Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
21
dv _______________Nýjar bækur
IflffUD UDVfffl DfKifl
titsiwin swn ra
Leitin liðirína daga,
hestamenn segja frá
Hestabók í stóru og vönduðu broti
með úrvals frásögnum af hestum og
mönnum, skrifuðum af þekktum
hestamönnum. Margar þessara
sagna eru úr tímaritinu Hesturinn
okkar. Albert Jóhannsson hefur
safnað þessum frásögnum saman í
eina bók. Hildur gaf út.
Verð kr. 2.500.
Mannamunur, eftir Jón
Mýrdal
Saga þessi er ein af fyrstu íslensku
skáldsögunum meðan íslenska
skáldsagan var enn á bernskuskeiði.
Þessi 100 ára saga lýsir forfeðrum
okkar á sinn sérstaka hátt þar sem
gott og illt berjast um völdin. Hún
var mjög vinsæl og langt fram á þessa
öld hefir mátt heyra fólk bera sér í
munn tilsvör úr henni. Hildur gaf
út. Verð kr. 2.200.
Ib. H. Cavling: Læknaritarinn
Danski rithöfundurinn Ib. H. Cavl-
ing, sem nú er látinn fyrir nokkrum
árum, skrifaði fjölda bóka sem notið
hafa mikilla vinsælda, bæði í heima-
landi hans og einnig hér. Hann er
meðal þeirra rithöfunda sem hvað
lengst hafa notið stöðugra vinsælda
hér á landi og er þessi bók 28. titillinn
sem þýddur er á íslensku af bókum
hans. Hildur gaf út. Verð kr. 1.288.
Margit Ravn: Aðeins af ást
Þetta er 23. og síðasta bókin í end-
urútgáfu á bókum Margit Ravn.
Bækur þessarar norsku skáldkonu
nutu feikilegra vinsælda þegar þær
komu fyrst út. Aðalpersónan er ung
stúlka sem fellur fyrir þeirri freist-
ingu sem afborgunarkaup bjóöa upp
á. Hún rekur sig þó á að þar eins og
annars staöar kemur að skuldadög-
unum. Hildur gaf út. Verð kr. 994.
fólkið sem í landinu bjó á landnáms-
öld og á tímum þjóðveldisins. Þær
sögur sem Magnús rekur eru órjúf-
anlega tengdar okkur sjálfum og
landinu sem við byggjum.
Jafnframt því sem Magnús Magn-
ússon rekur í rituðu máli sögu lands
og þjóðar er þessi saga sett fram í
myndum. í bókinni eru um 170
myndir, flestar í litum, af sögustöð-
um, fomminjum, handritum og
fleiru. Bókin er 180 síður í stóru
broti. Bókin kostar kr. 5.960 með
söluskatti.
Brimöldur
Bókaforlag Máls og menningar hef-
ur gefið út bókina Bnmöldur sem er
frásögn Haralds Ólafssonar sjó-
manns.
Á fyrstu áratugum þessarar aldar
yfirgáfu margir átthaga sína og héldu
til úgerðarbæjanna í von um atvinnu
og bætt kjör. Einn þessara var Har-
aldur Ólafsson sem var til sjós um
nærri sex áratuga skeið á árunum
milli 1920 og 1980, fyrst á árabátum,
svo á skútum og síðar á togurum,
lengst af á Baldri og HelgafelU.
í Brimöldum rekur Haraldur sögu
sína sem auk þess að vera ævisaga
er heimild um atvinnulíf og sjávarút-
veg og kjör sjómanna á kreppu- og
stríðstímum. Jón Guðnason sagn-
fræöingur skráði frásögn Haralds.
Fjöldi mynda er í bókinni sem er 252
bls. að stærð. yerð kr. 2.390.
Skrifað í skýin III
Nú í vikunni kemur í bókabúðir
þriðja og síðasta bindið af minninga-
þáttum Jóhannesar R. Snorrasonar
flugstjóra, skrifað í skýin. Bókin, sem
er gefm út af Snæljósi sf. og prentuð
í Odda, er prýdd fjölda mynda, þ.á
m. litmynda. Þessi síðasta bók höf-
undar spannar tímabilið allt frá
árum sjóflugsins og þar til hann lét
af störfum í stjórnklefanum, aldurs
vegna, haustið 1980.
Snæljós sf. hefir síma 666929 í Mos-
fellsbæ. Verð kr. 2.125.
Eg .
að .
morgm
Ég græt að morgni, ævisaga
Lilian Roth
Þessi vel skrifaða og sanna ævisaga
Ustakonu lýsir því ljósUfandi hve
djúpt er hægt að sökkva í alkóhól-
isma og eiturlyf og hvernig hægt er,
með vilja og hjálp AA-samtakanna,
að koma sér til nýs lífs og til að hjájpa
öðrum.
Saga þessi hefir alltaf verið mikið
lesin, sérstaklega af þeim sem komist
hafa í snertingu við þetta mikla böl.
