
Stöðvar 2 fyrir hátíðarnar
„Viö vorum með samning viö
Ríkisútvarpiö frá því í desember í
fyrra um aðgang aö aðstööu þess.
Sá samningur var gerður fyrir
milligöngu Pósts og síma en hefur
veriö sagt upp núna,“ sagði Hans
Kristján Árnason, stjórnarmaöur á
Stöð 2, um þá ákvörðun Ríkisút-
varpsins aö neita Stöð 2 um
sameiginleg afnot af útsendingar-
aðstöðu.
„í útvarpslögunum er sagt að
sjónvarpsstöövar eigi aö hafa
samráö um lausnir sem séu hag-
stæöar þjóöinni. Hér er um að ræða
stöðvar í eigu Pósts og síma og viö
sem þegnar landsins höfum greitt
þessa aöstöðu."
Hans sagði aö þeir á Stöð 2 heföu
óskaö eftir því í september að fá
afnot af þrem stöðvum; við Eski-
íjörð, Noröfjörð og ísafjörð. 16.
nóvember hefði síðan komiö svar
frá Ríkisútvarpinu þar sem þessu
var hafnað og þar aö auki var leyfi
tif að nýta aöstööu viö Mosfellsbæ
afturkallað.
„Þá vil ég benda á aö Markús Örn
skrifaði bréf í desember í fyrra þar
sem hann sagöi eðlilegt aö Stöö 2
heföi afnot af þessari aöstööu."
Þaö kom fram í máli Hans aö
vegna þessara aðgerða Ríkissjón-
varpsins yrði erfitt fyrir Stöö 2 að
standa viö þau loforð sem hún heföi
gefiö varöandi útbreiöslu stöövar-
innar fyrir hátíðarnar.
„Viö höfum gert allt til að ná
samningum - við höfum ekki viljað
fara með þetta í fjölmiðla af því aö
þetta var svo klaufalegt hjá RÚV,“
sagðiHans.
-SMJ
Markús Öm Antonsson útvarpsstjóri:
Var einróma niður-
staða útvarpsráðs
„Þaö var leitað álits útvarpsráðs
í þessu máli og varð þetta einróma
niðurstaða þess í málinu. Mín af-
staða er sú að þaö sé Pósts og síma
aö láta útvarps- og sjónvarpsstööv-
um í té aðstöðu af þessu tagi. Það
sé ekki hlutverk fyrirtækis eins og
ríkissjónvarpsins að aöstoða einka-
fyrirtæki. Þaö er ekkert sjálfgefiö
aö einkafyrirtæki eigi að nýta sér
það sem ríkisfyrirtæki hefur komið
sér upp með ærnum tilkostnaði,"
sagði Markús Öm Antonsson út-
varpsstjóri.
Markús sagði að málið fjallaöi um
þá grundvallarspumingu hvort
ríkisfyrirtæki ætti að styöja einka-
fyrirtæki sem væri jafnvel í
samkeppni við ríkisfyrirtækið. Um
aöstöðuna í Mosfellsbæ sagði
Markús aö hún hefði verið veitt til
bráðabirgða til aö aðstoöa Stöð 2 í
upphafi.
-SMJ
Inga Jóna Þórðardóttir foimaður útvarpsráðs:
Hveráaðhafafvum-
kvæði að samstarfi?
„Til að byija með var Stöö 2 útve-
guð aðstaða til að hún gæti hafiö
starfsemi. Síðan hefur ekki verið um
neitt samstarf aö ræða. Það er spum-
ing um hver eigi að hafa frumkvæði
aö þessu samstarfi,“ sagði Inga Jóna
Þórðardóttir, formaöur útvarpsráös.
Inga Jóna sagöi aö það heföi veriö
vilji meirihluta útvarpsráös aö hætta
þessari samvinnu en ósk um áfram-
hald á henní heföi aldrei komið frá
útvarpsréttarnefnd. Þess má geta að
Kjartan Gunnarsson, formáður út-
varpsréttamefndar, sagöi aö þessi
mál hefðu ekki komið inn á borö þar
enda væri þetta ekki verksvið henn-
ar.
„Þeir á Stöö 2 hafa aldrei snúiö sér
til Pósts & síma en hér er um aö
ræöa samstarf milli Ríkissjónvarps-
ins og Pósts & síma sem Stöð 2 hefur
hagnýtt sér.“ Inga Jóna neitaöi því
ekki aö hér væri um samkeppnisað-
iía að ræöa en kvaö það ekki skipta
sköpum í þessu máli. Þá sagði hún
að þær upphæðir, sem Stöð 2 hefði
greitt fyrir aðstöðuna, væra smá-
ræði. -SMJ