Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. 45 Sviðsljós Arið gert upp Uppskeruhátíð var haldin hjá Dúfnaræktunarsambandi íslands um síðustu helgi. Hátíðin var haldin í Risinu við Hverfisgötu og voru á hátíðinni meðal annars veitt verð- laun fyrir keppni vetrarins. Dúfnaræktunarsamband íslands er orðið nokkuð öflugur félagsskap- ur og er keppt reglulega í greininni. Algengt er að keppendur eigi 10 til 20 keppnisdúfur en sumir eiga allt upp í 80 dúfur. Formaður félagsins er Guðjón Már Jónsson frá Akranesi. DV-myndir BG Viðar Jóhannsson framkvæmdastjóri, lengst til vinstri, gaf þrjá bikara til keppenda og hér eru verðiaunahafarnir Georg Machel loftskeytamaður, Hinrik Einarsson húsasmiður og Björn Ingvarsson bifreiðarstjóri. Keppendur eru á öllum aldri og þessir ungu piltar þykja efnilegir í grein- inni. Þeir unnu farandbikar fyrir bréfdúfnakeppni frá Fagurhólsmýri. Þeir heita Þórir Eggertsson og Gunnar Sigurðsson. Formaður félagsins, Guðjón Már Jónsson, er hér fyrir framan allan þann fjöfda af verðlaunapeningum sem afhentir voru á uppskeruhátíðinni fyrir keppni vetrarins. Óhrædd við ákvarðanir Það hefur aldrei verið nein lognmolla í kring um Biöncu Jagger sem áöur var gift Roll- ingnum, Mick Jagger. Hún hefur löngum lifað viðburöaríku lift og er alls óhrædd viö að prófa eitt- hvað nýtt. Hún leikur nú í vinsælum saka- málaþættí sem heitir The Colbys en nýlega gerði hún hlé á leik sínum þar. Hún er nú stödd í E1 Salvador þar sem hún er aö styöja byltíngarmenn sem ofsóttir eru af dauöasveitum hægri manna í landinu. Tveir þekktir byltingar- menn, Ungo og Samora, sem orðnir eru þjóöhetjur, en hund- eltir af dauðasveitunum, báðu Biöncu um hjálp. Hún varð strax við beiöni þeirra, skellti sér til E1 Salvador og tilkynnti dauöa- sveitunum aö ef þeir ætluðu aö drepa Ungo og Samora þyrftu þeir að drepa hana fyrst. Þannig vonast hún til þess aö vekja nógu mikla athygli á framferði dauöa- sveitanna og bjárga þessum byltingarhetjum. Bianca Jagger, sem nú er 41 árs, er borin og barnfædd í Nic- aragua þannig að hún kannast við hvernig ástandið getur verið í þessum stríðshijáðu löndum. Hún er óhrædd við að taka áhætt- ur til þess aö koma einhverju til leiöar. Sá besti í dag Robert De Nlro tók börn sín með sér á kvikmyndahátiðina i Moskvu, dótturina Drinu og soninn Raphael. ann A1 Capone (The Untouchables). í öllum þessum hlutverkum hefur hann staðið sig frábærlega og lagt mikið í leik sinn. Robert De Niro hefur alla tíð lagt á það áherslu að halda einkalífi sínu aðskildu frá leiknum. Hann á uppkomna dóttur sem er 19 ára og einnig 11 ára gamlan son með eigin- konu sinni, Diahnne Abbott. Þau hafa þó ekki búið saman lengi. Síð- ustu árin hefur Niro búið með þeldökkri konu sem heitir Toukie Smith. Hann hefur löngum veriö veikur fyrir þeldökkum fegurðar- dísum enda reyndi hann mikið til við söngkonuna Whitney Houston með litlum árangri fyrir stuttu. Kvikmyndir þær sem De Niro lék í fyrstu árin voru bannaðar í Sovét- ríkjunum því þær þóttu sýna of mikiö ofbeldi. Nú er önnur tíð síðan Glasnost slökunarstefnan kom til. Robert De Niro var fenginn til þess að stjóma nefnd kvikmyndagagn- rýnenda á kvikmyndahátíðinni í Moskvu þetta árið og er hann fyrstí útlendingurinn sem gegnir þeim starfa. Þaö má því segja að De Niro sé orðinn einn viðurkenndastí leik- ari samtíðarinnar. Robert De Niro er af mörgum talinn besti leikari heims í dag. Grunn velgengni hans má meðal annars rekja til þess að hann hefur alla tíð verið afskaplega vandlátur á hlutverk í kvikmyndum og valið ólík hlutverk án þess að festast í einhverri ákveðinni persónugerð. Hann hefur leikiö hálfgeöveilan leigubílstjóra (Taxi Driver), mis- heppnaðan boxara (Raging Bull), ástsjúkan karlmann (Falling in Love), sjálfan djöfulinn (Angel Hart), morðingja sem gerist trúboði (Mission) og í síðustu mynd sinni leikur hann sjálfan glæpahöfðingj- Ólyginn sagði... Victoria Principal sem við þekkjum sem Pamelu í Dallas hætti skyndilega fyrir nokkru að leika í þáttunum. Hún segist vera orðin hund- leið á þessari væmnu týpu sem hún hingað til hefur ver- ið látin túlka. Framleiðendur þáttanna vilja endilega fá hana aftur og hafa boðið henni 110 milljónir króna ef hún vilji snúa aftur. Victoria segir þvert nei og á meðan hafa framleiðendur þáttanna sett á svið bílslys sem Victor- ia á að hafa lent í og allt er í óvissu um bata hennar. Boy George er nýlagður af stað í hljóm- leikaför til tólf borga í Evrópu. Hljómleikaför þessi er að breytast í algjöra martröð fyrir aumingja Boy því hann virð- ist vera búinn að tapa gömlum vinsældum sínum eftir að hann lenti í eiturlyfja- vandræðum. Á best sóttu hljómleikunum til þessa tókst að selja helminginn af mið- unum en aðrir hafa verið mun verr sóttir. Skipuleggjendur þeirra eru jafnvel farnir að gefa miða á hljómleikana í örvæntingu. Peter Falk sem lék einu sinni leynilög- reglumanninn Columbo sleit samvistum við konu sína fyrir tveimur og hálfu ári. Það þótti meiri háttar mál á sínum tíma í Hollywood þegar þau slitu sambandinu í mikilli bræði. Nú eru þau tekin saman að nýju, ástfangnari en nokkru sinni fyrr en þau skildu aldrei löglega. Gamli sjarmörinn er nú sextugur að aldri en kona hans er 37 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.