Þetta má einnig sjá á því að þetta er
þriðja útgáfa bókarinnar - nú í kilju-
formi. Hildur gaf út. Verð kr. 994.
Landið, sagan og sögurnar
- fyrstu aldir Islandsbyggðar í nýju
ljósi
Höfundur: Magnús Magnússon
Vaka-Helgafell gefur í dag út nýja
og glæsilega bók Magnúsar Magnús-
sonar, Landið, sagan og sögurnar.
Texti bókarinnar er alhliða frásögn
af fyrstu öldum íslandsbyggðar,
skemmtileg og fræðandi í senn, sem
sýnir fortíð okkar og þjóðararf í nýju
ljósi. Markmiðið með úgáfunni er að
bókin verði eins konar lykill aö for-
tíð þjóðarinnar. Magnús dregur upp
hrífandi myndir af landi og þjóð, af
hetjum íslendingasagnanna og þeim
mönnum sem festu þær sögur og
önnur fornrit á bókfell, af biskupum
og heiðnum höfðingjum, guðum,
konungum, seiðskröttum og þræl-
um, af djúpvitrum spekingum,
kvenskörungum og ógæfumönnum.
Hann sýnir hvernig hið hijóstuga
landslag geytnir enn minninguna um
Fjölskyldusöngvar
Um þessar mundir kemur fyrir al-
menningssjónir safn fimmtán söng-
laga er bera heitið „Fjölskyldusöngv-
ar“. Útgefandi er Steinn Stefánsson,
fyrrum skólastjóri á Seyðisfirði og
organleikari við Seyðisfjarðarkirkju.
Árið 1976 gaf Seyðisfjarðarsöfnuður
út „Tólf sönglög" eftir Stein.
Sá er munur Fjjölskyldusöngva og
fyrri bókarinnar að að þessu sinni
er meginhluti sönglaganna saminn
af Arnþrúði Ingólfsdóttur, eiginkonu
Steins Stefánssonar, en hún andaðist
árið 1964.
Fjölskyldusöngvar eru prentaðir af
Litbrá hf. og annaðist Rafn Hafnfjörö
allan frágang bókarinnar af mikilli
smekkvísi. Verð kr. 285.
Tungumálfuglanna
„Tómas Davíðsson11 (dulnefni)
Bókaforlagið Svart á hvítu sendir nú
frá sér bókina Tungumál fuglanna.
Sagan er sögð í fyrstu persónu, af
Tómasi sjálfum sem er ritstjóri á
blaðinu Helgartíðindi. Honum berast
nafnlaus bréf sem eiga eftir að hafa
afdrifaríkar afleiðingar. Tveir for-
sætisráðherrar verða að víkja.
Tungumál fuglanna er skáldsaga um
fólk, ekki lykilróman heldur skáld-
verk í sakamálastíl um fólk í stjórn-
málum, viðskiptum og fjölmiðlun.
Sakamálasagan fjallar ekki um
blóðsúthellingar heldur um pólitisk
morð, mannorðsmeiðingar, baráttu
um völd, frægð og peninga - um
mannlegt eðli, um græðgi. Verö kr.
2.190.
_______________Fréttir
Vegaáætlun
fyrir höfuð-
borgarsvæði
„Á sama tima og mestöll lands-
byggðin getur fagnað betri vegum
hefur sigiö á ógæfuhliðina á höf-
uðborgarsvæðinu,“ segir Bened-
ikt Bogason, varaþingmaður
Borgaraflokksins, í greinargerð
meö þingsályktunartillögu sem
hann hefur lagt fram um gerð
framkvæmdaáætlunar um þjóð-
vegi á höfuðborgarsvæðinu.
Aðrir þingmenn flokksins í
Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi standa að tillögunni með
honum.
Benedikt leggur til að fimm ára
áætlun veröi gerö um stofnbraut-
ir og þjóðvegi í þéttbýli á höfuð-
borgarsvæðinu í samráöi við
sveitarfélögin þar. Jafnframt
verði gerðar ákveðnar tillögur
um fjármögnun framkværad-
anna. Á árinu 1988 verði varið 360
milljónum króna f þetta verkefni.
Benedikt segir aö engum dyljist
að umferöarkerfi höfuðborgar-
svæðisins sé sprungið. Mikil
aukning umferöar á síðustu
árum hafi leitt til þess að um-
ferðaræðar stíflist á annatímum,
ferðatíminn lengist, óæskileg
umferð um safngötur og húsagöt-
ur aukist, umferðaröryggi þverri
og slysum fjölgi.
-KMU
Prentvilla í
frumvarpi
„Það var prent\úlla í frum-
varpinu eins og það var lagt
fram,“ sagði Olafur Ólafsson
landlæknir um frumvarp það til
læknalaga sem lagt var fram á
síöasta þingi en dagaði þar uppi.
Frumvarpiö hefur nú veriö end-
urflutt.
