Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. Heimilisaðstoð við Sambýli aldraðra Heimilisaðstoð óskast strax 4-6 tíma á dag við ný- stofnað sambýli fyrir 3 eililífeyrisþega í vesturbæ. Nánari upplýsingar gefnar í síma 621595. Anna eða Björn HYGGUR ÞÚ Á FREKARA NÁM? Hefur þú hugleitt að fara í iðnnám? Þær iðngreinar, sem þér standa opnar, byggja á gömlum merg en hafa aldrei staðið frammi fyrir meiri möguleikum en einmitt nú. Hvers vegna? Vegna þeirrar öru þróunar í tækni á flestum sviðum atvinnulífsins eru sífellt nýir möguleikar að. opnast I hefðþundnum iðngreinum. Tölvustýringar á vélum, rafeinda- og fjarskiptatækni, ný efni sem gefa aukna möguleika, ný tæki og áhöld sem byggja á nýjustu tækni og rannsóknum. Allt sameinast þetta í að gera iðnnám athyglisverðara en nokkru sinni fyrrl! Ef þú hefur áhuga á að fara I framhaldsnám að loknu sveinsprófi standa þér allar leiðir opnar í tækninám í Tækniskóla Islands. Iðnnám er rétti grunnurinn undir framhaldsnám! Nú eru síðustu forvöð að láta skrá síg í verkmenntaskólana! Skráðu þig strax í dag! LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA Söluaðilar í Reykjavík og um land allt. Umboðið Háaleitisbraut 68 - sími 84240 Nýjar bækur Kartöfluprinsessan eftir Steinunni Sigurðardóttur Komin er út hjá Iðunni ný ljóðabók eftir Steinunni Sigurðardóttur. Nefn- ist hún Katröfluprinsessan. Steinunn er löngu kunn fyrir smásögur sínar, ljóð og sjónvarpsleikrit og nú síðast vakti fyrsta skáldsaga hennar, Tíma- þjófurinn, verðskuldaða athygli meðal lesenda. „Kankvís stíll Steinunnar Sigurð- ardóttur, málgáfa og myndsýn, nýtur sín hvergi betur en í Ijóðum hennar. Kartöfluprinsessan geymir mörg dæmi um það. Hugmyndatengslin eru oft fersk og frumleg en ekki fjar- stæð eða fundin upp til skrauts. Meðferð máls og hugmynda er aldrei einskær leikur, heldur á rætur í raun- verulegri skynjun. Verð kr. 1.680. I „Bókin sem brevtir j j lífi kvennq"j Konur semelska of .4« aafJiiaiKu tiu* matieiif. UúuarftKiXlMAiyða Uftna i *4n»Hk*toUMOb<v»1. mikið ROBIN NORWOOD Konur sem elska of mikið eftir Robin Norwood Iðunn hefur gefið út bókina Konur sem elska of mikið eftir einn þekkt- asta fjölskylduráðgjafa Bandaríkj- anna, Robin Norwood. Bók þessi hefur komið út víða um heim og hvarvetna vakið óskipta athygli. Með þessari bók hefur höfundur hreyft við ýmsum áður ósvöruðum spurn- ingum um samskipti kynjanna og tekist á við vandamál sem margar konur hafa fundið sig eiga sameigin- leg. Hér er fjallað um sársauka óendurgoldinnar ástar, en einnig um ástarsambönd sem skaða einstakl- ingana og mynda tilfinningalegan vítahring. Verð kr. 1.848. Uppgjör konu Endurminningar Höllu Linker Iðunn hefur gefið út bókina Uppgjör konu - endurminningar Höllu Lin- ker. Halla Linker giftist ung banda- rískum kvikmyndaframleiðanda og íluttí. til Vesturheims. Þaðan ferðuð- ust þau um heiminn, tóku kvik- myndir af löndum og lífsháttum og gerðu þætti fyrir bandaríska sjón- varpið. Útgefandi kynnir efni bókarinnar svo: „Þessi bók er uppgjör Höllu Lin- ker við þá ímynd sem skapaðist af henni í gegnum íjölmiðla í fjölda- mörg ár. Aldrei sást annað en yfir- borðið, frægð og velgengni. En þannig var líf hennar aldrei í raun og veru. Nú lítur hún til baka yfir tuttugu og átta ár í hjónabandi með manni sem var fimmtán árum eldri en hún og stjómaði henni eins og brúðu og tók allar ákvarðanir fyrir hana. Verð kr. 2.380. Litríkt fólk Annað bindi æviminninga Emils Björnssonar Litríkt fólk nefnist 2. bindi æviminn- inga Emils Björnssonar sem Bókaút- gáfan Öm og Örlygur hefur gefið út. Segir Emil frá samferðamönnum og atburðum á 4. og 5. tug aldarinnar. Fyrra bindi æviminninganna, Á mi- sjöfnu þrífast bömin best, kom út fyrir síðustu jól og hlaut hinar bestu viðtökur. Séra Emil segir svo í formálsorð- um: „Þessi hók geymir minningar frá fjórða og fimmta tug tuttugustu aldar á íslandi. Á þeim tíma urðu mestu þáttaskil í sögu lands og þjóðar. Þá var kreppa, hernám, heimsstyijöld og lýðveldisstofnun í brennidepli. Þá varð lífskjara- og lífsháttabyltingin. Nýfrjálsri þjóð opnaðist ný veröld í viðsjálum heimi. Og kalt stríð tók við af heitu. Verð kr. 1.790. Efni og orka Stórfróðlegt rit um grundvallarþætti heimsins okkar Bókaútgáfan Öm og Örlygur hefur gefið út bókina Efni og orka í bóka- flokknum Heimur þekkingar. Bókin er eftir Robin Kerrod og Neil Ardley í þýðingu þeirra Ólafs Halldórssonar og Egils Þ. Einarssonar. Efni og orka rekur vísindaupp- götvanir allt frá þvi að menn tóku að hagnýta eldinn, til gullgerðarlist- ar miðalda, könnunar geimsins, þess þegar atómið er klofið og örtölvu- byltingar nútímans. Grundvallarlög- mál þau er efni og orka lúta em skýrð þannig að lesandinn fær góða innsýn í meginþætti eðlis- og efnafræði. Bókaflokkurinn Heimur þekkingar fékk sérstaka viðurkenningu dóm- nefndar á bókasýningu Námsgagna- stofnunar á fræðibókum árið 1985. Verð kr. 2.390. Ljóð í mæltu máli Mál og menning hefur gefið út Ljóð í mæltu máli, ljóðabók eftir. Jacques Prévert, í þýðingu Sigurðar Pálsson- ar. Jacques Prévert (1900-1977) var eitt ástsælasta skáld Frakka á þessari öld. Hann ólst að mestu upp í París og gat sér fyrst frægðarorð sem höf- undur kvikmyndahandrita en varð síðar mun þékktari fyrir ljóð sín. Hann var skáld hvunndagsins, orti einkum um götulíf Parísarborgar, dásemdir þess og drungahliðar, með húmor sem á stundum er svartur en hittír beint í mark. Þýðandinn, Sigurður Pálsson, er löngu landsþekktur fyrir ljóðabækur sínar og leikrit. Ljóð í mæltu máli er 127 bls. að stærð, prentuð í Prent- smiðjunni Odda hf. Verð kr. 1.980. Bjóddu konunni þinni í mat Farþeáarnir eru mjög ánœgðir með matinn sem Glóðin í Keflavík útbýrMsrir okkur. ■ Komið og bragðið á. f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.