Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. 7 Fréttir Bmnatjón oft mikið í fiskvinnslunni: Kviknar í tíu fiskvmnslu- lyrivtækjum að jafhaði á ári Á árunum 1981 til 1987 (bæði ár meðtalin) hafa orðið margir eldsvoð- ar í fiskvinnslufyrirtækjum hér á landi. Að jafnaði verða um tíu elds- voðar í fiskvinnslufyrirtækjum á hverju ári.í mörgum þessara elds- voða hefur oröið geysilegt tjón. Þegar Nesfiskur í Garði brann í síðasta mánuði varð mesta tjónið á fyrr- nefndu tímabili. Lætur nærri að tjónið í þeim eldsvoða hafi veriö um 85 milljónir króna. Þegar Hraðfrysti- hús Hellissands brann 1983 jafngiltu tjónabætur frá Brunabótafélagi ís- lands öllum iðgjöldum á Hellissandi í áttatíu ár. Á árinu 1981 varð mesta tjónið í fiskvinnslunni þegar fiskimjölsverk- smiðja á Raufarhöfn brann. Ef tjónabætur vegna þess eldsvoða eru framreiknað samkvæmt byggingar- vísitölu eru bæturnar á núvirði um 5 milijónir króna. Fiskverkun Þor- bjamar í Grindavlk brann í febrúar- mánuði það ár. Tjónabætur á núvirði voru um 3,6 milljónir. Á árinu 1982 varð mesta tjónið er kviknaði í hraðfrystihúsi á Bíldudal. Á núvirði voru greiddar um 4 millj- ónir króna í bætur. Fast á eftir kom eldsvoði í hraöfrystihúsi í Þorláks- höfn, það tjón var á núvirði um 3,7 milljónir. Og fór síðan í kaffi... Arið 1983 var slæmt ár hvað elds- voða í fiskvinnslu varðar. 17. ágúst brann Hraðfrystihús Helhssands. Tjónið í þeim eldsvoða var gífurlegt. Á núviröi nemur það um 55,3 millj- ónum króna. Eldsupptök voru á þá leið að gæslumaður í vélasal var að þíöa ammoníaksfrystivél með gas- tæki. Öryggisrofmn haföi verið gerður óvirkur með því að binda hann fastan. Tækið var sett á plast- fötu og síðan fór maðurinn í kaffi. Þegar Hraðfrystihúsið í Keflavík brann, 17. maí 1983, varð sömuleiöis geysilegt tjón, á núvirði 53 milljónir króna. Ekki er hægt að fullyrða um eldsupptök en grunur leikur á aö um íkveikju hafi verið að ræða. Eins og fyrr segir voru greiddar 53 milljónir króna í tjónabætur. Eldsvoði, sem varð í Hraðfrysti- húsinu Jökh á Raufarhöfn, olli mesta tjóninu á árinu 1984. Á núvirði eru greiddar tjónabætur um 24,6 milljón- ir króna. Á Raufarhöfn kviknaði í út frá rafmagnsofnum. Einnig varð mikið tjón vegna elds í fiskimjöls- verksmiðju á Suðureyri. Á núvirði eru tjónabætur í því tilfelli um 15 milljónir króna. Þar var um sjálfsí- kveikju að ræða. Rækjuverksmiðja í Ólafsvík skemmdist mikið er eldur kviknaði út frá ljósaperu. Á núvirði nema tjónabæturnar um 12,4 millj- ónum króna. Á árinu 1984 varð einnig mikið tjón í fiskimjölsverk- smiðju á Tálknafirði, 11,3 milljón- ir. Á árinu 1985 var heldur minna um eldsvoða í fiskvinnslu heldur en árin á undan. Mesta tjónið varð á Vopna- firði, um 3 milljónir. Grímsey Raufarhöfn Raufarhöfn ísafjöröur 1 5 mill. * —p Vopnafjörður 3 mill. NeskaupssfaÖur 2 mill. Sfövarfjörður 3.7 mill. Þorlákshöfn Þorlákshöfn 35 mill. 3.7 mill. 