Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Neytendur
Góð þjón-
usta í
veikindum
Elsa hafði samband viö okkur
og vildi koma á ft-amfæri frá-
bærri þjónustu hjá versluninni
Garöakaupum í Garöabæ.
Allir á heimilinu voru rúm-
fastir vegna veikinda. Þaö vant-
aöi eitt og annaö til heimilisins
og engin tök á að fá frændur eða
vini til aðstoðar við innkaupin.
Elsa hringdi í verslunlna og
spuröi hvort hægt væri að fá vör-
ur sendar heim. Þótt ekki sé
heimsendingarþjónusta í Garða-
kaupura þá var því tekiö Ijúf-
mannlega.
„Þetta var alveg sjálfsagt og
framkoma starfsmanns 1 síman-
um var bæði Ijúfmannleg og
elskuleg og við fengum allt sem
okkur vantaöi sent heim úr versl-
uninni," sagði Elsa.
-A.Bj.
Hvar fæst
gott laufa-
brauðsjám?
S.S., Grindavík, hringdi og baö
okkur aö lýsa eftir góðu laufa-
brauðsjámi fyrir sig. Hann
sagðist hafa keypt laufabrauðs-
jám í fVrra í Hamborg en þaö
hefði verið of langt milli skurð-
flatanna. Það gerir að verkura að
ekki er hægt að bretta upp á
„listaverkin“.
Við lýsum hér með eftir góðum
laufabrauðsjámum.
-A.Bj.
DV
Neyðarhnappar:
Vöm gamalla og sjúkra
Svokallaðir neyðarhnappar hafa
verið að ryðja sér til rúms hér á landi
undanfarin ár. Um er að ræða
hnappa sem fólk ber á sér og þrýstir
á ef eitthvað kemur fyrir. Þá gerist
annaðhvort að sjálfvirkur hringi-
búnaður hefur samband við viðkom-
andi öryggisfyrirtæki eða að boð
berast samstundis á viðkomandi ör-
yggisþjónustu sem gerir þá viðeig-
andi ráðstafanir.
Tvö fyrirtæki taka að sér að sinna
vaktþjónustu fyrir slík tæki. Það eru
Securitas og Vari, en bæði hafa þau
getið sér gott orð fyrir ábyggilega
öryggisþjónustu. Þau bjóða upp á sitt
hvort hnappakerfið. Securitas býður
kerfi sem kemur boðum á framfæri
strax - og hringir síðan í vakt - og
Vari býður kerfi sem hringir.
Kerfið hjá Securitas er þannig úr
garði gert að boð berast eftir símalín-
um, óháð því símakerfi, þ.e. ekki
þarf að bíða eftir són og velja heldur
berast boðin beint. Hins vegar hring-
ir kerfið á sama tíma þannig að beint
talsamband næst við viökomandi
hnappnotanda og þannig er hægt að
róa hann ef með þarf uns hjálp berst.
Kerfi Vara lætur nægja að hringja
í öryggisvakt og getur veriö að ein-
hver dráttur verði á aö fá línu ef álag
er mikiö. Það kerfi er hins vegar mun
ódýrara, bæði stofnkostnaður og
mánaðargjald.
Tryggingastofnun ríkisins veitir
styrk til kaupa á öryggishnappabún-
aði Securitas og greiðir niður kostn-
aö að uppfylltum ákveðnum
skilyröum. Þannig þarf viðkomandi
að búa einn, vera elli- eða örorkulíf-
eyrisþegi og svo sjúkur að búnaður-
inn geti talist nauðsynlegur. Að
uppfylltum þessum skilyrðum greið-
ir stofnunin styrk sem nemur 90%
af andvirði kerfisins og 80% af mán-
aðarlegu þjónustugjaldi.
Kostnaður við slíkt kerfi er sem
hér segir:
Hjá Securitas kostar kerfið 46.283
kr. Mánaðarlegar greiðslur nema svo
2.901 kr. í þessu verði er innifalin öll
hugsanleg þjónusta, s.s. viðhald, út-
köll og endurnýjun raíhlaðna.
Hjá Vara kostar kerfið 40.000 kr.
og mánaðarlegt þjónustugjald er
1.820 kr. Ekki er tekið aukagjald fyr-
ir útköll. Einnig er hægt að fá ýmsan
viðbótarbúnað, s.s. reykskynjara
sem sendir brunaboð, sjálfvirkt við-
bótartæki sem gerir viðvart ef ekki
er eðlileg umgengni um íbúöina, ef
ísskápur er ekki opnaöur eöa ekki
sturtaö niður í klósett í tólf tíma.
Eins og áöur sagði veitir Trygg-
ingastofnun ríkisins ekki styrk nema
að uppfylltum ákveönum skilyrðum
og þá er aðeins veittur styrkur til
kaupa á kerfi Securitas. Verð á því
kerfi er því, ef styrkur fæst, 4.628 kr.
og mánaðargjald 580 kr.
-PLP
Neyðarhnappur. Tvö fyrirtæki bjóða slika hnappa og þjónustu fyrir þá sem
á þeim þurfa að halda.
Tannskemmdir og sælgætisalmanök
Undanfarin ár hefur færst í vöxt
að bömum og unglingum séu gefin
svonefnd sælgætisalmanök þar sem
eitt hólf með sælgæti er opnað á
hverjum degi. Afleiðing hefur orðið
sú að böm hafa vanist á að neyta
sælgætis minnst einu sinni á dag í
heilan mánuð.
Þannig segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu frá Tannlæknafélagi Islands.
Þar segir ennfremur að þetta sé ein-
mitt eitt af því sem heilbrigðisyfir-
völd á Norðurlöndum hafi barist
mest á móti, m.a. með því að tak-
marka sælgætisátið við í mesta lagi
einn dag í viku, svonefnt laugardags-
sælgæti.
Er talið að þar sem þessi siður hef-
ur komist á hafi hann hjálpað til við
að minnka tannskemmdir.
Tannlæknafélag íslands vfil hvetja
forráðamenn barna að stilla í hóf
kaupum á sælgætisdagatölum eða
reyna í það minnsta að fá bömin tfl
að safna sælgæti vikunnar saman
svo þau neyti þess aðeins einu sinni
í viku.
Tamflæknafélagið hvetur foreldra
tfl þess að kaupa heldur einhveija
ódýra hluti til þess að setja í jólaskó-
inn í stað sælgætis.
Rétt þykir að benda á aö tann-
kremstúpur fylgja einhveijum
sælgætisdagatölum sem eru á mark-
aðnum.
-A.Bj.
Listræn hönnun í
samspili
■ Dmvafin einhverju faliegu
Það er ekkert eins notalegt og falleg
værðarvoð. Hlýleg og falleg gjöf sem er
ómissandi í sófanum eða ferðalaginu.
Við höfum úrval af fallegum Álafoss
ullarfatnaði sem er gaman að klæðast
eða gefa.
Taktu upp þráðinn!
Nú eru prjónavörur hátískuvara. Það
þarf ekki endilega að gefa tilbúna flík.
Það má alveg eins gefa fallegt garn eða
lopa og uppskrift. Eða setjast niður og
prjóna sjálf.
- tryggjum
sendum um heim allan.
/fllafossbúöin
Vesturgata 2, Reykjavík, sími 13404
Arzberg hágæðapostulín
Hér er á ferðinni nytjalist sem gleður
augað eftir fræga þýska hönnuði eins og
Werner Búnch og H. Th. Baumann.
Borðhaldið verður ánægjulegt með
þessu fallega þýska postulíni og það er
gaman að safna því.
osacSsiA