Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Viðskipti______________________________________
Verð á erlendum mörkuðum:
Rotterdam er í pásu
Oliumarkaðurinn í Rotterdam er i pásu þessa dagana og litið um verð-
breytingar. Sérstaklega er áberandi hvað verð á gasolíu er lágt miðað við
árstíma. Komi kaldur desember með köldum jólum i Evrópu er þó líklegt
að veröið hækki eitthvað.
Verð á bensíni og olíu í Rotterdam
er mjög svipað í þessari viku og þeirri
síðustu. Rólegheitin eru allsráöandi
og markaðurinn greinilega í pásu frá
verðsveiflum. Það er sérstaklega
áberandi hvað verð á gasolíu er lágt
miðað við árstíma. Komi kaldur des-
ember með köldum jólum í Evrópu
er þó líklegt að verðið hækki eitthvað
en annars er það einkennandi fyrir
markaðinn að nóg virðist til af olíu.
Verð á hráolíu úr Norðursjónum,
Brent, var í fyrradag í kringum 17,80
dollarar tunnan. í síðustu viku var
verðið um 18,20 dollarar, eftir aö
hafa verið 17,80 dollarar í vikunni
þar áöur. Fyrir rúmum mánuði var
verðið um 19 dollarar tunnan sem
sýnir að verðið hefur lækkað um
rúman dollar og þar sem offramboð
blasir við á markaðnum í vetur bend-
ir allt til aö verðið lækki meira.
Aðeins meira um verð olíu og bens-
íns í Rotterdam: Fyrir mánuði var
verðið um 8 dollurum hærra að jafn-
aði á tonninu af bensíni og gasolíu.
Tonnið af venjulegu bensíni var þá
um 166 dollarar en er núna um 156
dollarar, af súper-bensíni um 185
dollarar en er núna um 177 dollarar
og tonniö af gasolíu var um 164 doll-
arar en er núrta um 159 dollarar.
Gullið hækkar í verði hægt og síg-
andi. Það var í London í gær á um
490 dollara únsan en fyrir mánuði
var únsan á um 469 dollara.
Álverðið í London síðastliðinn
fóstudag var komið niður í 922 sterl-
ingspund tonnið. Að undanförnu
hefur verðið á áltonninu rokkað frá
um 930 í um 950 sterlingspund. Svo
virðist sem verðlækkunin á álinu
hafi fest sig í sessi en eins og menn
muna var verðið komið í um 1250
sterlingspund fyrir um einum og
hálfum mánuði.
Tonnið af sojamjölinu hefur hækk-
að örlítið að undanförnu og er það
nú í kringum 220 dollarar tonnið í
Chicago. Stutt er síðan sjá mátti verð
eins og um 200 dollara og 180 dollara
fyrir tonnið. -JGH
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæöur
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæöur
sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir
eru verðtryggöir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert inn-
legg bundiö í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóöum eða almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 23%
og ársávöxtun 23%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3%
bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar
upp í 27%. Hvert innlegg er meöhöndlað sérs-
taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja
mánaöa verðtryggðra reikninga, nú með 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaóarbankinn: Gullbók er óbundin með 33%
nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun á óhreyföri
innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings
með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiörétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mán-
uði á 34,5% nafnvöxtum og 37,5% ársávöxtun,
eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings meö 4,0%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs-
árslega.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverö-
tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru
3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju
sex mánaóa tímabili. Vextir færast misserislega
á höfuöstól.
18 mánaða bundinn relkningur er með 34%
nafnvöxtum og 34% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 33%
nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða
stofndegi reiknings síðar greióast 34,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 37,4%) eftir 16 mánuði og
35% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 38,1%). Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,85% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Vextir fær-
ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
Stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuöina 20%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6
mánuði 31 %, eftir 24 mánuði 33% eöa ársávöxt-
un 35,72%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða
verðtryggóum reikningum gildir hún um há-
vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuöstól 30.6.
og 31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 32% nafn-
vexti og 34,56% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verötryggðs
reiknings reynist b'etri gildir hún. Vextir færast
hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggöra reikninga í bankanum,
nú 32,83% (ársávöxtun 34,51%), eöa ávöxtun
3ja mánaöa verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er gerður mánaðarlega og vaxtaábótinni
bætt við höfuöstól, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Heimilt er aö
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekíö út af reikningnum í 18-36 mánuði tek-
ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaöar með
hærri ábót. Óverðtryggö ársávöxtun kemst þá
( 35,12-36,95%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankínn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan
ársfjóröung, ber 29,0% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefa 32,31% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6
mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 4%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara '„kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa veriö á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum
sem hér segir:
Við eina úttekt ( ársfjórðungi reiknast almennir
sparisjóösvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Só reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfö út fjórðunginn. Reikning-
ur, sem stofnaöur er s(ðar fær til bráðabirgöa
almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunniö
sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil-
yrðum.
