Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987, 23 Hjálparsveitarmennirnir voru vígalega búnir til að berjast við jökulinn. Texti: Jóna Björk Guðnadóttir Hópurinn hafði á stefnuskránni að komast hátt upp á jökulinn. Margir höfðu áhuga á að komast að flugvél- arflaki eða réttara sagt braki úr flugvél sem skriðjökullinn er nú að bera fram ásamt ís, sandi og drullu. Brakið mun vera úr bandarískri flugvél sem fórst á Eyjafjallajökli í seinni heimsstyrjöldinni. Ekkert varð úr þessum áformum vegna veð- urs. í stað þess héldu menn að mestu kyrru fyrir þar sem skjól myndaðist og einbeittu sér að því að klífa snar- bratta ísveggina. Þegar dagur var að kvöldi kominn hélt sveitin niður af jöklinum. Ferðin niður var ekki eins auðsótt og hún hafði verið um morguninn þegar haldið var upp eftir þvi rigningin og leysingavatnið hafði safnast saman í straumharða læki sem gerðu leiðina torsótta. En allir komust klakklaust niður að bílunum. Hópurinn var orð- inn blautur, kaldur og þreyttur. Útséð var um að hægt yrði að tjalda aftur eða að fá inni í húsi og var því ákveöið að halda í bæinn. Hjálpar- sveitarmennimir voru ekki ánægðir með þessi endalok en ekki þýðir að deila við máttarvöldin í æfmgaferð- um frekar en þegar alvaran er með í spilinu. -JBj Gigjökull er skriðjökull út úr Eyjafjallajökli og liggur niður i Þórsmörk. Eins og sjá má á myndinni er vfirborð jökulsins mjög úfið en það er þó sibreytilegt vegna skriðsins. Festingum komið fyrir svo að þeir sem næstir koma geti farið tryggðir upp vegginn. Hjálparsveit skáta í Hafharfirði: Ein elsta björgunarsveit landsins Hjálparsveit skáta í Hafnaríirði er ein af aðildarsveitum Landssam- bands hjálparsveita skáta en þær eru um 20 talsins, víðs vegar um landið. Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði er ein af elstu hjálparsveitum landsins, stofnuð árið 1951. Um 250 manns eru á meölimaskrá sveitarinnar en 54 eru á útkallslista hennar. Þess má geta að sveitin er eina hjálparsveitin á landinu sem hefur sporhunda á sín- um snærum og eru það einu spor- hundarnir sinnar tegundar í landinu. Þetta eru hreinræktaðir blóðhundar og geta þeir rakið margra kílómetra langa slóð sem orðin er nokkurra daga gömul. Einn maöur, Snorri Magnússon, sér alfar- iö um umhirðu og þjálfun hundanna. Mikil þörf er fyrir sporhundana og voru t.d. á síðasta ári 40 útköll þar sem þeir voru notaðir en árið áður fóru þeir í 52 leitir eða aö meðaltah eitt útkall á viku. Það er þó óvenjuhá útkallatíðni. Starf hjálparsveitarinnar er mun víðtækara en hægt er að gera grein fyrir hér. Þess má þó geta að auk fjallabjörgunarflokksins er starfandi köfunarsveit. Mikill kostnaöur er viö að reka heila björgunarsveit þar sem mikill tækjabúnaður er nauðsynleg- ur auk þess sem íjármagn þarf til reksturs húsnæðis og eðlilegs við- halds. Félagarnir vinna því að fjár- öflun í sjálfboðavinnu samhliða öðrum störfum. Helsta fjáröflunar- leiðin er jólatréssala fyrir hver jól en auk þess gefur sveitin út almanak á hverju ári. -JBj VERÐUR HALDIÐ í BROADWAY FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 3. DES. OG HEFST KL. 20.30. ÓKEYPIS AÐGANGUR Mörg skemmtiatriði og uppákomur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.