Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. 9 UtLönd Fylgistap stóru flokkanna Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfri: Samkvæmt nýrri skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaílokkanna í Dan- mörku, sem Vilstrup-stofnunin hefur framkvæmt fyrir dagblaöið Politi- ken, virðist fylgistap stóru flok- kanna, jafnaðarmanna og íhalds- flokks vera viövarandi. Miðað við kosningarnar þann 8. september síðastliðinn hafa báðir flokkarnir tapað tveimur prósentum af fylgi sínu og hafa nú tuttugu og sjö og nítján prósent fylgi. Sósíalistar halda styrkri stööu sinni og hafa bætt við sig rúmlega þremur prósentustigum frá kosning- unum. Aðrir flokkar hafa nær óbreyttt fylgi. Grænungar, sem ekki komust á þing í september, fá nú tvö prósent atkvæða sem er nóg til að fá allt að fjögur þingsæti. í heild hafa stjórnarflokkarnir íjór- ir um þrjátíu og sjö prósent atkvæða nú. Vinstri flokkarnir hafa fjörutíu og sjö prósent. Sósíalistar aðvara jafnaðarmenn Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfn: Sósíalistar hafa í umræðum um frumvarp dönsku ríkisstjórnarinnar til fjárlaga varað jafnaðarmenn í Danmörku við því að gera umtals- verða og langvarandi samninga við ríkisstjórnina. Á miðstjórnarfundi sósíalista var samþykkt yfirlýsing þar sem stendur meðal annars að samningar jafnaðarmanna við ríkis- stjórnina muni lengja lífdaga henn- ar. Þannig takmarkist þá endurbóta- starf til langs tíma, auk þess sem traust kjósenda til verkalýðsmeiri- hlutans, sem raunverulegs valkosts, minnki. Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- un hafa sósíalistar og jafnaðarmenn í sameiningu meira en fjörutíu og fimm prósent fylgi. Þrátt fyrir mögu- leika á rauðum meirihluta seinna meir hafa jafnaðarmenn opinberlega hafnað efnahagshugmyndum sósíál- ista algerlega. Virðast þeir ánægðir með tilþoð um samstarf við ríkis- stjórnina. Slekkur á ólympíueldinum Ásgeir Eggertsson, DV, Miinchen: Áhugi manna i Berchtesgaden á vetrarólympíuleikunum er nú end- anlega liðinn undir lok. Eftir mis- heppnaða tilraun til þess að fá leikana þangað árið 1992 má segja að allur móður sé úr sveitarstjórnar- mönnum þar. Hafa þeir nú einnig hætt viö aö sækjast eftir næstu leik- um þar á eftir. Ákvörðunin um að hætta viö að sækjast eftir ólympíuleikunum árið 1996 segja menn í Berchtesgaden vera komna til vegna ónógs stuön- ings frá v-þýsku ólympíunefndinni. Aðrir benda þó einnig á að íjalla- svæði það sem staðurinn er á sé svo viðkvæmt að það megi alls ekki við þeim ágangi sem vetrarólympíuleik- ar óhjákvæmilega hafa í för með sér. Þá leikur kostnaður af því að sækj- ast eftir ólympíuleikum einnig nokkurt hlutverk. Þegar reikning- arnir frá tilrauninni til þess að fá leikana 1992 höföu verið gerðir upp, kom í ljós að hún hafði kostað sem Nýnasistar í A-Þýskalandi Ásgeir Eggertsson, DV, Miinchen: Það sem á undanfórnum árum hef- ur verið talið óhugsandi í Austur- Þýskalandi er nú orðið að veruleika. Síðustu mánuði hefur i sívaxandi mæli borið á hópum unglinga sem liegða sér eins og versti götulýöur, brjótandi og bramlandi allt umhverf- is sig. Eigi alls fyrir löngu bar það við að rokkhljómleikar leystust upp þegar hópur krúnurakaðra unglinga efndi þar til óspekta. Sumir þessara hópa eiga það jafnvel til að halda afmælisdag Hitlers hátíðlegan og fara um götur hrópandi „Sieg heil". Yfirvöld austantjalds hafa nú við- urkennt að ekki muni allt með felldu hjá unglingunum sem flestir koma úr úthverfum stórborga. Austur-Þjóðverjar spyrja sig nú hvernig svona nokkuö geti átt sér stað í landi sem alla tíð hefur haft baráttuna gegn nasismanum efst á stefhuskrá sinni. nemur eitt hundrað og fjörutíu millj- ónum íslenskra króna. Enn eru þó nokkrar v-þýskar borg- ir sem hafa hug á að halda vetrar- ólympíuleikana árið 1996. V-þýska ólympíunefndin á þar eftir að velja úr áhugasömum héruðum. Þótt ólympíueldurinn hafi verið slökktur í Berchtesgaden lifir enn í glæðum hans á öðrum stöðum því allnokkrar umsóknir liggja nú fyrir nefndinni. Höfum aukíð úrvalíð \m m. K 5b i m m :L Nýjar gerðir sænskra úrvals- húsgagna Landsins stærsta úrval af bólstruðum húsgögnum: Hornsófar - Sófasett - Svefnsófar - Hvíldarstólar Margir litir - Góð húsgögn - Gott verð KOMIÐ, SKOÐIÐ -SJÖN ER SÖGU RÍKARI TM-HUSGOGN Síöumula 30 — Sími 68-68-22 EINSTOK MOINUSTA Við bjóðum viðskiptavinum okkar að panta sér einkatíma til að skoða úrvalið í ró og nœði, á kvöldin milli kl. 20:00 og 22:00. Opið alla laugardaga 10:00 - 14:00. Greiðslukort - afborganir. EGGERT feldskn Efst á Skólavörðustígnum, sími 11121.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.