Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. 7 DV Steinbrturinn á 80 krónur í Boulogne Bretland: Hull Bv. Ýmir landaði 25.11. og seldi alls 115 lestir fyrir 8,454 millj. kr. Þroskur 75,44 kr„ ýsa 74,26 kr„ koli 98,11 kr„ meðalverð 73,41 kr. Grimsby: Bv. Otto Wathne seldi alls 112 lestir fyrir 9,94 millj. kr„ meðalverð 88,25 kr„ þorskur 90,71 kr„ ýsa 87,34 kr„ grálúða 82,58 kr„ karfi 56,81 kr. og blandaður fiskur 82,84 kr. Hér er um að ræða ýmsan flatfisk. Selt var úr gámum, alls 829 lestir, fyrir 67,08 millj. kr. Þýskaland: Bv. Snorri Sturluson landaði í Bremerhaven 25.11., alls 196 lest- um, fyrir 10,461 millj. kr„ þorskur 76,65 kr„ ýsa 66,50 kr„ ufsi 51,06 kr. og karfi 54,77 kr. Meðalverö 53,33. Bv. Ögri seldi í Bremerhaven 1. des„ alls 177 lestir, fyrir 13,290 millj. kr. Meðalverð 74,98 kr. Er þetta hæsta meðalverð sem skip hefur fengið á markaðnum í Bre- merhaven. Boulogne: Gott verð var á fiski sem seldur var úr gámum 1. des. Alls voru seld 12 tonn af grálúðu á 95,86 kr. kg. Af steinbít voru seldar 14 lestir og var meðalverðið 79,24 kr. Lítið verður um sölu erlendis næstu daga og sennilega aðeins tvö skip sem selja afla næstu viku erlendis. Síðan munu margir bátar, sem sumir hverjir hafa verið á sfldveið- um, selja fyrir jól. London: Markaðurinn á Billinggate hefur ekki verið neitt sérstakur síðari hluta mánaðarins. Sæmilegt verð hefur verið á stórlúðu en hefur þó fallið nokkuð frá því við yorum með verð á henni síðast. Ég hef ekki enn sem komið er fengið skýr- ingu á því hvers vegna íslensk fiskflök eru alltaf á mun lægra verði en önnur fiskflök og hafa Fiskmarkaðirnir Ingólfur Stefánsson ekki komist í hærra verð en 162 kr. þegar annarra flök fara á 225 kr. kílóið. Stórlúða hefur að undan- fömu veriö á 460 til 530 kr. kílóið, smálúða 355 kr. og meðalstór lúða 431 kr. kg. París: Hart er barist á markaðnum „Rungis“ um þessar mundir. Skot- ar hafa verið með mikla kynningu á framleiðslu sinni af laxi og kaup- menn telja að skoski laxinn sé mun betri en sá norski. Telja þeir að skoski laxinn sé með mun fallegri blæ. Telur blaðafulltrúi Fiskaren að þarna hafi Norðmenn ekki stað- iö sig sem skyldi í sölumennskunni. Smáþorskur 105 til 132 kr. kg, stór þorksur 125 tfl 150 kr. kg, síld 50 kr. kg, ufsi 88 til 105 kr. kg, norskur lax 220 til 410 kr. kg og skoskur lax frá 422 til 470 kr. kg. Dusseldorf: Síðustu tölur varðandi tap vest- ur-þýska fiskiðnaðarins nema 100 millj. þýskra marka. Heildarveiði Vestur-Þjóðverja hefur minnkað um 8.708 lestir eða 12%. Af þorksi hafa aflast 25.934 lestir á móti 25.738 á síðasta ári. Af ufsa hafa veiðst 12.432 lestir á móti 13.889 í fyrra. Af karfa hafa veiðst 7.359 á móti 9.929 á síðasta ári. Af síld hafa veiðst 5.143 á móti 6.929 á síðasta ári. Af krabbadýrum hafa veiðst 2.463 á móti 2.049 á síðasta ári. Af flatfiski var einnig landað minna en á síðasta ári. Nokkur eignatil- færsla hefur oröiö í greininni. Skoska fyrirtækið Salversen hefur yfirtekið rekstur Langnese-Iglo flutningafyrirtækisins ásamt öðru. Að lokum er rætt um að Þjóðveijar æth jafnvel að setja aukna tolla á flutingavagna sem fytja fisk til Laxinn er víða vinsæll. Nú berast þau tíðindi frá Frakklandi að Skotar og Norðmenn berjist hart í sölu á laxi I París. Skotar hafa rekið harða sölustarfsemi og telja kaupmenn i heimsborginni að skoski laxinn sé bæði betri og fallegri en sá norski. Þýskalands. Lauslega þýtt og endursagt úr Fiskaren. Madrid: Að undanförnu hefur borið á því að norsk fiskflök, sem komið hafa á markað hér, hafa verið slæm vara og ekki fengist nema lítið verð fyr- ir þau. Telur fréttaritari Fiskaren að þetta þurfi ekki að vera endalok á fisksölu frá Noregi heldur þurfi að gera betur varðandi ferskleika fisksins. Bendir hann á að Danir og Hollendingar selji fisk þarna með góðum árangri. Sannast hér eins og annars staðar að gæta þarf þess að sá fiskur, sem selja á, sé fyrsta flokks. Um 20. nóvember barst á markaöinn lax frá Skot- landi og reyndist hann vera bæði horaður og með bletti á roði. Þessi lax elst upp í sjóeldiskeijum en þaö sem veldur þessu er sníkjudýr sem sest á laxinn, tærir hann og veldur blettunum á roðinu. Þessar skemmdir eru taldar algjörlega skaðlausar mönnum. Þessi smádýr eru stundum í miklu flekkjum við strendur Skotlands og írlahds. Verð á norskum laxi: stærð 