Ólafur Ólafsson, sem var form-
aður nefndar sem samdi frum-
varpiö, segir að það hafl verið
prentvilla í fyrra frumvarpinu
þar sem sagt var lækningaleyfi
félli niður viö 75 ára aldur. Þaö
hafl ekki verið í upphaflegri gerð
frumvarpsins og aldrei verið til
umræöu að lækningaleyfiö félli
niöur enda ekki hægt
Þetta ákvæöi i frumvarpinu olli
nokkrum skriftim í Læknablaðið.
Er ekki ólíklegt að þaö hafi átt
einhvern þátt í því aö frumvarpið
kqmst ekki í gegnum þingiö.
í frumvarpinu nú er gert ráð
fyrir að lækni sé ekki heirailt að
reka lækningastofu eftir 75 ára
aldur nema með sérstakri undan-
þágu til eins árs í senn.
-KMU
Vinna með námi
verði könnuð
„Alþingi ályktar að fela
menntamálaráðherra aö láta
kanna hvemig háttað er vinnu
framhaldsskólanema meðfram
námi,“ segfr' í þingsályktunartil-
lögu sem sjö þingmenn úr öllum
flokkum, undir forystu Kristínar
Halldórsdóttur, Kvennahsta,
flytja.
Þingmennimir vilja aö kannað-
ir verði þessir þættir: Fjöldi
vinnustunda á viku, hvenær sól-
arhrings störfln em unnin, kjör
og réttindi námsmanna í launa-
vinnu og ástæður þess að nemar
vinna launuö störf meö námi.
„Það er verulegt umhugsunar-
og áhyggjuefhi að svo virðist sem
launavinna framhaldsskólanema
færist sífellt í vöxt,“ segja flutn-
ingsmenn i greinargerð. Telja
þeir þessa vinnu vemlega ógnun
viö þau markmiö framhaldsskól-
anna að skila hæfum og vel
menntuöum einstakhngum út í
þjóðfélagiö og til enn meira náms.
-KMU
Viðtalið
Kristín Lilja Steinsen.
íslenskur
fjármagns-
markaður
að breytast
í kjölfar þess að Útvegsbankan-
um var breytt í hlutafélag þann
1. maí í vor var bankastjórum
fækkað úr þremur í einn. Þeirra
í staö voru ráðnir tveir fulltrúar
bankastjóra og annar þeirra er
Kristín Lilja Steinsen, þrítugur
Garðbæingur.
„Mitt verksvið innan bankans
er á fjármálasviðinu og vinn ég
einkum við að skipuleggja nýja
þjónustu og fylgjast með þeirri
þjónustu sem bankinn býður
hverju sinni,“ segir Kristín Lilja.
Hún útskrifaðist úr viðskipta-
fræði við Háskóla íslands árið
1982. Á námsárum sínum í Há-
skólanum starfaði Kristín Lilja
fyrir AIESEC skiptinemasamtök
viðskipta- og hagfræðinema. Hún
var skiptistjóri hér á landi fyrir
samtökin í eitt ár og sá um að
finna vinnu fyrir íslenska stúd-
enta á erlendri grund og eins að
taka á móti erlendum stúdentum
sem komu til að vinna hér á landi.
Sjálf fór hún á vegum samtak-
anna til Amsterdam og starfaði
þar í þrjá mánuði hjá IBM tölvu-
fyrirtækinu.
Að loknu námi hóf Kristín Lilja
störf hjá verðbréfadeild Kaup-
þings og starfaði þar næstu tvö
árin, seinna árið var hún raunar
annar tveggja framkvæmda-
stjóra Kaupþings. „En þá ákvað
ég að halda utan til framhalds-
náms í London Business School
og þaðan lauk ég MBA prófi árið
1986. Þá réð ég mig til starfa hjá
Morgan-Stanley bankanum í
New York og vann þar í eitt ár.
Það var mjög skemmtilegt að
kynnast því hvernig erlendir fjár-
festingarbankar vinna og hvern-
ig smásala og heildsala á
peningum fer fram á svo risav-
öxnum fjárfestingarmarkaði.
Ég staifaði við heildsölu á pen-
ingum og var að bjóða verðbréfa-
sjóðum og öðrum stórum
viðskiptavinum skuldabréfs til
kaups. Þetta var mjög góð reynsla
en mig langaði ekki til að setjast
að erlendis til frambúðar, enda
ærin verkefni á íslenskum pen-
ingamarkaði sem er að breytast
mikið um þessar mundir og verða
líkari því sem gerist erlendis."
- Er starf fulltrúa bankastjóra
ekki erilsamt?
„Því er ekki að neita að vinnu-
dagurinn er oft langur.'Það gefst
því lítill tími til tómstundastarfa
en ég spila badminton og eins
reyni ég að bregða mér á skíði
öðru hvoru, en engin tækifæri
hafa gefist til þess í vetur sökum
snjóleysis. Mér finnst einnig
gaman að fara á málverkasýning-
ar og hl„„ta á tónlist.
Það er mikill hugur í okkur sem
störfum við bankann og hér er
góður vinnuandi," sagði Kristín
Lilja að lokum.
-J.Mar