Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. Viðskipti______________________________________ Verð á erlendum mörkuðum: Rotterdam er í pásu Oliumarkaðurinn í Rotterdam er i pásu þessa dagana og litið um verð- breytingar. Sérstaklega er áberandi hvað verð á gasolíu er lágt miðað við árstíma. Komi kaldur desember með köldum jólum i Evrópu er þó líklegt að veröið hækki eitthvað. Verð á bensíni og olíu í Rotterdam er mjög svipað í þessari viku og þeirri síðustu. Rólegheitin eru allsráöandi og markaðurinn greinilega í pásu frá verðsveiflum. Það er sérstaklega áberandi hvað verð á gasolíu er lágt miðað við árstíma. Komi kaldur des- ember með köldum jólum í Evrópu er þó líklegt að verðið hækki eitthvað en annars er það einkennandi fyrir markaðinn að nóg virðist til af olíu. Verð á hráolíu úr Norðursjónum, Brent, var í fyrradag í kringum 17,80 dollarar tunnan. í síðustu viku var verðið um 18,20 dollarar, eftir aö hafa verið 17,80 dollarar í vikunni þar áöur. Fyrir rúmum mánuði var verðið um 19 dollarar tunnan sem sýnir að verðið hefur lækkað um rúman dollar og þar sem offramboð blasir við á markaðnum í vetur bend- ir allt til aö verðið lækki meira. Aðeins meira um verð olíu og bens- íns í Rotterdam: Fyrir mánuði var verðið um 8 dollurum hærra að jafn- aði á tonninu af bensíni og gasolíu. Tonnið af venjulegu bensíni var þá um 166 dollarar en er núna um 156 dollarar, af súper-bensíni um 185 dollarar en er núna um 177 dollarar og tonniö af gasolíu var um 164 doll- arar en er núrta um 159 dollarar. Gullið hækkar í verði hægt og síg- andi. Það var í London í gær á um 490 dollara únsan en fyrir mánuði var únsan á um 469 dollara. Álverðið í London síðastliðinn fóstudag var komið niður í 922 sterl- ingspund tonnið. Að undanförnu hefur verðið á áltonninu rokkað frá um 930 í um 950 sterlingspund. Svo virðist sem verðlækkunin á álinu hafi fest sig í sessi en eins og menn muna var verðið komið í um 1250 sterlingspund fyrir um einum og hálfum mánuði. Tonnið af sojamjölinu hefur hækk- að örlítið að undanförnu og er það nú í kringum 220 dollarar tonnið í Chicago. Stutt er síðan sjá mátti verð eins og um 200 dollara og 180 dollara fyrir tonnið. -JGH Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæöur þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæöur sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggöir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert inn- legg bundiö í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris- sjóöum eða almannatryggingum. Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 23% og ársávöxtun 23%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 27%. Hvert innlegg er meöhöndlað sérs- taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja mánaöa verðtryggðra reikninga, nú með 2% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaóarbankinn: Gullbók er óbundin með 33% nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun á óhreyföri innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiörétt- ingu. Vextir færast hálfsárslega. Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mán- uði á 34,5% nafnvöxtum og 37,5% ársávöxtun, eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings meö 4,0% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs- árslega. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverö- tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og 32,2% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð- tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaóa tímabili. Vextir færast misserislega á höfuöstól. 18 mánaða bundinn relkningur er með 34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 33% nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun. Af óhreyfð- um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða stofndegi reiknings síðar greióast 34,4% nafn- vextir (ársávöxtun 37,4%) eftir 16 mánuði og 35% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 38,1%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Vextir fær- ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur Stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuöina 20%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6 mánuði 31 %, eftir 24 mánuði 33% eöa ársávöxt- un 35,72%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verðtryggóum reikningum gildir hún um há- vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuöstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 32% nafn- vexti og 34,56% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verötryggðs reiknings reynist b'etri gildir hún. Vextir færast hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt- um síðustu 12 mánaða. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggöra reikninga í bankanum, nú 32,83% (ársávöxtun 34,51%), eöa ávöxtun 3ja mánaöa verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega og vaxtaábótinni bætt við höfuöstól, en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Heimilt er aö taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekíö út af reikningnum í 18-36 mánuði tek- ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaöar með hærri ábót. Óverðtryggö ársávöxtun kemst þá ( 35,12-36,95%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankínn: Kaskóreikningur. Megin- reglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan ársfjóröung, ber 29,0% nafnvexti, kaskóvexti, sem gefa 32,31% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 4% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess- ara '„kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa veriö á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt ( ársfjórðungi reiknast almennir sparisjóösvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Só reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef hún stendur óhreyfö út fjórðunginn. Reikning- ur, sem stofnaöur er s(ðar fær til bráðabirgöa almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunniö sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil- yrðum. Sparisjóöir: Trompreikningur er verötryggöur og meö ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er geröur samanburður á ávöxtun með svoköll- uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa 32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæöur innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaöa, annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverö- trygQÖa, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verötryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð- tryggöa ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með innstæðu bundna í 18 mánuði óverötryggða á 32% nafn- vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6 mánaöa verötryggðs reiknings, nú meö 5,0% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma- bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirói, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd. Neskaupstað, Patreksfiröi og Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in «ru ýmist verðtryggð eöa óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna fasteignaviöskipta eru 20% eða meöalvextir bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð- tryggingu. Húsnæóislán Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins getur numið 2.755.000 krónum á 4. ársfjórð- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt Ibúð á síöustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000 krónum, hafi viðkomandi ekki átt Ibúð á sl. þrem árum, annars 1.350.000 krónum: Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, slðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir, vexti og lánstíma. Stysti tími aö lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóöir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggö og með 5-9% vöxtum, algengastir eru meöalvextir, nú 8,1%. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eöa safna lánsrétti frá fyrri sjóöum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir ( heilt ár og reiknaöir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö- ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn- ir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæöan (lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæöan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel oröið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán- uði. Þá veröur upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð- ina. Á endanum verður innstæöan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 4,1 % á mánuði eða 49,2% á ári. Vísitölur Lántkjaravíaitala I desember 1987 er 1886 stig en var 1841 stig i nóvember. Miðaö er við grunninn 100 I júnl 1979. Bygglngarvialtala fyrir desember 1987 er 344 stig á grunninum 100 frá 1983, en 107,5 á grunni 100 frá júll 1987. Húaalelguvialtala hækkaði um 5% 1. okt. Þessi visitala mælir aöeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega I samningum leigusala og leigjenda. Hækkun vlsitölunnar miðast við meöaltalshækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 20-22 Lb.lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 20-24 Úb 6 mán. uppsögn 22-26 Ab 12mán.uppsögn 24-30.5 Úb 18mán. uppsögn 34 Ib Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb Sértékkareikningar 10-23 Ib Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Innlán með sérkjör- 19-34,5 Lb,Vb Úb um Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 6-7,25 Ab.Sb, Sterlingspund 7,75-9 Vb AbVb, Vestur-þýsk mörk 3-3,5 Sb Ab,Sp, Danskarkrónur 8,75-9 Vb Allir ÚTLÁNSVEXTIR (%) nema Bbog Sp lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) . 33-34 Sp Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 36eða Almenn skuldabréf kaupgengi 35-36 Úb.Vb, Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Sb.Sp Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 35-39 Sp Utlán verðtryggð . Skuldabréf 9,5 Allir Útlán til framleiðslu Isl.krónur 31-35 Úb SDR 8-9 Vb Bandarikjadalir 9-10,5 Vb Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Vb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 49,2 4,1 á MEÐALVEXTIR mán. Óverótr. des. 87 35 Verðtr. des. 87 9,5 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala des. 1886 stig Byggingavísitala des.. 344stig Byggingavisitalades. 107,5stig Húsaleiguvisitala Hækkaöi 5% 1 I. okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,3261 Einingabréf 1 2,482 Einingabréf 2 1,453 Einingabréf 3 1,532 Fjölþjóðabréf 1,140 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,459 Lífeyrisbréf 1.248 Markbréf 1,259 Sjóðsbréf 1 1,195 Sjóösbréf 2 1,154 Tekjubréf 1,288 HLUTABRÉF Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiðir 196 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 119kr. Iðnaðarbankinn 143kr. Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 126 kr. Útgerðarf. Akure. þf. 160kr. (1) Við kaup á viðskiptavixlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miöaö við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýöubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Hraður akstur veldur oft alvarlegum slysum UMFEFfÐAR RÁÐ DV Verð á eriendum mörkuðum Bensín og olía Verö í Rotterdam, fob., 1. des. Bensín, venjul.....156$ tonnið eöa um......4,36 ísl. kr. lítrinn Bensín, súper...177,50$ tonnið eöa um......4,93 ísl. kr. lítrinn Gasolía..........159,5$ tonnið eöa um......4,99 ísl. kr. tonniö Hráolía Verö í Rotterdam, fob., 1. des. Um........17,80 dollarar tunnan eða um.......655 ísl. kr. tunnan Gull Verð í London 2. des. Um..........490 dollarar únsan eöa um......18.032 ísl. kr. únsan Al Verö á áli í London 27. nóv. Um.....922 sterlingspund tonniö eöa um....61.221 ísl. kr. tonnið Ull Verð í Sydney, Ástralíu Um.................890 cent kílóiö eða um...........327 ísl. kr. kílóiö Bómull Verð á bómull í New York Um...............71 cent pundið eða um..........57 ísl. kr. kílóið Hrásykur Verö í London Um...........202 dollarar tonnið eða um......7.434 ísl. kr. tonnið Sojamjöl Verð í Chicago Um..........220 dollarar tonnið eða um......8.096 ísl. kr. tonnið Kaffibaunir Um............116 cent pundið eða um.........94 ísl. kr. kílóið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.