Sparisjóöir: Trompreikningur er verötryggöur
og meö ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5%
nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða
er geröur samanburður á ávöxtun með svoköll-
uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa
32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæöur innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaöa,
annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverö-
trygQÖa, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verötryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð-
tryggöa ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með innstæðu
bundna í 18 mánuði óverötryggða á 32% nafn-
vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6
mánaöa verötryggðs reiknings, nú meö 5,0%
vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirói,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd. Neskaupstað,
Patreksfiröi og Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in «ru ýmist verðtryggð eöa óverðtryggð og
með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviöskipta eru 20% eða meöalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð-
tryggingu.
Húsnæóislán
Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins
getur numið 2.755.000 krónum á 4. ársfjórð-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt Ibúð á
síöustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt Ibúð á sl. þrem
árum, annars 1.350.000 krónum:
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru
3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur
og vextir, slðan hefjast afborganir af lánunum
jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir,
vexti og lánstíma. Stysti tími aö lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóöir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggö og með 5-9% vöxtum,
algengastir eru meöalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eöa
safna lánsrétti frá fyrri sjóöum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir ( heilt ár og reiknaöir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö-
ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir
og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum verður innstæöan (lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæöan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel oröið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uði. Þá veröur upphæðin 1050 krónur og ofan
á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð-
ina. Á endanum verður innstæöan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 4,1 % á mánuði eða 49,2% á ári.
Vísitölur
Lántkjaravíaitala I desember 1987 er 1886
stig en var 1841 stig i nóvember. Miðaö er við
grunninn 100 I júnl 1979.
Bygglngarvialtala fyrir desember 1987 er 344
stig á grunninum 100 frá 1983, en 107,5 á
grunni 100 frá júll 1987.
Húaalelguvialtala hækkaði um 5% 1. okt. Þessi
visitala mælir aöeins hækkun húsaleigu þar sem
við hana er miðað sérstaklega I samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vlsitölunnar
miðast við meöaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 20-22 Lb.lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 20-24 Úb
6 mán. uppsögn 22-26 Ab
12mán.uppsögn 24-30.5 Úb
18mán. uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb
Sértékkareikningar 10-23 Ib
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb,
Innlán með sérkjör- 19-34,5 Lb,Vb Úb
um Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-7,25 Ab.Sb,
Sterlingspund 7,75-9 Vb AbVb,
Vestur-þýsk mörk 3-3,5 Sb Ab,Sp,
Danskarkrónur 8,75-9 Vb Allir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) nema Bbog Sp lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) . 33-34 Sp
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 36eða
Almenn skuldabréf kaupgengi 35-36 Úb.Vb,
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Sb.Sp Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 35-39 Sp
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 9,5 Allir
Útlán til framleiðslu
Isl.krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Bandarikjadalir 9-10,5 Vb
Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49,2 4,1 á
MEÐALVEXTIR mán.
Óverótr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala des. 1886 stig
Byggingavísitala des.. 344stig
Byggingavisitalades. 107,5stig
Húsaleiguvisitala Hækkaöi 5% 1 I. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,3261
Einingabréf 1 2,482
Einingabréf 2 1,453
Einingabréf 3 1,532
Fjölþjóðabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,459
Lífeyrisbréf 1.248
Markbréf 1,259
Sjóðsbréf 1 1,195
Sjóösbréf 2 1,154
Tekjubréf 1,288
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119kr.
Iðnaðarbankinn 143kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. þf. 160kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miöaö við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýöubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Hraður
akstur veldur oft
alvarlegum slysum
UMFEFfÐAR
RÁÐ
DV
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensín og olía
Verö í Rotterdam, fob., 1. des.
Bensín, venjul.....156$ tonnið
eöa um......4,36 ísl. kr. lítrinn
Bensín, súper...177,50$ tonnið
eöa um......4,93 ísl. kr. lítrinn
Gasolía..........159,5$ tonnið
eöa um......4,99 ísl. kr. tonniö
Hráolía
Verö í Rotterdam, fob., 1. des.
Um........17,80 dollarar tunnan
eða um.......655 ísl. kr. tunnan
Gull
Verð í London 2. des.
Um..........490 dollarar únsan
eöa um......18.032 ísl. kr. únsan
Al
Verö á áli í London 27. nóv.
Um.....922 sterlingspund tonniö
eöa um....61.221 ísl. kr. tonnið
Ull
Verð í Sydney, Ástralíu
Um.................890 cent kílóiö
eða um...........327 ísl. kr. kílóiö
Bómull
Verð á bómull í New York
Um...............71 cent pundið
eða um..........57 ísl. kr. kílóið
Hrásykur
Verö í London
Um...........202 dollarar tonnið
eða um......7.434 ísl. kr. tonnið
Sojamjöl
Verð í Chicago
Um..........220 dollarar tonnið
eða um......8.096 ísl. kr. tonnið
Kaffibaunir
Um............116 cent pundið
eða um.........94 ísl. kr. kílóið