's; FRYSTIHUSA- BRUNARNŒR Á undanfömum árum hafa tíðir brunar í frystihús- um viða um land vakið athygli landsmanna. Hér á kortínu má sjá þá staði, þar sem brunatjónið varð verulegt í krónum talið. DV-kort JRJ Að jafnaði verða um tíu eldsvoðar i fiskvinnslufyrlrtækjum hér á landi ár- lega. Tjón i eldsvoðunum hefur orðið mismikið, i sumum tilfellum frekar lítið. En í mörgum tilfellum hefur orðið milljóna- og tugmilljónatjón. Á þessu korti má sjá hvar mest tjón hefur orðið á árunum 1981 til 1987 (bæöi ér meðtalin). í öllum tilfellum hefur tjónið verið framreiknað til verðlags dags- ins í dag samkvæmt byggingarvísitölu. Eins og sjá má er mesta tjónið er Nesfiskur í Garði brann í siðasta mánuði. Á Hellissandi hefur tvisvar orðiö stórtjón, 1983 og 1985. Einnig hefur tvisvar oröið stórtjón á Raufarhöfn, í Þorlákshöfn og á Suðureyri. Aftur stórtjón á Hellissandi 1985 varð mesta tjónið er saltfisk- verkun Hraðfrystihúss Hellissands brann. Tjónabætur voru um 8,6 millj- ónir króna. Á Stöðvarfirði varð einnig mikið tjón; um 3,7 milljónir. Yfirstandandi ár verður slæmt ár. Þegar hafa orðið tveir stórbrunar í fiskvinnslunni. Áætla má að tjónið þegar Nesfiskur í Garði brann í síð- asta mánuði verði um 85 milljónir króna. Eldsupptök eru ókunn. Bruni, sem varð í hluta af húsum Meitilsins í Þorlákshöfn, varð mjög mikill, tjón- ið metið á um 35 milljónir króna. í Grímsey varð einnig bruni í fisk- vinnslu. Tjónið í þeim eldsvoða var um 4 milljónir króna. í samtah viö fulltrúa nokkurra tryggingafélaga kom fram að þessir miklu skaðar leiddu til þess að ið- gjöld brunatrygginga myndu hækka mikið. Iðgjöld hafa ekki verið há, að mati tryggingafélaganna, en ekki verður hjá því komist að hækka þau haldi þetta áfram. í grein, sem birtist í blaðinu Gjall- arhorni, sem gefið er út af Sam- vinnutryggingum, segir Héðinn Emilsson, deildarstjóri brunadeildar félagsins, meðal annars: „Atvinnulíf okkar verður æ fjölbreyttara og um- fangsmeira. Byggingar stækka og hýsa fjölþætta starfsemi sem í mörg- um tilvikum á ekki samleið út frá brunatæknilegum sjónarmiöum og þurfa ekki að vera í sambrunahættu eða undir sama þaki starfseminnar vegna. Dæmi um þetta eru frysti- og fiskvinnsluhúsin. í fjölmörgum frystihúsum er vélasalúr í sambrunahættu við frystigeymslur, þannig að eldur og reykur á greiðan gang frá vélasal í frystigeymslur, þar sem afurðir, tugi milljóna virði, eru geymdar." -sme Hótel Örk fékk framlengingu Helgi Þór Jónsson, eigandi Hótel Arkar í Hveragerði, hefur fengið framlengingu á greiðslustöðvun- inni sem hann hefur haft frá 2. september. Áður hafði Helgi fengið greiðslustöövun til dagsins í dag, 2. desember. Ragnar Hall skiptar- áðandi sagði að fallist hefði verið á að framlengja greiöslustöðvunina til 2. febrúar 1988, eða um tvo mán- uði. Pétur Þór Sigurðsson, lögmaður Helga Þórs, sagði að aldrei hefði ríkt meiri bjartsýni en nú um að takast mætti að bjarga hótehnu frá þeim erfiðleikum sem verið hafa í rekstri þess. n Jeep n AMC EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR Eigum fyrirliggjandi mikið úrval original varahluta í AMC og Jeep bifreiðar. Einnig aukahlutir fyrir Wagoneer og Cherokee árg. '84-'88, m.a. upphækkunarsett, toppgrind- ur, mottusett, vindskeiðar, sílsalistar, stokk- ar, útispeglar, varadekkspokar, safarígrindur að framan, stuðarahlífar, dráttarbeisli, aur- hlífar o.fl. o.fl. Ath. sérpantanir á ca 2-3 vikum án auka- kostnaðar. Hraðpantanir á ca 3 dögum. EGILL VILHJALMSSON HF., Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.