3-4 kg 319-336 kr„ 4-5 kg 432 kr„ 5-6 kg 442 kr„ 6-7 kg á 464 kr. Skoskur lax 400 til 480 kr. kg. Skötuselshalar 480 kr. kílóið, þorskur 160 kr. kg. Júgóslavía: Hér í blaðinu var lauslega sagt frá ársfundi sem fiskimjölsframleið- endur héldu í Júgóslavíu nýlega. í blaðinu Fiskaren 28. nóv. er sagt frá því að fram hafi komið á um- ræddum fundi að lýsisverð hafi stigið en þaö er vegna þess aö lýsis- framleiðsla hefur minnkað miltið á árinu sem er að hða og verður, að talið er, aðeins 1,53 mihj. lesta og hefur þar með minnkað um 120.000 lestir. í Suður-Ameríku hefur veið- in minnkað verulega, þó sérstak- lega seinni hluta ársins, og tahð er að birgðir þar verði 100.000 lestum minni í árslok. Þessi samdráttur í veiði og um leið minnkandi lýsis- framleiðsla hefur það í för meö sér að birgðir af lýsi eru aðeins til 42 daga neyslu en í fyrra voru birgðir til 55 daga neyslu. Þetta mun hafa hækkandi lýsisverð í för með sér segir Fishing News. Loðnuveiðin: Heildarafli orðinn um 200 þúsund tonn Gylfi Kristjánssoh, DV, Akureyri: Mjög mikil loðnuveiði hefur verið undanfarna sólarhringa og virðist sem mjög mikið magn sé af loðnu á miðunum. Aðfaranótt þriðjudags tilkynntu 18 skip afla til loðnunefndar, alls 14.400 tonn. Veiðisvæðið er austur af Kol- beinsey og þar segja sjómenn vera mikla loðnu og heldur hún þar kyrru fyrir. Á hádegi á þriðjudag nam heildar- aflinn á vertíðinni 192.000 lestum en leyfi var gefið fyrir 500.000 lestum í haust. Afþví máttu íslendingar veiða rúmlega 400.000 lestir þannig að enn er mikið eftir af kvótanum. Hins veg- ar heimilaði ráðuneytið frekari veiðar vegna þess að um 10 bátar voru að verða búnir meö kvóta sinn og voru að verða verkefnalausir. Loðnunni, sem hefur veiðst að und- anförnu, hefur aðallega verið landaö á höfnum norðanlands frá Siglufirði til Þórshafnar. Þróarrými þar hefur hins vegar ekki nægt undanfarna sólarhringa og hafa því skipin einnig landað á Austfjörðum og sömuleiðis sunnanlands, bæði í Reykjavík og í Grindavík. 39 bátar hafa hafið veiðarnar á ver- tíðinni af 49 sem fengu úthlutaðan kvóta. Veiðarnar standa yfir fram til 18. desember en þá verður gert hlé á þeim fram yfir áramót. Atvinnumál Akureyri: Hlutafélag um kaup á Súlunni Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: Kaup Krossanesverksmiðjunnar á Akureyri á loönuskipinu Súlunni E A voru ekki afgreidd á fundi bæjar- stjórnar Akureyrar á þriðjudag eins og reiknað hafði verið með. Sigfús Jónsson bæjarstjóri sagði í samtali við DV að ákveðið hefði ver- ið að fresta afgreiðslu málsins. „Þaö hefur komið fram áö Krossanes er kaupandi að Súlunni en Krossanes- verksmiðjan er alfarið í eigu Akur- eyrarhæjar," sagði Sigfús. Hann sagði að það væri ekki mark- mið Akureyrarbæjar að stunda útgerð og standa í áhættusömum rekstri upp á eigin spýtur og því hefði verið ákveðiö að stofna hlutafélag um kaupin á skipinu. „Það er spurningin um að vinna þetta mál til enda áður en það kemur til afgreiðslu bæjarstjórnar. Við þurfum meiri tíma til að skoða mál- ið," sagði Sigfús Jónsson. Ríkismat sjávarafurða: Fæst ekki við laxa og silunga „Það hefur komið til tals á milli Ríkismats sjávarafurða og þeirra en það er ekki okkar hlutverk í dag að fást við gæðamat á laxi og silungi,“ sagði Halldór Árnason fiskmatsstjóri í samtali við DV. Halldór var spurður að því hvort til greina kæmi að Ríkismat sjávaraf- urða tæki að sér gæðaeftirlit með hafbeitar- og eldislaxi, en misbrestur hefur orðið varðandi gæði slíks fisks sem fluttur hefur verið á Bandaríkja- markað. Friðrik Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, lýsti því yfir í DV síðastliðinn laugardag að fiskeldis- menn óskuðu eftir því að Ríkismatið sinnti eftirliti með gæðum fisksins og jafnframt yrðu settar reglur uní meðferð hans. Halldór Árnason sagði að gæða- málum laxfiska svipaði mjög til annarra fisktegunda en hlutverk Ríkismatsins væri það að sinna eftir- liti með gæðum sjávarfiska en lax og silungur falla ekki undir þá skil- greiningu. Bjóst Halldór við því að Ríkismatið myndi taka málið upp við sjávarútvegsráðuneytið í framhaldi af óskum fiskeldismanna og síðan væri það ráðuneytisins að taka á- kvörðun í málinu og forma staðla og gæðakröfur ef viö óskinni yrði orðið. -ój KIRKJUFÉLAG DIGRANESPRESTAKALLS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.